Dagur - 22.04.1992, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 22. apríl 1992 - DAGUR - 9
Jón Haukur Brynjólfsson
Kristinn náði takmarkinu
Skíðaganga:
Dan Akureyrarmeistari
Kristinn Björnsson náði því
takmarki að sigra á einu móti í
alþjóðlegu mótaröðinni Visa
Cup sem iauk í Bláfjöllum á
laugardag. Kristinn sigraði í
svigi í fjórða mótinu sem fram
fór á ísafirði á miðvikudag og
lenti síðan í 2. sæti í síðasta
mótinu á laugardag.
Kristinn skaut Norðmanninum
Atle Hovi ref fyrir rass í sviginu á
miðvikudag, kom á samanlögð-
um tíma 1:27,49 en Hovi á
1:27,63. Sverre Liljequist varð í
3. sæti og Arnór Gunnarsson í 4.
sæti. í kvennaflokknum var einnig
keppt í svigi og þar vann heims-
og ólympíumeistarinn Pernilla
Wiberg sinn fjórða sigur í röð en
landa hennar Kristina Andersson
varð í 2. sæti. Ásta Halldórsdótt-
ir hafnaði í 4. sæti og Guðrún H.
Kristjánsdóttir í 7. sæti.
Á fimmtudaginn sigraði síðan
ísfirðingurinn Arnór Gunnarsson
í svigi en Magnus Oja frá Svíþjóð
varð annar. Wiberg vann sinn
fimmta sigur í kvennaflokknum
en Ásta varð í 4.-5. sæti og Guð-
rún H. í 7. sæti.
í síðasta mótinu í Bláfjöllum
bar það hins vegar til tíðinda að
Pernilla Wiberg keyrði út úr
brautinni í svigi kvenna og þetta
var því eina mótið af sex sem hún
vann ekki. Sigurvegari varð
Marienne Kjörstad frá Noregi en
Ásta Halldórsdóttir lenti í 2.
sæti. í karlaflokknum sigraði
Fridjof Henmark frá Svíþjóð en
Kristinn Björnsson hafnaði í 2.
sæti.
Hlíðarfjall:
Brynjumót
í stórsvigi
Á laugardaginn var keppt á
svokölluðu Brynjumóti í
stórsvigi í Hlíðarfjalli.
Keppt var í þremur aldurs-
flokkum 8-12 ára drengja og
stúlkna.
í mótinu tóku þátt börn frá
Akureyri, Ólafsfirði og
Dalvík. Úrslit urðu eftir-
farandi:
Drengir 8 ára og yngri
1. Birkir Baldvinsson, A. 59,65
2. Baldvin Þorsteinsson, A. 59,73
3. Kristján Uni Óskarsson, Ó. 1:01,95
Stúlkur 8 ára og yngri
1. Arna Arnarsdóttir, A. 56,24
2. Hulda Margrét Óladóttir, A. 1:01,86
3. Helena Auðunsdóttir, A. 1:03,02
Drengir 9-10 ára
1. Kristinn Magnússon, A. 1:09,47
2. Einar Örn Másson, D. 1:18,05
3. Gunnar Eiríksson, D. 1:19,83
Stúlkur 9-10 ára
1. Ása Katrín Gunnlaugsd., A. 1:11,38
2. Ragnh. TinnaTómasdóttir, A. 1:15,75
3. María Stefánsdóttir, A. 1:17,66
Drengir 11-12 ára
1. Jóhann Þórhallsson, A. 1:22,24
2. Sturla Már Bjarnason, D. 1:22,48
3. Rúnar Friðriksson, A. 1:24,83
Stúlkur 11-12 ára
1. Rannveig Jóhannsdóttir, A. 1:30,23
2. Stefanía Steinsdóttir, A. 1:31,86
3. Rósa María Sigbjörnsdóttir, A. 1:31,88
Á föstudaginn langa fór fram
Akureyrarmót í skíðagöngu í
Hlíðarfjalli. Keppt var í 9
flokkum karla og kvenna og
var gengið með hefðbundinni
aðferð í mjög góðu veðri.
í flokki karla 17-34 ára fór
þjálfarinn Dan Hellström með
sigur af hólmi í keppni gegn læri-
sveinum sínum en aðeins munaði
tveimur sekúndum á honum og
Kristjáni Ólafssyni.
