Dagur - 28.05.1992, Side 1
75. árgangur
Akureyri, fímmtudagur 28. maí 1992
100. tölublað
Stúdentastjörnur
14 kt. gull
Einnig fjölbreytt
úrval annarra
stúdentagjafa.
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Starf fálkaeftirlitsmanns í Mývatnssveit lagt af:
Leiðin er greið fyrir
eggja- og fálkaþjófa
- vegalögregla ekki til staðar við komu
og brottför ferjunnar á Seyðisfirði
í aprfl, maí og júní í fyrra var
Ingi Þór Ingvason fálkaeftir-
litsmaður á Mývatnssveitar-
svæðinu. í ár er enginn sem
sinnir þessu starfí einvörð-
ungu.
I vor hafa borist fréttir af mjög
grunsamlegu fólki á þvælingi á
fálkaslóðum í Mývatnssveit,
Vatnafang hf.:
Ferskur sflungur
tfl Hollands
Vatnafang hf., félag silungs-
veiðibænda, er um þessar
mundir að hefja sendingar á
ferskum silungi til Hollands.
Reiknað er með töluverðri
aukningu í útflutningi félagsins
í sumar og á næstunni verður
m.a. send prufusending til
íslensks veitingahúss í Prag í
Tékkóslóvakíu.
Að sögn Bjarna Egilssonar,
formanns Vatnafangs, er reiknað
með að senda 2-400 kíló af fersk-
um silungi, einu sinni til tvisvar í
viku, til Hollands. Kaupandinn
þar, er stórt vöruhús sem selur
silunginn áfram vítt og breitt um
Evrópu.
„Menn eru rétt að hefja veiðar
og útlit er fyrir að fleiri ætli að
koma inn í dæmið núna en áður.
Við erum því víða að leita hóf-
anna í markaðsmálunum og von-
umst til að auka söluna töluvert
miðað við síðasta sumar,“ segir
Bjarni. Bjarni segir að þeir
geri miklar gæðakröfur um sil-
unginn og þurfi að kæla hann
beint upp úr vatninu til að hann
haldi ferskleikanum. Erlendis fer
silungurinn síðan ísaður í frauð-
plastkössum. SBG
Ásbyrgi og Jökulsárgljúfrum.
Síðast voru Frakkar á ferð. Ingi
Pór Ingvason í Mývatnssveit seg-
ist ekki hafa farið á fálka-
slóðir í vor þar sem hann hafi
ekki verið fenginn til eftirlits.
Ingvi var á launum hjá Náttúru-
verndarráði og Guðríður Þor-
varðardóttir, líffræðingur og full-
trúi hjá Náttúruverndarráði, seg-
ir að vegna niðurskurðar í fjár-
veitingum frá ríkinu hafi þurft að
hætta eftirlitinu. „Landverðir
hófu störf um síðustu helgi í
Mývatnssveit og í Ásbyrgi og í
verkahring þeirra er m.a. að líta
eftir fálkahreiðrum. Þar sem
fálkinn verpir í apríl og ungar eru
skriðnir úr eggjum fyrir þó
nokkru þá er mjög bagalegt að til
eftirlits hafi ekki komið fyrr.
Þetta er hið versta mál og niður-
skurði er beitt víðar. I sumar
verður engin fjallalögregla sem í
fyrra og vegalögregla verður ekki
til staðar á Seyðisfirði við komu
og brottför ferjunnar,“ sagði
Guðríður Þorvarðardóttir. Að
framansögðu má sjá að leiðin er
greið fyrir eggja- og fálkaþjófa að
koma feng sínum til útlanda þar
sem svimandi háar upphæðir fást
fyrir íslandsfálka. ój
Fjörulallar.
Mynd: Golli
Hafrannsóknastofnun gerir tillögur um hámarksafla fljótlega:
Mrnium ekki þvælast fyrir möimrnn
varðandi sumarveiðar á loðnu
- segir Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræðingur
Hjálmar Vilhjálmsson, físki-
fræðingur hjá Hafrannsókna-
stofnun, segir að um miðjan
næsta mánuð leggi stofnunin
fram tillögur sínar um hámarks-
afla á næsta fískveiðiári. Þar
með talið eru tillögur stofnun-
arinnar um loðnuveiðar á
næstu vertíð. Engin breyting
hefur orðið á þeirri fyrirætlan
fískifræðinga að leggja til við
sjávarútvegsráðherra að gefa
Rækjuverksmiðja á Árskógsströnd:
Vaktavinna gengur vel
- vaktavinna hefst hjá Fiskiðjunni á Sauðárkróki á mánudag
Vaktavinna hófst í rækjuverk-
smiðju Söltunarfélags Dalvík-
ur hf. á Arskógsströnd sl.
föstudag og samkvæmt samtöl-
um við starfsfólk líkar því vel
þessi nýja vinnutilhögun.
Sigurður Guðmundsson,
Þormóður rammi:
Ætlunin að setja nvjan
virnislubmiað í Surnrn SI
Ætlunin er að setja nýjan
vinnslubúnað um borð í Sunnu
SI, fjölveiðiskip Þormóðs
ramma, til þess að auka verð-
mæti þeirrar rækju sem skipið
veiðir. Búið er að teikna upp
vinnslubúnaðinn og gerir Har-
aldur Marteinsson, hjá Þor-
móði ramma, ráð fyrir að
smíði hans verði boðin út.
Sunna er í sínum þriðja rækju-
túr og hafa fyrstu tveir túrarnir
gengið bærilega. Fyrsti túrinn gaf
á bilinu 27-28 milljóna króna
aflaverðmæti og annar túrinn ríf-
lega 23 milljóna aflaverðmæti.
