Dagur - 01.07.1992, Blaðsíða 1
75. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 1. júlí 1992
121. tölublað
Vel ífö 1 klæddur tum frá BER^?DT lennabudin
t 1 HAFNARSTRÆTI92 602 AKUREYRI SÍMI96-26708 BOX 397
Fasteignasalar á Akureyri:
Mikil eftirspura eftír
eignum frá utanbæj arfólkí
t *
Eins og sjá má var ísspöngin allstór og tók það Árbak um einn og hálfan tíma að komast í gegnum hana.
Mynd: Þorgeir Baldursson.
Árbakur EA, togari Útgerðarfélags Akureyringa:
Lenti í hafís á heimleiðinni
Fasteignasalar á Akureyri
virðast á einu máli unt að
fólksflutningar til bæjarins séu
mun meiri þessa dagana en frá
honum. Agæt sala virðist vera
á fasteignum í bænum en hins
vegar fer það eftir fasteignasöl-
um hvaða eignir eru eftirsótt-
astar.
Pétur Jósepsson hjá Fasteigna-
og skipasölu Norðurlands segir
að sala á fyrriparti ársins hafi ver-
ið 7-10% minni en á sama tíma í
fyrra. Mestu muni að apríl og
maí, sem yfirleitt séu góðir sölu-
mánuðir, hafi ekki skilað sér jafn
vel í ár en hins vegar hafi mikil
sala verið í júní og sé eftirspurnin
mest eftir stærri eignum.
Pétur sagði töluvert vera um
fyrirspurnir frá fólki sem væri að
flytja í bæinn en ekki væri jafn
mikið um að fólk setti eignir á
sölu þar sem það væri að flytja í
burtu. „Það er hins vegar ber-
sýnilega erfitt að selja núna á
Reykjavíkurmarkaðnum því fólk
gerir ítekaðar tilraunir til að
skipta á eignum sínum í Reykja-
vík og eignum hér í bænum,“
Léttsteypan í
Mývatnssveit:
Húseignir og
tæki slegin
Iðnlánasjóði
- fyrir 600 þúsund kr.
Iðnlánusjóði voru slegnar
húseignir Léttsteypunnar í
Mývatnssveit á nauðungar-
uppboði sl. mánudag, ásamt
föstum vélum og tækjum í
húsinu. Bauð Iðnlánasjóður
samtals 600 þúsund krónur í
eignirnar.
Að sögn Stefáns Melsteð,
iögmanns lðnlánasjóðs, var
sjóðurinn að verja um fjög-
urra milljón króna kröfu í
eignirnar með þessu boði.
Sjóðurinn ltyggst selja eignirn-
ar aftur samkvæmt venju.
Sagði Stefán að mjög lauslega
hefði verið rætt um sölu
þeirra, cn vildi ekki gefa upp
nöfn í því sambandi.
Hinrik Árni Bóasson,
stjórnarformaður Léttsteyp-
unnar, sagðist gera ráð fyrir að
fyrirtækið leitaði eftir kaupum
á húsinu. Framleiðsla hjá
Léttsteypunni hefur ekki
stoppað og þar vinna nú fimm
starfsmenn. Hinrik Árni sagði
að skuldir Léttsteypunnar
hefðu numið 21 milljón um
áramót og reksturinn verið
þungur. Nú væri lokið að
ganga frá almennunt kröfum á
fyrirtækið og rekstarskilyrði
skánuðu ef þeir fengju húsið
aftur á skaplegu veröi. Hann
sagði húseignirnar í raun
einskis virði fyrir aðra en land-
eigendur, sem réðu yfir jarð-
hitanum sem nýttur er við
framleiðsluna. 1M
sagði Pétur Jósepsson.
Hermann R. Jónsson hjá Fast-
eignasölunni hf. sagði söluna
hafa verið góða í mars og apríl en
síðan rólega í maí og framanaf
júní en markaðurinn væri að ná
sér aftur og salan væri góð þessa
dagana. „Pað er eins og það sé
strik við 10 milljónirnar og ekki
til peningar fyrir eignum sem
kosta meira en það. Það hefur
gengið best með litlu íbúðirnar
og ég hef selt töluvert af litlum
einbýlishúsum á svipuðu verði og
þriggja herbergja íbúðir í
blokk,“ sagði Hermann.
Hann tók undir með Pétri
aðspurður um fólksflutninga til
og frá bænum. „Ég verð ekki var
við brottflutninga, það er miklu
frekar að fólk sé að flytja í
bæinn.“
Páll Halldórsson hjá fasteigna-
sölunni Eignakjör sagði lægð
hafa komið í söluna í apríl en
hún væri greinilega að jafna sig.
Fólk færi hins vegar varlega og
meira seldist af ódýrari eignum.
„Það er bæði eðlileg afleiðing af
ástandinu í þjóðfélaginu og eins
hefur greiðslumatið sem kom
með húsbréfakerfinu orðið til
þess að fólk er raunsærra.“
Páll sagði mikið um fyrirspurn-
ir frá fólki í öðrum landshlutum.
„Það er greinilegt að fólk vill búa
hérna,“ sagði Páll Halldórsson.
JHB
Árbakur EA 308 lenti í allmik-
illi ísspöng á heimleið skammt
norður af Kögri í fyrradag.
