Dagur - 28.05.1992, Síða 7
Fimmtudagur 28. maf 1992 - DAGUR - 7
H VAÐ ER AÐ GERAST?
Skemmtistaðir
Sjallmn
Annað kvöld, föstudagskvöldið 29.
maí, verða þeir Jón Axel Ólafsson
og Gunnlaugur Helgason með
útsendingu úr Sjallanum á Akur-
eyri, en í fyrramálið verður þáttur
þeirra sendur út frá Akureyri. Á
Bylgjukvöldi í Sjallanum verður
mikið um að vera. Hljómsveitin
Loðin rotta ásamt Eyjólfi Kristjáns-
syni leikur fyrir dansi. Þá verður
baðfata- og undirfatasýning frá
Sporthúsinu og Amaro og óvæntur
gíaðningur í vökvaformi frá heild-
verslun Júlíusar P.
Á laugardagskvöldið leika Herra-
menn frá Sauðárkróki fyrir dansi til
kl. 03.00.
Kjallarinn verður opinn alla helg-
ina, en hann hefur fengið andlits-
lyftingu og er kominn í sumar-
búning. Karaoke er á sínum stað og
geta Kjallaragestir valið úr um 1000
lögum.
Tónlist
Samkór Selfoss
með tónleika í
Miðgarði og á
Siglufirði
Samkór Selfoss heldur tónleika í
Skagafirði og á Siglufirði um helg-
ina. Fyrri tónleikarnir verða í Mið-
garði í Varmahlíð annað kvöld,
föstudaginn 29. maí, kl. 21 og á
laugardag 30. maí kl. 15 syngur kór-
inn ( Tónskóla Siglufjarðar. Á efn-
isskránni er fjölbreytt kórtónlist,
innlend og erlend.
Samkór Selfoss hefur starfað í
hartnær tuttugu ár. Á þessum starfs-
tíma hefur hann sungið víða um
land og auk þess farið þrisvar til
útlanda, Kanada og Norðurlanda.
Söngstjóri Samkórs Selfoss er Jón
Kristinn Cortes og undirleikari Þór-
laug Bjarnadóttir frá Selfossi. Þess
má geta að kórinn býður eldri borg-
urum í Skagafirði og á Siglufirði frí-
an aðgang að tónleikunum.
Kvikmyndir
Ævintýriá
Norðurslóðum
í Borgarbíói
Næstkomandi sunnudag kl. 15 verð-
ur sýnd í Borgarbíói á Akureyri
kvikmyndin Ævintýri á Norðurslóð-
um, sem samanstendur af þrem
ævintýrum sem gerast á ólíkum
stöðum. Öll eiga þau það sameigin-
legt að fjalla um börn sem takast á
við ólíkar uppákomur. Þarna er um
að ræða skemmtilega mynd fyrir alla
fjölskylduna og er hún með íslensku
tali.
Fyrsti hluti myndarinnar er saga
frá Grænlandi, sem byggir á þjóð-
sögunni um „Móður Hafsins". I
öðrum hluta er farið til Færeyja og
sögð saga systkina frá Þórshöfn sem
fara til annarrar eyju til að dvelja þar
í sumarleyfinu hjá ömmu sinni. f
þriða hlutanum er síðan staldrað við
á íslandi og sögð saga Sigga, sem
alinn er upp á „hestabúgarði“. Þar á
hann sér góðan vin, sem er villtur
foli og enginn ræður við nema hann.
Þeir lenda saman í ótrúlegum ævin-
týrum en auðvitað fer allt vel að
lokum.
Ævintýri á Norðurslóðum hefur
hlotið viðurkenningu Eureka audio-
visuel og er þetta í fyrsta skipti sem
íslensk kvikmynd hlýtur þá viður-
kenningu. í aðalhlutverkum í
íslenska hluta myndarinnar eru
Guðmar Þór Pétursson, Sylvía Sig-
urbjörnsdóttir, Bessi Bjarnason,
Þórhallur Sigurðsson (Laddi), Edda
Heiðrún Backman og Arnar
Jónsson. Leikstjóri er Kristín Páls-
dóttir.
Borgarbíó
Myndirnar Víghöfði og Switch
verða sýndar kl. 21 í Borgarbíói í
kvöld, fimmtudag, og um helgina.
Klukkan 23 í kvöld verða sýndar
myndirnar Upp á líf og dauða og
Hetjur háloftanna og um helgina
verður sýnd í B-sal kl. 23 myndin
Billy Bathgate.
Á barnasýningum á sunnudag
verða sýndar myndirnar Ævintýri á
Norðurslóðum og Leitin mikla.