Haraldur segir að menn skjóti á
að hægt hafi verið að auka afla-
verðmæti fyrri túrsins um allt að
15 milljónir króna ef um borð
hefðu verið tæki til að sjóða rækj-
una.
Af þessum fyrstu tveim túrum
Sunnu hafa um 90 tonn farið til
vinnslu hjá rækjuvinnslu Þor-
móðs ramma á Siglufirði.
Afgangurinn hefur farið beint á
markað erlendis. Auk þess fær
rækjuvinnslan hráefni frá Pétri
Jónssyni RE og Arneyju KE.
Haraldur segir að undanfarnar
tvær vikur hafi dregið nokkuð úr
rækjuveiðinni. Hann segir að
menn hafi gert sér vonir um að
hægt yrði að hafa vaktavinnu í
sumar og verði keypt Rússarækja
ekki ólíklegt að það gangi
se
eftir.
óþh
starfsmaður í rækjuverksmiðj-
unni, segir að almennt virðist
vera ánægja með þetta nýja kerfi,
gott sé að vera búinn að vinna
svo snemma á daginn. Hann segir
að fólk á fyrripartsvakt kvarti
ekki yfir því að hefja vinnu kl.
04, enda hafi veðrið að undan-
förnu ekki verið til að ergja það.
Fyrri vaktin stendur til kl. 12 og
seinni vaktin hefst kl. 14 og
stendur til 21. Nóg hráefni er til
vinnslu og segir Sigurður að þurft
hafi að bæta við töluvert mörgum
starfsmönnum. Stærstur hluti
þeirra sé af Árskógsströnd.
Vaktavinna hefst hjá Fiskiðj-
unni á Sauðárkróki 1. júní nk.
Erling Ólafsson, verkstjóri, segir
að fyrri vaktin hefjist kl. 6 og
standi til kl. 14 og síðari vaktin
verði síðan til kl. 20. Hvíldartími
á hvorri vakt verður um 35
mínútur.
Á fyrri vaktinni verður nær
eingöngu fastráðið starfsfólk, en
sumarafleysingafólkið verður að
stærstum hluta á seinni vaktinni.
„Það er ekki komið á hreint
hversu marga starfsmenn við
þurfum til viðbótar, en mér sýnist
það vera hátt í 40 manns,“ sagði
Erling. Hann sagði að mikil eftir-
spurn hafi verið eftir vinnu hjá
Fiskiðjunni í sumar og ekki væri
unnt að ráða alla þá sem sóttu
um.
Vaktavinnusamningur Fiskiðj-
unnar og hlutaðeigandi verka-
lýðsfélaga gildir frá 1. júní til 31.
ágúst. Erling segist bjartsýnn á
að nóg hráefni verði í vinnsluna.
Þrátt fyrir að tveir togarar félags-
ins séu nú í siglingu segir Erling
að nóg hráefni sé til að vinna í
frystihúsinu. óþh
út byrjunarkvóta á loðnuveið-
ar strax í sumar en Hjálmar
vildi að öðru leyti ekki upplýsa
í hverju tillögur stofnunarinn
yrðu fólgnar.
„Ég hef sagt það við menn að
nánast engar líkur eru til að við
hér á stofnuninni verðum að
þvælast fyrir mönnum varðandi
loðnuveiðar í sumar. Tillaga okk-
ar verður f það minnsta ekki sú
að menn bíði með að heimila
veiðar þangað til eitthvað sést af
loðnu,“ sagði Hjálmar.
Sumar og haustveiðar á loðnu
eru norðlensku verksmiðjunum
mikilvægar enda stutt á miðin.
Oftast hafa sumarveiðarnar verið
heimilaðar í kringum mánaða-
mótin júlí-ágúst en aftur er mis-
jafnt hvenær verulegur skriður
hefur komist á veiðarnar. Hjál-
mar segir að á næstu vertíð muni
veiðin byggjast upp á árgangnum
1990 og þess hluta árgangsins
1989 sem ekki hrygndi í fyrra.
Mjög er misjafnt hversu mikið af
fjögurra ára loðnu skilar sér í
aflanum og eru þess dæmi að
þessi fiskur hafi vegið yfir helm-
ing í fjölda fiska og þá hefur
heildaraflinn líka verið mjög
mikill. Veiðin á síðustu vertfð
var um 680 þúsund tonn, sem er
undir meðallagi, en fiskifræðing-
ar spá að aflinn verði í meðallagi
næsta vetur. JÓH
Tollgæslan og lögreglan á Akureyri:
Lagði hald á 36 spírabrúsa
Aðfaranótt sl. þriðjudags fann
Tollgæslan á Akureyri í sam-
vinnu við lögregluna og rann-
sóknarlögregluna á Akureyri
36 hálfs líters brúsa af 95%
spíra í húsi á Akureyri.
Þetta mál kom upp í framhaldi
af því að hald var lagt á nokkrar
flöskur af vodka hjá mönnum
sem höfðu keypt hann um borð í
rússneskum rækjutogara, sem lá
við bryggju á Akureyri. Þetta
spíramál tengist á engan hátt
rússneska rækjutogaranum, sam-
kvæmt upplýsingum Tollgæsl-
unnar á Akureyri.
Spírinn mun hafa verið í eigu
eins manns og við yfirheyrslu
kom fram að spírinn hafði verið
keyptur á höfuðborgarsvæðinu,
eingöngu til einkanota. óþh