Dagur - 14.04.1992, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 14. apríl 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Akureyri:
Bæjarmáia-
punktar
■ Bæjarráð hefur samþykkt
samningsuppkast viö Möl og
sand hf. um kaup á 13.000
tonnum af steinefni til gatna-
gerðar. Kaupverð er kr
12.525.000.
■ Yfirverkfræðingur bæjarins
lagði fram tillögu að malbikun
gangstétta á árinu 1992 á fundi
bæjarráðs fyrir helgi. Samtals
er um að ræða malbikun 8000
fermetra að upphæð 8.0 millj-
ónir króna. Bæjarráð sam-
þykkti tillöguna.
■ Bæjarráð hefur farið þess á
leit við Samband ísl. sveitar-
félaga að teknar verði upp við-
ræður við Iðnaðarráðuneytið
um möguleika þess að koma á
fót svokölluðum fríiðnaðar-
svæðum hér á landi.
■ Skipulagsnefnd tók fyrir að
nýju fyrir skömmu, erindi frá
Svani Eiríkssyni arkitekt, f.h.
stjórnar kirkjugarða, þar sem
óskað er eftir að fá að stað-
setja líkhús og kapellu á Höfð-
anum við kirkjugarðinn. Meiri-
hluti skipulagsnefndar mælir
með því að orðið verði við
erindinu. Hallgrímur Indriða-
son, skipulagsnefndarmaður,
lét m.a. bóka að hann gæti
ekki fallist á hugmyndir um
fyrirhugaðar byggingafram-
kvæmdir á meibrún ofan
Aðalstrætis og Lækjargötu.
Hann taldi byggingafram-
kvæmdir varasamar á þessum
stöðum vegna skriðhættu, auk
þess sem byggingar væru mjög
áberandi og skaða svipmikið
landslag svæðisins.
■ Hafnarstjórn kaus sér nýj-
an formann á fundi sínum
nýlega, í stað Gunnars Ara-
sonar, sem gegnt hefur for-
mennsku í stjórninni í nær sex
ár. Fyrir valinu varð Jónas
Þorsteinsson.
■ Hafnarstjórn sanvþykkti til-
lögu hafnarstjóra um kaup á
flotbryggju og landgangi frá
„Króla“, samtals að upphæð
kr. 1.166.300. Flotbryggja
þessi er aðallega keypt til að
auðvelda landgöngu farþega
af skemmtiferðaskipum er
koma tii Akureyrar.
■ íþrótta- og tómstundaráð
samþykkti á fundi sínum
nýlega að fela starfsmönnum
Akureyrarvallar að gera nauð-
synlegar lagfæringar á Sana-
velli, skipta um marknet o.fl.
■ Atvinnumálanefnd ræddi
nýlega á fundi sfnum mögu-
leika á því að fá fyrirtæki til
þess að flytja starfsemi sína til
Akureyrar. Samþykkt var að
skipa starfshóp til að vinna að
þessu máli. í starfshópinn
voru skipaðir, Jón Gauti
Jónsson, Guömundur Ómar
Pétursson og Guðmundur
Stefánsson.
■ Jafnréttisfulltrúi greindi á
fundi jafnréttisnefndar nýlega,
frá ákvörðun kennarafundar
GA um að ekki verði kennt í
kynjaskiptum deildum í 8.
bekk næsta vetur. Jafnréttis-
nefnd lýsti vonbrigðum sínum
með þá ákvörðun, þar sem
ljóst er að tímabundin kennsla
í kynjaskiptum deildum kem-
ur stúikum örugglega til góða
og ekki verður séð að dreng-
irnir tapi á því.
