Dagur


Dagur - 22.04.1992, Qupperneq 10

Dagur - 22.04.1992, Qupperneq 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 22. apríl 1992 Enska KNATTSPYRNAN Þorleifur Ananíasson Nott.For. brá fæti fyrir Man. Utd. - „Toddi“ og félagar til ama á Old Trafford - Leeds Utd. sigraði Coventry Ekki fór það svo að úrslit réð- ust í baráttunni um meistaratit- ilinn á Englandi um páskana eins og margir héldu. Þvert á móti þá er staðan nú enn flóknari en áður og Sheffield Wed. hefur öllum að óvörum blandað sér í baráttuna þó möguleikar liðsins séu ekki miklir. Þrátt fyrir að Leeds Utd. tækist með harðfylgi að ná efsta sætinu, eru þó mögu- leikar Man. Utd. á titlinum bestir og liðið hefur það í eigin hendi að sigra deildina. En þá eru það leikirnir á öðrum degi páska. ■ Nottingham For. náði fram hefndum á Man. Utd. er liðin mættust á Old Trafford. Utd. hafði fyrir viku sigrað Forest í úrslitum Deildabikarsins og þannig komið í veg fyrir að For- est kæmist í Evrópukeppni næsta ✓ Urslit Úrslit í vikunni fyrir páska. 1. deild Luton-Nottingham For. 2:1 Man. Utd.-Southainpton 1:0 Sheflield Utd.-Tottenham 2:0 West Ham-Southampton 0:1 2. deild Blackbum-Wolves 1:2 Leicester-Tranmere 1:0 Middlesbrough-Oxford 2:1 Middlesbrough-Barnsley 0:1 Sunderland-Plymouth 0:1 Sunderland-Ipswich 3:0 Laugardagur fyrir páska. 1. deild Chelsea-Q.P.R. 2:1 Coventry-Everton 0:1 Crystal Palace-Oldham 0:0 Liverpool-Leeds Utd. 0:0 Luton-Manchester Utd. 1:1 Manchester City-West Ham 2:0 Norwich-Notts County 0:1 Nottingham For.-Aston Villa 2:0 Sheffield Utd.-Arsenal 1:1 Southampton-Sheffield Wed. 0:1 Tottenham-Wimbledon 3:2 2. deild Southend-Port Vale 0:0 Brighton-Derby 1:2 Cambridge-Portsmouth 2:2 Barnsley-Tranmere 1:1 Blackburn-Leicester 0:1 Bristol City-Ipswich 2:1 Charlton-Watford 1:1 Grimsby-Sunderland 2:0 Middlesbrough-Plymouth 2:1 Newcastle-Millwall 0:1 Oxford-Bristol Rovers 2:2 Swindon-Wolves 1:0 Annar í páskum. 1. deild Arsenal-Liverpool 4:0 Aston Villa-Chelsea 3:1 Everton-Manchester City 1:2 Leeds Utd.-Coventry 2:0 Man. Utd.-Nottingham For. 1:2 Notts County-SheHield Utd. 1:3 Oldham-Tottenham 1:0 Q.P.R.-Luton 2:1 Sheffield Wed.-Norwich 2:0 West Ham-Crystal Palace 0:2 Wimbledon-Southampton 0:1 2. deild Bristol Rovers-Brighton 4:1 Derby-Newcastle 4:1 Plymouth-Oxford 3:1 Portsmouth-Bristol City 1:0 Sunderland-Middlesbrough 1:0 Tranmere-Blackbum 2:2 Watford-Swindon 0:0 Wolves-Southend 3:1 ár, en sigur Forest nú kemur sér mjög illa fyrir Utd. á lokasprett- inum í 1. deild. Svo virðist sem álagið sé að verða of mikið fyrir Utd., en liðinu hefur þó oft geng- ið illa gegn Forest og hefur tapað báðum deildaleikjum sínum gegn þeim í vetur. Heimamenn náðu aldrei tökum á leiknum og furðu- legt að Mark Hughes miðherji Utd. var látinn byrja á bekknum, en Nigel Clough lék sem mið- vörður hjá Forest vegna meiðsla í liðinu. En það var á miðjunni sem leikurinn tapaðist hjá Utd., Bryan Robson og Paul Ince léku ekki með vegna meiðsla og þeir Scott Gemmill og Roy Keane hjá Forest voru of erfiðir fyrir Neil Webb og Mike Phelan. Ian Woan náði forystu fyrir Forest í fyrri hálfleik eftir sendingu Shering- ham, en Peter Schmeichel mark- vörður Utd. hefði átt að verja skotið. Skömmu síðar jafnaði Brian McClair með skalla fyrir Utd. eftir sendingu frá Steve Bruce, en 8 mín. fyrir leikslok gerði Gemmill sigurmark Forest eftir snögga aukaspyrnu þar sem vörn Utd. var ekki með á nótun- um. Heimamenn sóttu stíft í lokin, en lið Forest barðist mjög og ekki síst Þorvaldur Örlygsson sem leikið hefur með um páskana, náði að halda fengnum hlut. í fyrra réð Forest því með sigri á Liverpool hvar titillinn lenti og nú er spurningin hvort þeir hafi með þessum sigri ákvarðað Eng- landsbikarnum næsta samastað. ■ Leeds Utd. hóf leik sinn heima gegn Coventry eftir að leiknum lauk á Old Trafford og