Dagur - 31.03.1992, Blaðsíða 10

Dagur - 31.03.1992, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 31. mars 1992 Jón Haukur Brynjólfsson Iþróttir Stórleikur Miklosko bjargaði West Ham - Man. Utd. enn tveimur stigum á eftir Leeds Utd. - Durie skoraði og Tottenham vann! Enn æsist ieikurinn í ensku knattspyrnunni og spennan á toppnum virðist nú setja svip sinn á leik efstu liðanna tveggja í 1. deild sem berjast um titilinn. Allir ieikir þeirra hafa nú á sér svip úrslitaleiks og það gefur mótherjunum aukinn kraft. Þá eru liðin sem berjast við botninn stórhættuleg og berjast upp á líf og dauða fyrir hverju stigi. Það má því að venju búast við mörg- um óvæntum úrslitum á loka- sprettinum. En skoðum þá leiki Iaugardagsins. • Topplið Leeds Utd. fékk botn- lið West Ham í heimsókn á Elland Road þar sem taugaspenna beggja liða setti mark sitt á leikinn. Leeds Utd. hefði átt að vinna leikinn, en West Ham hefði einnig getað sigr- að og markalausa jafnteflið kom hvorugu liðinu vel. Leeds Utd. var langt frá sínu besta, en hefði þrátt fyrir það átt að vinna öruggan sigur og hefði gert það ef ekki hefði komið til stórleikur Ludek Mikl- osko í marki West Ham. Fimm sinnum í síðari hálfleik bjargaði hann meistaralega eftir nær stöð- uga sókn heimaliðsins allan síðari hálfleikinn, en ef Lee Chapman hefði ekki misnotað dauðafæri hjá Leeds Utd. í fyrri hálfleik hefði iið- ið losnað úr taugaspennunni. Eric Cantona sýndi frábæra takta hjá Leeds Utd. og virtist líklegastur leikmanna liðsins til að opna þétta vöm West Ham. Þá var barátta Gordon Strachan og David Batty á miðjunni með ólíkindum og liðið verður ekki sakað um að hafa ekki lagt sig fram, en það dugði ekki að þessu sinni. • Manchester Utd. fékk það erf- iða verkefni að sækja heim lið Q.P.R. sem hafði burstað Utd. á Old Trafford 4:1 á nýársdag. Nú gekk þó betur og þrátt fyrir marka- laust jafntefli var leikurinn spenn- andi og vel leikinn. Man. Utd. var heppið í fyrri hálfleik er skot Andy Impey hjá Q.P.R. hafnaði í stöng, en í þeim síðari fékk Andrej Kant- chelkis gott færi fyrir Man. Utd. eftir mjög góða hælsendingu Ryan Giggs. Q.P R. sótti mun meira í leiknum og liðið er greinilega í uppsveiflu, en vöm Man. Utd. var þétt fyrir og varðist öllu sem að Urslit Zenith-bikariim Nottingham For.-Southamplon 3:2 1. deild Aston Villa-Norwich 1:0 Leeds Utd.-West Ham 0:0 Manchester City-Chelsea 0:0 Notts County-Crystal Palace 2:3 Oldham-Sheffield Wed. 3:0 Q J’iL-Manchester Utd. 0:0 ShefField Utd.-Liverpool 2:0 Tottenham-Coventry 4:3 Wimbledon-Arsenal 1:3 2. deild Tranmere-Leicester 1:2 Barnsley-Blackburn 2:1 Brighton-Cambridge 1:1 Bristol City-Oxford 1:1 Charlton-Middlesbrough 0:0 Ipswich-Derby 2:1 Port Vale-Plymouth 1:0 Portsmouth-Swindon 1:1 Southend-Grimsby 3:1 Watford-Bristol Rovers 1:0 Wolves-Millwall 0:0 Newcastie-Sunderland 1:0 Úrslit í vikunni: 2. deild Derby-Plymouth 2:0 þeim kom, en Utd. liðið mátti vera ánægt með jafnteflið og enn sem fyrr er staða liðsins mun vænlegri en keppinautanna frá Leeds og ólíklegt að liðið láti meistaratitil- inn ganga sér úr greipum. • Loks kom heimasigur hjá Tottenham og það sem meira var, Gordon Durie skoraði í deildaleik í fyrsta sinn frá því fyrir jól og hann hafði mörkin þrjú í leiknum gegn Coventry. Fyrsta markið gerði Durie á 6. mín., en Shaun Flynn jafnaði fyrir Coventry á 24. mín. Gary Lineker náði forystunni