Dagur - 22.04.1992, Side 11
Miðvikudagur 22. apríl 1992 - DAGUR - 11
HÉR & ÞAR
Leikkonan Daryl Hannah:
Grænmetisæta af
tilfmningaástæðiim
Leikkonan glæsilega, Daryl
Hannah, féll á sínum tíma fyrir
kálfi! Trúi því hver sem vill og
það sem meira er; upp frá því
gerðist hún grænmetisæta og
borðar síðan ekkert kjöt.
Þetta gerðist þegar leikkonan
var aðeins 11 ára. Hún var á
ferðalagi í Wisconsin í Banda-
ríkjunum með foreldrum sínum
og þau höfðu stoppað á ham-
borgarastað við hraðbrautina.
Daryl vildi ekkert borða og sat
því í bílnum á meðan og virti fyr-
ir sér umferðina. Fljótlega tók
hún eftir flutningabíl sem líka var
við hamborgarastaðinn og farm-
urinn vakti athyglina því þarna
var heill hópur af ungálfum. Sú
stutta tók sig til og fór að skoða
kálfana og féll þá alveg fyrir ein-
um þeirra. Flutningabílstjórinn
kom fljótlega og þá spurði hún
hann hvað kálfurinn héti.
„Það veit ég ekki,“ svaraði
hann hranalega. „Þeim verður
öllum slátrað á morgun."
„Og upp frá því hét ég að
borða ekki kjöt,“ segir leikkon-
an. „Ég gerðist því grænmetisæta
hreinlega af tilfinningalegum
ástæðum þó mér hafi ekki fundist
grænmeti gott þá. En þetta hélt.“
Vel heppnað þorrablót ís-
lendingafélagsins í Hamborg
„Þann 20. febrúar sl. blés íslend-
ingafélagið í Hamborg til árlegs
þorrablóts síns.
Á annað hundrað manns sóttu
skemmtunina sem tókst í alla
staði mjög vel. Lykillinn að vel
heppnuðu kvöldi var óneitanlega
frábær frammistaða Ingimars
Eydal og hljómsveitar hans, sem
með dyggilegri aðstoð Flugleiða
hf. var ferjuð á meginlandið. Það
var til marks um fórnfýsi hljóm-
sveitarmeðlima, að trommu-
leikarinn, Þorleifur Jóhannsson,
kom gagngert til að leika á blót-
inu og stóð dvöl hans í Hamborg
í Vi sólarhring. Ferðin til og frá
Hamborg með tilheyrandi veður-
teppum tók hins vegar alls um 4
sólarhringa.
Undirbúningur fyrir næsta
þorrablót er þegar hafinn og ber
þar hæst tilraunir stjórnarmanna
að mega óáreittir bera fram
rófur, en talið er að friðun þeirra
geti orðið næsta baráttumál
Grænfriðunga, nú þegar hval-
rengi heyra sögunni til á þorra-
trogum Islendinga heima og að
heiman."
Með bestu kveðjum,
f.h. stjórnar Félags
íslendinga í Hamborg,
Birgitta Guðmundsdóttir.
Fró þorrablótinu í Hamborg. Ingimar Eydal skilaði sínu með prýði að vanda
en „dincrtónlist“, fjöldasöngur og danstónlistin voru í öruggum höndum
hans og félaga hans. Til vinstri á myndinni er veislustjórinn, Davíð Jóhanns-
son.
Tannsjúkdómasambandið:
Biðst velvirðingar á óná-
kvæmu og villandi orðalagi
- í fréttatilkynningu um skaðsemi amalgamtannfyllinga
Vegna fréttatilkynningar frá
Tannsjúkdómasambandinu 29.
mars sl., sem Dagur birti
úrdrátt úr og vitnaði í þann 9.
apríl sl., vill Tannsjúkdóma-
sambandið taka fram eftirfar-
andi:
„Ónákvæmt og villandi orða-
lag í fréttatilkynningunni á
tveimur stöðum gaf greinilega
tilefni til túlkunar, sem beðist er
velvirðingar á.