Plaströraverksmiðja keypt:
Frá Kópavogi á Krókúin
- fyrstu snjóbræðslurörin þegar seld
Nokkrir aðilar á Sauðárkróki
hafa keypt Kóbra-plast hf. í
Kópavogi en það fyrirtæki hef-
ur einkum framleitt snjó-
bræðslurör. Kaupin voru
ákveðin í síðustu viku og í
næsta mánuði flyst framleiðsl-
an norður á Sauðárkrók. Fyrst
um sinn verða rörin framleidd í
Kópavogi og hafa nýju eigend-
urnir þegar selt fyrstu fram-
leiðsluna, 2500 metra af snjó-
bræðslurörum.
Þegar Dagur leit við í Kóbra-
plasti sl. föstudag var verið að
framleiða á fullu og aðaleigend-
urnir allir mættir á staðinn. Þeir
Ásbjörn Skarphéðinsson, raf-
virki, Björn Bjarnason, vörubif-
reiðarstjóri, og Jón Geirmunds-
son, pípulagningamaður. Ýmsir
aðilar á Sauðárkróki skipta með
sér fjórða hlutnum í fyrirtækinu.
Að sögn Ásbjörns hafa kaup á
litlu fyrirtæki verið í undirbún-
ingi frá því í haust í gegnum Átak
hf. á Sauðárkróki, átaksverke'fn-
ið í atvinnumálum. Ásbjörn lét
kaupverð ekki fylgja sögunni en
sagði að um einhverjar milljónir
væri að ræða. „Það fæst ekkert
fyrir minna í dag,“ sagði
Skeifukeppni á Hólurn:
Jóhanna Stella
sigraði
Hinn árlegi Skeifudagur ném-
enda Bændaskólans á Hólum í
Hjaltadal var sl. laugardag.
Sigurvegari í Skeifukeppninni
að þessu sinni varð Jóhanna
Stella Jóhannsdóttir á Snældu
og vann hún einnig til verð-
launa í fleiri greinum.
Sautján nemendur kepptu á
Skeifudeginum, en sigursælust
var Jóhanna Stella, því auk þess
að sigra í Skeifukeppninni, sigr-
aði hún í fimiprógrammi B og
hlaut Eiðfaxabikarinn fyrir
umhirðu og ástundun. Aðrir sig-
urvegarar á Skeifudeginum voru:
Hermann Karlsson á Rán sem
sigraði í fjórgangi og Jón Páll
Sveinsson á Brömu fékk verð-
laun fyrir ásetu frá Félagi tamn-
ingamanna.
Blíðskaparveður var á Skeifu-
deginum á Hólum og áhorfendur
um tvö hundruð. SBG
Akureyri:
Þvotti stolið
Tvennum nýjum Levi’s galla-
buxum var stolið af snúru við
Birkilund 12 á Akureyri sl.
föstudagskvöld eða aðfaranótt
laugardags. Að sögn Gunnars
Jóhannssonar, rannsóknarlög-
reglumanns, hefur töluvert
borið á þjófnaði af þvottasnúr-
um í vetur.
í umræddu tilviki eru snúrurn-
ar á lóð bak við íbúðarhús og þar
er enginn umgangur. Buxurnar
voru ekki slitnar af snúrunni
heldur teknar af og klemmurnar
skildar eftir. Hafi einhverjir séð
til þjófanna eru þeir beðnir að
láta húsráðendur eða lögregluna
vita.
„Það hefur borið nokkuð mik-
ið á því í vetur að þvotti er stolið
af snúrum. Helsta ráðið gegn
þessu er að skilja ekki eftir föt á
snúrum yfir nótt því fötunum
hefur yfirleitt verið stolið í skjóli
nætur,“ sagði Gunnar. SS
Ásbjörn. Að undanförnu hefur
staðið yfir leit að húsnæði undir
starfsemina og sagði Ásbjörn þau
mál vera að komast í höfn.
