Dagur - 14.04.1992, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 14. apríl 1992 - DAGUR - 11
Jón Haukur Brynjólfsson
Sveitaglíma íslands:
13. sigur Þingeyinga í röð
Elvar Thorarensen vann til tveggja gullverðlauna í borðtennis.
Fjölmennasta fslandsmót
fatlaðra frá árinu 1979
íslandsmót íþróttasambands
fatlaðra í boccia, bogfími,
borðtennis og sundi hófst í
íþróttahúsinu við Austurberg
og íþróttahúsi ÍF að Hátúni um
helgina. Keppni lauk í öllum
greinum nema sundinu sem
verður keppt í 14.-15. apríl í
Sundhöll Reykjavíkur. Mótið
er það langfjölmennasta sem
hefur verið haldið frá árinu
1979 þegar fyrsta íslandsmót
fatlaðra var haldið.
Fleiri félög tóku nú þátt í mót-
inu en nokkru sinni fyrr og voru
þ. á m. tvö nýstofnuð, Nes frá
Suðurnesjum og Gróska frá
Sauðárkróki. Á mótinu voru
einnig keppendur frá Eik og Akri
á Akureyri og bocciadeild Völs-
ungs á Húsavík. Elvar Thorar-
ensen, Akri, náði bestum árangri
norðlensku keppendanna en
hann vann tvenn gullverðlaun í
borðtennis og ein bronsverðlaun.
Úrslit á mótinu urðu þessi:
BOCCIA
Einstaklingsk. 1. deild
1. Elma Finnbogadóttir, ÍFR
2. Hjalti Eiðsson, ÍFR
3. Sigurrós Karlsdóttir, Akri
Einstaklingsk. 2. deild
1. Stefán Thorarensen, Akri
2. íris Gunnarsdóttir, Snerpu
3. Björn Magnússon, Akri
Einstakling.sk. 3. deild
1. Anna K. Jónsdóttir, Snerpu
2. Sigurður B. Oddgeirsson, Ægi
3. Svava Vilhjálmsdóttir, Akri
Einstaldingsk. 4. deild
1. Björney Sigurlaugsdóttir, Ösp
2. Jóna B.H. Jónsdóttir, ÍFR
3. Sigríður Frímannsdóttir, Snerpu
dlu“
önnina í skíðamenntaskólanum
þar.
Ásta Halldórsdóttir frá ísafirði
sagðist vera mjög ánægð með
sína frammistöðu á þremur fyrstu
mótunum. „Þetta hefur gengið
mjög vel. Ég var búinn að stefna
að því að bæta mig verulega í
stórsvigi og það tókst. Ég er
búinn að lækka mig um tæpa 30
punkta og get ekki verið annað
en ánægð með það. Ég stefndi
líka að því að komast niður fyrir
50 í sviginu og vona að það hafi
tekist núna.“
Ásta sagði mjög gott að fá
sænsku stúlkurnar tvær hingað til
lands enda væru þær báðar í röð
fremstu skíðakvenna í heimi.
„Það sést hins vegar greinilega að
þær beita sér ekki að fullu. Ég
myndi segja að það væri nánast
vonlaust fyrir okkur að vinna þær
ef ekkert kemur fyrir þær,“ sagði
Ásta.
