Dagur - 31.03.1992, Page 4
4 - DAGUR - Þriðjudagur 31. mars 1992
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir),
ÓL.I G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130),
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON
LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Saimleikanum verður
hver sárreiðastur
Skömmu fyrir síðustu alþingiskosningar hélt Stein-
grímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins
og þáverandi forsætisráðherra, því fram að lesa mætti
út úr stefnuskrá Alþýðuflokksins og málflutningi ein-
stakra forystumanna hans í kosningabaráttunni, að
Alþýðuflokkurinn hefði hug á að ísland gerðist aðili
að Evrópubandalaginu. Þessi yfirlýsing Steingríms
olli á sínum tíma miklum taugatitringi meðal Alþýðu-
flokksmanna. Um það leyti sem Jón Baldvin Hanni-
balsson, formaður Alþýðuflokksins, var að ljúka
stjórnarmyndun með Sjálfstæðisflokknum lýsti hann
því yfir í fjölmiðlum að fyrrnefnd fullyrðing Steingríms
Hermannssonar væri ein meginástæðan fyrir því að
Alþýðuflokkurinn teldi sér ekki fært að halda fyrra
stjórnarsamstarfi áfram. Steingrímur hefði vísvitandi
farið með ósannandi í garð Alþýðuflokksins. Athyglis-
vert er að rifja þessa deilu upp nú, í Ijósi síðustu at-
burða. Ef marka má skýrslu um utanríkismál, sem
fyrrnefndur Jón Baldvin Hannibalsson, núverandi ut-
anríkisráðherra, hefur lagt fyrir Alþingi, boðar ríkis-
stjórnin stefnubreytingu gagnvart hugsanlegri aðild
íslands að Evrópubandalaginu. í skýrslunni segir ut-
anríkisráðherra að með því að hafna inngöngu í Evr-
ópubandalagið alfarið sem valkosti séu íslendingar
„að slá hendinni á móti möguleikum til aukinna áhrifa
á mótun ákvarðana, sem munu hafa áhrif á framtíð ís-
lands, hvort sem það er aðili eða ekki. Því fylgir
einnig valdaafsal að standa utan EB,“ segir í skýrslu
utanríkisráðherra. Þar segir ennfremur: „En það er
umhugsunarvert að ísland er nú að verða viðskila við
norræna samvinnu, því önnur Norðurlönd meta það
svo að nú sé lag til þess að ganga inn í EB sem ekki
gefist aftur. Því er nauðsynlegt að fram fari hér í ráðu-
neytinu og stjórnarstofnunum ítarleg úttekt á því
hvað EB aðild hefði í för með sér. Að lokinni slíkri út-
tekt verður fyrst hægt að hafna aðildarkostinum að
vandlega athuguðu máli. “ Af tilvitnuðu köflunum úr
skýrslu utanríkisráðherra er ljóst að ráðherrann er alls
ekki fráhverfur því að ísland gerist aðili að EB.
Reyndar segir hann að nauðsynlegt sé að ráðuneyti
og stjórnarstofnanir kanni ítarlega kosti og galla EB
aðildar, væntanlega sem fyrst. Orðalag skýrslunnar
ber það með sér að könnunin eigi að fara fram undir
þeim formerkjum að aðild að EB sé hinn jákvæði kost-
ur, sem alls ekki megi hafna nema að vandlega yfir-
veguðu máli.
Með skýrslu sinni er utanríkisráðherra að gera til-
raun til að fara með þetta mikilsverða mál „annan
hring“. íslendingar hafa þegar ákveðið að aðild að EB
komi ekki til greina. Davíð Oddsson forsætisráðherra
hefur meira að segja lýst því yfir að aðild að EB verði
ekki tekin á dagskrá hjá ríkisstjórninni á yfirstand-
andi kjörtímabili. Þá yfirlýsingu gaf hann m.a. vegna
áðurnefndrar fullyrðingar Steingríms Hermannssonar
í síðustu kosningabaráttu. Hins vegar hefur Jón
Baldvin Hannibalsson nú staðfest með skýrslu sinni
að fullyrðing Steingríms um afstöðu forystu Alþýðu-
flokksins til EB aðildar var á rökum reist. Hér sannast
hið fornkveðna að sannleikanum verður hver sár-
reiðastur. BB
MENOR - menningar-
dagskrá í apríl
f w- irjwiv- a . I
Miðvikudagur 1. apríl
- Bifröst Sauðárkróki kl. 21:
Sæluvika Skagfirðinga, Rökkur-
kórinn syngur undir stjóm Sveins
Amasonar, einsöngvari Jóhann
Már Jóhannsson.
Föstudagur 3. apríl
- íþróttahúsið Sauðárkróki kl.
21: Sæluvika Skagfirðinga,
Skagfirska söngsveitin í Reykja-
vík syngur Vínar- og ópemtónlist
undir stjóm Björgvins Þ. Valdi-
marssonar, einsöngvarar Halla S.
Jónsdóttir, Fríður Sigurðardóttir,
Svanhildur Sveinbjömsdóttir,
Guðmundur Sigurðsson og
Ragnheiður Fjeldsted.