Árni Ingólfsson, skipstjóri á
Árbaki, segist ekki minnast
þess að hafa áður lent í hafís á
svipuðum slóðum á þessum
árstíma.
Árni sagðist í samtali við Dag
ekki gera sér grein fyrir hvað
spöngin hefði verið stór en sagði
það hafa tekið um einn og hálfan
tíma að komast í gegnum hana.
„Þetta hlýtur að teljast nokkuð
sjaldgæft og ég man ekki til þess
að hafa áöur lent í ís svona ofar-
lega í júní. Það var kominn
nokkuð mikill ís þarna og upp í
Nesdýpi og víðar," sagði Árni.
Árbakur landaði 170 tonnum
af karfa, þorski og ýsu, mest
karfa. „Það sést lítið af þorskin-
um. Við byrjuðum á þorski og
ýsu á Vestfjarðamiðum en hann
brældi bara svo við fórum suður í
Skerjadýpi og veiddum karfa.
Það var nóg af honum," sagði
Árni.
í fyrradag landaði Harðbakur
232 tonnum og var karfi uppi-
staðan í aflanum. Svalbakur var
væntanlegur heim í nótt með full-
fermi, rúm 250 tonn, og var karfi
uppistaðan. JHB
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri:
Finnngis bráðaþjónusta á sex
deildum í þr já mánuði í sumar
- mun færri ráðnir í sumarafleysingar en undanfarin sumur
Eins og fram hefur komið var
Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri gert að ná 44 millj-
óna króna sparnaði í rekstri á
yfirstandandi ári og hefur þeg-
ar verið gripið til margháttaðra
aðhaldsaðgerða til þess að ná
honum. A mörgum deildum
sjúkrahússins er aðeins bráða-
þjónusta í sumar og með því
móti sparast umtalsverðar fjár-
hæðir.
Á tímabilinu frá 1. júní sl. til
30. ágúst nk. er einungis bráða-
þjónusta á bæklunardeild, hand-
lækningadeild, kvensjúkdóma-
deild, barnadeild, augndeild og
háls-, nef- og eyrnadeild. Auk
þess hefur verið dregið úr þjón-
ustu á speglunardeild, lyflækn-
ingadeild II, geðdeild og skurð-
deild. Starfsemi fæðingadeildar
og slysadeildar er hins vegar
óbreytt, enda tæplega hægt að
draga úr þjónustu á báðum þess-
um deildum.
Ingi Björnsson, framkvæmda-
Byggðastofnun:
Búin að kaupa þrjár húseignir
á uppboðum á skönunum tíma
Byggðastofnun keypti í gær
tvær húseignir á nauðungar-
uppboðum, annars vegar hús-
næði það sem Dansstúdíó
Alice hefur verið rekið í við
Tryggvabraut á Akureyri og
hins vegar húsnæði Pólstjörn-
unnar á Dalvík. Nýlega keypti
stofnunin einnig húsnæði
Húsvískra matvæla á Húsavík.
Valtýr Sigurbjarnarson, úti-
bússtjóri Byggðastofnunar á
Akureyri, staðfesti þetta í sam-
tali við Dag í gær. „Við áttum
þarna útistandandi skuldir og
erum að tryggja hagsmuni stofn-
unarinnar með þessum kaupum,"
sagði Valtýr. Hann vildi ekki
gefa upp kaupverð og sagðist
ekki hafa handbærar upplýsingar
um hversu miklar skuldir stofn-
unin hefði átt útistandandi í þess-
um eignum.
Valtýr sagði ekki hafa verið
teknar ákvarðanir um hvað gert
yrði við viðkomandi húseignir.
„Venjulega eru eignir sem stofn-
unin kaupir á nauðungarsölum
auglýstar til sölu og ég reikna
með að það verði gert í þessum
tilvikum." JHB
stjóri Fjórðungssjúkrahússins,
segir að í þessum sparnaðar-
aðgerðum felist að öllum aðgerð-
um nema bráðaaðgerðum sé
frestað fram á haustið. „Við
erum því í raun með spítalann
fjórðung úr ári eingöngu sem
bráðasjúkrahús," sagði Ingi.
Hann sagði að ekki hafi áður ver-
ið dregið svo mikið úr þjónustu á
sjúkrahúsinu, en þetta hafi orðið
að gera til þess að ná fram boð-
uðum sparnaði. Hins vegar sé
vert að hafa í huga að ekki hafi
verið gripið til þess ráðs að loka
neinni deild sjúkrahússins.
Vegna þessa mikla samdráttar
í starfsemi sjúkrahússins hafa
mun færri verið ráðnir í sumar-
afleysingar en áður, hvort sem er
hjúkrunarfræðingar, læknar eða
ófaglært starfsfólk. „Það er innan
við tveir þriðju af afleysingafólki
hér í sumar miðað við fyrri ár,“
sagði Ingi.
Nú þegar er komin eins mán-
aðar reynsla á þessar sparnaðar-
aðgerðir. „Af þessu skapast
vissulega óþægindi fyrir sjúklinga
og biðlistar lengjast, en ég tel að
þetta hafi gengið þokkalega til
þessa,“ sagði Ingi Björnsson. óþh