Úrslit í mótinu urðu þessi:
Drengir 8 ára og yngri, 1,0 km
1. Jón Þór Guðmundsson, Þór 5,38
2. Einar Egilsson, KA 6,00
3. Páll Þór Ingvarsson, KA 6,02
Drengir 9-10 ára, 1,5 km
1. Rögnvaldur Björnsson, Þór 7,17
2. Björn Blöndal, KA 7,21
3. Geir Egilsson, KA 7,38
Stúlkur 12 ára og yngri, 1,5 km
1. Arna Pálsdóttir, KA 7,14
2. Kristín Haraldsdóttir, KA 7,20
3. Þórhildur Kristjánsdóttir, Þór 9,03
Drengir 11-12 ára, 2,5 km
1. Helgi Jóhannesson, Þór 8,50
2. Baldur Ingvarsson, KA 9,30
3. Grétar Orri Kristinsson, KA 9,33
Stúlkur 13 ára og eldri, 3,0 km
1. Harpa Pálsdóttir, KA 13,52
Piltar 13-14 ára, 5,0 km
1. Þóroddur Ingvarsson, KA 16,30
2. Stefán Snær Kristinsson, KA 17,29
3. Gísli Harðarson, KA 17,42
Karlar 17-34 ára, 12,0 km
1. Dan Hellström, Þór 33,17
2. Kristján Ólafsson, KA 33,19
3. Kári Jóhannesson, KA 34,48
Karlar 3549 ára, 9,0 km
1. Ingþór Bjarnason, Þór 28,51
2. Jóhannes Kárason, KA 29,05
3. Sigurður Pálmi Einarss., Þór 31,43
Karlar 50 ára og eldri, 6,0 km
1. Þorlákur Sigurðsson, KA 22,26
14. apríl var einnig haldið KA-
mót í göngu í Hh'ðarfjalli þar sem
gengið var með frjálsri aðferð.
Þar urðu úrslit eftirfarandi:
Drengir 8 ára og yngrí, 1,0 km
1. Einar Páll Egilsson, KA 6,03
2. Jón Þór Guðmundsson, Þór 6,07
3. Andri Steindórsson, KA 6,47
Drengir 9-10 ára, 1,5 km
1. Geir Egilsson, KA 7,09
2. Rögnvaldur Björnsson, Þór 7,11
3. Hannes Árdal, Þór 7,13
Stúlkur 12 ára og yngri, 1,5 km
1. Svava Jónsdóttir, Leiftri 6,45
2. Arna Pálsdóttir, KA 7,25
3. Kristín Haraldsdóttir, KA 7,26
Drengir 11-12 ára, 2,0 km
1. Helgi H. Jóhannesson, Þór 8,08
2. Garðar Guðmundsson, Leiftri 8,52
3. Baldur H. Ingvarsson, KA 9,29
Stúlkur 13-15 ára, 1,5 km
1. Harpa Pálsdóttir, KA 8,04
Piltar 13-14 ára, 4,0 km
1. Þóroddur Ingvarsson, KA 15,10
2. Gísli Harðarson, KA 16,12
3. Stefán S. Kristinsson, KA 17,23
Karlar 17-34 ára, 10,0 km
1. Dan Hellström, Þór 30,05
2. Kristján Ó. Ólafsson, KA 32,05
3. Kári Jóhannesson, KA 32,51
Karlar 35-50 ára, 7,5 km
1. Jóhannes Kárason, KA 27,58
2. Ingþór Bjarnason, Þór 28,20
Enska knattspyrnan
Þorleifur Ananíasson
Toppliðin heppin að halda jöfnu
- fallbaráttan harðnar - staða West Ham nær vonlaus
Heil umferð var leikin í 1.
deild á Englandi á laugardag-
inn fyrir páska, en línur skírð-
ust ekki hvað varðar efsta
sætið. Bæði Man. Utd. og
Leeds Utd. gerðu jafntefli í
leikjum sínum og staða liðanna
breyttist því ekki, en óbreytt
ástand er að sjálfsögðu liði
Man. Utd. í hag og tækifærum
Leeds Utd. til að snúa taflinu
sér í hag fer fækkandi. En lít-
um þá á leikina.
■ Man. Utd. styrkti mjög stöðu
sína í deildinni er liðið sigraði
Southampton með marki Andrej
Kantchelkis í vikunni fyrir páska.
Þar með náði Man. Utd. tveggja
stiga forskoti á Leeds Utd. og átti
leik til góða. Á laugardag mætti
Man. Utd. fallbaráttuliði Luton á
útivelli og mátti þakka fyrir jafn-
tefli úr leiknum. Lee Sharpe náði
forystu fyrir Utd. gegn gangi
leiksins á 23. mín. eftir sendingu
frá Mike Hughes og skot Sharpe
fór í gegnum klofið á Alec
Charberlain markverði Luton.
