Dagur - 14.04.1992, Blaðsíða 17

Dagur - 14.04.1992, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 14. apríl 1992 - DAGUR - 17 Tónlist Söngur í Ásbyrgi Laugardaginn 11. apríl efndi Karlakórinn Lóuþrælar í Vestur- Húnavatnssýslu til söngtónleika í tengslum við árshátíð sína í Ásbyrgi á Laugabakka í Mið- firði. Auk karlakórsins kom fram Kvennakórinn Sandlóurnar og gestir á skemmtuninni voru kvintettinn Galgopar. Stjórnandi Lóuþræla er Ólöf Pálsdóttir. Lóuþrælar fluttu tólf lög auk nokkurra aukalaga. Kórinn er nú skipaður tuttugu og einum söng- manni. Hann er í verulegri fram- för og hefur á söngskrá sinni nokkur allmetnaðarfull sönglög, sem hann fer talsvert vel með. Peirra á meðal má nefna Kveðju farandsveinsins eftir ókunnan höfund við ljóð eftir Magnús Ásgeirsson. í þessu lagi naut bassi karlakórsins sín sérlega vel, en hann er vel skipaður og hefur jafnan og fullan tón, þó ekki sé hann margliðaður. Þá var allfal- legur flutningur á laginu Man- söngur, en höfundur bæði lagsins og ljóðsins er Sigurður Ágústs- son. Bæði þessi lög flutti kórinn án undirleiks og einnig lagið Ræningjarnir eftir ókunnan höfúnd. Þar söng Guðmundur Þorbergsson einsöng og gerð það vel. Rödd Guðmundar er sérlega ljúf og hæfni hans í beitingu Laufásprestakall: i Svalbarðskirkja: Kyrrð- ' arstund með tónlist, söng og lestri á föstudaginn langa kl. 20.30. Fluttur verður helgi- leikurinn Sjö orð Krists á krossin- um. Altarisganga. Barnasamkoma laugardaginn 18. apríl kl. 11. Ferm- ingarguðsþjónusta sumardaginn fyrsta kl. 11. Laufáskirkja: Guðsþjónusta skír- dagskvöld kl. 21. Altarisganga. Grenivíkurkirkja: Barnasamkoma laugardaginn 18. apríl kl. 13.30. Hátíðarguðsþjónusta páskadag kl. 14. Altarisganga. Glerárkirkja. 16. apríl: Skírdagur. Fermingarmessa kl. 10.30. Fermingarmessa kl. 14.00. Helgistund kl. 21.00. 17. apríl: Föstudagurinn langi. Messa kl. 14.00 í Lögmannshlíðar- kirkju. 19. aprfl: Páskadagur. Hátíðarguðsþjónusta kl. 8.00. Eftir messu verður sameiginlegur morgunverður allra kirkjugesta. Spilakvöld Sjálfsbjargar. Spilum félagsvist í Sam- komusal í Dvalarheimil- ] inu Hlíð miðvikudag. 15. aprfl kl. 20.00. Mætum stundvíslega. Góð verðlaun. Spilanefnd Sjálfsbjargar. Skrifstofa Geðverndarfélags Akur- eyrar Gránufélagsgötu 5 er opin mánudaga og fimmtudaga kl. 10-12 og þriðjudaga kl. 16-19, sími 27990. Fólk er hvatt til að líta inn eða hringja og nota þessa nýju þjónustu. Opið hús alla miðvikudaga frá kl. 20.00. Allir velkomnir í kaffi, spil og spjall. hennar fer sífellt vaxandi. Kórinn var fallega þýður og jafn undir söng Guðmundar. Lagið Drykkju- vísa, sem sungið var við lipran undirleik Elínar Sigurgeirsdóttur á píanó, var talsvert vel sungið. Ymislegt má að kórnum finna enn. Sérlega er ljóst, að tenórar þurfa að batna talsvert. Þeir eru nokkuð fáliðaðir og beita sér á stundum óhóflega þannig að tónninn verður sár og lokaður. Þá bregður fyrir samtakaleysi í kórnum, þannig að innkomur voru á stundum ekki jafnar á hljóma, byrjanir og afslætti. Allt stendur þetta og fleira smátt án efa til bóta undir handleiðslu