Dagur - 14.04.1992, Side 5
Þriðjudagur 14. apríl 1992 - DAGUR - 5
Nýjar samþykktir Kaupfélags Eyfirðinga:
Heimilt að sækja áhættufj árniagn á almennan fjármagnsmarkað
- sala á samvinnubréfum í B-deild stofnsjóðs og útborgun inneignar í A-deild stofnsjóðs á meðal nýmæla
Margvíslegar breytingar voru
gerðar á samþykktum Kaup-
félags Eyfírðinga á aðalfundi
þess á föstudag. Margar breyt-
inganna eru til samræmingar
fyrri samþykkta félagsins við
ákvæði í nýjum samvinnuiög-
um en einnig eru mörg nýmæli
tekin upp. Hinar nýju sam-
þykktir félagsins voru sam-
þykktar einróma að loknum
allmiklum umræðum en helstu
nýmæli þeirra eru að opnað er
fyrir þann möguleika að afla
áhættufjármagns til reksturs
félagsins.
Eins og fram hefur komið í
fréttum er eitt megin nýmælið í
nýjum samvinnulögum heimild
til þess að stonfa B-deildir stofn-
sjóða við samvinnufélög. Þetta
nýmæli er nú tekið upp í nýjum
samþykktum Kaupfélags Eyfirð-
inga með ákvörðun um stofnun
B-deildar stofnsjóðs sem fjár-
mögnuð verði með sölu sam-
vinnuhlutabréfa. í hinum nýju
samþykktum segir meðal annars
að fjár til B-deildar stofnsjóðs
skuli aflað með sölu hluta í
sjóðnum. Lágmarksfjárhæð B-
deildar skuli vera krónur 50 millj-
ónir en hámarksfjárhæð krónur
200 milljónir. Hlutabréf í B-deild
nefnast samvinnuhlutabréf og
getur eitt hlutabréf haft að geyma
marga hluti þannig að bréfin séu
ekki alltaf jöfn. Þá segir að við
ákvörðun um stofnun B-deildar
skuli taka fram heildarfjárhæð
hluta í B-deild eða hvað mikið
skuli aukið við þá. Einnig skuli
vera ákvæði um forgang ein-
stakra aðila og frest til að nýta sér
hann. Þá sé og ákvæði um frest til
áskriftar og greiðslu nýrra hluta
ef boðnir eru ákveðnum aðilum
til kaups - lengst verði tveir mán-
uðir til áskriftar og sex mánuðir
til greiðslu frá því áskriftarfrestur
hefur runnið út. Einnig skal taka
fram nafnverð hluta og útboðs-
gengi.
Samvinnuhlutabréf -
njóta forgöngu um arð en
veita ekki atkvæðisrétt
í samþykktunum segir að stjórn
Kaupfélags Eyfirðinga skuli gefa
út samvinnuhlutabréf til eigenda
hluta í B-deild stofnsjóðs. Eigna-
hlutum í B-deild fylgir hins vegar
ekki réttur til að taka þátt í
atkvæðagreiðslum í félaginu.
Eigendur samvinnuhlutabréfa
hafa á þann hátt ekki atkvæðis-
rétt ef þeir eru ekki félagsmenn
en eiga hins vegar rétt á að vera
boðaðir til félagsfunda, þar á
meðal aðalfunda og mæta þar
með fullu málfrelsi. Óheimilt er
að ákveða sérstakar hömlur á
viðskipti með hluti í B-deild
stofnsjóðs eða samvinnuhluta-
bréf. Einnig segir í stofnskrá að
félagið sjálft megi aldrei eiga
lengur en í þrjá mánuði meira en
10% af hlutum eigin B-deildar
stofnsjóðs.
B-deiId stofnsjóðs hefur
forgöngu um arðgreiðslur
í samþykktun Kaupfélags Eyfirð-
inga er tekið frant að greiðsla
arðs af hlutabréfum í B-deild hafi
forgang fyrir greiðslum í A-deild,
Frá aðalfundi Kaupfélags Eyfirðinga á föstudag.
Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga:
Áhersla lögð á vöru-
þróun og markaðsstarf
- segir Magnús Gauti Gautason, kaupfélagsstjóri
„Hagræðing, vöruþróun og
aukið markaðsstarf verða meg-
in viðfangsefnin í rekstri Kaup-
félags Eyfírðinga á næstunni,“
sagði Magnús Gauti Gautason,
kaupfélagsstjóri á aðalfundi
félagsins, sem haldinn var síð-
ast liðinn föstudag. Magnús
Gauti sagði ennfremur að fjár-
fest yrði minna á þessu ári og
stefnt að lækkun á skuldum
félagsins. Fjármagnskostnaður
hér á landi væri óeðlilega hár
enn sem komið væri og einnig
virtist yfírstandandi samdrátt-
arskeið í landinu ekki vera á
enda runnið.
Magnús Gauti sagði að enn
væri fyrirsjáanlegur samdráttur í
landbúnaði - einkum í sauðfjár-
ræktinni og kallaði hann á aukna
samvinnu og samræmingu á sviði
úrvinnslu landbúnaðarafurða.
Nú þegar væru hafnar viðræður á
milli Kaupfélags Eyfirðinga og
Kaupfélags Þingeyinga um aukna
samvinnu á sviði mjólkurvinnslu
og ef til vill yrði einnig stefnt að
samstarfi Kaupfélagsins við fleiri
aðila varðandi vinnslu landbún-
aðarafurða. Einnig bæri að stefna
að aukinni fullvinnslu sjávar-
Magnús Gauti Gautason.
afurða í trausti þess að þær falli
síður í verði á erlendum mörkuð-
um en óunnar afurðir. Eins og
sakir standa sé það eina raunhæfa
leiðin til þess að halda í horfinu
varðandi tekjur af sjávarútvegi á
tímum minnkandi aflaheimilda
því verð á slíkum heimildum sé
nú mjög óhagstætt.
