Dagur - 14.04.1992, Page 2

Dagur - 14.04.1992, Page 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 14. apríl 1992 Fréttir Andrésar Andar leikarnir í Hlíðarflalli: „Að leik í leit að keppnisskíðamönnmn framtíðar - segir Kristinn G. Lórenzson, formaður framkvæmdanefndar 44 Andrésar Andar leikarnir á skíðum hefjast miðvikudaginn 22. apríl nk. Leikarnir eru langfjölmennasta skíðamót sem haldið er á landinu í ár. Þátttakendur eru 739, á aldrin- um 6-12 ára, frá 16 héruðum. Starfsmenn mótsins eru vel á annað hundrað. Dagskrá Andrésar Andar leik- anna hefst miðvikudaginn 22. apríl kl. 18,00 með skrúðgöngu frá Lundarskóla að íþróttahöll- inni. Við mótssetningu flytur sr. Hannes Örn Blandon andakt og Húsavík: Bæjarmala- punktar ■ Bæjarráð hefur samþykkt að styrkja íþróttasamband fatlaðra um kr. 50.000 vegna þátttöku fatlaðs íþróttafólks á Ólympíuleikum fatlaðra á Spáni. ■ Bæjarráð hefur samþykkt að barnaheimilið Bestibær verði lokaö vegna sumarleyfa á tímabilinu 13. júlí til 11. ágúst. ■ Bæjarráð hefur samþykkt að beina því til bygginga- nefndar að hún taki til athug- unar að götuheitinu „Ásgarðs- vegur" á Húsavík verði breytt í „Ásgarð." ■ Bæjarstjóri kynnti á fundi bæjarráðs nýlega, tillögu að samningi við íþróttafélagið Völsung um rekstur íþrótta- valla bæjarins á árinu 1992. Bæjarráð samþykkti tillöguna og heimilaði bæjarstjóra að ganga frá samningum. ■ Landbúnaðarráðherra hef- ur lýst vilja sínum til að sett veröi upp á Húsavík útstöð eða útibú frá Landgræðslunni með einum starfsmanni til að byrja með. Bæjarráð fagnar þessum fyrirætlunum og lýsir yfir vilja sínum til að stuðla að því í samvinnu við ráðuneytið og landgræðsluna að þessar áætlanir geti orðið að veru- leika. ■ Stjórn framkvæmdalána- sjóðs hefur samþykkt að leggja til við bæjarstjórn að sjóðurinn kaupi hlutabréf FH f íshafi hf. og Höfða hf., í íshafi kr. 10.000.000 á genginu 4,50 og í Höfða kr. 10.000.000 á genginu 1,53. ■ Byggingancfnd hefur hafn- að erindi frá Kaupfélagi Þing- eyinga, með þremur atkvæð- um gegn tveimur, þar sem KÞ sækir um leyfi til að byggja viðbyggingu við matvöruversl- un sína að Garðarsbraut 5. Um er að ræða létta byggingu, (límtrésbyggingu) á steyptum sökklum og með steypta plötu, alls 585,9 ferm. ■ Byggingancfnd hefur hafn- að erindi frá íbúum að Stóra- garði 9, þar sem sótt er um leyfi til að fella fjögur 5 metra há birkitré á lóðarmörkum milli Stóragarðs 7 og 9, vegna bílastæðafratnkvæmda. ■ Á fundi húsnæðisnefndar nýlega, kom fram að nefndin mun afhenda 12 nýjar íbúðir á þessu ári. Sótt hefur verið um framkvæmdalán fyrir 6 íbúð- um, nýjum eða notuöum. Miðað við að sú umsókn verði tekin til greina, telur nefndin að markaðurinn sé nokkuð mettaður við núverandi ástand. Vilhelm Már Þorsteinsson, skíða- maðurinn knái frá Akureyri, set- ur leikana. Keppnin hefst morg- unin eftir með stórsvigi sjö og átta ára. Hlíðarfjall verður undirlagt vegna leikanna fram á laugardag, en verðlaunaafhending verður í íþróttahöllinni að kvöldi hvers keppnisdags. Keppendur munu búa flestir í Lundarskóla, en einnig í íþróttahöllinni og frá þessum stöðum verður ekið með krakkana í rútum á mótsstaðinn í Hlíðarfjalli. Styrktaraðilar mótsins eru þrír, þ.e. Pepsí á íslandi, Vaka- Helgafell og Alsport. „Andrésar Andar leikarnir í ár eru þeir 17. sem haldnir eru og þeir