Dagur


Dagur - 13.06.1992, Qupperneq 9

Dagur - 13.06.1992, Qupperneq 9
Laugardagur 13. júní 1992 - DAGUR - 9 - og Eyfirðingar sameinast undir einni stjórn í fyrsta þætti var skýrður aðdrag- andi aðskilnaðar dómsvalds og umboðsvalds í héraði og sl. laug- ardag var fjallað um skipan dóm- stóla í héraði fyrr og nú. I dag verður skýrð sú breyting sem snýr að handhöfum umboðsvalds - þ.e.a.s. framkvæmdarvalds - í héraði. Sýslumenn og bæjarfógetar misstu dómsvald í opinberum málum í janúar 1990 og þann 1. júlí nk. missa þeir einnig dómsvald í einkamálum. Með aðskilnaðarlögunum hverfur embættisheitið fógeti enda á það heiti rætur sínar að rekja til þeirrar samblöndunar umboðsvalds og dómsvalds sem nú verður afnumin. Heitið hafa haft bæjarfógetar í bæj- um og borgarfógeti í Reykjavík auk fulltrúa þeirra. Orðið fógcti er komið úr latínu: (ad)vocatus þ.e. hinn til- kallaði. Fullnustuvald Par sem skipaðir héraðsdómarar fengu í sínar hendur stóran hluta dómsvalds við stærstu embættin árið 1972 hefur aðalstarf bæjarfógeta og sýslumanna einkum verið á sviði stjórnsýslu síðan. í>ó fást þeir enn við sérstaka tegund dómsathafna sem nefnd hefur verið fullnustuvald. Pessi tegund dómsvalds fellur ekki undir þá skilgreiningu sem sett var fram í fyrsta þætti þar sem í henni felst ekki einungis úrlausn réttar- ágreinings. Hér er um að ræða athafnir sem nauðsynlegar eru til að knýja fram réttindi sem ekki er (lengur) ágreiningur um. Oft er því svo farið að ekki er vilji eða geta til að framfylgja því sem rétt er. Þarf þá opinbert vald að koma við sögu til að hindra að menn leiti réttar síns með sjálftöku eins og íslendingar gerðu á þjóðveldisöld. Vettvangur slíkra dómsathafna hefur verið uppboðs- réttur og skiptaréttur. Einnig er hér um að ræða þær athafnir sem kennd- ar hafa verið við fógeta - fógetagerð- ir. Þær verða nú kallaðar aðfarar- gerðir þar sem fógetahugtakið hverfur. Að lokum má nefna kyrr- setningu og lögbann en það eru ráð- stafanir sem einungis eru gerðar til bráðabirgða til að tryggja rétt fólks. Skilgreint og aðgreint Slíkar dómsathafnir hafa ávallt verið taldar vera á markalínu tveggja þátta ríkisvaldsins - dómsvalds og fram- kvæmdarvalds. í kjölfar aðskilnaðar- laganna fylgir sú breyting að slíkar dómsathafnir verða skilgreindar á ný og aðgreindar. Rétt eins og átta nýj- um héraðsdómstólum er fengið dómsvald sýslumanna fá þeir þann hluta fullnustuvaldsins sem í raun snýst um að dæma. Hinn hlutann -• framkvæmd fullnustuvaldsins - hafa sýslumenn áfram með höndum. { hvert sinn sem réttarágreiningur verður kemur til kásta dómara. Breytingin er því einkum formlegs eðlis þar eð hún snýst um hvaða embættismenn annast störfin. Þó eru gerðar ýmsar efnislegar breytingar á þeim reglum sem gilda um fram- kvæmdina en um þær verður fjallað í þarnæsta þætti. Auk þess sem viðamesti þáttur fullnustuvaldsins verður áfram í höndum sýslumanna fá þeir í sínar hendur störf sem að vísu hafa verið talin til dómsathafna en eiga meira skylt við framkvæmd laga. Einkum er um að ræða skráningu eða trygg- ingu réttinda s.s. þinglýsingar og lög- bókandagerðir (notarialgerðir) sem nú verða taldar til stjórnvalds- athafna. Hlutverk sýslumanna „Sýslumenn fara, hver í sínu umdæmi, með stjórnsýslu ríkisins eftir því sem lög og reglugerðir mæla fyrir um. Þar á meðal fara þeir með lögreglustjórn, tollstjórn og inn- heimtu opinberra gjalda, að því leyti sem hún er ekki falin öðrum,“ eins og segir í 10. gr. laga nr. 92/1989. Hér er orðið stjórnsýsla notað í sömu merkingu og hið eldra heiti umboðs- vald. Viðamestu störf sýslumanna hingað til og hér eftir eru talin upp í sjálfri 10. grein en auk þeirra fá þeir fyrrnefndar stjórnvaldsathafnir sem áður töldust til dómsathafna. Einnig munu sýslumenn sjá um borgaraleg- ar hjónavígslur, ýmsar leyfisveitingar og útnefningu mats- og gerðar- dómsmanna en áður voru þessi störf falin dómstólum þ.