Dagur - 07.03.1992, Blaðsíða 14

Dagur - 07.03.1992, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Laugardagur 7. mars 1992 Dulspeki Einar Guomann er orðið um staðreyndirnar? Hvað Það var ætlun mín að segja frá lítilli múmíu sem fannst inn í kletti í Wymong í Bandaríkjun- um og er merkileg fyrir margra liluta sakir. Ekki einungis fyrir það hvar hún fannst, hvernig og hvernig hún leit út, heldur einnig hvernig ýmislegt hefur skolast til í frásögnum af henni. Pegar ég fór að kanna þær heimildir sem ég hafði um þessa múmíu fann ég tvær ljósmyndir af henni í sitt hvoru ritinu. Munur- inn var hins vegar sá, að í öðru ritinu er sagt réttilega frá öllum helstu staðreyndum sem vitað er um hana - sem ég mun segja betur frá hér á eftir - en í hinu ritinu er sagt að ljósmyndin af múmíunni sé talin vera af dauð- um flugmanni fljúgandi furðu- hluts sem átti að hafa hrapað nálægt Mexícó City á sjötta áratugnum. Þeirri sögu fylgdi einnig sú fullyrðing að farið hefði verið með þessa veru til Þýskalands til rannsókna en aldrei hefði spurst af henni eftir það. Þegar svona er komið þar sem tvær sögur stangast svona harkalega á er ekki laust við að ýmsar spurningar fari að sækja á mann. Hvernig koma upp svona misbrestir? Eru menn farnir að hagræða ljósmyndum og staðreyndum eftir því sem athyglisverðast þykir? Það er í það minnsta ljóst að sögu þess- arar múmíu hefur verið hagrætt á frekar skáldsagnakenndan hátt. En víkjum nú að liinni réttu sögu af múmíunni. Við skulum í það minnsta vona að það sé ekki enn ein skáldsagan. Hún mun vera um þrjátíu og fimm sentimetrar á hæð og þeir vís- indamenn sem rannsökuðu hana fullyrtu að aldrei hefðu þeir séð svo smáan einstakling. Það voru gullleitarmenn í Pedro fjöllunum í Wymong í Banda- ríkjunum sem fundu hana í okt- óber 1932. Þeir voru að skoða ummerki sprengingar í kletti þegar þeir rákust á lítinn helli. Þar sat múmían á syllu. Maður- inn var lítill og skorpinn og sat með krosslagða fætur og hend- urnar í kjöltu sér. Annað augað var opið til hálfs en hitt galopið. Múmíunni var komið í hend- ur vísindamanna sem voru ákaf- lega tortryggnir út í þetta mál. Það vafðist að sjálfsögðu fyrir þeim hvernig hægt væri að jarð- setja múmíu inni í heilum kletti. Þess vegna héldu þeir að um væri að ræða eitthvert svindl. En þegar þeir höfðu rannsakað hana duglega með röntgenmyndatöku, kom hið sanna í Ijós. Á þeim var greini- legt að þessi litla vera var raun- verulega maður. Á myndunum sáust greinilega brjóstkassi, hryggur, höfuðkúpubein, fót- og handleggjabein. Þegar hann hafði lifað hafði hann verið um þrjátíu og fimm sentimetrar á hæð en nú var hann einungis fjögur hundruð grömm. Á myndunum kom einnig fram að tennur voru á sínum stað í kjálkunum og sérfræðingar áætluðu að hann hefði verið um sextán ára þegar hann dó. Starfsmenn Harvard háskólans voru meðal þeirra sem rannsök- uðu múmíuna og komust að þeirri niðurstöðu að ekki væri um fölsun eða einhvers konar svindl að ræða. Mannfræðingurinn Dr. Henry Shapiro segir uppruna múmí- unnar algerlega óþekktan. Hún sé of lítil til þess að hægt sé að finna henni stað í mannkyns- sögunni. Talið var að múmían væri svipuð og þær egypsku fyr- ir utan það að hún var ekki vaf- in í klæði til þess að varna því að loft léki um hana. Annar mannfræðingur að nafni Henry Fairfield segir að múmían geti verið einn forföður nútíma- mannsins sem lifði á meginlandi Norður-Ameríku um miðbik fyrra Tertíertímabilsins. Hellirinn sem múmían fannst í var að sjálfsögðu rannsakaður hátt og Iágt, en það fundust engin merki um að þar hefðu menn dvalist. Þar var einungis steinsyllan sem maðurinn hafði setið á öldum saman. Ein af þeim skýringum sem komið hafa fram á tilvist þessar- ar múmíu er sú að náttúran skapi stundum afbrigðilegar líf- verur og að þessi maður hafi verið það sérstakur meðal þjóð- ar sinnar að þar hafi verið kom- in ástæðan fyrir því að honum hafi verið komið svo tryggilega fyrir. í dag situr þessi múmía í glerkassa á safni í þorpinu Casper og glottir framan í áhorfendur og enn hefur enginn komið með fullnægjandi skýr- ingu á tilvist hennar. Hvort er þetta mynd af dauðum flugmanni fljúgandi furðuhlutar eða múmíunni dularfullu? Af því fer tvennum sögum. Frá Húsnæðisnefnd Akureyrarbæjar Húsnæðisnefnd Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í byggingu félagslegra íbúða vegna framkvæmda á árinu 1992. Útboð þetta er gert með fyrirvara um fjárveitingu til félagslegra íbúðarbygginga frá Húsnæðisstofnun ríkisins. Öll gögn liggja frammi hjá Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, Skipagötu 12. Tilboðum skal skila á Húsnæðisskrifstofuna fyrir 1. apríl 1992. RARIK RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS ÚTBOÐ Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í að byggja aðveitustöðvarhús á Eskifirði. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Rafmagns- veitna ríkisins við Þverkletta 2, Egilsstöðum og Laugavegi 118, Reykjavík frá og með þriðjudeginum 10. mars 1992 gegn kr. 10.000 skilatryggingu. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins á Egilsstöðum fyrir kl. 14.00, miðvikudaginn 25. mars 1992 og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda, sem þess óska. Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu „RARIK 92001, Eskifjörður aðveitustöð". Reykjavík, 6. mars 1992. RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS. BYGGINGAVORUR LÓNSBAKKA Málningartilboö Veitum 15% staðgreiðsluafslátt af öllum málningarvörum (málningu, penslum, rúllum o.fl.) ★ Tilboðið gildir frá 9.-21. mars 601 Akurevri • *SSr 96-30321 & 96-30326 • Fax 96-27813

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.