Einstaklingsk. U-flokkur
1. Helga Bergmann, ÍFR
2. Kristján H. Viðarsson, Grósku
3. Rökkvi Sigurlaugsson, Grósku
Sveitakeppni 1. deild
1. Akur A
2. Eik A
3. Akur B
Sveitakeppni 2. deild
1. Eik D
2. Ægir B
3. Ægir C
Sveitakeppni 3. deild
1. Eik H
2. Suðri C
3. Völsungur B
Utan flokka
1. Dómarar
2. ÍF
3. Gróska
BORÐTENNIS
Einliðaleikur þroskaheftra karla
1. Guðjón A. Ingvarsson, Ösp
2. Jón Guðvarðarson, Ösp
3. Magnús P. Korntopp, Ósp
Einliðaleikur þroskaheftra kvenna
1. Lilja Pétursdóttir, Ösp
2. Guðrún Tómasdóttir, Gný
3. Hildigunnur Sigurðardóttir, Ösp
Hreyflh., sitjandi fl. karla
1. Jón H. Jónsson, ÍFR
2. Viðar Árnason, ÍFR
3. Örn Ómarsson, ÍFR
Hreyflh., sitjandi 11. kvenna
1. Elsa Stefánsdóttir, IFR
2. Þórdís Vilhjálmsdóttir, ÍFR
3. Guðrún Guðmundsdóttir, ÍFR
Hreyfih., standandi fl. karla
1. Elvar Thorarensen, Akri
2. Runólfur Flekkestein
3. Árni Gunnarsson, ÍFR
Hreyfih., standandi II. kvenna
1. Elsa Stefánsdóttir, ÍFR
2. Hulda Pétursdóttir, Nes.
3. Sigríður Geirsdóttir, ÍFR
Opinn flokkur karla
1. Elvar Thorarensen, Akri
2. Jón H. Jónsson, ÍFR
3. Viðar Árnason, ÍFR
Opinn flokkur kvenna
1. Elsa Stefánsdóttir, ÍFR
2. Lilja Pétursdóttir, Ösp
3. Hulda Pétursdóttir, Nes.
Tvfliðal. karla, opinn flokkur
1. Jón H. Jónsson/Viðar Ámason, ÍFR
2. Jón Guðvarðarson/Guðjón Ingvason, Ösp
3. Elvar Thorarensen, Akri/
Gunnlaugur Ingimarsson, Ösp
Tvfliðl. kvenna, opinn flokkur
1. Elsa Stefánsdóttir/
Guðrún Guðmundsdóttir, ÍFR
2. Lilja Pétursdóttir,
Hildigunnur Sigurðardóttir, Ösp
3. Soffía Jensdóttir, Ösp/
Guðrún Tómasdóttir, Gný
LYFTINGAR
Hreyflhamlaðir (kg/stig)
1. Þorsteinn Sölvason, ÍFR 90,0/77,97
2. Jón Stefánsson, Akri 80,0/71,54
3. Arnar Klemensson, Viljanum 80,0/70,12
Þroskaheftir (kg/stig)
1. Magnús P. Korntopp, ÍFR 97,5/50,05
2. Gunnar Ö. Erlingsson, Ösp 77,5/47,83
3. Ólafur V. Lárusson, Ösp 62,5/43,43
BOGFIMI
Karlar (stig)
1. Leifur Karlsson, ÍFR 1019
2. Óskar Konráðsson, ÍFR 982
3. Jón U. Árnason, IFR 937
Fatlaðir og ófatlaðir karlar
1. Þröstur Steinþórsson, ÍFR 1019
2. Gunnlaugur Björnsson, Akri 933
3. Ólafur Stefánsson, ÍFR 923
Fatlaðir og ófatlaðar konur
1. Ester Finnsdóttir, ÍFR 901
2. Björk Jónsdóttir, ÍFR 871
Fatlaðir og ófatlaðir unglingar
1. Jón H. Leifsson, ÍFR 761
Þingeyingar unnu um helgina
sinn 13. sigur í röð í Sveita-
glímu íslands sem fram fór að
Laugarvatni. Þingeyingar unnu
einnig unglingaflokkinn en í
öðrum flokkum fóru Skarp-
héðinsmenn með sigur af
hólmi. Þetta er fjölmennasta
sveitaglíma sem haldin hefur
verið og greinilegt að glíman
lifir ennþá góðu lífi í landinu.
Það var góð stemmning að
Laugarvatni og mikið líf í tusk-
unum. 15 glímusveitir reyndu
með sér í 6 aldursflokkum og
varð að glíma á 3 völlum samtím-
is.
í karlaflokki kepptu sveitir
KR-inga, Þingeyinga og Skarp-
héðins. Fimm eru í sveit og var
valinn maður í hverju rúmi Þing-
eyinga sem sigruðu HSK 18:7 og
KR 22:3. í sveit HSÞ voru tveir
fyrrum glímukóngar, Pétur
Yngvason og Eyþór Pétursson,
Skútustaðamennirnir Kristján
Yngvason og Lárus Björnsson að
ógleymdum Arngeiri Friðriks-
syni. Yngvi Kristjánsson var
varamaður.
