Dagur - 01.07.1992, Síða 2
ri t inA/i
a n
2 - DAGUR - Miðvikudagur 1. júlí 1992
Fréttir
Skiptum á þrotabúi Álafoss hf. lokið:
Stærsta gjaldþrot íslandssög-
unnar „geymt“ á Þjóðskjalasaftii
Skiptameðferð á þrotabúi Ála-
foss hf. lauk formlega í gær
rösku ári eftir að fyrirtækið var
úrskurðað gjaldþrota.
Heildarkröfur í þrotabú Ala-
foss voru um 2,7 milljarðar
króna. Þar af voru samþykktar
forgangskröfur og sem innleystar
voru af Ríkissjóði vegna ríkis-
ábyrgðar á launum 70,3 milljónir
króna. Af þessari upphæð feng-
ust greiddar 8,3 milljónir eða
11,9%. Lýstar kröfur utan skuld-
araðar námu 1,15 milljarði króna
og upp í þær kröfur fengust
greiddar rúmar 890 milljónir
króna, eða 77,1%. Lýstar
almennar kröfur samkvæmt
endanlegri kröfuskrá, og sem
ekki var sérstaklega tekin afstaða
Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga:
Þörfnumst stórverkefiiis
- Byggðastofnun spáir fólksfækkun
Aðalfundur Atvinnuþróunar-
félags Þingeyinga var haldinn á
Hótel Húsavík sl. laugardag.
Formaður stjórnar félagsins,
Reinhard Reynisson, flutti
skýrslu stjórnar og þakkaði
Ásgeiri Leifssyni fram-
kvæmdastjóra fyrir vel unnin
störf.
Aðalsteinn Baldursson,
varaformaður Verkalýðsfélags
Húsavíkur, var kjörinn í stjórn
Atvinnuþróunarfélagsins í stað
Kristins Lárussonar á Þórshöfn,
sem ekki gaf kost á sér til endur-
kjörs.
Ásgeir Leifsson kynnti nýja
spá frá Byggðastofnun um breyt-
ingar á fólksfjölda í Þingeyjar-
sýslum. í spánni kemur fram að
til 2010 muni fólki í Suður-Þing-
eyjarsýslu fækka um 16% en
fólki í Norður-Þingeyjarsýslu um
23%. í forsendum fyrir spánni er
tekið tillit til atvinnuþróunar.
Telur Ásgeir að til að bregðast
við þessum tíðindum þurfi að
takast á við meiri háttar verkefni
í atvinnumálum. IM
til, námu samtals 1,4 milljarði
króna. Ekki fékkst ein einasta
króna upp í þær.
í frumvarpi að úthlutunargerð
í þrotabúi Álafoss kemur fram að
skiptastjórar, Brynjólfur
Kjartansson hrl. og Skarphéðinn
Þórisson hrl. hafi ákveðið að
halda eftir 1 milljón króna til að
mæta hugsanlegum kostnaði
vegna skiptaréttarmáls gegn H.
Stoll G.m.b.H. & Co., 1,2 millj-
ónum til að greiða Þjóðskjala-
safni íslands vegna vörslu á bók-
haldsgögnum þrotabúsins og 500
þúsundum til að mæta ófyrirséð-
um kostnaði, t.d. vegna vinnu við
upplýsingaöflun.
Eins og fram hefur komið er
gjaldþrot Álafoss langstærsta
gjaldþrot íslandssögunnar. Lög-
fróðir menn meta það svo að í
raun sé gjaldþrotið, þegar öll
kurl séu komin til grafar, ríflega
3 milljarðar króna. Til saman-
burðar er gjaldþrot Hafskips hf.
talið nema um 1,3 milljarði
króna, framreiknað til dagsins í
dag. óþh
Jafn vœgiskúnstir.
Mynd: GT
Óveðrið:
Fleira fé fimist dautt í Skagafirði
Fleira og fleira fé finnst dautt í
afréttum Skagfirðinga eftir
hretiö á dögunum. Um 20
kindur hafa fundist dauðar í
Laugar í Reykjadal:
Sumarleikar HSÞ
um næstu
„Þetta verður fjölskyldu-
skemmtun í fögru umhverfi og
í góðu veðri,“ sagði Guðrún
Sigurðardóttir, forsvarsmaður
frjálsíþróttadeildar HSÞ.
Sumarleikum HSÞ var frestað
um síðustu helgi vegna veðurs,
en ákeðið er að halda þá um
næstu helgi, 4. og 5. júlí.
Sumarleikarnir verða haldnir
að Laugum í Reykjadal.
Leikarnir hefjast kl. 10 báða dag-
ana og nóg af tjaldstæðum er á
svæðinu fyrir þá sem það vilja
nýta sér. Dagskrá verður fjöl-
breytt; Héraðsmót í frjálsum,
pollamót í knattspyrnu, glíma,
starfshlaup í léttum dúr, reiðsýn-
helgi
ing og ýmiskonar skemmtiatriði,
tívolí og varðeldur. IM
Kálfadal og einnig hefur fund-
ist dautt fé í Staðarsveit og á
Vatnsskarði. Búast má við að
fleira fé hafi farist, einkum í
norðanverðum Skagafirði og
Ijóst að öll kurl eru ekki komin
til grafar í því efni. Bjargráða-
sjóður mun geta bætt fjártjón
af völdum óveðursins að
nokkru leyti fái bændur það
ekki bætt annarsstaðar frá og
eigi ekki fé umfram fram-
leiðslurétt.