Gert er ráð fyrir að heildar-
fjárfestingar Kaupfélags Eyfirð-
inga nemi um 150 milljónum
króna á þessu ári og tengjast þær
einkum þremur viðfangsefnum.
í fyrsta lagi nýrri KEA-nettó
verslun sem opnuð verður á
Óseyri innan tíðar og kemur í
stað fyrri KEA-nettó verslunar
félagsins við Höfðahlíð og versl-
unarinnar við Brekkugötu 1. Þá
stendur einnig yfir endurnýjun á
búðarkössum í verslunum félags-
ins. Verið er að taka í notkun
kassa sem lesa strikamerkingar
en með því kerfi er unnt að fylgj-
ast betur með sölu einstakra
vörutegunda og birgðastöðu á
hverjum tíma auk þess sem kass-
arnir auka þægindi við afgreiðslu.
í þriðja lagi eru síðan fyrirhugað-
ar nokkrar fjárfestingar vegna
útflutnings á vatni en að undan-
förnu hefur verið unnið að mark-
aðssetningu á íslensku vatni
erlendis. Magnús Gauti sagði að
ástæða væri talin til að vinna
áfram að því máli og gæti þar ver-
ið um mikla vaxtarmöguleika að
ræða. Þó bæri einnig að hafa í
huga í því sambandi að um
áhættusaman útflutning væri að
ræða þar sem markaður sé
ótryggur - að minnsta kosti enn
sem komið er. ÞI
Þrír aldnir höfðingjar mættir til Kaupfélagsfundar: Frá vinstri, Helgi Símon-
arson á Þverá, Þorsteinn Davíðsson og Björn Þórðarson. Sá síðastnefndi
kvaddi sér hljóðs og ávarpaði fundarmenn.
sem er hinn fyrri stofnsjóður
félagsmanna. Gjalddagi arðs af
samvinnuhlutabréfum skuli vera
eigi síðar en sex mánuðum eftir
að ákvörðun um úthlutun hans
hafi verið tekin. í samþykktunum
segir að aðalfundur geti ákveðið
að hækka fjárhæð hluta í B-deild
stofnsjóðs hvort heldur sé með
sölu nýrra hluta eða afhendingu
jöfnunarhlutabréfa án greiðslu.
Á sama hátt getur aðalfundur
ákveðið lækkun stofnsjóðs
félagsins til jöfnunar taps, sem
ekki verður jafnað með frjálsum
sjóðum þess og varasjóði. Eigi
má þó lækka B-deild stofnsjóðs
fyrr en A-deild er tæmd.
Félagsráö lagt niöur
Með gildistöku nýrra samþykkta
Kaupfélags Eyfirðinga var
Félagsráð félagsins lagt niður.
Félagsráð var skipað einum
manni úr hverri deild auk deild-
arstjóra og var tilgangur þess
samkvæmt eldri samþykktum sá
að vera stjórn félagsins til ráðu-
neytis varðandi framkvæmdir og
nýmæli í rekstri. Á aðalfundi
Kaupfélags Eyfirðinga kom fram
að Félagsráð hefði raunar ekki
starfað á þeim vettvangi en meg-
in tilgangur þess verið sá að flytja
fregnir af starfi félagsins heim í
deildir. Eftir að kaupfélagsstjóri
og forstöðumenn einstakra starfs-
sviða félagsins hafi farið að mæta
reglulega á deildarfundum hafi
þessu hlutverki félagsráðs í raun
lokið og það færst út til deildar-
fundanna.
Stofnsjóður í A-deild
greiðist út við andlát
eða brottflutning
Um A-deild stofnsjóðs eða hinn
fyrri stofnsjóð félagsins segir að
árlega skuli vaxtareikna og verð-
bæta A-deild stofnsjóðs og að
jafnaði haft til viðmiðunar
almennir sparisjóðsvextir og
verðbætur í samræmi við almenn-
ar verðbreytingar í þjóðfélaginu
og leggjast vextir og verðbætur
við höfuðstól með þeim fyrirvara
um greiðslu arðs sem settur er í
26. grein samþykktanna. Um
útborgun inneignar í A-deild
stofnsjóðs gilda þær reglur að
stofnsjóðurinn greiðist út; annað-
hvort við andlát félagsmanns eða
brottflutnings hans af félagssvæð-
inu að því tilsklyldu að hann
gangi úr félaginu. Einnig getur
félagsmaður fengið A-deildar
inneign sína útborgaða við 70 ára
aldur óski hann eftir því þótt
hann haldi áfram þátttöku í
félaginu. ÞI
í páskamatinn
Tilboðsverð:
Svínahamborgarhryggur
Bayonneskinka • Reyktur kambur
★
Nýtt svínalœri • Bógur m/beini
Svínahryggir með mismunandi fyllingum
★
Páskalamb at nýslátruðu
á gamla verðinu
★
Nautalundir • Nautavöðvar
Steikt roast beef í heilum vöðvum
Grafinn og reyktur lax
Talið við meistarakokkinn,
hann mun sinna séróskum hvers og eins
Nýlt kreditkortatímabil
Verslun allra Norðlendinga. Opin alla daga til kl. 22.00
MATVÖRUMARKAÐURINN
yy KAUPANGI
MM OPIÐ ALLA DAGA TIL KL. 22.00 li’ilM