Dagur - 22.04.1992, Síða 5
Miðvikudagur 22. apríl 1992 - DAGUR - 5
Björn S. Stefánsson.
spennufréttaefni í stað þess að
hafa hreinar línur í samskiptum
íslands við ES-ríkin með óskertri
landhelgi, óskertri lögsögu yfir
réttindum til atvinnurekstrar og
fríverzlun með sjávarafurðir án
afskipta utan að af því hvernig
sjór er stundaður innan fiskveiði-
landhelgi.
Þeir, sem eru kunnugri innvið-
um íslenzkra stjórnmála en ég,
máttu fyrir löngu skilja það, að
oddvitar íslenzkra jafnaðar-
manna ætluðu sér meira varðandi
ES en greiðari sölu útflutnings-
afurða. Auk þess sem þeir hafa
skýr markmið, en það vantar
aðra, hefur reynslan undanfarið
sýnt, að þeir eru manna klókastir
að reka mál sitt. Er það ekki
gáleysi þeirra, sem ekki fylgja
þeim að málum, að hafa látið þá
hafa í hendi sinni helztu þræði
þessara mikilvægu mála frá upp-
hafi?
II
Ráðherra utanríkisviðskipta full-
yrðir nú, að það dugi íslending-
um ekki að leita tvíhliða samn-
inga við ES um viðskipti. Fyrir-
rennari hans sem flokksformað-
ur, Gylfi Þ. Gíslason, sagði á lík-
an hátt sem ráðherra sömu mála,
þegar ES-mál voru í fyrsta sinn á
dagskrá hér á landi (árið 1962)
um þá úrlausn, sem Eysteinn
Jónsson hafði mælt með, að fá
afnumin höft á viðskiptum með
sjávarafurðir og tolla fellda
niður, gegn því að íslendingar
veittu hliðstæðar ívilnanir varð-
andi innflutning hingað til lands:
„En ég hika ekki við að segja,
að á þessu, ég segi því miður, er
áreiðanlega ekki möguleiki. í
fyrsta lagi er það af því, að sex-
veldin öll eru í GATT og eru
skuldbundin þeim reglum, sem
gilda þar. Það er ekki mögulegt
fyrir þau að lækka tolla á
fiskafurðum í heild eða nokkrum
einstökum fiskafurðum gagnvart
íslendingum einum eða nokkurri
annarri þjóð, sem stendur utan
við bandaglagið. í öðru lagi
mundum við ekki heldur geta
boðið upp á jafngildar ráðstafan-
ir af okkar hálfu á þessu sviði,
fyrst og fremst af því, að við get-
um ekki afnumið þau höft, sem
nú eru á innflutningi landbúnað-
arvara og ég tel nauðsynleg til
þess að vernda þá atvinnugrein
hér, og auk þess hefur engum
dottið í hug, að við þyrftum ekki
langan tíma til þess að lækka þá
tolla, sem nú eru á erlendum iðn-
aðarvörum til verndar íslenzkum
iðnað.“
Ráðherrann fullyrti þarna, að
ES gæti ekki lækkað tolla á
fiskafurðum í heild eða nokkrum
einstökum fiskafurðum gagnvart
íslendingum.
Árið 1972, ári síðar en Gylfi
vék úr ráðherrasæti, var engu að
síður gerður samningur við ES,
sem afnemur toll á frystum fiski
frá íslandi og fullunnum sjávar-
afurðum. Þetta gerðist án þess,
sem ráðherrann taldi víst, að sett
yrði skilyrði um, að ísland drægi
úr innflutningsvernd á landbún-
aðarvöru. Samningurinn tók gildi
að fullu að lokinni landhelgisdeil-
unni, árið 1976.
Sama ár birtist kandidatsrit-
gerð við viðskiptadeild Háskól-
ans um þessi mál. Þá var ráðherr-
ann fyrrverandi aftur orðinn
kennari þar. Kandidatinn hafði
aðgang að óbirtum skjölum og
vitaskuld að kennara sínum. Þar
er annað sagt en ráðherrann
sagði 1962 af þeim kostum, sem
taldir voru bjóðast íslendingum.
Frá viðræðum viðskiptaráð-
herra og fjármálaráðherra við
fulltrúa þýzku ríkisstjórnarinnar
í Bonn 28. september 1961 er
m.a. eftirfarandi greint um skoð-
un Þjóðverja: „Þjóðverjar sögðu,
að aukaaðild hefði þann kost, að
hún veitti meiri sveigjanleika og
gerði vandamálin viðráðanlegri. í
viðbót við aukaaðild töldu þeir,
að viðskiptasamningur á milli
íslands og Efnahagsbandalagsins
kæmi einnig til greina. Gæta yrði
þó þess, að slíkur samningur væri
í samræmi við reglur Alþjóða-
tollabandalagsins (GATT).“
Þjóðverjar kusu sem sagt
aukaaðild, eins og ráðherrann
mælti með, en hitt gat líka orðið
að þeirra dómi. í sömu ritgerð
kemur raunar fram, að þetta var
úrlausn, sem Frakkar og ítalskur
ráðherra kusu, þegar ráðherrann
og ráðunautur ríkisstjórnarinnar
í markaðsmáium ræddu við þá
vorið 1962.
III
Með EES-samningum eru lækk-
aðir tollar á sjávarafurðum, aðal-
lega lítt unnum. Þetta eru ekki
þær afurðir, sem mestar sóknar-
vonir eru tengdar í fiskvinnslu.