Þingeyingar beittu því her-
bragði að senda Eyþór Pétursson
fyrstan fram á móti fyrirliða HSK,
Jóhannesi Sveinbjörnssyni. Þetta
gekk upp því Eyþór lagði
Jóhannes laglega á hælkrók hægri
á vinstri. Eyþór tók hraðan snún-
ing í stígandi og læddi sér í hæl-
krókinn svo Jóhannes varð einsk-
is var fyrr en bragðið reið á og
hann féll. Við þetta komst
Jóhannes í vígamóð og lagði alla
sína andstæðinga eftir þetta á til-
þrifamiklum hábrögðum. Pétur
Yngvason hlaut fall mikið en tók
því karlmannlega og brosti að.
Hlaut Pétur ekki fleiri byltur á
mótinu en hver keppandi í karla-
flokki glímdi 10 glímur.
KR-ingar voru höfuðlaus her
án glímukóngsins, Ólafs Hauks
Ólafssonar, sem ekki var með í
mótinu. Sjálfstraustið virtist
einnig hafa orðið eftir í höfuð-
staðnum því það var aðeins sveit-
arforinginn Örri Björnsson sem
glímdi af eðlilegri getu. Helgi
Bjarnason, silfurhafi, á síðustu
Íslandsglímu, var heillum horfinn
og hlaut aðeins 2,5 vinninga úr 10
glímum. Skarphéðinsmenn sigr-
uðu KR-inga 16:9. Þar var
Jóhannes Sveinbjörnsson fremst-
ur í flokki, vel studdur af þeim
frændum Kjartani Lárussyni og
Helga Kjartanssyni.
Handknattleikur:
Svo skemmtilega vildi til að
þrennir feðgar glímdu á mótinu, í
karlaflokki Kristján Yngvason og
Yngvi sonur hans í sveit Þingey-
inga, í sveit Skarphéðinsmanna
aldursforsetinn Kjartan Helga-
son, 47 ára, og Helgi sonur hans
og þar keppti einnig Kjartan Lár-
usson en tveir synir hans, Óðinn
og Lárus, í yngri flokkunum.
Þetta sýnir að menn eru síungir í
glímunni og kynslóðabil fyrir-
finnst þar ekki.
Telpnaflokkur
1. A-sveit HSK
2. B-sveit HSK
Piltaflokkur
1. A-sveit HSK
2. B-sveit HSK
3. UV
Unglingaflokkur
1. Sveit HSÞ
2. Sveit HSK
Meyjaflokkur
1. A-sveit HSK
2. A-sveit HSÞ
3. B-sveit HSK
Sveinaflokkur
1. A-sveit HSK
2. B-sveit HSK
Karlaflokkur
1. Sveit HSÞ
2. Sveit HSK
3. Sveit KR
4. Ílokkur tryggði KA
fyrsta meistaratitiliiin
- 5. flokkur í 3. sæti og 3. flokkur í 4. sæti
4. flokkur KA krækti um helg-
ina í fyrsta íslandsmeistaratitil
félagsins í handknattleik. Þá
fóru fram úrslit í yngri flokk-
unum í Hafnarfirði og átti KA
þrjá flokka í úrslitakeppninni
sem er einsdæmi. 4. flokkur
tryggði sér íslandsmeistaratitil-
inn með 18:17 sigri á Gróttu í
æsispennandi úrslitaleik, 5.
flokkur KA hafnaði í 3. sæti og
3. flokkur í 4. sæti.
Fjögur lið léku til úrslita í
hverjum flokki, fyrst mættust tvö
og tvö í undanúrslitaleik og síðan
sigurliðin í hreinum úrslitaleik. í
4. flokki mætti KA Fram á föstu-
dagskvöldið og gerði út um þann
leik strax á upphafsmínútunum
og sigraði auðveldlega 19:14.
Halldór Sigfússon skoraði 5 mörk
fyrir KA, Sverrir Björnsson og
Tómas Jóhannesson 4 hvor, Ósk-
ar Bragason 3 og ísleifur Einars-
son, Vilhelm Jónsson og Ragnar
Þorgrímsson 1 hver. Flóki Ólafs-
son markvörður varði 19 skot í
leiknum, þar af 2 vítaköst, en
hann stóð sig frábærlega í
leikjunum og var talinn einn besti
maður úrslitakeppninnar.
KA-menn byrjuðu illa í úrslita-
leiknum gegn Gróttu og skoruðu
Seltirningar fyrstu þrjú mörkin.