Þó Kóbra-plast hafi einkum
framleitt snjóbræðslurör þá er
hægt að framleiða margs konar
önnur plaströr af stærðinni 16-32
millimetra á þykkt. Ásbjörn mun
koma til með að vinna mest við
framleiðsluna af eigendunum en
það fer eftir framleiðslunni hvað
marga fleiri þarf til. „Tíminn frá
vori og fram á haust hefur verið
vertíð í snjóbræðslurörunum og
ef við framleiðum á vöktum þá
mun þurfa 2-3 menn. Annars fer
þetta eftir kostnaði við hráefni og
öðru slíku,“ sagði Ásbjörn.
Kóbra-plast er þriðja fyrirtæk-
ið sem Ásbjörn á þátt í að flytja á
Sauðárkrók. Fyrst var það gælu-
dýrafóðurverksmiðja frá Akur-
eyri og svo snyrtipinnaverk-
smiðja frá Hafnarfirði. Bæði
fyrirtækin eru starfandi í dag en
Ásbjörn hefur hætt afskiptum af
snyrtipinnunum. „Ég hætti hjá
kaupfélaginu í fyrra og það verð-
ur einhvern veginn að bjarga sér.
Maður vonar að þetta verði til
góðs. Það munar um hvað lítið
sem gert er þegar þrengingar eru
í atvinnumálum. Átaksmenn
hafa verið okkur ákaflega hjálp-
legir. Þeir aðstoðuðu okkur að
finna fyrirtækið og nú er eftir-
leikurinn okkar,“ sagði Ásbjörn
að lokum. -bjb
Aðaleigendur Kóbra-plast hf. sem flyst frá Kópavogi til Sauðárkróks. Björn
Bjarnason og Jón Geirmundsson standa fyrir aftan Ásbjörn Skarphéðins-
son, með „maskínuna“ sér við hlið. Mynd: -bjb
Vegaframkvæmdir
í Skagafirði:
Fjörður
bauð best
Tilboð í vegaframkvæntdir á
Hegranesvegi og Siglufjarð-
arvegi í Skagafirði voru opn-
uð í gær.
Boðin var út 5,3 km
nýbygging á Siglufjarðarvegi
frá Kýrholti í Sleitustaði og
uppbygging á samtals um 3 km
vegarkafla á Hegranesvegi.
Kostnaðaráætlun á Siglu-
fjarðarveginum var 35,3 millj-
ónir króna, en 6,7 milljónir á
Hegranesveginum. Bæði verk-
in eiga að vinnast í sumar.
Þrjú lægstu tilboðin í verkið
á Siglufjarðarvegi voru: Fjörð-
ur sf. með 20,8 m.kr. eða
58,9% af kostnaðaráætlun,
Suðurverk hf. með 21,7 m.kr.
eða 61,5% af kostnaðaráætlun
og Guðmundur Björgólfsson
og Borgarfell með 22 m.kr.
eða 62,2% af kostnaðaráætl-
un.
í verkið á Hegrancsvegi
voru þrjú lægstu tilboðin svo-
hljóðandi: Fjörðursf. með4,l
millj. eða 61% af kostnaðar-
áætlun, Guðmundur Björgólfs-
son og Borgarfell með 4,7
millj. eða70,6% af kostnaðar-
áætlun, Ræktunarsamband
Flóa- og Skeiða með 4.8 millj.
eða 71,4% af áætluðum kostn-
aði. SBG
Geislagötu 12 - Sími 25856
☆
OPNUNARTIMI UM PASKA
Skírdag
Föstudaginn langa
Laugardag
Páskadag
Annan í páskum
kl. 10-22.
LOKAÐ.
kl. 10 - 22.
LOKAÐ.
kl. 10-22
☆
★ 8 ALISUN LJÓSABEKKIR
ir NUDDPOTTUR
★ VATNSGUFUBAÐ
ir SÉRAÐSTAÐA FYRIR
HVERNOG EINN
★ STARFSFÓLK ÞRÍFUR
BEKKINA
★ GLÆSILEG SETUSTOFA
☆
☆
iVAÐ
VILTU
ÍHAFA
ÞAÐ I
BCTRA?