Dagur - 14.04.1992, Side 13
Þriðjudagur 14. apríl 1992 - DAGUR - 13
Kabarettinn „Enn er lundin létt“
sýndur á Siglufirði um páskana:
„Þetta er alvörugefið
grín í revíuformi“
- segir Sturlaugur Kristjánsson, annar yfirspaugara
Aðstandendur kabarettsins „Enn er lundin létt“ með Friðfinn Hauksson í
broddi fylkingar.
„Enn er lundin létt“ er heiti á
kabarett, sem verður frum-
sýndur á Hótel Höfn á Siglu-
firði á miðnætti á föstudaginn
langa. Að kabarettinum stend-
ur fjöldi manns með þá spaug-
ara Sturlaug Kristjánsson og
Friðfinn Hauksson í broddi
fylkingar. Einnig verða sýning-
ar laugardagskvöldið 18. apríl
kl. 21 og mánudaginn 20. apríl,
annan dag páska, kl. 21.
„Við erum nú aðallega að fífl-
ast,“ sagði Sturlaugur Kristjáns-
son, þegar Dagur innti hann eftir
því hvað þeir félagar ætluðu að
bjóða fólki upp á. „Þetta er
alvörugefið grín í revíuformi, þar
sem tónlistin skipar veglegan
sess. Við getum sagt að þetta sé
siglfirskt efni frá liðnum árum
auk þess sem við fjöllum um
nútímann og tökum fyrir helstu
andlit bæjarins."
- Fá þá menn eins og Kristján
Möller, forseti bæjarstjórnar
Siglufjarðar, fyrir ferðina?
„Já, blessaður vertu,“ sagði
Sturlaugur, „hann hefur beðið
alveg sérstaklega um það.“
Sturlaugur var ófús að nafn-
greina fleiri sem myndu fá það
óþvegið, en lofaði að mörg þekkt
andlit úr bæjarlífinu kæmu við
sögu.
Hann sagði að Karlakórinn
Vísir, sá landsfrægi kór, yrði
endurlífgaður, sömuleiðis Gaut-
ar og Miðaldamenn.
Þetta er annað árið í röð sem
þeir Sturlaugur og Friðfinnur
Mynd: Hcllan
standa fyrir uppsetningu á slíkum
kabarett. í fyrra var aðsókn með
eindæmum góð og komu um 900
manns á fimm sýningar.
Um tónlistina sér fimm manna
hljómsveit skipuð þeim Stur-
laugi, Þorsteini Sveinssyni og
Þórhalli Benediktssyni. Þá mun
Stefán Jóhannsson, gamli
trommarinn í Hljómsveit Ragn-
ars Bjarnasonar, berja húðir.
óþh
„Karaokee-sprenging“ á Dalvík
- 13 keppa til úrslita í Karaokee-keppni síðasta vetrardag
Undanfarin fjögur fimmtu-
dagskvöld hefur farið fram
undankeppni í Karaokee-söng
í Sæluhúsinu á Dalvík. Ekki er
ofsögum sagt að fjöldi kepp-
enda hafi slegið öll met og far-
ið fram úr björtustu vonum.
Auk keppendanna, sem hafa
verið á aldrinum 18 til 53 ára,
hafa fjölmargir lagt leið sína í
Sæluhúsið og fylgst með söngvur-
unum spreyta sig á mörgum af
helstu perlum dægurtónlistar-
sögunnar. Síðasta undanúrslita-
kvöldið var sl. fimmtudagskvöld
og þar mættu vel á annað hundr-
að manns. Úrslit í Karaokee-
keppninni ráðast síðasta vetrar-
dag, 21. apríl nk., þegar 13 bestu
söngvararnir að mati dómnefnd-
ar, leiða saman hesta sína.
Karaokee-tækjabúnaðurinn,
sem þátttakendur eru „tengdir"
við, er í eigu Freygerðar Snorra-
dóttur á Dalvík. Hún festi kaup á
honum fyrr á þessu ári með það
m.a. í huga að setja upp einstakl-
ings- og fyrirtækjakeppni í
Karaokee-söng. Viðbrögðin liafa
ekki látið á sér standa.
En lítum á úrslit undanúrslita-
kvöldanna. Eftirtaldir, sem
kepptu fyrir fyrirtæki og stofnan-
ir á Dalvík og víðar, munu keppa
í úrslitunum.