fyrir Tottenham að nýju með skalla og á síðustu mín. fyrri hálfleiks bætti Durie þriðja marki liðsins við. Öll hætta virtist liðin hjá Tottenham, en Coventry hafði ekki gefist upp og David Smith lagaði stöðuna í 3:2, en Durie fullkomnaði þá þrennu sína og staðan orðin 4:2 fyrir Tottenham. Lloyd McGrath minnkaði síðan muninn í 4:3 með marki fyrir Coventry og síðustu 5 mín. leiksins fóru að mestu fram Gary Lineker skallar hér boltann framhjá Steve Ogrizovic, markverði Coventry, í 4:3 sigri Tottenham. innan vítateigs Tottenham, en lið- inu tókst að halda út og tryggja sér þennan mikilvæga sigur. • Arsenal vann öruggan útisigur Scott Gemmill var maðurinn á bak við sigur Nott. For. í úrslitaleik Zenith bikarsins gegn Southampton. Zenith bíkarínn í safn Nott. Forest Úrslitaleikurinn í hinni um- deildu Zenith bikarkeppni fór fram á Wembley á sunnudaginn að viðstöddum um 68.000 áhorf- endum. Nottingham For. sigraði lið Southampton 3:2 eftir fram- lengdan leik, en þessi bikar- keppni var sett á fót fyrir 1. og 2. deildarliðin eftir að ensku liðin voru dæmd í bann í Evrópu- keppnunum. Leikurinn hófst rólega, en virtist fljótt vera afgreiddur er Forest náði 2:0 forystu í fyrri hálfleik. Sout- hampton gafst þó ekki upp og náði að jafna í 2:2 í síðari hálfleik og var nærri því að tryggja sér sigur. Andy Marriott, sem lék í marki Forest, varði naumlega þrumuskot Terry Hurlock á lokamínútum leiksins og leikurinn því fram- lengdur. Archie Gemmill, þjálfari Forest, sá son sinn, Scott Gemmill, ná forystunni á 15. mín. með við- stöðulausu skoti eftir homspymu og síðan tryggja Forest sigurinn í leiknum er 8 mín. vom eftir af framlengingunni og vítaspymu- keppni blasti við. Gemmill átti einnig stungusendingu í gegnum vöm Southampton sem Kingsley Black skoraði úr annað mark Forest rétt fyrir hlé og þá héldu flestir að leikurinn væri unninn hjá Forest. En annað kom á daginn og góð skallamörk frá Matthew Le Tissier og miðverðinum Kevin Moore gáfu Southampton færi á óvæntum sigri. En jafnvel án Stuart Pearce, fyrirliða síns, sem meiddist á 17. mín. náði Forest að tryggja sér sigur í lokin, enda liðið ekki óvænt því að leika úrslitaleiki á Wembley. • Þá var á sunnudag leikur í 2. deild þar sem Newcastle sigraði nágranna sína og aðalkeppinauta, Sunderland, með eina marki leiks- ins. Þ.L.A. á Wimbledon og sigur liðsins var aldrei í hættu eftir að hafa náð 2:0 forskoti á fyrstu 7 mín. leiksins. Ray Parlour skoraði strax á fyrstu mín., en vamarmenn Wimbledon töldu hann þó rangstæðan og Ian Wright bætti öðm marki við fyrir Arsenal áður en vamarmenn Wimbledon höfðu jafnað sig á fyrra markinu. Robbie Earle skor- aði fyrir Wimbledon á 61. mín., en 4 mín. síðar skallaði Kevin Camp-, bell inn eftir sendingu Anders Limpar þriðja mark Arsenal og gulltryggði sigur liðsins. • Öldham vann ömggan sigur gegn Sheff. Wed. sem nú virðist hafa misst alla von um að krækja í efsta sætið. Graeme Sharp gerði fyrsta mark Oldham á 3. mín. og leikmenn Sheffield-liðsins virtust gefast upp. Richard Jobson bætti öðm marki Oldham við með skalla á 55. mín. og lokaorðið átti Neil Adams 10 mín. síðar, en Rick Holden lagði upp öll mörkin. • Liverpool reið ekki feitum hesti frá viðureign sinni gegn Sheff. Utd. Heimamenn nýttu sér vel slakan vamarleik Liverpool og Brian Deane skoraði tvívegis fyrir Sheff. Utd. án þess að Liverpool tækist að