Dagur


Dagur - 19.05.1992, Qupperneq 1

Dagur - 19.05.1992, Qupperneq 1
75. árgangur Akureyri, þriðjudagur 19. maí 1992 93. tölublað LACOSTE Peysur • Bolir HERRADEILD Gránutelagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599 Mokveiði á ufsa frá Pórshöfn: „Annan fisk er ekki að fá“ - segir Jónas Jóhanns- son, skipstjóri á Geir ÞH Ufsi er um allan sjó á miðum báta frá Þórshöfn. Þorskveiði er engin og grásleppuveiði lítil. „Við reynum að ná þorski í byrjun hverrar veiðiferðar, en endum alltaf í ufsanum. Eins og málum er háttað nú, þá verðum við að breyta þorskkvóta í ufsa- kvóta. Annan fisk er ekki að fá. í fyrri viku fengum við 34 tonn í einu hali. Vegna brælu gátum við ekki innbyrt aflann og drógum hann því inn til Þórshafnar. Sextán tonn eru komin um borð í dag. Ufsinn er stór og góður og fer all- ur í frystingu. Net grásleppukarla eru full af ufsa. Vegna ótíðar ná grásleppukarlarnir ekki að vitja netanna reglulega. Netin eru mörg og ufsinn er ónýtur þegar næst til hans. Nei, karlarnir verða ekki fjáðir af grásleppu- veiðinni. Grásleppan heldur sig ekki þar sem ufsinn er,“ sagði Jónas Jóhannsson, skipstjóri á Geir ÞH 150. ój Akureyri: Innbrotsþj ófiir gómaður í Esju Um hádegisbilið hélt hópur barna úr Lúðrasveit Tónlistarskóla Dalvíkur og Ólafsfjarðar í tónleikaferð tU Grímseyjar og var þessi mynd tekin áður en haldið var af stað. Mynd: Goiií Lúðrasveit Tónlistarskóla Dalvíkur og ÓlafsQarðar: Hélt tónleika í Grímsey í gær Lúðrasveit Tónlistarskóla Dalvíkur og Ólafsfjarðar brá sér í tónleikaferð til Gríms- eyjar í gær. Sveitin fór með ferjunni Sæfara um hádegis- bilið frá Dalvík, hélt tónleika í eynni seinni partinn og kom heim í gærkvöld. Michael Jacques, stjórnandi, hefur komið upp 30 manna lúðrasveit á tveimur árum en auk nemenda frá Dalvík og Ólafsfirði, eru í sveitinni nem- endur frá Árskógsströnd og úr Svarfaðardal. Ekki fóru allir meðlimir sveitarinnar með í ferðina en um 20 manna hópur. -KK Ólæti á Akureyri: Mikil ölvun og tUheyrandi átök - tveir fluttir á slysadeild eftir átök Mikil ölvun var í miðbæ Akur- eyrar um helgina með tilheyr- andi óspektum. Lögreglan þurfti að róa menn niður og allnokkrir fengu gistingu í fangageymslum. Sérstaklega var mikið um að vera aðfara- nótt laugardags. Að sögn lögreglunnar var tölu- vert um átök og ölvunarlæti í miðbænum aðfaranótt laugar- dagsins. Maður var fluttur á slysa- deild eftir slagsmál og annar fór sömu leið eftir að sparkað hafði verið í andlit hans. Ekki er talið að þeir hafði meiðst alvarlega. Sömu nótt var grafa í eigu Akureyrarbæjar skemmd, en hún stóð á Ráðhústorgi og hefur verið notuð við framkvæmdir þar. Rúður í gröfunni voru brotnar en lögreglan hafði hendur í hári skemmdarvargsins. Einnig voru brotnar rúður í miðasöluskúr við íþróttavöllinn aðfaranótt laugardags og er það mál óupplýst. Aðfaranótt sunnudags veittist ölvaður maður að bíl á Glerár- götu og skemmdi hann lítilshátt- ar. Loks má geta um bílveltu á Öxnadalsheiði um hádegi á laug- ardag. Bíll á leið til Akureyrar lenti út af veginum og valt en ekki urðu slys á fólki. SS Tvö innbrot voru tilkynnt til rannsóknarlögreglunnar á Akureyri um helgina, eða nán- ar tiltekið aðfaranótt sunnu- dags. Brotist var inn I verslun- ina Esju við Norðurgötu og fjölbýlishús við Vestursíðu 10. Að sögn Gunnars Jóhannsson- ar, rannsóknarlögreglumanns, var ungur maður gómaður við innbrotið í Esju og handtekinn á staðnum. Hann hafði ekki náð að stela miklu þegar lögreglan kom á staðinn og skemmdirnar sem hann olli voru ekki teljandi. Þá var brotist inn í Vestursíðu 10, nýbyggingu á vegum A. Finnssonar. Þar hafði einhver farið inn með því að snúa sundur hengiiás en ekki er talið að neitt hafi horfið úr byggingunni. SS Kaupfélag Langnesinga á Þórshöfn: Heildartap á síðasta ári 56 milljónir - nauðasamningarnir ekki inni í tölum síðasta árs - stefnt að því að gera þetta ár upp með hagnaði Bókfært tap hjá Kaupfélagi Langnesinga á síðasta ári nam samtals 56,2 milljónum króna. Velta félagsins var tæpar 228 milljónir og tap af reglulegri starfsemi 22,5 milljónir en eftir