Þeir héldu síðan forystunni lengi
vel, staðan í hléi var 8:10 og
14:17 þegar 10 mínútur voru til
leiksloká. Þá skoruðu KA-menn
fimm mörk í röð og komust yfir í
fyrsta sinn þegar fjórar mínútur
voru til leiksloka. Lokamínút-
urnar voru æsispennandi en KA-
strákarnir stóðust álagið og sigr-
uðu með eins marks mun. Óskar
Bragason skoraði 7 mörk fyrir
KA, Sverrir Björnsson 6, Hall-
dór Sigfússon 5 og Vilhelm Jóns-
son 2. Flóki varði 10 skot.
»Ég er auðvitað geysilega
ánægður enda er þetta meira en
maður hafði búist við,“ sagði
Árni Stefánsson, þjálfari 4.
flokks KA. Árni benti á að KA
hefði spilað mun færri leiki í vet-
ur heldur en liðin fyrir sunnan og
því væri þessi árangur félagsins,
að eiga þrjá flokka í úrslitum og
ná í einn titil, en athyglisverðari.
„Við spiluðum þrjár fyrstu
umferðirnir gegn Þór og Völs-
ungi og unnum þær auðveldlega.
Síðan spiluðum við í 2. deild á
Selfossi og komust áfram og
fengum síðan eina umferð norð-
ur og unnum hana. Þá fór maður
að láta sig dreyma um að þetta
væri hægt og ég tel að við höfum
síðan sýnt að við erum með besta
liðið.“
Árni sagði að þennan árangur
mætti þakka markvissu starfi
undanfarin ár. „Strákarnir eru
búnir að vera með góða þjálfara
og þetta er orðinn mjög sterkur
og góður hópur. Ég held að
félagið þurfi ekki að kvíða fram-
tíðinni.“
Æsispennandi í 5. flokki
5. flokkur byrjaði á því að tapa
fyrir ÍR 9:12 í undanúrslitum en
ÍR-ingar urðu síðan íslands-
meistarar. KA-menn mættu síð-
an Fram í úrslitaleik um 3. sætið
og sigruðu 12:11 í geysilega
spennandi leik. Axel Árnason
tryggði KA sigur þegar hann
skoraði síðasta mark leiksins 3
sekúndum fyrir leikslok.
„Þessi lið voru mjög jöfn sem
sést best á því að enginn leikur í
úrslitunum vannst með meira en
3 mörkum. Þetta var fyrst og
fremst spurning um heppni og
ÍR-ingar höfðu hana. Ég viður-
kenni að ég er ekki fullkomlega
ánægður, maður hefði viljað fara
alla leið, en þetta er auðvitað
mjög góður árangur og mikilvægt
fyrir strákana að finna lykt af
titli," sagði Jóhannes Bjarnason,
þjálfari 5. flokks.
3. flokkur lék gegn Val í
undanúrslitunum og tapaði
15:21. Liðið mætti síðan Stjörn-
unni í úrslitaleik um 3. sætið og
hafði Stjarnan betur, 21:18.
Þjálfari 3. flokks er Andrés
Magnússon.
Körfuknattleikur:
Tveir frá
Króknum í
landslið
Tveir leikmenn úr Tindastói
eru í drengjalandsliðinu í
körfuknattieik sem tekur þátt í
móti í Wales 23.-25. aprfl, þeir
Óli Reynisson og Guðjón
Gunnarsson.
Liðið, sem er skipað 15 ára
leikmönnum og yngri, tekur þátt
í móti ásamt Gíbraltar, Mónakó
og Wales og er þannig skipað
(tölurnar tákna hæð leikmanna):
Guðmundur Þorvaldsson, ÍR 191
Einar Bjarnason, KR 185
Vigfús Þór Árnason, KR 193
Óli Reynisson, UMFT 175
Guðjón Gunnarsson, UMFT 176
Örvar Þór Kristjánsson, UMFN 189
Ásgeir Guðbjartsson, UMFN 187
Gunnar Einarsson, ÍBK 186
Gunnar Geirsson, ÍBK 189
Elentínus Margeirsson, ÍBK 184
Davíð Jónsson, ÍBK 166
Örn Eyfjörð, ÍBK 173
Þjálfarar eru þeir Sigurður
Hjörleifsson og Stefán Arnarson.
Þess má geta að Helgi Bragason,
dómari frá Sauðárkróki, mun
dæma á mótinu.