Dagur - 14.04.1992, Síða 7
Þriðjudagur 14. apríl 1992 - DAGUR - 7
Smásagnasamkeppni Dags og MENOR:
Niðurstöður dómneMar kynntar
- Valgeir Skagijörð og Rósa Jóhannsdóttir fengu viðurkenningu
Valgcir Skagfjörð tekur við verðlaunum sínum úr hendi Hlínar Torfadóttur.
Myndir: Golli
Dóra Björk Jóhannsdóttir tók við viðurkenningu fyrir hönd systur sinnar,
Rósu Jóhannsdóttur.
Niðurstöður dómnefndar í
smásagnasamkeppni Dags og
Menningarsamtaka Norðlend-
inga voru kunngerð í hófi í
Gamla Lundi sl. sunnudag.
Höfundur sögunnar sem dóm-
nefnd taldi besta reyndist vera
leikarinn og tónlistarmaðurinn
Valgeir Skagfjörð. Þá fékk
saga Rósu Jóhannsdóttur,
Hleiðargarði í Eyjafjarðar-
sveit, viðurkenningu dóm-
nefndar.
Valgeir Skagfjörð fékk í verð-
laun fyrir söguna Grámann glæsi-
lega útgáfu Máls og menningar á
Heimskringlu Snorra Sturluson-
ar, alls 1.500 bls. að stærð, og
heildarútgáfu leikrita Williams
Shakespeares, alls um 4.000 bls. í
átta bindum, sem Mál og menn-
ing gaf einnig út.
Rósa Jóhannsdóttir fékk viður-
kenningu fyrir söguna Orðin í
rykinu. Rósa fékk í sinn hlut
heildarútgáfu verka Shakespeares
og tók systir hennar, Dóra Björk,
við viðurkenrtingunni þar sem
Rósa var stödd í Reykjavík.
Dagur mun birta smásögur
Valgeirs og Rósu í skírdagsblað-
inu og þar verður einnig spjallað
við höfundana.
AHt frá unglingum upp
í ellilífeyrisþega
Dagskráin í Gamla Lundi sl.
sunnudag hófst með því að Örn
Viðar Birgisson, tenór, söng tvö
lög við undirleik Guðjóns Páls-
sonar. Síðan gerði Sigurður
Jónsson, íslenskukennari við
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra á Sauðárkróki og formað-
ur dómnefndar, grein fyrir störf-
um og niðurstöðum nefndarinn-
ar. Með Sigurði í nefndinni voru
Pórdís Jónsdóttir, íslenskukenn-
ari við Verkmenntaskólann á
Akureyri, og Stefán Þór Sæ-
mundsson, BA í íslensku og
blaðamaður á Degi.
„Alls bárust 52 smásögur og
voru höfundar litlu færri. Um
aldursdreifingu höfunda eru þau
gleðilegu tíðindi að segja að hún
var mikil, allt frá grunnskóla og
upp í ellilífeyrisaldurinn. Þetta
vakti mikla ánægju meðal okkar
og sýnir að það er enn virk iðja í
landinu að rita sögur hjá ungum
sem öldnum. Sömuleiðis dreifð-
ust höfundar um allt land þótt
flestir séu þeir af Norðurlandi,"
sagði Sigurður.
Hann sagði að vissulega hefði
verið úr vöndu að ráða fyrir
dómnefndarmenn því allmargar
sögur hefðu verið álíka að
gæðum. Dómnefnd hefði þó
komist að niðurstöðu sem allir
fulltrúar hennar voru sammála
um.
Hlín Torfadóttir, fulltrúi
MENOR, afhenti síðan verð-
launin og blómvendi.
Samstarf Dags og MENOR
vonandi orðin hefð
Haukur Ágústsson, félagi í
MENOR og starfsmaður dóm-
nefndar, tók til máls áður en Örn
Viðar og Guðjón slitu dagskránni
með tónlistarflutningi og gestir
fengu sér kaffisopa. Haukur
sagði að það væri ekki létt starf
að dæma á milli smásagna, ljóða
eða annarra ritverka.
Þeir verða að hugsa um hvaða
gildi hver saga hefur til að reyna
að komast að niðurstöðu um það
að rétta smásagan fái þá viður-
kenningu sem í verðlaunum felst.
Þetta starf hefur þessi dómnefnd
innt vel af hendi eins og aðrar
dómnefndir sem hafa setið að
störfum í þeirri keppni sem Dag-
ur og Menningarsamtök Norð-
lendinga hafa staðið að, en þetta
er sú þriðja. í fyrra var ljóðasam-
keppni og væntanlega verður efnt
til annarrar slíkrar næsta ár,“
sagði Haukur.
Hann kvaðst vona að þetta
samstarf Dags og MENOR væri
orðin hefð sem ýtti undir það að
menn stunduðu bókmenntir sér
til gagns og menningunni til
fremdar, íslenskunni til vegsemd-
ar og frekari dýrðar. Hann sagði
ríka ástæðu til að rækta móður-
málið nú á tímum erlendra
áhrifa.
Haukur ræddi frekar um dóm-
nefndarstarfið og samkeppnis-
formið. Hann fylgdist sjálfur með
síðasta fundi dómnefndar og
geymdi umslögin með réttum
nöfnum höfunda þar til dóm-
nefnd hafði komist að niður-
stöðu. Þetta tryggir að verk eru
einvörðungu dæmd eftir gæðum
en nafn eða persóna höfundar
hefur engin áhrif því sögurnar
eru sendar inn undir dulnefni.
Síðan kom í ljós að „Álfgrímur“
reyndist vera Valgeir Skagfjörð
og „Regína“ var Rósa Jóhanns-
dóttir.
Dagur og MENOR vilja koma
á framfæri þakklæti til allra sem
tóku þátt í smásagnasamkeppn-
inni að þessu sinni. SS
Dómnefndin var leyst út með blómum. F.v.: Sigurður Jónsson, formaður,
Þórdís Jónsdóttir og Stefán Þór Sæmundsson.
Örn Viðar Birgisson söng af krafti við píanóundirleik Guðjóns Pálssonar.
r
Málningardagar
Við veitum 10% staðgreiðsluafslátt
af allri málningu og málningarvörum
fram að páskum.
Opið laugardaginn 18. apríl frá kl. 10-12.
Veriö velkomin.
,------------------------
AKUREYRARB/tR ||Í~
Félagsráðgjafar
Félagsmálastofnun Akureyrar óskar eftir því
að ráða félagsráðgjafa nú þegar eða eftir sam-
komulagi.
Laun samkvæmt kjarasamningi STAK og Akur-
eyrarbæjar. Upplýsingar veita deildarstjóri ráð-
gjafadeildar í síma 96-25880 og starfsmanna-
stjóri Akureyrarbæjar í síma 96-21000.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild
Akureyrarbæjar Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til 25. apríl 1992.
Starfsmannastjóri.
Nú fá þínar
listauppskriftir að
njóta sín.
Matargerð er list
og uncnrstaðan er
úrvals hráefni.
Brauðgerð, Smjörlíkisgerð
og Kjötiðnaðarstöð KEA
leita eftir þínum listauppskriftum.
í matvöruverslunum KEA
færð þú þátttökukort og
bækling með upplýsingum
um samkeppnina.