fjármagnsliði var tapið komið í yfir 38 milljónir. Síðan bætast við óreglulegir liðir upp á rúm- lega 17 milljónir, s.s. vanreikn- Þingeyjarsýsla: Sauðburður gengur vel - engin riða fundist í heilt ár „Það er allt fullt af lömbum og það verður mikið kjöt í haust. Sauðburður gengur vel og bændur eru sælir og glaðir,“ sagði Bárður Guðmundsson, héraðsdýralæknir á Húsavík, er Dagur spurði hvernig sauð- burður gengi og um frjósemi fjárins. Bárður sagði að ekki væri mik- ið að gera hjá dýralækni þó sauð- burður stæði yfir því hann gengi mjög vel. Frjósemi er mikil og eitthvað um þrílembur og fjór- lembur. Sauðburður mun nú um það bil hálfnaður hjá flestum bændum. Nokkuð er um að lömb fái slefsýki á tveimur fyrstu dögun- um. Hún lýsir sér með því að þau verða slöpp og munnvatnið renn- ur fram úr þeim. „Þetta er bakteríusjúkdómur sem auðvelt er að meðhöndla,“ sagði Bárður, en það mun hafa borið á slefsýki á stöðugt fleiri bæjum síðustu árin. „Það hefur ekki fundist riðu- veiki í eitt ár,“ sagði Bárður, en síðustu tilfellin fundust fyrir ári síðan á Húsavík og í Keldu- hverfi. Bárður sagðist vera bjart- sýnn en þó hræddur um að þessi sjúkdómur ætti eitthvað eftir að gera vart við sig. IM uð gjöld fyrri ára, þannig að heildartapið losaði 56 milljónir króna. Þetta kom fram á aðal- fundi félagsins nýverið. „Þetta eru svo sem ekki glæsi- legar tölur en við teljum okkur hafa gert upp skuldahala fyrri ára vonumst til að reksturinn skili hagnaði á þessu ári. Eignir félagsins eru upp á 203 milljónir og eigið fé neikvætt um 38,6 milljónir en þá er ekki búið að taka tillit til nauðasamninganna, það verður gert á þessu ári. Við gerum ráð fyrir að eigið fé félags- ins verði jákvætt að nauðasamn- ingum loknum," sagði Garðar Halldórsson, kaupfélagsstjóri. Vonir eru bundnar við að tak- ast megi að rétta Kaupfélag Langnesinga við með nauðasamn- ingunum en að sögn Garðars verður þetta ár erfitt og þarf að halda vel á spöðunum til að standa við samningana. Hann sagði að unnið væri að því að losa fjármagn, m.a. til að fjármagna nauðasamningana að hluta til. Þar á hann við sölu eigna. Ríkið hefur þegar keypt húsnæði af Kaupfélaginu fyrir lögreglustöð- ina á Þórshöfn og einhver hreyf- ing er í sölu á öðrum eignum. Reyndar eru litlar líkur á því að hægt verði að selja sláturhúsið eða koma þeirri eign í nýtingu. Eins og fram hefur komið hafa umsvif Kaupfélags Langnesinga minnkað á síðustu árum og ann- ast félagið nú fyrst og fremst verslunarrekstur á svæðinu, auk þess sem það er hluthafi í sjálf- stæðum hlutafélögum. Garðar sagði að með sölu eigna, hagræð- ingu í rekstri og samningum við veðkröfuhafa ætti að vera hægt að koma félaginu á réttan kjöl. „Rekstur félagsins það sem af er þessu ári hefur gengið nokkuð vel. Það hefur verið söluaukning í flestum deildum og veltan hefur aukist. Við reiknum með að gera þetta ár upp með hagnaði en þar kemur náttúrlega inn niðurfelling viðskiptakrafna f nauðasamn- ingnum sem færð verður til tekna. Við höfum verið að hag- ræða í rekstri og fækka starfs- fólki. Þetta eru ekki skemmtileg- ar aðgerðir en óhjákvæmilegar og við erum nokkuð bjartsýnir á framhaldið,“ sagði Garðar. SS Ölvaður ökumaður í Gilinu: Kubbaði ljósastaur og hvolfdi bflnum Laust fyrir klukkan þrjú aðfaranótt laugardags lenti fólksbfll á Ijósastaur í Grófar- gili á Akureyri, kubbaði staur- inn sundur og valt. Bfllinn er talinn ónýtur og þurfti að fjar- lægja hann með kranabfl en ökumaðurinn, sem var einn í bflnum, slapp án meiðsla. Bifreiðinni var ekið upp Kaup- vangsstræti og í beygjunni gegnt andapollinum virðist ökumaður- inn hafa misst allt vald á því sem hann var að gera þannig að bíll- inn þaut upp á gangstétt og skall harkalega á ljósastaur. Ljóst er að illa hefði getað farið ef gang- andi vegfarendur hefðu verið þarna á ferð. Ljósastaurinn brotnaði við höggið og bíllinn lenti á hvolfi. Samkvæmt upplýsingum frá rannsóknarlögreglunni var bíll- inn á mjög mikilli ferð auk þess sem ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur. SS

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.