Dagur - 31.03.1992, Síða 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 31. mars 1992
Aðalfundur
Aðalfundur íslandsbanka hf., árib 1992, verbur hald-
inn í Súlnasal, Hótel Sögu, mánudaginn 6. apríl 1992
og hefst kl. 16.30.
Dagskrá:
1. Abalfundarstörf í samræmi vib 19. gr. samþykkta
bankans.
2. Tillögur til breytinga á samþykktum bankans.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Abgöngumiðar ab fundinum og atkvæbaseblar verba
afhentir hluthöfum eba umbobsmönnum þeirra í úti-
búi íslandsbanka, Kringlunni 7, 1., 2. og 3. apríl næst- ^
komandi kl. 9.15-16.00 svo og á fundardegi. ~
Ársreikningur félagsins fyrir árib 1991, ásamt tillögum <
þeim sem fyrir fundinum liggja, verður hluthöfum til ?
sýnis á sama stab.
Reykjavík, 20. mars 1992.
Bankaráb íslandsbanka hf.
ÍSLANDSBANKI
r
ÚTBOÐ
VEGAGERÐIN
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboð-
um í eftirtalin tvö verk á Norðuriandi
vestra:
1. Hegranesvegur 1992.
Lengd kafla 1,8 km, magn 14.500 m3.
2. Siglufjarðarvegur 1992.
Lengd kafla 6,2 km, magn 78.000 m3.
Verkum þessum skal lokið 30. september
1992.
Útboðsgögn fyrir bæði verkin verða afhent
hjá Vegagerð ríkisins á Sauðárkróki og í
Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjaldkera) frá
og með 31. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl.
14.00 þann 13. apríl 1992.
Vegamálastjóri.
J
.t—
Systir okkar,
GUÐRÚN HALLDÓRSDÓTTIR,
lést 29. mars í Seli.
Ingibjörg og Lára Halldórsdætur.
Eiginmaður minn og faðir okkar,
FRIÐJÓN ÓLAFSSON,
Hafnarstræti 71, Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju, miðvikudaginn 1. apríl,
kl. 13.30.
Brynhildur Stefánsdóttir,
Ingibjörg Friðjónsdóttir,
Magni Fríðjónsson.
Móðursystir m(n,
ANNA STEFÁNSDÓTTIR,
frá Eyjardalsá,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn 3. apríl, kl.
13.30.
Heiður Vigfúsdóttir.
Kvikmyndarýni
Jón Hjaltason
Fordómar
Borgarbíó sýnir:
Aldrei án dóttur minnar
(Not Without My Daughter).
Leikstjóri: Brian Gilbert.
Aðalhlutverk: Sally Field, Alfred Mol-
ina, Sheila Rosenthal og Roshan Seth.
Pathe Entertainment 1990.
Hversu oft hefur því ekki verið
haldið fram að lík böm leiki best -
þetta er víst vísdómur úr Biblíunni
- og að engan veginn beri að
stuðla að blöndun kynþáttanna.
Ólíkir menningarheimar séu oft á
tíðum slíkar andstæður að engin
von sé um brúarbyggingu þar á
milli, jafnvel þó ástin leggi til
smíðaefnið. Öfgamenn bregða yfir
sig sauðagæru og predika vísdóm
um að það sé öllum fyrir bestu að
þeldökkir búi í dökkra manna
landi, brúnir í brúnra manna landi,
gulir hjá gulum, rauðir hjá rauðum
og hvítir meðal sinna líkra; ef út
af þessu sé bmgðið leiði það til
vandræða og blóðsúthellinga. Því
miður á þessi speki sér stoð í
raunveruleikanum. Kannski væri
það öllum fyrir bestu að hafa
sandkassana einlita eða hvað?
Aldrei án dóttur minnar er kvik-
mynd um þennan sambúðarvanda
ólíkra kynþátta. Þetta er áhrifa-
mikil mynd, að sögn byggð á
sönnum atburðum og það verður
aldrei af henni skafið að nógu trú-
verðug er hún. Þetta er jafnframt
spennumynd en spennan er aldrei
þessi þægilegi ertandi straumur í
hjartanu, þvert á móti er hún ert-
andi, óþægileg. Sagan er einföld;
hjón (Sally Field og Alfred Mol-
ina) eiga sér eitt bam, hann er
læknir, hún heimavinnandi. Þau
eru búsett í Bandaríkjunum, hún
er þar í heimahögum sínum en
hann er ættaður frá íran. írakar
ráðast á írani og allt fer á annan
endan. Þrátt fyrir að hafa byrjað
átökin þá var Saddam Hussein
hetja Vesturlandamanna á þessum
árum, um leið var Khomeini kall-.
aður öllum illum nöfnum.
Vistin í Bandaríkjunum gerist
Molina erfið og þar kemur að
hann fær talið konu sína á að
heimsækja ættingja í Iran. Ferðin
á aðeins að standa í tvær vikur en
í íran tekur atburðarásin aðra
stefnu. Molina vill ekki fara heim
aftur og kúgar konu sína til að
setjast að í Iran. Aldrei án dóttur
minnar er sagan um baráttu móður
við fjandsamlegt ríkiskerfi,
grimmlyndan eiginmann, einstæð-
ingsskap og ótta. Hún vill fara
heim aftur en ekki án ungrar dótt-
ur sinnar.