Ólafar Pálsdóttur, söngstjóra, en hún hefur unnið gott verk með kórfélögum. Undirleikari á píanó með kórnum var Elín Sigurgeirsdótt- ir, skólastjóri Tónlistarskóla Vestur-Húnavatnssýslu. Hún er natin í hlutverki sínu og gefur góðan stuðning og lit. Sandlóurnar eru skipaðar níu eiginkonum kórfélaga í Lóuþræl- um. Þær fluttu nokkur létt lög frá fyrri tíð og gerðu það af liþurð og sönggleði. Elín Sigurgeirsdóttir lék undir söng kvennanna af öryggi og festu. Sandlóunum hefur farið mikið fram frá því að undirritaður heyrði þær síðast fyrir rúmlega ári. Söngur þeirra er orðinn ákveðnari og blæbrigðaríkari. Nú, eins og fyrr, er lagaval Sand- lóanna skemmtilegt. Þær flytja mest dægurflugur og létt lög sem BORGARBIO Salur A Þriðjudagur Kl. 9.00 Free Jack Frumsýning Bttrnvmz jaoobb mofkwö fKeeJMCK Salur B Þriðjudagur Kl. 9.00 Eldur, ís og dínamit BORGARBÍÓ S 23500 Vlnningstölur laugardaginn VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐÁHVERN VINNINGSHAFA 1. 5ai5 1 2.744.668,- 2. 4a7l^ gf Ö“ 476.916,- 3. 4af5 88 9.348,- 4. 3af 5 3.458 555,- Heildarvinningsupphæð þessa viku: 5.963.398.- ekki hafa heyrst árum og jafnvel áratugum saman, en sem skemmti- legt er að rifja upp. Galgoparnir voru léttir í flutn- ingi sínum að vanda og vöktu verulega kátínu. Sérlega skemmtilegur var söngur Óskars Péturssonar í laginu Vorsól eftir Björgvin Þ. Valdimarsson, þar sem hann fór á kostum. Undir- leikari Galgopanna, Guðjón Pálsson, studdi þá af prýði og lit- aði flutning þeirra við hæfi. Það er vafalaust, að starfsemi Karlakórsins Lóuþræla og kvenna- kórsins Sandlóurnar, er mikils virði fyrir byggðina alla í félags- og menningarlegu tilliti. Það er því ánægjulegt að sjá hana eflast og vaxa í metnaði og getu. Ekki er síður gott að finna, að starf- semin nýtur stuðnings byggðar- búa, ef marka má aðsókn að söngskemmtuninni í Ásbyrgi. Þar var þétt setinn bekkurinn og undirtektir góðar. Haukur Ágústsson. ar miðað við verðlag í apríl- byrjun. Vísitalan í april reyndist vera 160,6 stig, eða óbreytt frá mars. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 6,4%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um tæp 0,3% og jafngildir sú hækkun 1,0% verðbólgu á heilu ári. Rekstrarkostnaður bíls hækk- aði um 0,3% sem olli 0,05% hækkun vísitölunnar. Kostnaður vegna tannviðgerða hækkaði um 3,2% sem olli 0,03% hækkun, hækkun orlofsferða olli um 0,04% hækkun og breyting ýmissa annarra vöru og þjónustu- liða olli um 0,07% hækkun. Á móti vó verðlækkun mat- vöru sem olli 0,13% lækkun vísi- tölunnar og 1,3% lækkun fjár- magnskostnaðar sem olli um 0,07% lækkun vísitölunnar. upplýsingar:sImsvari91 -681511 lukkul!na991002 Vísitala framfærslukostnaðar: Verðbólga 1,0% á heilu ári Kauplagsnefnd hefur reiknað út vísitölu framfærslukostnað- Guðsþjónustur í Glerárprestakalli 16. aprfl, skírdag: Fermingar- guðsþjónustur kl. 10.30 og 14.00. Helgistund kl. 21.00. 17. apríl, föstudagurinn langi: Messa kl. 14.00 í Lögmannshlíð- arkirkju. 