Dagur - 19.05.1992, Page 7
Þriðjudagur 19. maí 1992 - DAGUR - 7
Kúluvarp:
Enn met hjá Guðbjörgu
- stefnir á að ná ÓL-lágmarkinu
Guðbjörg Gylfadóttir frá
Skagaströnd bætti íslandsmet-
ið í kúluvarpi kvenna á móti í
Bandaríkjunum um helgina.
Þetta er í þriðja sinn á fáeinum
vikum sem hún bætir metið.
Guðbjörg er 27 ára og var að
ljúka námi í markaðsfræðum í
Bandaríkjunum og hefur notað
tímann úti til að æfa kúluvarp af
krafti. Hún kastaði 16,33 m um
helgina og bætti gamla metið um
37 cm.
„Ég er auðvitað voðaiega glöð
yfir þessu. Allur minn undirbún-
ingur í vetur hefur miðast við
þetta mót þannig að þetta kemur
mér ekki á óvart eftir gott gengi á
síðustu mótum. Annars er
stærsta mót ársins eftir, háskóla-
meistaramót Bandaríkjanna sem
verður seinna í mánuðinum, og
ég reyni auðvitað að bæta þetta
eitthvað þar,“ sagði Guðbjörg í
samtali við Dag.
Guðbjörg segist fyrst hafa orð-
ið íslandsmeistari í kúluvarpi
þegar hún var 12 ára gömul. „Það
var nú eiginlega bara „grís“ enda
æfði ég þetta ekkert þá. Svo fór
ég að æfa af alvöru þegar ég var
um tvítugt og fór fljótlega að
ganga vei. Ég varð fyrst íslands-
meistari í fullorðinsflokki 1986.“
Guðbjörg segir framtíðina í
kúluvarpinu vera óráðna, hún
hafi verið að ljúka námi, óvíst sé
með atvinnumöguleika heima á
íslandi auk þess sem hún sé kom-
in með fjölskyldu og æfingarnar
taki mikinn tíma. „Það er þó
alveg öruggt að ég æfi vel í sumar
og stefni að því að ná Ólympíu-
lágmarkinu sem er rétt rúmir 17
metrar. Það er kannski svolítið
mikið en maður verður að vera
bjartsýnn,“ sagði Guðbjörg
Gylfadóttir.
Eyjólfur klappar hér Fritz Walter á kollinn en hann skoraði á laugardag og
varð markahæstur í dcildinni.
Köln
Kaiserslautern
Botninn:
Stuttg. Kickers
38 13-18- 7 58:41 44
38 17-10-11 44
38 10-11-17 53:64 31
Hansa Rostock
Duisburg
Dusseldorf
38 10-11-17 43:55 31
38 7-16-15 43:55 30
38 6-12-20 41:69 24
Einar Stefánsson, Þýskalandi/JHB
Kristjana ívarsdóttir náði bestum árangri Akureyringa á íslandsmeist-
aramótinu í vaxtarrækt sem fram fór á Hótel íslandi á sunnudaginn.
Kristjana, sem er á myndinni að ofan, sigraði í -52 kg kvenna og varð
önnur í opnum flokki. Fleiri Akureyringar létu að sér kveða á mótinu,
Pétur Broddason sigraði í -80 kg flokki og varð þriðji í opnum flokki,
Kári Elíson vann -70 kg flokkinn eftir harða baráttu við Harald Har-
aldsson og Hanna Birna Sigurbjörnsdóttir vann +57 kg flokk. Magnús
Bess sigraði í opnum flokki karla, Margrét Sigurðardóttir í opnum
flokki kvenna og Þór Jósepsson í opnum flokki unglinga. Nánar verð-
ur sagt frá mótinu síðar. Mynd: kl
Eyjólfur Sverrisson og félagar í
Stuttgart urðu á laugardaginn
þýskir meistarar í knattspyrnu
eftir einhverja æsilegustu loka-
umferð sem elstu menn muna.
Þrjú félög áttu möguleika á
titlinum og úrslitin réðust ekki
fyrr en þrjár mínútur voru eftir
af venjulegum leiktíma í leik
Bayer Leverkusen og
Stuttgart. Þá var orðið ljóst að
titillinn færi til Stuttgart og
fögnuður áhangenda liðsins
var svo mikill að þeir ruddust
inn á völlinn og flauta varð
leikinn af.
