Dagur - 19.05.1992, Síða 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 19. maí 1992
----------------------------------;-----\
Lítil íbúð óskast strax
Upplýsingar í síma 21466.
Niðursuðuverksmiðja K. Jónssonar & Co. hf.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Suðurlandi leitar
eftir kaupum á hentugu húsnæði fyrir vistheimili
barna á Selfossi. Um er að ræða einbýlishús, par-
eða raðhús á einni hæð, 200-300 m2 að stærð að
meðtalinni bílgeymslu.
Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, byggingarárog
-efni, herbergjafjölda, brunabóta- og fasteignamat,
afhendingartíma og söluverð, sendist eignadeild
fjármálaráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík,
fyrir 25. maí 1992.
Fjármálaráðuneytið, 15. maí 1992.
Aðalfundur
Lífeyrissjóðs trésmiða
Lífeyrissjóður trésmiða heldur aðalfund sinn í
Alþýðuhúsinu, 4. hæð, þriðjudaginn 26. maí, kl.
20.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
LOKADANSLEIKUR
hjá hljómsveit Bigga Mar.
Þar sem hljómsveitin er að hætta störfum, verður
hún með kveðjudansleik í Alþýðuhúsinu, 4.
hæð, Bláhvammi laugardaginn 23. maí nk.
Húsið opnað kl. 21.30.
Aö lokum þetta:
VELKOMIN í BLÁHVAMM
HLJÓMSVEIT BIGGA MAR.
Sumarvörurnar
komnar
Svo sem á börnin:
Margar gerðir af bolum, einlitir, verð
frá kr. 300, með myndum verð kr. 480.
Hjólabuxur og stuttbuxur í úrvali.
Jogging- og krumpugallar st. 104-164.
Gallabuxur st. frá 104-164,
verð frá kr. 1.250.
American stile jakkar st. 8-16,
verð kr. 4.390.
Marglitir strigaskór st. 24-35,
verð frá kr. 995 og margt, margt fleira.
★
Ath! Regnvettlingarnir komnir,
verð kr. 795.
Líttu inn, það borgar sig!
U(J EYFJÖRÐ
Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275
Minning
Björgvin Theodór Jónsson
- kveðja frá starfsfólki Iðju
Sumri hallar, blikna blöð,
blómin falla vítt um grundir.
Móa, hjalla, vötn og vöð
vetur kallar gaddinn undir.
(Björgvin Th. Jónsson.)
Þann 12. maí sl. var til moldar
borinn Björgvin Theodór Jóns-
son. Björgvin vann margháttuð
störf um ævina og þar af um 10
ára skeið fyrir Iðju, félag verk-
smiðjufólks á Akureyri, þ.e. frá
því um mitt ár 1979 til 1. desem-
ber 1989.
Björgvin er dáinn. Þessi orð
bárust á milli manna á skrifstofu
Iðju degi eftir andlát hans. Þessi
orð komu sem reiðarslag. Gat
það verið að Björgvin, þessi glað-
lyndi og hugljúfi maður væri
allur? Ekki er langt síðan að
hann kom í heimsókn á skrifstof-
una. Þá sást að vísu að honum
var að nokkru brugðið og sjúk-
dómur hafði tekið sinn toll en að
þetta yrði hans síðasta heimsókn
kom okkur ekki til hugar.
Björgvin var hæglátur og dag-
farsprúður og gott var að vinna
með honum. Hann gat þó ef þörf
krafði verið hvassyrtur og ómyrk-
ur í máli, sérstaklega ef honum
fannst fólk eða fyrirtæki sýna
óbilgirni og yfirgang. Hann var
ljóðelskur og fyrir kom að hann
setti saman stökur um mál og
menn. Hann hafði gaman af söng
og fyrir kom að við vinnu og í
ferðalögum hæfi hann upp sína
sterku söngrödd.
Björgvin hafði brennandi
áhuga á félagsmálum og var sam-
vinnumaður af gamla skólanum.
Hann hafði óbilandi trú á afli
samvinnuhugsjónarinnar. Skoð-
anir hans voru fastmótaðar og
skýrar og hann fór ekki með þær
í grafgötur. Hann var af þeirri
kynslóð sem mætti lífsbaráttunni
með iðni og atorku. Honum
fannst því oft á stundum lítið til
koma gerviþarfa nútímaþjóðfé-
lagsins. Oft sat hann þegar stund-
ir gáfust í kaffikróknum og sagði
frá uppvaxtar- og unglingsárum
sínum fyrir vestan. Hann kunni
þá list að segja frá á heillandi og
lifandi hátt þannig að sá sem á
hlýddi gat gleymt stund og stað.
