Dagur - 19.05.1992, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 19. maí 1992 - DAGUR - 9
Jón Haukur Brynjólfsson
Ólýsanleg spenna í lokaumferð þýsku úrvalsdeildarinnar:
„Þýskir meistarar verða krýndir í Leverkusen"
Það var ólýsanleg spenna í síð-
ustu umferð þýsku úrvalsdeild-
arinnar í knattspyrnu sem lauk
á laugardaginn. Um allt land
sátu knattspyrnuunnendur
límdir við skjáinn ef þeir voru
ekki á vellinum og þeim tíma
var ekki illa varið. Allt var
opið upp á gátt á báðum end-
um deildarinnar, á toppnum
börðust þrjú lið hatrammri
baráttu um meistaratitilinn og
botnbaráttan var jafn æsileg,
Fortuna Dússeldorf fallið en
fimm lið gátu lent í þremur
næstu sætum fyrir ofan sem
þýddu fall í 2. deild. Tvö af
þessum liðum voru að spila við
lið í toppbaráttunni, Borussia
Dortmund var að spila við
Duisburg og þurfti að vinna til
að eiga möguleika á titlinum
og Frankfurt þurfti að fara til
Rostock og vinna þar.
Flestir tilkallaðir sérfræðingar í
þýskri knattspyrnu voru búnir að
spá Frankfurt meistaratitlinum.
Nokkrir spáðu því að Dortmund
færi alla leið en aðeins einn,
Ottmar Hitzfeld, þjálfari
Dortmund, spáði því sl. haust að
Stuttgart yrði meistari. Meira að
segja Christoph Daum, þjálfari
Stuttgart, lét sér nægja í haust að
segja að Stuttgart stefndi að
Evrópusæti.
Og Daum hafði svo sannarlega
ástæðu til að gleðjast á laugar-
daginn enda er ljóst að nafn hans
fær veglegan sess í sögu þýskrar
knattspyrnu þar sem Stuttgart,
undir hans stjórn, er fyrsti þýski
meistarinn eftir að Þýskaland
sameinaðist á nýjan leik. Menn
fara ekki í grafgötur með að hann
eigi stóran hluta í þessum frá-
bæra árangri enda er hann þessa
dagana kallaður Christoph I.,
konungur Schwabalands (svæð-
inu í kringum Stuttgart). Þessi
litríki þjálfari hefur geysilegt
sjálfstraust þannig að oft jaðrar
við að hann sé óforskammaður.
Síðustu vikur hefur hann hvað
eftir annað lýst því yfir að Stutt-
gart yrði meistari og fyrir
skömmu átti hann tal við yfir-
mann sjónvarpsstöðvar sem sýnir
alltaf stórleik deildarinnar í
hverri umferð. Sá sagði Daum að
stöðin myndi sjónvarpa leiknum
frá Rostock og Daum svaraði:
„Ég óska þér alls hins besta en þú
verður á röngum velli því þýskir
meistarar verða krýndir í Lever-
kusen.“
Þess má geta að Daum fær
nokkuð fyrir sinn snúð því tíma-
bilið færði honum um eina milljón
marka (u.þ.b. 35 milljónir kr.) í
tekjur. Leikmenn liðsins fengu
55 þúsund mörk (tæpar 2 milljón-
ir kr.) hver í bónus fyrir sigurinn
í deildinni.
Áhorfendur stöðvuðu
leikinn
Leikur Bayer Leverkusen og
Stuttgart byrjaði ekki alltof vel
fyrir Stuttgart. Liðið fékk á sig
vítaspyrnu í fyrri hálfleik og var
0:1 undir í hléi. Á sama tíma
hafði Borussia Dortmund 1:0 yfir
í Duisburg en markalaust var í
Rostock. Borussia Dortmund
hafði því meistaratitilinn innan
seilingar eins og staðan var þá og
alveg þar til 16 mínútur voru til
leiksloka í leikjunum þremur. Á
74. mínútu fékk Stuttgart víta-
spyrnu, Fritz Walter skoraði úr
henni sitt 22. mark á tímabilinu
og tryggði sér markakóngstitilinn
þetta árið. 12 mínútum fyrir
leikslok var Matthias Sammer
rekinn af leikvelli fyrir að klappa
fyrir dómaranum sem sýndi hon-
um gult spjald og þá héldu flestir
að Stuttgart myndi ekki ná að
skora markið mikilvæga sem
vantaði en staðan í Rostock var
þá 1:1.
í þessari stöðu gerði Christoph
Daum breytingar sem vöktu
furðu margra en sýndu og sönn-
uðu enn einu sinni að hann veit
hvað hann syngur. Hann skipti
Fritz Walter og Maurizio Gaudino
út af fyrir Eyjólf Sverrisson og
Manfred Kastl, menn sem berjast
báðir fyrir hverjum einasta bolta
og stóðu fyrir sínu þótt skammt
væri til leiksloka. Eyjólfur átti
þátt í sigurmarkinu, vann bolt-
ann við vítateig Stuttgart og hóf
sókn sem endaði með horn-
spyrnu. Boltinn barst inn í teig-
inn þar sem Eyjólfur skallaði út
til annars leikmanns sem sendi
fyrir á kollinn á Buchwald og
þaðan í netið. Þremur mínútum
fyrir leikslok birtust upplýsingar
á markatöflunni um að Rostock
hefði skoraði annað mark og þar
með lauk leik Leverkusen og
Stuttgart. Tugum þúsunda
áhangenda Stuttgart varð ljóst að
meistaratitillinn var í höfn og
öryggisgirðingar og öryggisverðir
máttu sín lítils þegar fólkið rudd-
ist inn á leikvanginn í trylltum
stríðsdansi. Dómarinn sá sitt
óvænna og flautaði af enda fagn-
aðarlætin engu lík.
Þakkir til Rostock
Það er augljóst að Hansa Rostock
átti stóran þátt í að Stuttgart stóð
uppi sem sigurvegari á laugardag-
inn. Þjálfari liðsins heitir Erich
Rutemöller og tók einmitt við
sem þjálfari Kölnarliðsins eftir að
Christoph Daum var látinn taka
pokann sinn árið 1990. Þeir tveir
munu þó vera góðir kunningjar
og sagan segir að Daum hafi sent
Rutemöller fyrrverandi aðstoðar-
þjálfara sinn og annan vin sinn til
viðbótar til að aðstoða við undir-
búning Rostock fyrir viðureign-
ina við Frankfurt. Og fyrir viku
sendi Dieter Höness, fram-
kvæmdastjóri Stuttgart einn bíl-
farm af bjór til Werder Bremen
eftir að liðið hafði hirt stig af
Frankfurt.
Þakklæti leikmanna Stuttgart
leynir sér ekki. Manfred Kastl
opnaði fyrir skömmu lítið hótel
og í þakklætisskyni við leikmenn,
Rostock hefur hann boðið þeim
að búa frítt á hótelinu næst þegar
þeir koma til Stuttgart að spila
við Stuttgarter Kickers, litla
bróður sem mátti sætta sig við fall
í 2. deild um helgina, eins og
Rostock, bjargvættur stóra
bróðurs.
Einar Stefánsson, Þýskalandi
Uppskeruhátíð handknattleiksdeildar KA fór fram í KA-heimilinu á laugardag. Þar voru veittar ýmsar viðurkenn-
ingar í öllum aldursflokkum og hér tekur Alfreð Gíslason, þjálfari og leikmaður meistaraflokks, við viðurkenningu
úr hendi Sigurðar Sigurðssonar, formanns handknattleiksdeildar, en Alfreð skoraði mest KA-manna í vetur ef víta-
köst eru undanskilin. Nánar verður sagt frá hátíðinni og birtar myndir innan skamms. Mynd: Ooiii
U-18 landsliðið í 7. sæti
íslenska landsliðið í knatt-
spyrnu, skipað 18 ára leik-
mönnum og yngri, hafnaði í 7.
sæti af 8 liðum á alþjóðlegu
móti í Tékkóslóvakíu sem lauk
um helgina. I tveimur síðustu
leikjunum sigraði liðið Belga
3:2 en tapaði 0:2 fyrir Ungverj-
um.
Tveir KA-menn léku nú með
U-18 landsliðinu í fyrsta sinn,
þeir ívar Bjarklind og Sigþór
Júlíusson. Sigþór var í byrjunar-
liði í öllum leikjunum nema gegn
Ungverjum, þar sem hann kom
inná, og ívar var í byrjunarliði
gegn Tékkum og Ungverjum en
kom inná í hinum leikjunum.
„Okkur gekk báðum vel og
það var góð reynsla að spila með
liðinu. Eg myndi segja að árang-
urinn í mótinu væri í lagi, það er
auðvitað leiðinlegt að vera í einu
af neðstu sætunum en þetta var í
fyrsta sinn sem við komum á gras
og svo er liðið ekki í góðri sam-
æfing'u enda flestir leikmennirnir
að spila með því í fyrsta sinn,“
sagði ívar Bjarklind í samtali við
Dag.