svara. Fyrra markið gerði Deane af löngu færi eftir að Bmce Grobbelaar, markvörður Liver- pool, hafði farið í skógarferð út fyrir vítateig, fengið skot í brjóstið, sem hrökk fyrir fætur Deane, sem þakkaði gott boð og sendi boltann í netið. • Manchester City hefur ekki gengið sem best að undanfömu og varð að láta markalaust jafntefli á heimavelli gegn Chelsea duga. City hefur nú misst af öllum mögu- leikum á titlinum, en liðið getur þó haft þar áhrif því að bæði Leeds Utd. og Man. Utd. eiga eftir að leika gegn Man. City. • Ekki vantaði mörkin í leik Notts County og Crystal Palace sem lauk með 3:2 sigri Palace og County virðist á leið í 2. deild. Það byrjaði þó vel hjá County, liðið komst í 2:0 með mörkum Craig Short og Kevin Wilson sem liðið keypti frá Chelsea í vikunni. Pal- ace hafði þó ekki gefist upp, þeir Chris Coleman og Mark Bright náðu að jafna í 2:2. En það var síð- an Paul Mortimer sem tryggði Pal- ace sigurinn með þriðja marki liðs- ins undir lok leiksins. • Aston Villa hefur gengið mjög illa að skora í undanfömum leikj- um og það blés ekki byrlega lengi vel í leiknum gegn Norwich. Steve Staunton tókst þó loks að brjóta ís- inn undir lok leiksins með heppnis- marki sem reyndist sigurmark leiksins. 2. deild • Kenny Dalglish og gullkálfamir hans hjá Blackbum hafa nú misst efsta sætið í deildinni eftir tap gegn Bamsley. Duncan Shearer, sem liðið keypti frá Swindon fyrir 700.000 pund í vikunni, kom þó Blackbum yfir í leiknum. • Ipswich undir stjóm John Lyall, sem lengi var stjóri hjá West Ham með góðum árangri, er nú komið í efsta sætið. Tvö mörk Jason Dozzell dugðu gegn einu marki frá Paul Simpson fyrir Derby. • Peter Shilton og lið hans Ply- mouth er nú komið í mikla fall- hættu í deildinni. • Wolves tókst ekki að sigra Millwall þrátt fyrir að Alex Rae, leikmaður Millwall, væri rekinn út af. Þ.L.A. Staðan 1. deild Leeds Utd. 36 18-15- 3 65:31 69 Manchester Utd. 34 18-13- 3 53:24 67 Sheflield Wednesday 35 17- 9- 9 54:48 60 Livcrpool 34 14-13- 7 38:31 55 Arsenal 34 14-12- 8 59:38 54 Manchester City 35 15- 9-11 45:42 54 Crystal Palace 36 12-13-11 47:55 49 Nottingham For. 32 14- 8-1049:42 47 QPR 36 10-17- 941:39 47 Aslon Villa 35 13- 8-14 36:36 47 Everton 35 11-13-11 45:39 46 Chelsea 36 11-13-12 43:49 46 Oldham 36 12- 8-16 55:58 44 Norwich 35 11-11-13 44:48 44 Sheffield Utd. 34 12- 7-15 52:54 43 Wimbledon 35 10-13-12 40:44 43 Coventry 35 10-10-15 34:37 40 Tottenham 33 11- 6-16 42:46 39 Southampton 33 9-10-14 32:46 37 Luton 35 7-11-18 28:59 32 Notts County 35 7-10-18 35:50 31 West Ham 33 6-10-17 28:48 29 2. deild Ipswich 37 19-10- 8 56:39 67 Blackburn 38 19- 9-10 59:40 66 Cambridge 39 17-14- 8 54:37 65 Middlesbrough 35 17-10- 8 43:29 61 Leicester 37 17- 8-12 48:44 59 Charlton 38 17- 8-13 46:42 59 Portsmouth 37 16-10-11 56:42 58 Derby 38 17- 7-14 53:45 58 Southend 39 16- 9-14 57:51 57 Swindon 38 15-11-12 63:51 56 Wolves 37 14-10-13 46:41 52 Bamsley 38 14- 9-1531:45 51 Watford 38 14- 8-16 40:42 50 Miliwall 38 14- 8-16 54:62 50 Tranmere 36 11-15-10 42:43 48 Bristol Rovers 39 12-12-15 46:56 48 Newcastle 39 11-13-15 56:66 46 Sunderland 36 12- 7-17 48:51 43 Grimsby 37 11-10-16 42:54 43 Bristol City 39 10-13-15 42:56 43 Oxford 38 11- 8-19 55:60 41 Plymouth 38 11- 8-19 35:53 41 Brighton 39 10-10-19 47:63 40 Port Vale 39 8-13-18 35:51 37

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.