- Bifröst Sauðárkróki kl. 23:
Sæluvika Skagfirðinga, gömlu
dansamir, hljómsveit Geirmund-
ar leikur fyrir dansi.
Laugardagur 4. apríl
- Akureyrarkirkja kl. 12: Há-
degistónleikar, ritningarlestur,
Bjöm Steinar Sólbergsson leikur
á orgel verk eftir Bach og Liszt.
Léttur hádegisverður í Safnaðar-
heimili á eftir.
- Glerárkirkja kl. 14: Lúðrasveit
Akureyrar, 50 ára afmælistón-
leikar, stjómandi Atli Guðlaugs-
son, gestir Lúðrasveit Hafnar-
fjarðar.
- Félagsheimilið Blönduósi kl.
16: Kammerhljómsveit Akureyr-
ar, stjómandi Öm Óskarsson,
einleikari Sigrún Eðvaldsdóttir
fíðluleikari, Richard Simm og
Tom Higgerson píanó. Verk eftir
Saint-Saens, Mendelsohn, A.
Copland.
- Miðgarður í Skagafirði kl. 21:
Sæluvika Skagfirðinga Söng-
skemmtun kl. 20.30. Karlakór-
inn Heimir, Rökkurkórinn, Skag-
fírska söngsveitin.
- Bláhvammur Skipagötu Akur-
eyri kl. 21.30: Harmoníkutón-
leikar, Félag harmoníkuunnenda
við Eyjafjörð og Harmoníkufélag
Þingeyinga. Dansleikur á eftir
með harmoníkuleik.
- Hlíðarbær, Akureyri, kl. 21:
Arshátíð söngsins á vegum
Mánakórsins. Matur og kaffi
(Matargestir þurfa að panta miða
í símum 25462 og 26838). Kór-
söngur, X-tríóið, fjöldasöngur
gesta, stjómendur Gordon Jack
og Birgir H. Arason. Herramenn
leika fyrir dansi frá kl. 23.30.
Allir velkomnir.
Sunnudagur 5. apríl
- Félagsheimilið Skúlagarður í
Kelduhverfi kl. 15: Söngmót
Kirkjukórasambands N-Þingeyj-
arsýslu. Sex kórar syngja. Stjóm-
endur: Björg Bjömsdóttir, Krist-
veig Bjömsdóttir, Vigdís Sigurð-
ardóttir, Margrét Bóasdóttir.
- íþróttaskemman á Akureyri kl.
17: Kammerhljómsveit Akureyr-
ar, stjómandi Öm Óskarsson,
einleikarar Sigrún Eðvaldsdóttir
fiðluleikari, Richard Simm og
Tom Higgerson píanó. Verk eftir
Saint-Saéns, Mendelsohn, A.
Copland
Fimmtudagur 9. apríl
- Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju kl. 20.30: Vortónleikar
Kórs Menntaskólans á Akureyri,
stjómandi Hólmfn'ður Benedikts-
dóttir, einsöngur og hljóðfæra-
leikur á vegum kórfélaga og
nemenda M.A. Dórothea Dagný
Tómasdóttir, píanó. Verk eftir
Mozart, Dowland, Carl Orff,
Beatles og fl.
Laugardagur 11. apríl
- Ásbyrgi í Miðfirði kl. 21: Árleg
söngskemmtun Karlakórsins
Lóuþrælar og kvennakórsins
Sandlóumar, stjómandi Ólöf
Pálsdóttir, Elínborg Sigurgeirs-
dóttir, píanó, gestir Galgopar frá
Akureyri.
Miðvikudagur 15. apríl
- Hótel Vertshús, Hvammstanga,
kl. 21: Tónlistarfélag V-Húna-
vatnssýslu. Blúsbandið Trega-
sveitin.
Miðvikudagur 22. apríl
(síðasti vetrardagur)
- Freyvangur í Eyjafjarðarsveit
kl. 21: Söngskemmtun: Galgopar
og Sigrún Hjálmtýsdóttir, Hljóm-
sveit Finns Eydal leikur fyrir
dansi á eftir.
Föstudagur 24. apríl
- Á sal Tónlistarskólans á Akur-
eyri kl. 20.30: Tónleikar nem-
enda á efri stigum söngdeildar
Tónlistarskólans á Akureyri. Er-
lend efnisskrá frá öllum tíma-
bilum söngbókmenntanna.
Laugardagur 25. apríl
- Tjamarborg Ólafsfirði kl. 21:
Kirkjukór Ólafsfjarðar (í tilefni
af væntanlegri ferð kórsins til
Finnlands, Litháens og Póllands í
sumar). . Kórsöngur, tvísöngur,
píanóleikur Lidia Kolosowska,
stjómandi Jakub Kolosowski. Á
efniskrá em íslensk lög.
Sunnudagur 26. apríl
- Akureyrarkirkja kl. 20.30:
Passíukórinn, stjómandi Roar
Kvam. Flutt verður Misa Criolla
eftir Ariel Ramirez og O, Sing
onto the Lord eftir Handel.