Jóhann Már Jóhannsson,
bóndi í Keflavík, sagði að nú
hefðu fundist um 20 kindur dauð-
Kjaradómur:
Hafnaði tilmælum
um endurskoðun
- ríkisstjórnarfundur um málið í gærkvöld
Kjaradómur hefur neitað ríkis-
stjórninni að taka til endur-
skoðunar ákvörðun sína um
breytingar á launum æðstu
manna ríkisins en stjórnin
Fiskmíölun Noröuriands á Oalvík - Rskverð á markaði vlkuna 21.06-27.06 1992
Tegund Hámarks- verö Lágmarks- verö Meöalverö (kr/kg) Magn (kg) Verömæti
Grálúöa 80 75 77,19 5.540 427.611
Hlýri 39 37 37,61 343 12.901
Hrogn 130 130 130,00 233 30.290
Karfi 36 20 27,84 339 9,437
Keila 30 30 30,00 47 1.410
Lúöa 120 120 120,00 4 480
Steinbítur 41 37 40,00 213 8.521
Ufsi 39 37 37,55 2.573 96.622
Ýsa 111 40 74,07 1.741 165.367
Þorskur 86 77 83,87 8.747 733.615
Samtals 74,19 20.971 1.555.824
Dagur birtlr vikulega töflu yfir fiskverö hjá Rskmiölun Norfturlands á Dalvik og grelnir þar frá
verblnu sem fékkst i vikunni á undan. Þetta er gert í IJósi þess að hiutverk fiskmarka&a í verþ-
myndun íslenskra sjávarafurða hefur vaxlft hröðum skrefum og því sjálfsagt að gera lesendum
blaðslns klelft að fylgjast með þröun markaðsverðs á flskl hér á Norðurlandl.
hafði farið fram á að dómurinn
endurskoðaði fyrri ákvarðanir
sínar. Ríkisstjórnarfundur
hófst um málið síðdegis í gær
og var fyrirhugað að honum
yrði framhaldið í gærkvöld.
Ljóst er að niðurstöður kjara-
dóms munu valda stjórnvöldum
og aðilum vinnumarkaðarins
miklum vanda ef þær verða látn-
ar ganga eftir. í ályktun frá
BSRB segir meðal annars að rök-
rétt framhald af svokölluðum
leiðréttingum kjaradóms sé að
samsvarandi kauphækknair verði
látnar ganga til félagsmanna sam-
takanna. Svipaðra hugmynda
gætir einnig í málflutningi tals-
manna annarra samtaka launa-
manna auk þess sem talsmenn
atvinnurekenda hafa bent á að
niðurstöður dómsins hvað æðstu
embættismenn varðar kollvarpi
þeirri launastefnu sem verið hafi
við lýði að undanförnu og átt
verulegan þátt í að útrýma verð-
bólgunni. ÞI
ar í Kálfadal auk þess sem frést
hefði af fjárdauða víðar í hérað-
inu. Hann sagði að fylgst væri
með fénu daglega og skiptust
bændur á um að fara til fjalla og
líta eftir. Mikill snjór er enn í
afréttum og mjög erfitt er fyrir
sauðkindur að athafna sig. Þá
kemur kuldinn einnig illa við rúið
féð því þrátt fyrir hlýnandi veður
er mjög kalt á næturnar - einkum
til fjalla. Jóhann Már kvaðst ætla
fram í afrétt einhvern næstu daga
til að kanna ástand fjárins. Mikil
hætta væri á að fleira fé hefði
drepist og kæmi það í ljós þegar
snjóinn færi að taka upp. Einnig
væri veruleg hætta á að fé og
jafnvel hross veiktust vegna kuld-
ans og vosbúðarinnar og því
ógerningur að segja til um það í
bráð hver skaðinn muni verða af
áhlaupinu en alveg ljóst að ekki
væri allt komið fram í því efni.
Bændur hafa vellt fyrir sér
möguleikum á bótum vegna bú-
fjárskaðans og hvort Bjargráða-
sjóður komi til með að bæta tjón
af völdum hamfara sem þessa.
Þórður Skúlason, framkvæmda-
stjóri Sambands íslenskra sveit-
arfélaga, sagði að Bjargráðasjóð-
ur gæti komið inn í dæmi sam-
bærileg þeim er nú hefðu átt sér
stað fyrir norðan. Hann sagði að
Bjargráðsajóði bæri að bæta tjón
á búfé sem ekki fengist bætt með
öðrum hætti. Því ættu þeir bænd-
ur sem ekki hefðu búfjártrygg-
ingu og ekki væru með fullan
framleiðslukvóta rétt á bótum
vegna tjóns af völdum illviðra.
Bjargráðsjóður væri hinsvegar
vanbúinn að taka á sig mikil
útgjöld og bætur yrði því fyrst og
fremst um greiðslur upp í tjón að
ræða fremur en þau væru bætt að
fullu. ