Dagur - 28.05.1992, Page 13

Dagur - 28.05.1992, Page 13
Fimmtudagur 28. maí 1992 - DAGUR - 13 Tónlist Fyrsta píanóhátíðin: Tónleikar píanónemenda Dagana 24. og 25. maí voru haldnir skemmtilegir og áhuga- verðir tónleikar í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju. Þeir voru hluti dagskrár fyrstu píanóhátíðarinn- ar á íslandi, sem haldin var á Akureyri. Þetta voru tónleikar píanónemenda úr ýmsum tónlist- arskólum í landinu. Öll verkin, sem leikin voru, voru að sjálfsögðu íslensk og flest eftir núlifandi höfunda. Á tón- leikunum gafst því kærkomið tækifæri til þess að heyra vítt svið íslenskrar tónsköpunar fyrir píanó; jafnt verk, sem samin voru beinlínis fyrir nemendur í píanóleik, sem verk almennara eðlis. Fjölbreytnin í þessum verkum er afar mikil, þó að ekki sé ýkja langt síðan nokkuð var farið að semja að marki fyrir píanó sem einleikshljóðfæri hér á landi. Þarna gat að heyra hin aðskiljan- legustu dæmi um stefnur í tón- smíðum síðari ára. Flest verk- anna voru reyndar í nútímaleg- um anda, enda ekki við öðru að búast svo ung sem þessi grein er hér. F>ó var verulegur munur í þessu tilliti og víða komu fram melódískar línur og hljómagang- ur, sem var í hefðbundnari kant- inum. Ekki síst vakti athygli, hve mörg íslensk tónskáld hafa lagt Bikarkeppni Norðurlands í bridds, sveitakeppni: Úrslitaleikurinn á Siglufirði á sunnudag Úrslitaleikur í Bikarkeppni Norðurlands, sveitakeppni, verður spilaður í fundarsal Verkalýðsfélagsins Vöku, Suð- urgötu 10 Siglufirði, sunnudag- inn 31. maí og hefst kl. 10.00. Alls hófu 24 sveitir, víðs vegar af Norðurlandi, keppni í haust en aldrei hafa svo margar sveitir tek- ið þátt í Bikarkeppninni og nú. Til úrslita spila sveit íslands- banka Siglufirði og sveit Ásgríms Sigurbjörnssonar Siglufirði. Alls verða spiluð 64 spil í fjórum lotum. Sveit íslandsbanka er núver- andi bikarmeistari en báðar sveit- irnar sem spila til úrslita hafa ver- ið í fremstu röð mörg undanfarin ár. F>að má því búast við skemmtilegri viðureign á sunnu- daginn, á milli þessara tveggja siglfirsku sveita. Öllu spilafólki er heimilt að koma og fylgjast með spila- mennskunni og er aðgangur ókeypis. -KK Leiðrétting í Degi þann 20. maí sl. birtist athugasemd frá Jónasi Péturssyni um vísu sem eignuð hafði verið Stefáni Ólafssyni en Jónas rök- styður að Páll Ólafsson hafi ort. í athugasemd Jónasar misrit- aðist eitt orð. Þar átti að standa: „Vísan ber glögg einkenni lát- lausrar orðhegurðar, sem dylst ekki í vísum Páls.“ Hið ágæta en sjaldséða orð „hegurð" varð í meðförum blaðs- ins „fegurð“ og breytir það merk- ingu textans verulega. sig eftir því að semja tónverk ætl- uð nemendum - ekki síður byrj- endum en þeim, sem lengra eru komnir. Nokkur tónskáld hafa öðrum fremur komið hér við sögu. Par má nefna Snorra S. Birgisson og Elías Davíðsson, sem báðir hafa samið skemmtileg verk ætluð nemendum. Verk þessara tveggja tónskálda eru mjög ólík, þar sem Birgir Snorri leitar mjög í nútímann með nótnaferð og hljómagang, en Elías heldur sig nær hefðinni. Þá hafa mörg önnur íslensk tónskáld lagt hér gjörva hönd að verki, svo sem Jón Þórarinsson í útsetning- um sínum á smálögum, og Haf- liði Hallgrímsson í smáverkum sínum ætluðum börnum. Eldri nemendur, þeir, sem komnir voru yfir fjórða stig á hljóðfærið, léku á fyrri tón- leikunum, 24. maí. Verkefnaval var iðulega mentaðarfullt og tæknileg frammistaða nær ævin- lega glæsileg. Skemmtilegt var ekki síður, hve langt ýmsir nemendanna höfðu náð í túlkun; því að gefa flutningi sínum blæ, sem gæti kallast að einhverju leyti þeirra eigin. Á tónleikum yngri nemenda var ekki síður ánægjulegt að heyra, hve vel færir þeir voru í Það eru margir góðir á söluskrá og í salnum Subaru stc. 1800 4x4 árg. ’85. Ek. 140.000 km. 400.000 stgr. ★ Suzuki Fox 413 stuttur háþekja árg. ’85. Ek. 79.000 km. 430.000 stgr. ★ Subaru stc. árg. ’88. Ek. 79.000 km. Góður bíll. 850.000 stgr., skipti niður. ★ Lada Sport árg. ’87. Ek. 