Mark Pembridge besti maður
Luton í leiknum hafði áður átt
skot í þverslá Utd. marksins, en á
6. mín síðari hálfleiks jafnaði
Mick Harford fyrir Luton. David
Preece sendi fyrir mark Utd.,
Harford skallaði í slá, en fékk
boltann aftur og sendi hann í
mark Utd. Ekki tókst liðunum að
bæta við mörkum og Manchester
liðið var sáttara við jafnteflið en
leikmenn Luton.
■ Markalaus jafnteflisleikur
Liverpool gegn Leeds Utd. á
Anfield var sýndur í sjónvarpinu
og urðu menn vitni að mikilli bar-
áttu tveggja sterkra liða. Leeds
Utd. saknaði fyrirliða síns, Gordon
Srachan og átti undir högg að
sækja allan leikinn. Það var
aðeins í lokin sem sókn Leeds
Utd. skapaði einhverja hættu
uppvið mark Liverpool. Leik-
menn Liverpool fengu ágæt færi í
leiknum, en mættu ofjarli sínum
þar sem var John Lukic mark-
vörður Leeds Utd., en hann
varði oft mjög vel og Leeds Utd.
getur þakkað honum að liðið er
enn með í baráttunni um Eng-
landsmeistaratitilinn.
■ Eftir tap á útivelli gegn Man.
City þarf West Ham á kraftaverki
að halda til að forðast fall í 2.
deild. Neil Pinton skoraði fyrir
City strax á 1. mín. og Wayne
Clarke gerði út um vonir West
Ham með öðru marki City á 77.
mín. Clarke hafði komið inná
sem varamaður, en áður en
hann skoraði fengu Stuart Slater
og Mike Small færi á að jafna fyr-
ir West Ham, en mistókst. Ludek
Miklosko hafði í nógu að snúast í
marki West Ham í leiknum.
■ Notts County sigraði Norwich
1:0 á útivelli í slökum leik og
hvassviðri. Rob Matthews skoraði
eina mark leiksins fyrir County í
síðari hálfleik með skoti frá víta-
teig sem fór í varnarmann
Norwich og yfir Mark Walton í
marki Norwich. Sigurinn dugir
þó tæpast til að halda County í 1.
deild og Norwich má fara að vara
sig.
■ Markalaust jafntefli varð í
leik Crystal Palace og Oldham,
en hvorugt liðið hefur fyrir neinu
að berjast.
■ Sheffield Wed. nálgast efstu
liðin stöðugt og gæti með heppni
náð öðru sætinu. David Hirst
skoraði sigurmark liðsins á úti-
Gary Lineker skoraði tvö mörk í sigrí Tottenham á Wimbledon.
velli gegn Southampton.
■ Coventry er nú komið í bull-
andi fallhættu og liðið varð að
þola tap heima gegn liði Everton
sem ekkert tekur á þessa dagana.
Coventry lék þó betur og skalla
Paul Furlong var bjargað á línu
auk þess sem Neville Southall
varði mjög vel frá Shaun Flynn.
Dómarinn sleppti einnig augljósri
vítaspyrnu á Everton er Kevin
Gallacher slapp í gegnum vörn
liðsins og var felldur af Southall.
Everton tryggði sér síðan sigur í
leiknum er 10 mín. voru eftir,
skot Peter Beagrie lenti í varn-
armanni og hafnaði í marki
Coventry.
■ Bobby Davison náði forystu
fyrir Sheffield Utd. í fyrri hállleik
gegn Arsenal, en það dugði ekki
til sigurs því Kevin Campbell
jafnaði fyrir Arsenal á 58. mín og
þar við sat.
■ Lawrie Sanchez kom Wimble-
don yfir strax á 1. mín. gegn
Tottenham og enn einn ósigurinn
á heimavelli virtist blasa við Tott-
enham. En tvö mörk frá Gary
Lineker og eitt frá John Hendry
komu Tottenham í 3:1 áður en
Robbie Earle náði að minnka
muninn í 3:2 undir lokin og þann-
ig lauk leiknum.
■ Nottingham For. sigraði Aston
Villa með marki í hvorum hálf-
leik, Scott Gemmill í þeim fyrri
og Teddy Sheringham í þeim síð-
ari sáu um að skora.
■ Mörk frá Steve Clarke og
Dennis Wise sitt hvoru megin við
leikhlé dugðu Chelsea til sigurs
gegn Q.P.R., en þó náði Bradley
Allen að minnka muninn fyrir
Q.P.R. undir lok leiksins.
Þ.L.A.