Dagur - 22.04.1992, Side 3

Dagur - 22.04.1992, Side 3
Miðvikudagur 22. apríl 1992 - DAGUR - 3 Fréttir Ríkisútvarpið: Langbylgjan komin í lag Langbylgjuútsendingar Ríkis- útvarpsins eru nú hafnar að nýju á 207 kílóriða tíðni. Jafnframt því hætta tíma- bundnar útsendingar allan sólarhringinn á stuttbylgju. Bruninn í loftnetshúsinu, sem stöðvaði útsendingarnar, er talinn stafa af því að ein- angrari á loftnetshúsinu hafi gefið sig og brotnað, með þeim afleiðingum, að háspennuleiðsla hafi snert húsið og kveikt í því. Útlit var fyrir að langbylgju- sendingar gætu legið niðri lengur sökum þess að alla varahluti vantaði, en starfs- menn Radíódreifistöðvadeild- ar Pósts- og síma sýndu mikla útsjónasemi og smíðuðu þann búnað er á vantaði. Pað er ástæðan fyrir því að sendingar eru nú hafnar, fyrr en vonir stóðu til. Flugleiðir hf.: Múnchen nýr áfanga- staður í sumaráætlun Átta áætlunarstaðir í Evrópu bætast við í sumaráætlun Flug- leiða. Einn þessara staða, Múnchen, er nýr í flugáætlun félagsins. Flugleiðir gera ráð fyrir að flytja rúmlega 5% fleiri farþega í Evrópuflugi en í fyrra. Flug til Frankfurt og Parísar hófs í síðustu viku. Fyrst um sinn verður flogið tvisvar í viku ti! þessara staða þ.e. á fimmtudög- um og sunnudögum. í sumar verður mest flogið fjórum sinn- um í viku til Frankfurt og fimm sinnum í viku til Parísar. Um miðjan maí verður byrjað að fljúga til Hamborgar. Fyrst vikulega en síðar tvisvar í viku. Þangað verður flogið fram til loka september. Laugardaginn 30. maí hefst flug til Zúrich og flogið verður fram til loka september. Fyrst um sinn verður flogið vikulega á laugardögum. í júlí og ágúst verða tvær ferðir í viku á mið- vikudögum og laugardögum. Helsinkiflug hefst 1. júní og þangað verður flogið á mánudög- um fram til 7. september. Flug til Vínar hefst föstudag- inn 5. júní og þangað verður flog- ið vikulega fram til loka ágúst. Vín er annar tveggja viðkomu- iStaða í Austurríki því föstudaginn 19. júní hefst flug að nýju til Salzburg. Þangað fljúga Flugleið- ir til 4. september. Laugardaginn 4. júlí byrja 5RIDDS íslandsmótið í tvímenningi 30. apríl til 3. maí nk. íslandsmótið í tvímenningi í bridge fer fram á Hótel Loftleið- um fimmtudagskvöldið 30. aprfl og hefst spilamennskan kl. 19.30. Áfram verður spilað föstudaginn 1. maí kl. 13 og 19.30. Spilaðar verða 3 lotur með Mitcell-formi og dregið um röð eftir hverja umferð sem er 28 spil. Fyrir hverja lotu eru gefin gullstig í hvorum riðli, fyrir fyrsta sæti 3 gullstig, fyrir annað sætið 2 gullstig og 1 gullstig fyrir þriðja sætið. Mótið er opið öllum innan Bridgesambands íslands og hefur ávallt verið vinsælt. Keppnis gjaldið er kr. 6.500 á par og gildir fyrir úrslitin líka, sem eru að þessu sinni spiluð í beinu fram- haldi á laugardag og sunnudag 2. og 3. maí. Par spila 32 pör, 23 sem komast áfram úr undan- keppninni, íslandsmeistarar í tvímenningi 1991, sem eru Sverr- ir Ármannsson og Matthías Þor- valdsson, og svæðameistarar allra átta svæðanna. Úrslitin verða einnig spiluð á Hótel Loftleiðum og hefst sú spilamennska laugardaginn 2. maí, en þá verða spilaðar samtals 20 umferðir. Sunnudaginn 3. maí íslandsmótið í sveitakeppni um páskana: Sveit Landsbréfa sigraði Sveit Landsbréfa sigraði á íslandsmótinu í sveitakeppni í bridds, sem haldið var á Hótel Loftleiðum um páskana. Átta sveitir kepptu um Islands- meistaratitilinn og þegar upp var staðið sigraði sveit Lands- bréfa með 12 stiga mun. Sveit Landsbréfa hlaut 139 stig. í öðru sæti kom sveit V.