47.000 km. 375.000 stgr. ★ MMC Space Wagon 4x4, grár, árg. ’87. Ek. 102.00 km. 795.000 stgr., skipti ódýrari. ★ Honda Civic GL Sport árg. ’90. Ek. 47.000 km. 800.000 stgr. ★ Subaru Legacy 2,2 árg. ’90. Ek. 32.000 km. 1.500.000 stgr. Vantar bíla á staðinn! ®ÞÓRSHAMAR HF. BÍLASALA Glerárgötu 36, sími 11036 og 30470 Fax 96-27635. viðfanginu við efnið, sem þeir fluttu. Að vonum var það ekki eins vandasamt eða flólkið hvort heldur tæknilega eða í túlkunar- legu tilliti og verkefni lengra kominna nemenda, en frammi- staðan bar jafnt nemendum, kennurum þeirra og skólunum, sem þeir nema við gott vitni. Undirritaður hefur áður fjallað um gildi nemendatónleika og það ánægjuefni sem það er að sækja þá. Einungis má bæta við hér, að þessir tvennir tónleikar píanó- nemenda víða að af landinu sýndu greinilega og glæsilega, að það starf, sem kennarar við tón- listarskóla landsins vinna með nemendum sínum, ber svo sann- arlega árangur og hann glæsileg- an. Þessir dagskrárliðir á píanó- hátíðinni áttu því erindi og það mikilvægt. Af þeim sást, að framtíð tónlistariðkunar í land- inu er í góðum höndum, þar sem hin unga kynslóð er. Haukur Ágústsson. BORGARBÍÓ Salur A Fimmtudagur Kl. 9.00 Víghöfði Kl. 11.00 Upp á líf og dauða Salur B Fimmtudagur Kl. 9.00 Switch Kl. 11.00 Hetjur háloftanna BORGARBÍO S 23500 Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum: Fífilbrekku, Akureyri, þingl. eigandi Guðrún Kristinsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri miðvikud. 3. júní 1992, kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl. og Benedikt Ólafsson hdl. Hlíð v/Akureyri, þingl. eigandi Ingi- mar Víglundsson, fer fram á eign- inni sjálfri miðvikud. 3. júní 1992, kl. 14.00. Uppboðsbeiðandi er: Gunnar Sólnes hrl. Krabbastíg 1, norðurhluta o.fl., Akureyri, þingl. eigandi Kristín Hall- dórsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri miðvikud. 3. júní 1992, kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur eru: Tryggingastofnun ríkisins, Gunnar Sólnes hrl., Sigurmar K. Albertsson hdl., Bæjarsjóður Akureyrar og inn- heimtumaður ríkissjóðs. Sandskeið 16, jarðhæð, Dalvík, þingl. eigandi Bergur Lundberg, fer fram á eigninni sjálfri miðvikud. 3. júní 1992, kl. 10.00. Uppboðsbeiðandi er: Gunnar Sólnes hrl. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu Frá félagsstarfi aldraðra Skemmtun verður í Húsi aldraðra laugardaginn 30. maí kl. 14.00. Dagskrá: Hjón fara meö gamanþætti. Nemar í söng syngja. Upplestur eftir góöan höfund. Kaffiveitingar og dans. Aðgangseyrir er 600 krónur. VERKMENNTASKÓLINN Á AKUREYRI SKOLASLIT verða í íþróttahöllinni á Akureyri laugar- daginn 30. maí kl. 10.00. Skólameistari. l Sumarferð Iðju 1992 Sumarferð Iðju verður dagana 22.-26. júlí. Áætlað er aö fara suður Kjöl, gista eina nótt á Laug- arvatni og þrjár nætur í Kirkjubæjarklaustri. Dagsferöir veröa farnar og skoöaðir verða helstu staðir á þessari leiö s.v.s. Skaftafell, Breiðamerkur- lón o.fl. Lagt verður af staö frá Alþýöuhúsinu 22. júlí kl. 9. f.h. Komið heim 26. júlí noröur yfir Sprengisand. Verð pr. mann kr. 25.000, fæði og gisting innifalið. Þátttöku þarf aö tilkynna fyrir 10. júní nk. á skrifstofu löju, sími 23611. Ferðanefnd. Firmakeppni Hestamannafélagsins Léttís verður haldin á Breiðholtvelli, fimmtudag- inn 28. maí, kl. 14.00. Kvennadeild Léttis verður með kaffihlað- borð í Skeifunni meðan firmakeppni stend- ur yfir. Firmakeppnisnefnd. PORTIÐ nýju slökkvistöðinni við Árstíg Broddur-minjagripirog veggplattar, brenndir - prjónuð barnaföt - spil - bækur - plötur - myndir - lax - brauð - lakkrís — postulínsvörur — keramik — kartöflur o.fl. o.fl. Komið og skoðið Söluaðilar Opið laugardaga frá kl. 11-16 iti Innilegar þakkir til allra þeirra sem vottuðu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför, JÓRUNNAR MARY INGVARSDÓTTUR, Dúddu, Luxemborg. Emil B. Sigurbjörnsson, dætur og móðir hinnar látnu.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.