næst fjölmennustu hingað til. Leikarnir voru fyrst haldnir 1975 og þá voru keppendur rúm- lega 100. Nú er fjöldinn kominn yfir 700 og þess má vænta að hann aukist enn, slíkar eru vin- sældirnar. Við lítum fyrst og fremst á Andrésar Andar leik- ana sem leik á skíðum, en því ber þó ekki að neita að við erum einnig að leita að keppnisskíða- mönnum framtíðarinnar. í Alpa- greinum taka þátt 694 krakkar, í göngu 48 og í stökki 66,“ sagði Kristinn G. Lórenzson, formaður framkvæmdanefndar Andrésar Andarleikanna í Hlíðarfjalli. ój Kristinn G. Lórenzsson, ívar Sigmundsson og Friðrik Adolfsson allir úr framkvæmdastjórn Andrésar Andar leikanna. , Framhaldsskólarnir í Þingeyjarsýslu: „I imnuin huga er ekki vamarbarátta heldur sókn“ - segir Birkir Þorkelsson, skólameistari Ný framhaldsskólastefna fyrir Þingeyjarsýslur var til umræðu á ráðstefnu um skólamál sem Framhaldsskólinn á Laugum og Framhaldsskólinn á Húsa- vík stóðu fyrir á Húsavík sl. föstudag. Ráðstefnan var nokkuð vel sótt af sveitar- stjórnamönnum og áhugafólki um skólamál. Frummælendur á ráðstefnunni voru 18, auk þess sem nokkrir tóku til máls undir liðnum önnur mál. Á döfinni er samstarf og verka- skipting milli skólanna og aðild sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum að báðum skólunum. Ekki eru allir fullkomlega sammála um fyrirhugað samkomulag, en á ráðstefnunni komu sjónarmið manna í Ijós og hún hefur án efa þjónað tilgangi sínum á þann hátt að fræða og upplýsa þátttakendur um ýmsar hliðar skólamálanna í héraði. í lok ráðstefnunnar var flutt til- laga um skipan sjö manna nefnd- ar sem halda muni áfram að kanna hugsanlega verkaskiptingu skólanna og námsframboð þeirra, og hvort og þá með hvaða hætti sveitarfélögin sameinist um framhaldsskólana. Þessi nefnd skal vera skipuð tveimur fulltrú- um frá hvorri hérðaðsnefnd, ein- um fulltúa frá hvorum skóla og einum fulltrúa frá Húsavíkurbæ. „Mér fannst ráðstefnan ákaf- lega þörf og gagnleg þegar til lengri tíma er litið. Það er heil- mikið verk óunnið í héraðinu en það þýðir ekkert að láta deigan síga heldur verður að halda áfram og stilla saman strengina til átaka í þessum málum. í mínum huga er ekki til varnarbarátta í skólamálunum heldur bara sókn. Því fyrr sem menn átta sig á stöðu mála, því betra,“ sagði Guðmundur Birkir Porkelsson, skólameistari á Húsavík, aðspurður um áhrif ráðstefnunn- ar. „Ráðstefnan var fyrst og fremst umræðuvettvangur til að gefa skólamönnum og ráða- mönnum tækifæri til að tjá sig um þessi málefni. Við ætluðum að reyna að útskrifa á næsta ári tíu nemendur eftir fjögra ára nám á framhaldsbraut en mér heyrðist á ráðherra að það væri þyngra fyrir fæti með þetta en ég átti von á. Það þýðir ekkert að við séum búnir að gefast upp. í heild var ég mjög ánægður með ráðstefnuna og ég held að hún hafi verið mjög upplýsandi, við erum búnir að vinna grunnhugmyndir í átt að skólaskipulagi og þarna voru þær kynntar,“ sagði Hannes Hilmars- son, skólameistari á Laugum, aðspurður um álit sitt á ráðstefn- unni. IM Níu sóttu um starf flugmálastjóra Skák____________ Helgarskákmót á Akureyri Alls bárust 9 umsóknir um starf flugmálastjóra, sem nýlega var auglýst laust til umsóknar en umsóknarfrestur rann út 10. apríl sl. Eftirtaldir aðilar sóttu um stöðuna: Erling Aspelund, starfs- mannastjóri hjá SIS, Grétar