Dagur - 19.05.1992, Side 16
Kodak x
Express
Gæóaframköllun
Akureyri, þríðjudagur 19. maí 1992
Eiðisvík á Langanesi:
Hvalreki til óþurftar
- sjö ung búrhveli, samtals rúm
100 tonn að rotna
★ Tryggðu filmunni þinni
5?esta ^Pedr6n^ndir
Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
Mynd: IM
Nemendur á Húsavík dimitera
Sjö búrhveli hefur rekið á land
í Eiðisvík á Langanesi nýlega
og tvo hvali hefur rekið á
Langanesströnd á síðustu
vikum.
Úlfar Þórðarson á Syðri-
Brekkum fór með menn frá Haf-
rannsóknastofnun í Eiðisvík á
sunnudaginn og tóku þeir sýni úr
Eldur í báti norður
af Skaga:
Þremur mönnum
bjargað
Eldur kom upp í Litlanesi ÍS-
608 að kvöldi laugardags þar
sem báturinn var að veiðum
um 50 sjómflur norður af
Skaga. Ahöfninni, þremur
mönnum, var bjargað um borð
í Ingimund gamla frá Blöndu-
ósi og siglt með þá til Skaga-
strandar, en Litlanes sökk um
sjöleytið að morgni sunnu-
dags.
Litlanes var tæplega 60 tonna
eikarbátur, smíðaður í Hafnar-
firði árið 1954. Ekki er ljóst hvers
vegna eldur kom upp í bátnum,
en sjópróf munu fara fram á ísa-
firði á næstunni.
Að sögn Guðna Ólafssonar,
skipstjóra á Ingimundi gamla,
sem bjargaði bátsverjum, voru
mennirnir ómeiddir þegar þeir
komu um borð í Ingimund, en
þeir á Ingimundi voru staddir
skammt frá Litlanesinu þegar
þeir sáu reyk leggja frá bátnum.
Guðni segir að gott hafi verið í
sjóinn svo vel hafi gengið að ná
mönnunum þremur um borð úr
björgunarbátnum, en siglt var
með þá til hafnar á Skagaströnd
og þangað var komið um klukkan
tíu á sunnudagsmorgun. SBG
Sjávarútvegsnefnd Alþingis
samþykkti í gær að mæla með
að þingsályktunartillaga um
eflingu Akureyrar og Eyja-
fjarðarsvæðisins sem mið-
stöðvar fræðslu og rannsókna
á sviði sjávarútvegs verði
samþykkt. TiIIagan er þar með
komin á dagskrá til síðari
umræðu og er bundnar vonir
við að hún fáist afgreidd áður
en þinginu verður slitið síðdeg-
is í dag eða kvöld.
í nefndaráliti sjávarútvegs-
nefndar kemur fram að hún hafi
fengið umsagnir Landssambands
íslenskra útvegsmanna, Hafrann-
sóknastofnunar, bæjarstjórnar
Dalvíkur, bæjarstjórnar Akur-
eyrar, bæjarstjórnar Ólafsfjarð-
ar, Fjórðungssambands Norð-
lendinga, Byggðastofnunar og
Sambands íslenskra sveitarfé-
laga.
hvölunum til rannsóknar.
Búrhvalirnir í Eiðisvík eru allir
karldýr og taldir ungir, eða rétt
um það bil að verða kynþroska.
Þá virtist hafa rekið á land tvo og
tvo saman, með nokkru millibili í
fjöruna, tvo þeirra hafði þó
greinilega rekið mun fyrr en hina
og voru þeir farnir að skemmast.
Hvalirnir eru 10-11 metra langir
og taldir um 15 tonn á þyngd.
Ekki er Ijóst hvort þeir voru
dauðir þegar þá rak eða hvort
þeir hafa synt á land, og ekki
liggur fyrir skýring á dauða
þeirra. Það var grásleppuveiði-
maður sem varð var við hvalrek-
ann í fjörunni og tilkynnti um
hann.
Vandamál er hvað gera eigi við
hvalina þar sem óttast er að mik-
inn fnyk leggi langar leiðir og
mengun verði af er þeir fara að
rotna. Ekki mun hægt að draga
þá á haf út og sökkva þeim,
og mun helst til ráða að grafa þá
í fjörunni.
„Þetta eru feykistórar og mikl-
ar skepnur og það var farið að
leggja lýsislykt af þeim á sunnu-
daginn,“ sagði Úlfar. IM |
Niðurstöður úr samræmdu
prófunum í grunnskólum
landsins liggja nú fyrir og er
útkoman betri en á síðasta ári
hvað landsmeðaltal snertir,
bæði í íslensku og stærðfræði.
Útkoman á Norðurlandi eystra
og vestra er undir landsmeðal-
tali í báðum greinunum en þær
breytingar hafa gerst að nem-
endur á Norðurlandi vestra
Sjávarútvegsnefnd samþykkti
orðalagsbreytingu á þingsálykt-
unartillögunni og eftir breytingu
orðast hún svo: „Alþingi ályktar
að fela ríkisstjórninni að láta
gera áætlun um frekari uppbygg-
ingu og eflingu Háskólans á
Akureyri og annarra rannsókna-
Þau öfl er stjórna veðri og
vindum virðast hafa sætt sig
við að sumarið er komið á ís-
landi og er spáin í samræmi við
þau sannindi. Suðlægar áttir
verða ríkjandi næstu daga með
hlýindum og yflrleitt þurru
veðri á Norðurlandi.