vissi því að með sigri kæmist liðið að nýju í efsta sæti deildarinnar. Og það tókst, mörk í síðari hálf- leik frá Chris Fairchlough og mark úr vítaspyrnu frá Gary McAllister tryggðu liðinu 2:0 sig- ur í spennandi hörkuleik. Leeds Utd. hefur nú eins stigs forskot, Gary McAllistair gulltryggði sigur Leeds Utd. gegn Coventry með marki úr vítaspyrnu. en liðið á eftir leiki úti gegn Sheffield Utd. og heima gegn Norwich, en jafnvel sigur í þeim báðum er ekki trygging fyrir titl- inum. Man. Utd. á eftir útileiki gegn West Ham og Liverpool og leik heima gegn Tottenham. ■ Sheffield Wed. er nú farið að narta í hælana á toppliðunum Ian Woan skoraði fyrra mark Nott. For. gegn Man. Utd. tveim, liðið á eftir að leika gegn Crystal Palace úti og heima gegn Liverpool, en möguleikar liðsins felast aðeins í hruni hinna tveggja. Roland Nilsson og John Sheridan tryggðu liðinu öruggan sigur á Norwich. ■ West Ham er nær örugglega fallið í 2. deild eftir 2:0 tap heima gegn Crystal Palace. Mark Bright og Chris Coleman gerðu mörkin fyrir Palace og ólíklegt að West Ham verði mikil hindrun fyrir Man. Utd. á miðvikudag. ■ Nú virðist hinn árlegi flótti Luton úr fallhættunni ætla að mistakast eftir 2:1 tap liðsins gegn Q.P.R. Mark Pembridge náði forystu fyrir Luton, en Les Ferdinand sneri leiknum Q.P.R. í hag með tveim mörkum í síðari hálfleiknum. ■ Arsenal tók Liverpool í kennslustund og burstaði þá 4:0. Dave Hillier á 6. mín., Ian Wright á 16. mín., Anders Limp- ar með ótrúlegt mark rétt fyrir hlé og síðan Wright með sitt ann- að mark rétt eftir hlé sáu um að skora. ■ Steve Staunton, Paul McGrath og Garry Parker gerðu mörk Ast- on Villa í 3:1 sigri á Chelsea þar sem Frank Sinclair skoraði eina mark Chelsea. ■ Niall Quinn gerði bæði mörk Man. City gegn Everton, það fyrra strax á 2. mín. Pat Nevin náði að jafna leikinn í 1:1 fyrir Everton, en það dugði þó skammt. ■ Nick Henry gerði eina mark leiksins fyrir Öldham gegn Tott- enham í þýðingarlitlum leik. ■ Richard Hall skoraði sigur- mark Southampton á 30. mín. gegn Wimbledon. ■ Notts County steinlá heima 3:1 gegn hinu sterka liði Sheffield Utd. og nú virðist fátt geta bjarg- að County frá falli í 2. deild. Paul Beesley, Glyn Hodges og Bobby Davison gerðu mörk Sheff. Utd., en Kevin Bartlett svaraði fyrir Notts County. Þ.L.A. Staðan 1. deild Leeds Utd. '40 20-16- 4 70:35 76 Manchester Utd. 39 20-15- 4 60:29 75 Sheffield Wednesday 40 21-10- 9 62:49 73 Arsenal 40 18-14- 8 75:44 68 Manchester City 40 18-10-12 54:46 64 Liverpool 39 15-14-10 44:39 59 Shcffield Utd. 40 16- 9-15 63:57 57 Nottingham For. 39 18- 9-12 58:53 57 Aston Villa 40 16- 9-15 46:42 57 Crystal Palace 40 14-14-12 52:59 56 Chelsea 40 13-13-14 48:57 52 Oldham 40 14- 9-1761:6151 Tottenham 40 15- 6-19 54:57 51 QPR 40 11-17-12 46:46 50 Everton 40 12-13-15 47:4649 Wimbledon 40 12-13-15 49:51 49 Southampton 40 13-10-1737:50 49 Nonvich 40 11-11-18 46:61 44 Covenlrj 40 10-11-19 35:43 41 Luton 40 9-12-20 35:69 39 Notts Counh 40 9-10-21 38:59 37 West Ham 39 7-10-22 33:58 32 2. deild Ipswich 4313-10-10 66:48 79 Leicester 43 22- 8-13 59:50 74 Derby 44 21- 9-14 65:49 72 Middlesbrough 43 20-11-12 52:39 71 Cambridge 43 18-16- 9 58:41 70 Blackburn 43 19-10-14 63:49 67 Charlton 42 19-10-13 51:45 67 Swindon 43 17-14-12 67:53 65 Portsmouth 42 18-11-13 62:48 65 Wolves 44 18-10-16 60:50 64 Southend 44 17-10-17 62:60 61 Bristol Rovers 44 15-14-15 58:61 59 Watford 43 16-10-1745:46 58 Tranmere 43 13-18-12 53:53 57 Millwall 43 16- 9-18 60:68 57 Bamsley 43 15-10-18 34:54 55 Bristol City 45 13-15-16 52:64 54 Sunderland 42 14- 7-21 55:59 49 Grimsby 42 13-10-1946:5849 Plymouth 4413- 9-2241:6048 Oxford 44 12-10-22 63:71 46 Newcastle 44 11-13-20 63:83 46 Port Vale 43 10-14-19 39:53 44 Brighton 43 11-10-22 51:71 43

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.