ám. fógetum. Sýslumenn fara með innheimtu tekna ríkis og sveitarfélaga, þar sem ekki eru sameiginlegar gjaldheimtur, og einnig umboð fyrir Trygginga- stofnun ríkisins. Sýslumaður mun veita skilnaðarleyfi og úrskurða um greiðslu meðlags. Sýslumenn fara áfram með lögreglustjórn - að því leyti sem hún heyrir ekki undir rann- sóknarlögreglu ríkisins - og nefnast þeir þá lögreglustjórar. * Ulfur í dómarahempu Eitt helsta nýmæli réttarfarsbreyting- anna er að sýslumenn munu fara með ákæruvald í umboði ríkissaksóknara auk þess sem heimild þeirra og lög- reglumanna til að ljúka máli með sekt eða öðrum viðurlögum er rýmkuð. Fram að þessu hafa allar ákærur í opinberum málum verið gefnar út af ríkissaksóknara. Hins vegar hefur ríkissaksóknari eða full- trúi hans ekki mætt fyrir dómi nema í stærri sakamálum. Með þessu hefur sjálfstæði dómara í veigaminni saka- málum verið ábótavant. Dómari hef- ur fram á þennan dag óbeint verið fulltrúi ákærandans um leið og hann á að dæma um ákæruna enda hefur hann einungis skriflegt ákæruskjal frá ríkissaksóknara í höndunum. Dómari hefur því leikið tveimur skjöldum. Nú stendur þetta til bóta. Til að ekki þurfi að koma upp útibú- um ríkissaksóknara á landsbyggðinni og fjölga starfsliði hans er sýslu- mönnum eða fulltrúum þeirra nú skylt að vera viðstaddir málsmeðferð og sækja málið. Einnig munu þeir gefa út ákæru í málaflokkum sem til- greindir eru í lögum um meðferð opinberra mála. Er þá um að ræða sjálfstætt ákæruvald í málum út af brotum gegn umferðarlögum, áfeng- islögum og smærri brotum gegn öðr- um sérrefsilögum en svo eru nefnd lög - önnur en almenn hegningarlög - sem innihalda refsiákvæði. Breyt- ing þessi mun líkast til auka sjálf- stæði dómara í héraðsdómstólunum átta (þ.ám. Héraðsdómstól Austur- lands sem hefur aðsetur á Egilsstöð- um en hann gleymdist að nefna í síð- asta þætti). Auk þess stuðlar breyt- ingin að valddreifingu þar sem ákvörðunarvald er flutt frá höfuð- borginni. Hætta er þó á að minna samræmi verði í meðferð ákæru- valds. Eyfirðingar undir einni stjórn Samkvæmt 11. gr. aðskilnaðarlag- anna skiptist landið frá og með 1. júlí nk. í 27 stjómsýsluumdæmi. Umdæmi sýslumannsins í Reykjavík er ákveðið í lögunum sjálfum en valdssvið hans er þrengra en annarra sýslumanna þar sem hann deilir völd- um með lögreglustjóranum og toll- stjóranum þar í borg. Aðsetur annarra sýslumanna em sem hér segir: Akra- nes, Borgames, Stykkishólmur, Búðardalur, Patreksfjörður, Bolung- arvík, ísafjörður, Hólmavík, Blönduós, Sauðárkrókur, Siglufjörð- ur, Ólafsfjörður, Akureyri, Húsavík, Seyðisfjörður, Neskaupstaður, Eski- fjörður, Höfn í Homafirði, Vík í Mýrdal, Hvolsvöllur, Vestmannaeyj- ar, Selfoss, Keflavík, Keflavíkurflug- völlur, Hafnarfjörður og Kópavogur. Stjórnsýsluumdæmi sýslumanna em ákveðin með reglugerð nr. 57/1992 og eru þau nánast hin sömu og áður. Þó er gerð tímabær breyting þar sem sýslumaðurinn á Akureyri fær undir sína stjórn Svalbarðsstrandarhrepp og Grýtubakkahrepp sem áður heyrðu undir sýslumann Þingeyjar- svslu sem sat mun fjær - á Húsavík. Afram verða starfrækt útibú lögreglu á smærri stöðum s.s. Þórshöfn og Raufarhöfn sem og á Dalvík en þar verður einnig útibú frá sýslumanns- embættinu á Akureyri. Sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra hátíðai'kveój ur í tilefni dagsins Sendum sjómönnum og fjölskyfdum þeirra hátíðarkvedjur í tilefni dagsins i@| Útgerðarfélag Akureyringa Sími 25200 SANDFELL HF [Qg)j Laufásgötu • Umboðs- og heildverslun Veiðarfæri ■ Útgerðarvörur Sendum sjómönnum og Qölskyldum þeirra hátídarkvedjur í tilefhí dagsins Sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra hátíðarkveðjm í tilelhi dagsins SJÓMANNAFÉLAG Lónsbakka • Sími 96-11122 EYJAFJAROAR Skipagötu 14 • Sími 25088 Sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra hátíðarkveðjur í tilefhi dagsins W EYFJÖKÐ Hjalteyrargötu 4 Simi 22275

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.