Þær hafa verið ótollaðar síðan
1976. Að dómi ýmissa, þ.á m.
ritstjórnar Morgunblaðsins, er
þetta ekki stórvægilegur ávinn-
ingur, þegar á heildina er litið, en
Mbl. mælir með EES-samningum
af öðrum ástæðum. Það er því
verið að leggja mikið undir fyrir
lítinn vinning að flækja ísland í
samninga og skuldbindingar, sem
varða forræðið yfir mikilvægustu
auðlind landsmanna, ekki sízt
vegna þess að hér eru áhrifamikl-
ir menn í sjávarútvegi og stjórn-
málum, sem ekki telja það frá-
leitt að ganga lengra í því að
heimila erlendum fyrirtækjum
sjávarnytjar hér.
Það úrræði, sem l'elst í EES-
samningnum að hafa ekki sem
hreinust skipti í þessum efnum,
færir ábyrgðina undir embættis-
menn, sem eiga að leysa úr álita-
efnum. Það er varasamt. Hætt er
við, að ýmis vitneskja, sem
almenningur og fulltrúar hans
þurfa á að halda, týnist eða komi
seint fram. Dæmi um það er áð-
urnefnd opinber frásögn Gylfa Þ.
Gíslasonar á fundi árið 1962 til
samanburðar við skýrslu þá, sem
nemandi hans fékk í hendur 14
árum síðar.
Skyldi nú ekki vera lag í þess-
um efnum til að ná árangri á
grundvelli GATT-samninga, án
skerðingar á landhelgi og án
skuldbindinga um athafnafrelsi
ES-skipa hér við land, ef sæti
ráðherra utanríkisviðskipta væri
skipað þeim sem kærði sig um
það og ekki hefði sem megin-
markmið, að íslendingar flækist í
mál ES með aðild eða á annan
hátt? Þá þarf einnig að vera
tryggt, að fulltrúar íslands hafi
áttað sig á þeim eðlismun, sem er
á sjávarútvegi og landbúnaði (þar
með talið fiskeldi) í þessu tilliti
og bent var á hér að framan.
Björn S. Stefánsson.
Höfundur er doktor í hagfræði.
Agalaus böm
í kirkjum
Þakkir fyrir
Messías
„Leikhúsgestur“ hringdi:
„Ég vil koma á framfæri þakklæti til
Freyvangsleikhússins fyrir frábær-
lega vel unna og góða sýningu á
Messíasi Mannssyni. Það er
aðdáunarvert hvað þessi sýning hef-
ur heppnast vel og mér finnst kjörið
fyrir ungt fólk og fjölskyldur með
stálpuð böm að fara á sýninguna og
ræða efni hennar. Allur söngur er
sérstaklega vel heppnaður og leikur
góður. Ég hef orðið vör við að það
hafa komið stórir hópar langt að til
að sjá sýninguna og maður hefur
séð hrifningu á hverju andliti
Anna hringdi:
„Ég vil koma á framfæri hvort
til of mikils væri mælst við foreldra
að þau hafi aga á sínum börn-
um við athafnir í kirkjum, t.d.
við fermingarguðsþjónustu í
Glerárkirkju. Að börnin noti
ekki kirkjuna sem hlaupavöll,
hangi í gardínum, skríði milli
stóla hjá gestum og raski athöfn-
inni. Þarna er um að ræða svo
hátíðlega athöfn að slíkt á ekki
að gerast. Fólk á þá að hafa börn-
in heima ef ekki er hægt að hafa
aga á þeim en leyfa okkur hinum
að njóta athafnarinnar."
Lesendur athugið!
Lesendur eru hvattir til að láta álit sitt í Ijós í lesendaþætti
blaðsins.
Tekið er við lesendabréfum á ritstjórnarskrifstofum Dags á
Akureyri, Húsavík og Sauðárkróki. Æskilegt er að bréfin séu
vélrituð. Einnig geta lesendur hringt til að koma skoðunum sín-
um á framfæri.
Af gefnu tilefni skal það tekið fram að fullt nafn, heimilis-
fang, kennitala og símanúmer þarf að fylgja með bréfunum,
jafnvel þótt viðkomandi kjósi að skrifa undir dulnefni. Það
sama gildir ef lesendur kjósa að nota símann. Einnig skal það
tekið fram að ef bréfritari eða sá sem hringir er að deila á
ákveðna persónu eða persónur, verður hann að koma fram und-
ir fullu nafni. Að öðrum kosti verður bréfið ekki birt. Ritstjóri
Aðalfundur
Styrktarfélags vangefinna
veröur haldinn aö löjulundi mánudaginn 27. apríl kl.
20.30.
Venjuleg aöalfundarstörf.
Félagar fjölmennið!
Stjórnin.
Stóðhestasýning
Norðurlands 1992
8.-9. maí á Hólum í Hjaltadal
8. maí kl. 9 Dómsstörf: Sláðhestar af tamn-
ingastöðinni á Hólum.
Stóðhestar af Norðurlandi (opið
öllum 3 v. og eldri).
Forskoðun fyrir Fjórðungsmót á
Vesturlandi.
9. maí kl. 14 Sýning: Yfirlitssýning dóma 8.
maí.
Aðrar sýningar og uppákomur
(nánar auglýst síðar).
Tekið er á móti skráningum á skrifstofum búnaðar-
sambandanna og Bændaskólanum Hólum (s. 95-
35962) til 30. apríl.
Bændaskólinn Hólum.
Nú fá þínar
listauppskriftir að
njóta sín.
Matargerð er list
og unairstaðan er
úrvals hráefni.
Brauðgerð, Smjörlíkisgerð
og Kjötiðnaðarstöð KEA
leita eftir þínum listauppskriftum.
✓
I matvöruverslunum KEA
færð þú þátttökukort og
bækling með upplýsingum
um samkeppnina.