Björgvin hafði þann sið að
loknum starfsdegi að ganga sem
best frá öllum hlutum og sagði
jafnan. „Þið vitið hvar þetta er ef
ég kem ekki á morgun." Nú hef-
ur Björgvin lokið störfum í þess-
um heimi og í huga okkar er
þökk fyrir að hafa fengið um
stund að vinna við hlið hans. Við
sendum Þorgerði og fjölskyldu
hans okkar dýpstu samúðar-
kveðju. Megi blessun hvíla yfir
minningu Björgvins.
Kristín Hjálmarsdóttir,
Ármann Helgason.
Hvammstangi:
Tónleikar Harðar Áskelssonar
Tónlistarfélag Vestur-Húnvetn-
inga heldur sína síðustu reglu-
legu tónleika á starfsárinu 1991-
1992 kl. 21 annað kvöld, mið-
vikudaginn 20. maí. Þá mun
Hörður Áskelsson, organisti
Hallgrímskirkju, sækja Húnvetn-
inga heim og leika á hið ágæta
pípuorgel Hvammstangakirkju.
Hörður mun flytja fjölbreytta
- annað kvöld
orgeltónlist frá ýmsum tíma og
við flestra hæfi. Tónleikarnir eru
öllum opnir.
Nýtt starfsár Tónlistarfélagsins
hefst í september og mun félagið
kappkosta að bjóða upp á fjöl-
breytta tónleika næsta ár og við
allra hæfi. Stjórn Tónlistarfélags-
ins skipa þau Sveinn Lúðvík
Björnsson, formaður, Helgi S.
Ólafsson, gjaldkeri, Guðrún
Helga Bjarnadóttir, varaformað-
ur, Guðmundur St. Sigurðsson,
ritari og Sigurvald í. Helgason,
meðstjórnandi. Varamenn í
stjórn félagsins eru þeir Hjalti
Júlíusson og Björn Hannesson. í
dag eru 75 manns skráðir félagar.
(Fréttatilkynning)
Árlegir vortónleikar
Karlakórs Akureyrar-Geysis
Karlakór Akureyrar-Geysir
undir stjórn Roars Kvam held-
ur sína árlegu vortónleika í
Akureyrarkirkju annað kvöld,
miðvikudag, og nk. fimmtu-
dagskvöld kl. 21 bæði kvöldin.
Flytjendur með kórnum verða
Michael Jón Clarke, baritón,
Richard Simm, píanó, og Blás-
arasveit æskunnar, Akureyri.
Efnisskrá tónleikanna er fjöl-
breytt, bæði erlend og íslensk
kórverk. Af íslenskum höfundum
má nefna Sigvalda S. Kaldalóns,
Sigfús Einarsson, Karl Ó. Run-
ólfsson, Jóhann Ó. Haraldsson
og Emil Thoroddsen. Af erlend-
um höfundum má nefna t.d.
E.Grieg (Kongekvadet - úr
„Sigurd Jorsalfar“, Norröna-
folket - úr „Sigurd Jorsalfar“,
Landkjenning og Látum sönginn
hvellan hljóma) og G.Verdi
(Nautabana-kórinn úr La Travi-
ata, Steðja-kórinn úr II
Trovatore og Gullnu vængir úr
Nabucco).
Styrktarfélögum kórsins er
bent á að þeir geta sótt hvort sem
er tónleikana annað kvöld eða á
fimmtudagskvöldið.
í Karlakór Akureyrar-Geysi
eru 37 söngmenn. óþh
Vordagar Olafs-
fjarðarkirkju
Erindi Einars
Gylfa í safiiaðar-
heunilinu
Einar Gylfi Jónsson, forstöðu-
maður Unglingaheimilis ríkis-
ins, flytur erindi í safnaðar-
heimili Ólafsfjarðarkirkju í
kvöld, þriðjudaginn 19. maí kl.
20.30.
Erindi Einars Gylfa nefnist
„Unglingsárin og uppalandahlut-
verkið“ og er einkum ætlað for-
eldrum unglinga og öðrum þeim,
sem láta sig málefni æskufólks
varða. Einar mun svara fyrir-
spurnum eftir erindisflutninginn
og er aðgangur ókeypis. Erindið
er liður í Vordögum Ólafsfjarð-
arkirkju, sem hófust í gærkvöld
með tónleikum Kórs Akureyrar-
kirkju í Tjarnarborg.
Áburður-Fræ
Áburðarsala KEA við Glerárósa verður opin
alla virka daga maímánaðar frá kl. 8.00-
12.00 og 13.00-17.00. I
í boði er fjölbreytt úrval af tilbúnum áburði.
í Fóðurvörudeild að Strandgötu 63 fer fram
fræsala milli kl. 8.00-12.15 og 12.45-16.00.
Kaupfélag Eyfirðinga