H. Óskarsson, framkvæmdastjóri hjá Flugmálastjórn, Guðmundur Matthíasson, framkvæmdastjóri hjá Flugmálastjórn, Haukur Hauksson, varaflugmálastjóri, Hörður Hafsteinsson, flugmað- ur, Pórður Óskarsson, flugum- sjónarmaður, Þórður Örn Sig- urðsson, framkvæmdastjóri hjá Flugmálastjórn, Þorgeir Pálsson, prófessor og Þorsteinn Þorsteins- son, verkfræðingur. -KK Norræn nemendakeppni þjóna- og matreiðslunema: Þjónanemi af Fiðlaranum sigraði Helgarskákmót hefst á Akur- eyri á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 23. aprfl. Tefld- ar verða sjö umferðir eftir Monrad kerfi. Umhugsunar- tími er 1 klst. og 30 mínútur á 36 leiki og síðan 30 mínútur til að Ijúka skákinni. Fyrsta umferð hefst kl. 14 á sumardaginn fyrsta og önnur umferð kl. 20 sama dag. Föstu- daginn 24. apríl verður teflt kl. 16 og 21, laugardaginn 25. apríl Sjöunda og síðasta 15 mínútna stigamót Skákfélags Akureyr- ar var haldið sl. sunnudag. Rúnar Sigurpálsson sigraði með glæsibrag, fékk 8 vinninga af 8 mögulegum. Þórleifur Karlsson varð annar með 6'/2 v., Sigurjón Sigurbjörnsson fékk 5V2 og Sveinbjörn Sig- urðsson 4. Fimm bestu mótin hjá hverjum kl. 10 og 16 og lokaumferðin hefst kl. 10 sunnudaginn 26. apríl. Heildarverðlaun eru ríflega 60 þúsund krónur og er mótið öllum opið. Þremur skákmönnum hefur verið boðið sérstaklega á mótið og þekktastur þeirra er Halldór G. Einarsson frá Bolungarvík. Nánari upplýsingar um mótið má fá í síma 96-23635 en sem fyrr segir er helgarskákmótið öllum opið. SS og einum í vetur telja í stigagjöf- inni og lokastaðan varð þessi: 1. Rúnar Sigurpálsson 42 stig. 2. Þórleifur K. Karlsson 34 stig. 3. Sigurjón Sigurbjörnsson 25 stig. Þessir þrír röðuðu sér í verð- launasætin og var reyndar orðið ljóst að Rúnar og Þórleifur myndu vinna til verðlauna en nokkur barátta var um þriðja sætið. SS Um helgma fór fram í Finn- landi, norræn nemendakeppni á vegum nefndar hótel- og veitingahúsa og hótel- og veit- ingaskóla á Norðurlöndum. Tveir íslenskir keppendur, þau Sigmar Örn Ingólfsson og Rebekka Jane Clarke, gerðu sér lítið fyrir og unnu gullverð- laun í keppni þjónanema. Sigmar Örn er að læra á Fiðlar- anum á Akureyri en Rebekka á Hótel Óðinsvé í Reykjavík. Auk þess kepptu matreiðslu- nemar í þessari norrænu keppni og þar höfnuðu íslensku kepp- endurnir tveir í þriðja sæti. Til þátttöku í þessari keppni var boðið tveimur þjónanemum og tveimur matreiðslunemum. íslensku keppendurnir höfðu áður unnið samskonar keppni hér heima, í Hótel- og veitinga- skólanum. Keppnin hófst á föstudag og stóð fram á sunnudag. Dóm- nefnd var skipuð fyrirliðum allra liða, að því undanskildu að dóm- urum var ekki heimilt að dæma eigið lið. -KK Grenivík: Minnisvarði um drukknaða sjómenn Sunnudaginn 14. júní, á sjó- mannadaginn, verður afhjúp- aður minnisvarði um drukkn- aða sjómenn, í kirkjugarðinum á Grenivík. Minnsivarðinn er gerður af Jón Sigurpálssyni, myndlistarmanni á ísafirði. Það eru tvö félög á Grenivík sem standa fyrir gerð minnisvarð- ans, Kvenfélagið Hlín og Lions- klúbburinn Þengill. Kostnaður- inn við verkið er meiri en klúbb- arnir tveir ráða við og því verður einnig leitað eftir frjálsum fram- lögum. -KK Stigamót Skákfélags Akureyrar: Rúnar Sigurpálsson hreppti efsta sætið - fékk fullt hús á síðasta mótinu

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.