Kvikmyndaklúbbur
Akureyrar:
Síðasta sýn-
ing á Veron-
íku í dag
Kvikmyndaklúbbur Akureyrar
stendur fyrir síðustu sýningu á Tvö-
földu lífi Veroníku í Borgarbíói á
Akureyri í dag, uppstigningardag,
kl. 17. Myndin er gerð af Krzysztof
Kieslowski og var valin besta mynd
á kvikmyndahátíðinni í Cannes
1991 og aðalleikona sem leikur í
myndinni, Iréne Jacob, var einnig
kjörin besta leikkona hátíðarinnar.
Ymislegt
Akureyri:
Krabbameins-
hlaupið verður
nk. laugardag
Hið árlega heilsuhlaup Krabba-
meinsfélagsins verður haldið í
þriðja sinn á Akureyri nk. laugar-
dag, 30. maí, og hefst kl. 12 á hádegi
við Dynheima og lýkur þar einnig.
Frá kl. 11 leikur Lúðrasveit Akur-
eyrar létt lög við Dynheima. Skrán-
ing í hlaupið fer fram í Dynheimum
á laugardag og er þátttökugjald 400
krónur og er bolur innifalinn í því
verði. Krabbameinshlaupið er liður
í íþróttadegi Akureyrarbæjar, sem
haldinn verður með pompi og pragt
nk. laugardag um allan bæ. Dagskrá
íþróttadagsins verða gerð ítarleg
skil í Degi nk. laugardag.
Kabarett
Léttismanna
í Laugarborg
Léttismenn á Akureyri halda sinn
árlega kabarett í Laugarborg í
Eyjafjarðarsveit nk. laugardag, 30.
maí, kl. 21. Fjöldi manns kemur við
sögu, þar á meðal leggur hljómsveit-
in Rokkbandið hönd á plóg.
Tónlist
Svalbarðsströnd:
Mógil sf. sýnir
sumarhús á
laugardag
og sunnudag
Trésmiðjan Mógil sf. á Svalbarðs-
strönd verður með sýningu á þrem-
ur gerðum sumarhúsa, bæði fullfrá-
gengnum og fokheldum, við verk-
stæði Mógils á Svalbarðsströnd,
skammt sunnan við Svalbarðseyri
(um tíu mínútna akstur frá Akur-
eyri) nk. laugardag og sunnudag kl.
13-17 báða dagana. Guðmundur
Ármann, myndlistarmaður á Akur-
eyri, verður með sýningu á málverk-
um og grafíkmyndum í húsunum
sýningardagana.
Tónlistarskólinn
á Akureyri:
Skólaslit
í dag
Tónlistarskólanum á Akureyri verð-
ur slitið í Akureyrarkirkju í dag,
fimmtudaginn 28. maí, kí. 17. Að
loknum skólaslitum afhenda kenn-
arar nemendum sínum námsmat.
Allir eru velkomnir á skólaslitin.
Tónleikar á Hvairnnstanga
Fimmtudaginn 14. maí efndi
Tónlistarskóli Vestur-Húnvetn-
inga til tónleika í Félagsheimilinu
á Hvammstanga. Þetta voru starfs-
lokatónleikar skólans. Skóla-
stjóri hans, Elín Sigurgeirsdóttir,
stýrði tónleikunum af röggsemi
og aðstoðaði nemendur með
undirleik á píanó. Auk nemenda
komu fram á tónleikunum
kvennakór, sem Ingibjörg Páls-
dóttir hafði æft, og verulegur
flokkur nemenda Tónlistarskóla
Eyjafjarðar, sem voru gestir á
tónleikunum.
Frammistaða nemenda Tón-
listarskóla Vestur-Húnvetninga
var ánægjuleg. Þeir sýndu á
margan veg, hve gott starf er
unnið við skólann og hve fjöl-
breytt það er. Nemendur komu
fram jafnt í samleik sem einleik
og í öllum tilfellum var frammi-
staða þeirra bæði skólanum og
þeim sjálfum til sóma.
Á tónleikunum í Félagsheimil-
inu á Hvammstanga kom fram
stór barnakór undir stjórn Ólafar
Pálsdóttur. Kórinn er skipaður
nemendum úr tónlistarskólanum,
en hann starfar í mörgum deild-
um í tengslum við grunnskóla
sýslunnar. Kórinn var á ýmsan
veg skemmtilegur áheyrnar, en
leið greinilega fyrir það, að tæki-
færi til samæfinga eru fá vegna
þess, hve dreifðir kórfélagar eru.
