Dagur - 19.05.1992, Side 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 19. maí 1992
Íþróttir
Knattspyrnufélag Akureyrar. Stofnað 1928.
íslandsmeistari 1990. 6. flokksmeistari 1985. Undanúrslit í bikar-
keppni KSl 1985. Sigurvegari í Meistarakeppni KSÍ 1990. Evrópu-
keppni1990.
Stærsti deildarsigur: 13:0 gegn Skallagrími í 2. deild 1986.
Stærstu deildartöp: 0:5 gegn ÍA í 1. deild 1978, 0:5 gegn ÍBK í 1.
deild 1978, 0:5 gegn Val í 1. deild 1978, 0:5 gegn Þrótti R. í 2. deild
1986.
Nýir leikmenn: Bjarni Jónsson frá Stjörnunni, Gunnar Gíslason frá
Hacken og Gunnar Már Másson frá Val.
Famir síðan 1991: Einar Einarsson í Leiftur, Erlingur Kristjánsson,
að öllum líkindum í frí, Halldór Halldórsson í frí og Sverrir Sverris-
son í Tindastól
Flestir leikir í 1. deild: Ormarr Örlygsson, 149; Erlingur Kristjáns-
son, 127 og Gunnar Gíslason, 124.
Flest mörk í 1. deild: Þorvaldur Örlygsson, 19; Antony Karl
Gregory, 14 og Ásbjörn Björnsson, 11.
Flestir landsleikir: Gunnar Gíslason, 50.
Gauti Laxdal
26 ára - 104/7
Haukur Bragason
26 ára - 85/0
Gunnar Már Másson
21 árs-19/5
Ívar Bjarklind
18 ára-0/0
Hafsteinn Jakobsson
28 ára - 38/2
Jóhann Arnarson
19ára-0/0
Halldór Kristinsson
19 ára - 26/0
Jón Hrannar Einarsson
20 ára -1/0
Ormarr Örlygsson
30 ára -149/11
Pavel Vandas
25 ára -17/7
Páll V. Gíslason
22 ára-21/1
Ragnar Baldursson
26 ára - 0/0
Sigþór Júlíusson
17 ára - 0/0
Steingrímur Birgisson
28 ára-99/6
Þórarinn V. Árnason
23 ára-2/0
Örn Viðar Arnarson
26 ára - 53/5
Tékkinn Pavel Vandas var markahæsti leikmaður KA á síðasta tímabili með
7 mörk. Hann leikur áfram með liðinu í sumar.
Gunnar Gíslason, þjálfari:
Er með góðan hóp
í góðu formi
„Mér líst vel á tímabilið og ef
við verðum með alla fríska er
ég ekki hræddur við eitt ein-
asta lið. Okkar markmið er að
standa okkur eins vel og mögu-
legt er og það er vonlaust að
spá fyrir um hvar í töflunni við
verðum þegar mótinu lýkur,“
segir Gunnar Gíslason, þjálfari
og leikmaður 1. deildarliðs KA
í knattspyrnu. Gunnar leikur
nú að nýju í KA-búningnum
eftir 9 ára fjarveru en á þeim
tíma hefur hann spilað með
KR, Moss í Noregi og Hácken
í Svíþjóð. Gunnar tók við
þjálfuninni af Ormari Örlygs-
syni.
Töluverðar breytingar hafa
orðið á KA-liðinu frá síðasta
tímabili en Gunnar hefur ekki
áhyggur af því. „Við erum búnir
að æfa vel í vetur og þeir sem
hafa ekki verið hérna í bænum
eru hungraðir í að gera sitt besta
þegar þeir mæta. Ég er búinn að
vera að spila með 30 manna hóp í
vetur og tel mig verajneð góðan
hóp í góðu formi. Efvið verðum
heppnir eigum við eftir að koma
á óvart.“
í íþróttablaðinu hefur því ver-
ið spáð að KA og Þór falli í 2.
deild í haust en Gunnar gefur lít-
ið fyrir það. „Þetta er óskhyggja í
þeim fyrir sunnan og það þýðir
ekkert annað en að brosa að
þessu. Ég get alveg sagt eins og
allir hinir, það verða stóru klúbb-
arnir, Fram, Valur og KR, sem
slást um titilinn og svo hugsan-
lega Skaginn. Þetta er sagt fyrir
hvert keppnistímabil en svo
koma Iið eins og KA og Víkingur
og hirða titilinn þvert ofan í allar
spár. Keppni í svona deild getur
farið hvernig sem er og góður
Gunnar Gíslason, þjálfari.
árangur veltur á mörgum þáttum,
ekki síst heppni. Við gerum okk-
ar besta til að komast eins ofar-
lega í töfluna og hægt er og höf-
um engar áhyggjur af því við
hverju aðrir búast.“
Gunnar lék síðast með KA
1982 og síðast á íslandi 1986 með
KR. Hann segir gott að koma
heim að öllu leyti nema því að
aðstöðuleysið sé ennþá það sama
fyrir norðan. „Stærsta breytingin
fyrir mig er sú að nú er maður
orðinn öldungurinn í þessu. Síð-
an er það ekki spurning að fót-
boltinn er orðinn miklu betri en
hann var. Það er mjög gaman að
sjá hvað þessir 2. og 3. flokks
strákar sem eru að koma upp eru
góðir. Það var ekki nærri því
svona mikið af ungum leikmönn-
um sem voru svona góðir þegar
ég var að koma upp í meistara-
flokk. Ég ætla mér að nota mikið
af þessum ungu leikmönnum í
sumar, það er getan en ekki
aldurinn sem skiptir máli í fót-
bolta,“ sagði Gunnar Gíslason.