Fyrsta kvöldið:
1. Guðbjörg Jóhannesdóttir -
Frystihús KEA Dalvík
2. Lárus Gunnlaugsson -
Flugmálastjórn Akureyri
3. Arnar Símonarson -
Blómabúðin Ilex Dalvík
Annað kvöldið:
1. Sævar Freyr Ingason -
Lögreglan á Dalvík
2. Daníel Hilmarsson -
Árfell Dalvík
3. Deane Scime -
Tangi hf. Vopnafirði
Þriðja kvöldið:
1. Kristjana Arngrímsdóttir -
Félagsbúið Tjörn
2. Freydís Antonsdóttir -
Verslunin Dröfn Dalvík
3. Kristín Jóna Jónsdóttir -
Tannlæknastofan Dalvík
Fjórða kvöldið
1. Elín Björnsdóttir -
Ársteinn Ólafsfirði
2. Frímann Rafnsson -
G. Ben. L-Árskógssandi
3. Hallfríður Árnadóttir -
Sæluhúsið Dalvík
4. Kristján M. Önundarson -
Sjávarútvegsdeild VMA
Söngvarana hefur dæmt fimm
manna dómnefnd skipuð þeim
Rósu Kristínu Baldursdóttur,
Jóhanni Ólafssyni, Elvu Matthías-
dóttur, Sólveigu Antonsdóttur og
Einari Arngrímssyni.
Það er til mikils að vinna á úr-
slitakvöldinu 21. apríl nk. Sigur-
vegari fær geislaspilara og þrí-
réttaða máltíð fyrir tvo á Sælu-
húsinu, annað sætið gefur gist-
ingu á Hótel Örk í Hveragerði og
fyrir þriðja sætið verða veittir tíu
geisladiskar. Þá fá þrír efstu
gjafapakkningu með snyrtivöru.
Síðan fá allir þátttakendur blóm
og konfekt. óþh
Securitas og Eurocard:
Semja um öryggisgæshi fyrir korthafa
Eurocard hefur gert samning
við Securitas um tímabundna
öryggisgæslu á heimahúsum.
Boðið er upp á tvenns konar
öryggisgæslu, annars vegar
reglubundnar eftirlitsferðir á
heimilið og hins vegar leigu á
viðvörunarkerfi sem er virkt
allan sólarhringinn.
Útleiga öryggiskerfa, sem sér-
staklega eru ætluð fyrir skamm-
tímagæslu, eru nýjung hérlendis.
Leigukerfin henta sérstaklega
þeim sem fara af landi brott í
skamman tíma, t.d. í sumarfrí.
Viðvörunarkerfið vaktar húsið
með skynjurum sem fara í gang
og gera viðvart í stjórnstöð
Securitas við innbrot, vatnsleka,
bruna eða rafmagnsútslátt. Frá
stjórnstöð er síðan brugðist við í
hverju tilviki eftir eðli þeirra
boða sem berast. Þannig eiga
Gunnar Bæringsson, framkvæmdastjóri Eurocard, og Hannes Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Securitas, við undirritun samnings um öryggisgæslu
fyrir Eurocard korthafa.
Eurocard handhafar möguleika á húsnæði eftir heima þegar farið
að skilja áhyggjur af mannlausu er í fríðið.
«) HITAVEITA AKUREYRAR
VATNSVEITA AKUREYRAR
Frá Hita- og Vatnsveitu Akureyrar.
Nýtt símanúmer
veitnanna er
12110
Lögtök:
Eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs á Akureyri,
Dalvík og í Eyjafjarðarsýslu og aö undangengn-
um úrskurði, verða lögtök látin fara fram án frek-
ari fyrirvara á kostnað gjaldenda en á ábyrgð
ríkissjóðs, að átta dögum liðnum frá birtingu aug-
lýsingar þessarar fyrir eftirtöldum gjöldum.
Virðisaukaskatti fyrir nóvember og desember
1991, janúar og febrúar 1992, svo og virðisauka-
skattshækkunum álögðum frá 15. janúar 1992 til
6. apríl 1992. Vanskilafé, álagi og vöxtum skv.
29. gr. I. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra
gjalda, skv. 14. gr. I. nr. 90/1987 fyrir tímabilið
janúar til febrúar 1992, með eindögum 15. febrú-
ar og 15. mars 1992. Tryggingagjaldi fyrir tímabil-
ið janúar og febrúar 1992, þinggjaldahækkunum
til 6. apríl 1992, skilagjaldi umbúða, vörugjaldi af
innlendri framleiðslu, stöðvunarbrotsgjaldi skv.
108. gr. I. 50/1987, og til hvers konar gjaldahækk-
ana.
Bæjarfógetinn á Akureyri,
Dalvík og Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu,
7. apríl 1992.
Dæmí um verfc:
Coca Cola 2 lítrar 145
Fanta 2 lítrar 117
Pepsí 2 lítrar 145
Sanitas appelsín 2 lítrar 151
Hversdags ís 2 lítrar 315
Þykkvabæjar franskar 1V4 kg .. 347
Londonlamb, frampartur 898 kg
Londonlamb, lærí 1.198 kg
Léttreyktur lambahryggur 798 kg
Svínahamborgarhryggur 1.239 kg
Nóa páskaegg nr. 5 1.131
Nóa páskaegg nr. 4 771
Nóa páskaegg nr. 3 499
Lindu páskakonfekt 1 kg 1.989
Opið frá ki. 12.00-18.30.
Laugardaga frá kl. 10.00-14.00.
Kynnist NETTÓ-verbi
Höfbahlíb *l