Fyrir einungis fáum árum
hefðu tónleikar sem þeir, sem nú
eru orðnir fastir, árlegir liðir víða
á landinu á vegum tónlistarskóla,
verið gersamlega óhugsandi. í
skólunum gefst nemendum þeirra
tækifæri til þroskandi samstarfs
að iðkun tónlistar. Með því auka
þessir nemendur ekki einungis
Iífsfyllingu sína, heldur eru verk
þeirra ómetanlegur menningar-
auki í byggðum þeirra; samfé-
lagsþáttur, sem væntanlega eng-
inn vill nú vera án.
Kvennakór Ingibjargar Páls-
dóttur flutti nokkur lög á tón-
leikunum. Flest voru útsett af
Steingrími Sigfússyni, tónskáldi,
eða eftir hann.
Það var mjög ánægjulegt að
eiga þess kost að heyra verk
þessa lítt þekkta tónskálds, sem
barðist til þekkingar á tónlist í
sjálfsnámi og af óbilandi og
brennandi áhuga. Kvennakórinn
flutti einungis lítil sönglög eftir
Steingrím, en hann skrifaði
einnig verk stærri í sniðum, svo
sem orgelverk, en hann var org-
anisti við kirkjur allvíða á land-
inu. Því miður hafa verk Stein-
gríms lítið heyrst. Hann er einn
hinna hálfgleymdu tónlistar-
manna íslenskra, sem gjarnan
mætti kynna þjóðinni.
Kvennakórinn söng af smekk-
vísi. Söngur hans var hreinn og
ákveðinn, en þess gætti, að hann
var ekki svo samsunginn, sem
hefði mátt vera. Hins vegar er
ljóst, að geta kórsins er veruleg
og að hann gæti náð skemmtileg-
um árangri ef hann starfaði
áfram. Vonandi gerir hann það.
Nemendur Tónlistarskóla
Eyjafjarðar stóðu sig vel og settu
skemmtilegan svip á tónleikana á
Hvammstanga og voru ánægju-
legir gestir. Þeir fluttu ýmis
sönglög, enda flestir söngnemend-
ur, en auk þess nokkur harmoniku-
lög. Kennarar þeirra, Þuríður
Baldursdóttir, og Guðjón
Pálsson, píanóleikari, voru þeim
til halds og trausts.
Tónleikarnir á Hvammstanga
stóðu í um þrjár klukkustundir
með nokkru hléi. Efni þeirra var
fjölbreytt, en það spannaði sviðið
frá dægurlögum til klassískrar
tónlistar. Þannig mega tónleikar
af þessu tagi gjarnan vera. Á
þeim eiga allir að geta notið ein-
hvers að sínum smekk og í leið-
inni kynnst ýmsu, sem þeir ef til
vill leggja ekki eyru við í annan
tíma.
Haukur Ágústsson.
Flugleiðir:
Ferðamálaskóli hefst í haust
Flugleiðir munu hleypa af
stokkunum ferðamálaskóla í
október á þessu ári. Þetta er
fyrsti skólinn á íslandi sem fær
formlegt leyfi Alþjóðasam-
bands flugfélaga til að kenna
samkvæmt IATA-UFTA staðli
með gögnum frá IATA.
Samkvæmt upplýsingum Flug-
leiða er stofnun skólans liður í
undirbúningi Flugleiða til að
mæta aukinni samkeppni í flugi
og ferðaþjónustu innan Evrópu.
Með stofnun hans gefst fólki
tækifæri til að stunda hagnýtt
nám í ferðaþjónustu og öðlast
frekari möguleika til starfa í grein-
inni bæði hér heima og erlend-
is. í dag eru 57 skólar starfandi í
heiminum sem undirbúa fólk
undir þessi próf og af þeim voru
14 stofnaðir á síðasta ári.
Námið í ferðaskóla Flugleiða
verður rúmar 400 klukkustundir.
Það hefst í október og verða
nemendur útskrifaðir í mars. í
náminu felst m.a. fargjalda-
útreikningur, farseðlaútgáfa,
notkun farþegabókunarkerfis og
upplýsingakerfisins Amadeus,
uþplýsingar um flutningsaðila,
erlend og innlend ferðalanda-
fræði, sölutækni og markaðsmál,
þjónustumál og þekking á ferða-
þjónustu á íslandi.
Leiðbeinendur í skólanum
hafa áralanga starfsreynslu í
ferðaþjónustu en forstöðumaður
skólans verður Una Eyþórsdótt-
ir. JÓH
AÐQANQUR ÓKEYPIS • AÐQANQUR ÓKEYPIS • AÐQANQUR ÓKEY
AÐQANQUR ÓKEYPIS • AÐQANQUR