Aldrei hef ég séð kvikmynd sem
er jafn sneisafull af mikilvægum
smaátriðum og Aldrei án dóttur
minnar er; leggið við því augu og
eyru sem er að gerast í bakgrunni;
hafið í huga allar staðhátta- og
siðalýsingar er ber fyrir. Ekki
horfa eins og kýr á leið heim úr
haga; ekkert er auðveldara en að
hneykslast og fordæma Islam og
áhangendur hans en hafið t.d. í
huga að læknirinn er (eftir því
sem myndin segir) hrakinn frá
Bandaríkjunum. Hann er öðruvísi,
frá öðrum menningarheimi, en
hann reynir hvað hann getur að
samlagast en mætir aðeins fjand-
skap á vinnustað. í íran berst
læknirinn einnig við kynþáttafor-
dóma; þrátt fyrir stríðið og skort á
læknum á hann erfitt með að fá
vinnu í heimalandi sínu; hann er
kvæntur bandarískri konu og er
því tortryggilegur.
Leggið við því hlustir sem sagt er;
fjölskylda læknisins er fábrotið
sveitafólk og öfgakennt í trú sinni.
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra hefur í dag ritað Páli Hjart-
arsyni siglingamálastjóra bréf
með ósk um greinargerð um
Við matarborðið segir háskólapró-
fessorinn allt of mikla áherslu
lagða á tiltekna klæðavenju
islamskra kvenna. Fleira mætti
telja upp í þessum dúr en það er
fleira sem við verðum að hyggja
að. Er sennilegt að Islam feli í sér
einhverja þá ógn er réttlæti þann
hræðsluáróður gegn islamstrúar-
mönnum er tröllriðið hefur Vest-
urlöndum hin síðari ár? Ef marka
má Aldrei án dóttur minnar þá er,
eða var samfélagið sem Khomeini
k(3m á í íran alls ekki byggt á ein-
hug og þegjandi samþykki allra
íbúa. Vopnaðir verðir fylla allar
götur, unglingar eru gripnir þar
sem þeir eru að leik, smalað upp í
bfla og keyrt á vígstöðvamar þar
sem þeir eru jafnvel notaðir til að
fara um jarðsprengjusvæði á und-
an hermönnunum - þetta er skelf-
ingarsamfélag þar sem vopnin
tala.
í raun er Islam ekkert vömmerki
fyrir skelfingu. Sannleikurinn er
sá að trúarbrögð em í kjama sín-
um andfúl. Þau halda fram sann-
leika sem allir verða að fallast á
annars em þeir trúvillingar, fjand-
menn og réttdræpir þegar tíminn
kemur. Umburðarlyndi er ekki til.
Sá sem segist hafa fundið sann-
leikann, allan sannleikann og ekk-
ert nema sannleikann lætur aldrei
af honum og þegar bætist við að
þessi sannleikur gerir mennina
frjálsa þá hefur boðandinn ekkert
svigrúm til að sýna umburðar-
lyndi.
notkun slökkviefnisins Halon
1301 í skipum og um þær leiðir
sem greina koma til þess að notk-
un á Halon 1301 sé hætt svo fljótt
sem kostur er.
Samkvæmt reglum nr. 260/
1969 um slökkvibúnað í skipum
er kveðið á um slökkvikerfi sem
sé vatnsýrikerfi, C02 kerfi eða
kvoðukerfi. Ekki er kveðið á um
að Halon skuli notað.
Samkvæmt reglum nr. 522/
1984 er heimilt að nota Halon
1301 sem slökkvibúnað í skipum.
Siglingamálastofnun viðurkennir
búnað sem settur er í skip og hef-
ur umsjón með öllu eftirliti. Við-
gerðir og viðhald er hins vegar í
höndum seljenda búnaðarins eða
umboðsmanna þeirra.
Eins og málum er háttað í dag
á að takmarka notkun Halons
bæði í skipum og á landi sam-
kvæmt Montreal samþykkt. Þar
er gert ráð fyrir að notkun á Halon
1301 verði um 50% af núverandi
notkun árið 1995 og að árið 2000
verði ekki lengur notað Halon
1301.
Samkvæmt 17. samþykkt IMO
(International Maritime Organ-
ization) er gert ráð fyrir að upp-
setning nýrra kerfa verði ekki
heimiluð eftir 1. júlí 1992 og
tímamörk að öðru leyti í sam-
ræmi við Montreal samþykktina.
Halon er ósoneyðandi efni, en
jafnframt besta slökkviefni sem
fáanlegt er til notkunar þar sem í
senn er mannaumferð og við-
kvæmur rafeindabúnaður, eins
og er til dæmis í vélarrúmum
skipa. Af þessum sökum hefur
samgönguráðherra óskað eftir
því að siglingamálastjóri geri
grein fyrir þeim kostum sem til
greina koma til þess að hætta
notkun efnisins.
Framsóknarvist
Spilakvöld
Þriggja kvölda keppni
Þriðja spilakvöld.
Framsóknarvist að Hótel KEA
miðvikudaginn 1. apríl kl. 20.30.
Kvöldverðlaun fyrir hvert kvöld.
Góð heildarverðlaun fyrir öll þrjú kvöldin.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Akureyrar.
Halldór Blöndal, samgönguráðherra:
Óskar greinargerðar um notkun
slökkviefiiisins Halon í skipum