Stjómarfundur í UMFÍ
Fjórði stjórnarfundur UMFI
var haldinn á Egilsstöðum 9.-
10. maí.
Stærstu mál fundarins voru
fósturbarnaverkefni UMFÍ og
fyrsta Unglingalandsmót UMFI
sem haldið verður í Eyjafirði 10,-
12. júlí í sumar. Ljóst er að þang-
að koma keppendur frá öllum
sambandsaðilum UMFÍ og mótið
verður eitt stærsta íþróttamót
sem haldið hefur verið á íslandi.
Keppt verður í átta íþróttagrein-
um í aldursflokkum 17 ára og
yngri auk þess sem ýmislegt fleira
verður til skemmtunar.
Fósturbarnaverkefnið er
þriggja ára verkefni sem hófst í
fyrra með þátttöku um 200 ung-
mennafélaga. Sérstök áhersla
verður lögð á fósturbörnin 13.
júní nk. en sem dæmi um fóstur-
börn má nefna fjörur, fjölmörg
íþróttasvæði félaganna og margs-
konar gróðursetningu, uppgræðslu
og hreinsun.
Knattspyrna:
Sigur og tap hjá KA
og Tindastóll lagði Þór
KA-menn töpuðu fyrir Grinda-
vík en sigruðu Þrótt R. á fjög-
urra liða móti í knattspyrnu í
Vestmannaeyjum um helgina.
Fyrir norðan mættust Þór og
Tindastóll á Þórsvellinum og
sigraði Tindastóll 2:0.
KA-menn töpuðu 1:2 fyrir
Grindvíkingum á föstudags-
kvöldið og skoraði Árni Her-
mannsson mark KA. Daginn eft-
ir sigraði KA Þrótt 4:1 og skoraði
Árni 2 fyrir KA og Gunnar Már
Másson og Ragnar Baldursson 1
hvor.
„Þeir voru eins og hvítt og
svart þessir leikir, alger ládeyða á
móti Grindvíkingum en sá seinni
mjög góður," sagði Gunnar
Gíslason, þjálfari KA. „Það var
aðalmálið að fá leiki á grasi og
þessi ferð gerði okkur mjög gott.
Maður var hræddur við meiðsli
en við sluppum við allt slíkt.“
Þór og Tindastóll mættust á
Þórsvellinum á sunnudaginn og
sigraði Tindastóll 2:0 í miklum
rokleik. Tindastóll lék undan
vindinum í fyrri hálfleik og skor-
aði Guðbjörn Tryggvason fyrra
markið beint úr aukaspyrnu strax
í upphafi leiks. Skömmu fyrir lok
fyrri hálfleiks skoraði Halldór
Áskelsson sjálfsmark með skalla
og staðan var 2:0 í hléi. Þórsarar
sóttu undan vindinum í seinni
hálfleik og Hlynur Birgisson og
Kristján Kristjánsson skoruðu
hvor sitt markið en bæði voru
dæmd af vegna rangstöðu.
Sanuimgur milli KSÍ og Samskipa
Knattspyrnusuniband Islands
og samtök 1. deildarfélaga í
knattspyrnu annars vegar og
Samskip hf. hins vegar hafa
gert með sér samstarfssamning
vegna keppni í 1. deild íslands-
mótsins í knattspyrnu í sumar.
1. deildarkeppni íslandsmóts-
ins mun nefnast Samskipadeild
og Samskipum er heimilt að aug-
lýsa keppnina í sínu nafni, svo og
með merki KSÍ í máli og mynd-
um og nýta hana í auglýsinga-
skyni fyrir fyrirtækið á hvern
þann hátt sem mætti gagnast því.
Á móti greiða Samskip hf. veg-
lega fjárupphæð til félaganna 10
sem skiptist milli þeirra eftir
frammistöðu þeirra á mótinu.
Auk þess kynna Samskip deild-
ina með ýmsum hætti og verð-
launa m.a. leikmann, þjálfara og
dómara mánaðarins í samvinnu
við DV.
Leiðrétting
í föstudagsblaðinu var frétt um
Norðurlandsmótið í badminton
og þar misritaðist nafn á þreföld-
um Norðurlandsmeistara í fyrir-
sögn. Þar stóð Kristín Ýr en átti
að vera Kristrún Ýr eins og fram
kom í fréttinni. Beðist er velvirð-
ingar á þessu.