í fyrsta lagi var sagt í fréttatil-
kynningunni „að byrjað væri að
banna amalgam í Þýskalandi,“ en
ekki nánar greint frá í hverju
bannið var fólgið, þ.e. að ein teg-
und amalgams - svokallað
Gamma 2 amalgam - var bönnuð
vegna mikils kvikasilfursleka.
Þetta mátti eðlilega túlka sem
algjört bann, eins og það birtist í
fréttatilkynningunni og biðst
Tannsjúkdómasambandið afsök-
unar á þessum mistökum.
í öðru lagi var sagt í fréttatil-
kynningunni „að sjúkdómarnir
heila- og mænusigg (MS), Alz-
heimer og Flogaveiki auk nokk-
urra fleiri væru margoft nefndir í
sambandi við kvikasilfurseitrun".
Þetta er rétt. Framhaldið, „fjöldi
fólks með þessa sjúkdóma hefur
fengið umtalsverðan bata eftir
úthreinsun amalgams...", gaf hins
vegar til kynna annað en ætlunin
var.
Þessir sjúkdómar eru mjög
alvarlegir og hið rétta er „að
margir með þessa sjúkdóma hafa
orðið varir við bata eftir úthreins-
un amalgams úr tönnum, sérstak-
lega fólk með heila- og mænusigg
(MS). Það er þó einungis í vægari
tilfellum, sem fólk með heila- og
mænusigg hefur von um að fá
varanlegan bata.“
Tannsjúkdómasambandið biðst
innilega afsökunar á þessum
mistökum og biður Dag um að
koma þessu á framfæri til lesenda
blaðsins.“
Fyrir hönd
Tannsjúkdómasambandsins,
Jón Börkur Ákason.
BÓKHALDSÞjÓNUSTA
TOK BÓKHALDSKERFI
Bókhald fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Skattframtöl — VSK uppgjör.
Ritvinnsla — vélritun.
BIRGIR MARINÓSSON
Norðurgötu 42 • Akureyri • Sími 96-21774.
Aðalsafnaðar-
fundur
Aðalsafnaðarfundur Akureyrarsóknar verður haldinn
í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju nk. sunnudag 26.
apríl að lokinni guðsþjónustu í Akureyrarkirkju sem
hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Sóknarnefndin.
Gúmmískór
Ný sending af
gúmmískóm komin
5% staðgreiðsluafsláttur
jJU EYFJÖRÐ
Hjalteyrargötu 4 - Sími 22275
Orlofshús
Frá og með mánud. 4. maí hefst útleiga á neðan-
skráðum orlofshúsum á vegum Sjómannafélags
Eyjafjarðar.
Húsin eru leigð viku í senn og ber að greiða viku-
leiguna við pöntun á húsunum. Þeir félagsmenn sem
ekki hafa fengið sumarhús leigð hjá félaginu sl. þrjú
ár hafa forgangsrétt til kl. 12 á hádegi 11. maí nk.
Staöir sem í boði eru, eru á eftirtöldum stööum:
lllugastöðum, Laugarvatni, Skipalæk við Egilsstaði,
Gerði í Suðursveit og tvær íbúðir í Reykjavík.
Sjómannafélag Eyjafjarðar.
Skipagötu 14, sími 25088.
Skemmtiklúbburinn
Líf og fjör
Dansskemmtun
verður í Alþýðuhúsinu, Fiðlaranum, 4. hæð,
Skipagötu 14, miðvikudaginn 22. apríl, síð-
asta vetrardag kl. 22.00-03.00.
Húsið opnað kl. 21.30.
Hljómsveit Bigga Mar leikur fyrir dansinum.
Kveðjum veturinn saman og fögnum sumrinu.
Mætum öll og mætum snemma!
Stjórnin.