19. apríl, páskadagur: Hátíð- armessa kl. 8.00. Eftir messu verður sameiginlegur morgun- verður allra kirkjugesta. Guðsþjónusta í Akureyrar- prestakaili 16. apríl, skírdagur: Fermingar- guðsþjónustur kl. 10.30 og 13.30. Fyrirbænaguðsþjónusta og almenn altarisganga kl. 20.30. 17. aprfl, föstudagurinn langi: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00. Altarisganga kl. 19.30. 19. aprfl, páskadagur: Hátíð- arguðsþjónusta kl. 8.00. Hátíð- arguðsþjónusta kl. 14.00. Fjórðungssjúkrahúsið 19. aprfl, páskadag: Hátíðarguðs- þjónusta kl. 10.00. Hjúkrunardeild aldraðra, Sel I 19. apríl, páskadag: Hátíðar- guðsþjónusta kl. 14.00. Dvalarheimilið Hlíð 17. arpfl, föstudaginn langa: Hátiðarmessa kl. 16.00. Altarisganga. Minjasafnskirkjan 20. aprfl, 2. páskadag: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00. Miðgarðakirkja í Grímsey 20. aprfl, 2. páskadag: Hátíðarguðs- þjónusta kl. 14.00. Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum: Grenivöllum 12, 1. hæð að vestan, Akureyri, þingl. eigandi Svava F. Guðmundsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 22. apríl 1992, kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru: Ólafur Gústafsson hrl., Skúli J. Pálmason hrl. og Gunnar Sólnes hrl. Skeið, Svarfaðardal, þingl. eigandi Haukur S. Valdemarsson, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 22. apríl 1992, kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur eru: Landsbanki (slands og Gunnar Sólnes hrl. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu Það eru margir góðir á söluskrá og á staðnum Daihatsu Charade TS 3 dyra, sjálfsk. Ekinn 41.000 km. Vökvast., sumar/vetrardekk, árg. ’88. Verð 420.000 stgr. ★ Toyota Landcruser dísel, turbo, suttur, árg. ’86. Ekinn 70.000 km. Heilsársdekk, góður bíll. Skipti á ódýrari. ★ Suzuki 413 langur, 5 gíra, árg. ’86. Verð 550.000 stgr. ★ Honda Accord EX sjálfsk., vökvast. Rafm. í öllu. Ekinn 50.000 km. Skipti á ódýrari. Hjólhýsi Sprittner. Svefnpláss fyrir 6. Fortjald, pallur, eldavél, ísskápur, ofn. Verð 400.000. Á sama stað Pajero bensin, stuttur, árg. ’84. Selst saman með góðum afslætti. ★ Vantar bíla á staðinn. Bæjarins besta útisvæði. ÞÓRSHAMAR HF. BÍLASALA Glerárgötu 36, simi 11036 og 30470 Bridge Nýliðamót Nýliðamót BA heldur áfram í kvöld (14.4. '92) og hefst kl. 19.30 stundvíslega í Hamri. Skráning á staðnum (mætið tímanlega). Nýir og gamlir félgar velkomnir. Bridgefélag Akureyrar. it Móðir mín, GERÐUR NANNA SIGURGEIRSDÓTTIR, frá Ásgerðarstaðaseli i Hörgárdal, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri aðfaranótt 9. apríl verður jarðsett frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 15. apríl kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Helga Halldórsdóttir. Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföðurs, afa og langafa, GUÐMUNDAR S. ÁRNASONAR, frá Arnarnesi. Gunnhildur S. Guðmundsdóttir, Stefán Þórisson, Sesselía B. Guðmundsdóttir, Jón H. Pálsson, Unnur Guðmundsdóttir, Birgir H. Þórhallsson, Guðmundur S. Guðmundsson, Svava F. Guðmundsdóttir, Júlíus H. Kristjánsson, Heiðbrá Guðmundsdóttir, Sigurður M. Björnsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.