Frankfurt, Stuttgart og Dort-
mund voru öll með 30 stig fyrir
lokaumferðina en Frankfurt með
besta markahlutfallið. Liðið tap-
aði hins vegar 1:2 fyrir liði Hansa
Rostock og það voru fregnir af
seinna marki Rostock sem ærðu
áhorfendur Stuttgart með fyrr-
greindum afleiðingum. Dort-Í
mund sigraði Duisburg en sigur
Stuttgart tryggði liðinu titilinn á
betra markahlutfalli.
Eyjólfur Sverrisson var ekki í
byrjunarliði Stuttgart á laugar-
daginn en kom inná 5 mínútum
fyrir leikslok og átti þátt í sigur-
marki liðsins. Ástæðan fyrir því
að hann byrjaði á bekknum var
sú að hann fór í landsleikinn gegn
Grikkjum en Daum, þjálfari
Stuttgart, sagðist ekki hafa verið
að hegna Eyjólfi heldur hefði
hann viljað nota mann sem var
óþreyttur.
Þetta er í fjórða sinn sem Stutt-
gart verður þýskur meistari, síð-
ast gerðist það árið 1984 og þá
var liðið með Ásgeir Sigurvins-
son innanborðs.
Gífurleg fagnaðarlæti brutust
út í Stuttgart við tíðindin af úr-
slitunum og er talið að hátt í 100
þúsund manns hafi fagnað liðinu
þegar það kom heim. Fagnaðar-
lætin voru enn í fullum gangi á
sunnudagskvöldið.
Sjá nánar á bls. 9.
Lokastaðan á toppnum:
VfB Stuttgart 38 21-10- 7 62:32 52
Bor. Dortmund 38 20-12- 6 66:47 52
Frankfurt 38 18-14- 6 76:41 50
Körfuknattleikur:
Páll Kolbeinsson
í Tindastól
- þarf Pétur að hætta?
Páll Kolbeinsson, körfuknatt-
leiksmaður úr KR, hefur
ákveðið að leika með Tinda-
stól í úrvalsdeildinni næsta
vetur.
Páll, sem er 28 ára gamall, hef-
ur verið einn besti körfuknatt-
leiksmaður landsins í mörg ár.
Hann þjálfaði lið KR tímabilið
1990-1991 og lék áfram með lið-
inu í vetur. Ekki þarf að fjölyrða
um hvílíkur liðsstyrkur hann
verður Skagfirðingum.
„Þetta kom mjög óvænt upp og
var síðan ákveðið á föstudaginn.
Við erum auðvitað afskaplega
ánægðir með þetta enda ekki
spurning að Páll er einn albesti
bakvörður landsins. Ég held að
það sé engin hætta á öðru en að
hann geri góða hluti hér,“ sagði
Þórarinn Thorlacius, formaður
körfuknattleiksdeildar Tinda-
stóls.
Alls óvíst er um framtíð Péturs
Guðmundssonar, leikmanns
Tindastóls, í körfuboltanum.
Hann hefur lengi átt við bak-
meiðsli að stríða sem stafa af
brjósklosi. Hann er í meðferð og
rannsókn í Reykjavík þessa dag-
ana og niðurstaðan gæti orðið sú
að hann leiki ekki körfuknattleik
framar.
„Við vonum auðvitað að Pétur
leiki áfram og gerum þá frekar
ráð fyrir að hann verði hér. Hins
vegar skilst mér að það sé nokk-
uð líklegt að hann þurfi að hætta
og það yrði visst áfall fyrir
okkur,“ sagði Þórarinn.
Tindastóll leitar nú að erlend-
um leikmanni og á einnig í við-
ræðum við Einar Einarsson um
að hann verði áfram með liðinu.
Pétur Guðmundsson á við bak-
meiðsli að stríða og gæti þurft að
hætta í körfunni.
Handknattleikur:
Andrés
í Þór
Andrés Magnússon, hand-
knattleiksmaður úr KA, hefur
ákveðið að leika með Þór í 1.
deildinni næsta vetur.
Andrés er línumaður um þrí-
tugt sem lék með Breiðabliki
áður en hann gekk til liðs við KA
fyrir tveimur árum. Hann lék tvo
leiki í 1. deildinni með KA í
vetur.
Þýskaland:
Stuttgart varð meistari