- Dalvíkurkirkja kl. 20.30:
Kirkjukór Dalvíkurkirkju, stjóm-
andi Hlín Torfadóttir. Á efnisskrá
er Requiem eftir Fauré og verk
eftir Mozart.
Mánudagur 27. apríl
- Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju kl. 20.00: Vortónleikar
söngdeildar (milli 30 og 40 nem-
endur) Tónlistarskólans á Akur-
eyrar. íslensk sönglagahátíð í til-
efni af ári söngsins.
Föstudagur 1. maí
- Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju kl. 14: Tónleikar forskóla-
deildar Tónlistarskólans á Akur-
eyri.
- Akureyrarkirkja kl. 20.30:
Kirkjukór Akraneskirkju, stjóm-
andi Jón Ólafur Sigurðsson, orgel
Orthulf Pmnner. Requiem og
Cantique de Jean Racine eftir
Fauré.
Laugardagur 2. maí
- Akureyrarkirkja kl. 12: Há-
degistónleikar, ritningarlestur,
léttur hádegisverður. Bjöm
Steinar Sólbergsson leikur á
orgel verk eftir Bach og Gigout.
Sunnudagur 3. maí
- Ýdalir í Aðaldal kl. 15: Tón-
leikar að afloknu móti íslenskra
kvennakóra. Kvennakórinn
Lissý, stjómandi Margrét Bóas-
dóttir. Kvennakór Siglufjarðar,
Allir þeir sem standa að hvers konar
list- og menningarstarfi á Norður-
landi eru hvattir til að tilkynna við-
burði næsta mánaðar til tengiliða
Menor, eigi síðar en síðasta þriðjudag
hvers mánaðar.
Tengiliöir Menor eru:
N-Þingeyjarsýsla: Anna Helgadóttir,
símar 96-52108/ 52105.
S-Þingeyjarsýsla: Sigurður Hall-
marsson, sími 96-41123.
stjómandi Elías Þorvaldsson.
Kvennakór Suðumesja, stjóm-
andi Sigvaldi S. Kaldalóns.
Freyjukórinn Borgarfirði, stjóm-
andi Bjami Guðráðsson.
Kvennakór úr Rangárvallasýslu,
stjómandi Margrét Runólfsson.
Leikfélag Akureyrar
íslandsklukkan eftir Halldór Lax-
ness, leikstjóm og leikgerð
Sunna Borg. Fim. 2. apríl kl.
17.00, fös. 3. apríl, laug. 4.
apríl, kl. 17.00, aðrar dagsetn-
ingar auglýstar síðar. Upplýsing-
ar og miðasala í síma 24073 kl.
14-18 alla daga nema mánudaga.
Leikfélag Húsavíkur
Gaukshreiðrið eftir Dale Wass-
erman. Fös. 3. apríl kl. 20.30,
laug. 4. apríl kl. 15.00, síðustu
sýningar. 9-11. aprfi verða 3 sýn-
ingar í Bæjarbíói í Hafnarfirði.
Upplýsingar og miðasala í síma
41129 kl. 17-19.
Freyvangsleikhúsið
Freyvangur Eyjafjarðarsveit:
Messías mannssonur, Rokk-
ópera. Fim. 2. apríl, fös. 3. apríl,
laug. 4. apríl, kl. 20.30 sun. 5.
apríl. kl. 15.00, aðrar dagsetn-
ingar auglýstar síðar. Upplýsing-
ar og miðasala í síma 31196.
Ungmennafélagið Efling
Breiðumýri í Reykjadal: Fugl í
búri eftir Iðunni og Kristínu
Steinsdætur og Kona eftir Dario
Fo, leikstjóri María Sigurðardótt-
ir. Fös. 3. apríl kl. 21.00, laug 4.
apríl kl. 15.00, sun. 5. apríl kl.
21. Upplýsingar og miðasala í
síma 43110 kl. 13-16 og 43145
sýningardagana.
Leikfélag Menntaskólans á
Akureyri
Samkomuhúsið Akureyri: Betl-
araóperan eftir John Gay, leik-
stjóri Jón Stefán Kristjánsson.
Frumsýning þriðjudag 28. apríl
kl. 20.30, mið. 29. apríl, fim. 30.
apríl kl. 20.30.
Gallerí Allrahanda
Listagili á Akureyri. Opið 14-18
virka daga.
Safnahúsið á Sauðárkróki
Sæluvika Skagfirðinga: Elías B.
Halldórsson sýnir grafík og
olíumálverk. Opið kl.15-19 virka
daga og 14-18 um helgar.
Sæluvika Skagfirðinga, Sauðár-
króki: Ingaló eftir Asdísi Thor-
oddsen.
Akureyri/Eyjafjörður: Hrefna
Harðardóttir,
símar 96-21788/25642.
Siglufjörður: Elías Þorvaldsson,
símar 96-71224/71319.
Skagafjörður: Ólafur Halldórsson,
sími 95-38056.
A-Húnavatnssýsla: Vignir Einarsson,
símar 95-24147/ 24310.
V-Húnavatnssýsla: Sveinn
Bjömsson, sími 95-12486.
(Geymiö listann).
Hafið samband við
tengiliði Menor!