Í.B. með 127 stig, Tryggingamiðstöð- in var í þriðja sæti með 118 stig, Rauða ljónið í fjórða sæti með 111 stig, Hjalti Elíasson í fimmta sæti með 110 stig, S. Ármann Magnússon í því sjötta með 101 stig, sveit Gunnlaugs Kristjáns- sonar með 71 stig og sveit Sigfús- ar Þórðarsonar rak lestina með 49 stig. í sveit Landsbréfa voru Magnús Ólafsson, Björn Eysteinsson, Matthías Þorvaldsson, Sverrir Ármannsson, Jón Baldursson og Aðalsteinn Jörgensen. Skák Hraðskákmót SA: Rúnar fékk stærsta eggið Skákfélag Akureyrar hélt hraðskákmót um páskana og voru páskaegg í verðlaun. Rúnar Sigurpálsson hélt sig- urgöngu sinni áfram og tryggði sér stærsta eggið. Úrslit í mótinu urðu þessi: 1. Rúnar Sigurpálsson með 13 vinn- inga af 14 mögulegum. 2. Þórleif- ur Karlsson 12Vi v. 3. Gylfi Þór- hallsson 10 v. 4. Þór Valtýsson 10 v. 5.-6. Jón Garðar Viðarsson og Jón Björgvinsson 9 v. Gylfi og Þór tefldu einvígi um þriðja sæti og með sigri krækti Gylfi sér í þriðja páskaeggið sem var í boði en Þór fór svangur heim.__________________SS Áskorendaflokkur: Jón Árni seigur Jón Árni Jónsson frá Skákfé- lagi Akureyrar tefldi vel i áskorendaflokki á íslandsmót- inu í skák og lenti í 2.-4. sæti. Þessi árangur þýðir að Jón Árni mun tefla við hina tvo sem urðu honum jafnir um landsliðs- sæti en tveir efstu menn í áskor- endaflokki færast upp. SS verða spilaðar 11 umferðir og eru áætluð spilalok kl. 18. Mótinu verður síðan slitið að verðlauna- afhendingu lokinni. Skráning í mótið er á skrifstofu Bridgesambandsins í síma 91- 689360. Flugleiðir flug til Múnchen og fljúga síðan vikulega til 12. sept- ember. Farið verður um hinn nýja og glæsilega flugvöll Múnchen, sem var opnaður flugumferð í vor. Jafnframt því að áætlunarstöð- um í sumaráætlun Flugleiða fjölgar verður ferðatíðni til helstu áætlunarstaða í Evrópu og Bandaríkjunum aukin. ój Banaslys í Eyjafjarðarsveit Banaslys varð á bænum Leyningi í Eyjafjarðarsveit síðastliðinn miðvikudag. Tuttugu og níu ára gamall maður festist í drifskafti milli dráttarvélar og haug- sugu og var látinn þegar að var komið. Maðurinn var bóndi á bænum. Hann var einn heima þegar slysið varð. Hinn látni hét Indriði Kristjánsson. Hann var 29 ára gamall, ókvæntur og barnlaus. JÓH DEKK-DEKK-DEKK Sumardekkin komin ný og sóluð Vanir menn — Vönduð vinna. Greiðslukortaþjónusta - Greiðsluskilmálar. Möldur hf. hjólbarðaþjónusta Tryggvabraut 14, sími 21715. tniðvikudag (síðasta vetrardag) Hátsn' m1* Húsið opnað kl 22.00 með finnsku eldvatni Krýning „ungfrú \sland“ á breiðtjaldi Miðaverð kr. 800,- F rábær austurlenskur matur, pasta og pizzur. Borðapantanir í síma 24199

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.