í dag gerir Veðurstofan ráð
fyrir suðaustan eða austan golu
Stúdentsefni á Húsavík dimiter-
uðu í síðustu viku, þar sem ekki
hafði gefist tími til slíks um það
leyti er upplestrarfríin voru
gefin. Leikurinn hófst í hesthúsa-
stóðu sig öllu betur en nem-
endur á Norðurlandi eystra í
stærðfræði.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust í menntamálaráðuneyt-
inu í gær er landsmeðaltal í
íslensku 62,23 stig af 100 mögu-
legum. Árið 1991 var meðaltalið
60,60 stig og 1990 var það 60 stig,
þannig að leiðin hefur legið upp á
við.
og fræðslustofnana á svæðinu svo
að þar verði öflug miðstöð rann-
sókna- og fræðslustarfsemi á sviði
sjávarútvegs." í nefndaráliti segir
að nefndin líti svo á að málið svo
breytt nái jafnframt markmiði til-
lögu til þingsályktunar um sjávar-
útvegsmiðstöð á Akureyri. óþh
eða kalda. Skýjað verður um
land allt og víða súld eða rigning
nema helst í innsveitum á Norð-
austurlandi. Hiti verður á bilinu
5-12 stig.
Á miðvikudag og fimmtudag
er útlit fyrir suðvestlæga átt með
hlýju og þurru veðri norðaustan-
lands en dálítil rigning verður í
öðrum landshlutum. SS
hverfinu þar sem verðandi stú-
dentar voru mættir í kúrekabún-
ingum af ýmsu tagi og hestum var
troðið undir hópinn. Þó að illa
gengi í fyrstu að finna gírana á
Útkoman í íslensku er best í
Reykjavík í einstökum umdæm-
um, eins og venjulega, en þar er
meðaltalið 64,73 stig. Á Norður-
landi eystra er meðaltalið 61,99
stig og á Norðurlandi vestra
61,05 stig.
í stærðfræði er landsmeðaltalið
líka hærra en í fyrra. Nú er það
58,65 stig af 100, 1991 var það
56,90 stig og 1990 var landsmeðal-
talið 57,60 stig.
Reykjavík er efst á blaði að
vanda. Þar er meðaltalið í stærð-
fræði 61,94 stig. Norðurland
eystra er með 55,38 stig, eða
nokkuð undir landsmeðaltali, en
Norðurland vestra er með 57,96
stig, eða hátt í landsmeðaltal.
Þetta hefur snúist við því í fyrra
stóðu nemendur á Norðurlandi
eystra sig betur í stærðfræði en
félagar þeirra á Norðurlandi
vestra.
Fram kom að Vestfirðir og
ÓlafsQörður:
Brotíst ínn í
tvö fyrirtoeki
Um helgina var brotist inn í
tvö fyrirtæki í Ólafsfírði, útibú
Kaupfélags Eyfírðinga og
Stuðlaprent. Mál þessi eru að
fullu upplýst, að sögn lögregl-
unnar í Ólafsflrði.
Litlar skemmdir voru unnar í
þessum innbrotum og lítið sem
þjófarnir höfðu upp úr krafsinu
nema sælgæti í kaupfélaginu.
„Þetta var bara fyllerísrugl,“
sagði lögregluþjónn sem Dagur
ræddi við. SS
skepnunum og læra að bakka, þá
gekk nokkuð stóráfallalaust að
heimsækja kennara og skóla-
meistara og afhenda rósir með
þökk fyrir samstarfið.
Norðurland vestra hafa yfirleitt
skorið sig úr og verið með lægst
meðaltal landshluta en nú hefur
Norðurland vestra sótt í sig
veðrið. SS
Kjarnaskógur:
Grænt ljós á
orlofsíbúðir
Skipulagsnefnd Akureyrar
tekur jákvætt í þá hugmynd
Úrbótarmanna hf. á Akureyri
að reisa orlofsíbúðir í Kjarna-
skógi, norðan og austan við
Kjarnalund, hús Náttúru-
lækningafélags Akureyrar.
Að undanförnu hafa nokkrir
aðilar á Akureyri velt fyrir sér
þeim möguleika að koma upp
orlofsíbúðahverfi í nágrenni
Akureyrar og óskuðu Úrbótar-
menn hf. eftir umsögn skipulags-
nefndar bæjarins að koma upp
orlofsíbúðum í Kjarnaskógi,
norðan og austan við Kjarna-
lund. Skipulagsnefnd afgreiddi
erindið á fundi sínum sl. fimmtu-
dag.
Sveinn Heiðar Jónsson, einn
Úrbótarmanna hf., segir ánægju-
legt að nefndin hafi tekið jákvætt
í þetta mál og nú geti menn sest
niður og rætt næstu skref. Hann
segir að þessi staðsetning orlofs-
íbúða sé um margt mjög áhuga-
verð. Þetta svæði sé fallegt, stutt
sé til Akureyrar og góð aðstaða
til útivistar í nágrenninu. Þá hafi
sá möguleiki verið nefndur að
nýta hluta af Kjarnalundi sem
þjónustumiðstöð fyrir orlofshús-
in, sem sé vissulega athyglisverð
hugmynd og þurfi að skoða
frekar. óþh
Efling Akureyrar og Eyjafjarðarsvæðis sem miðstöðvar í sjávarútvegi:
Sjávarútvegsnefad Alþingis
gaf grænt ljós á málið í gær
Niðurstöður úr samræmdum prófum í grunnskólunum:
Nemendur á Norðurlandi undir landsmeðaltali
- Norðurland vestra hefur sótt í sig .veðrið
Norðurland:
Blíða framiindan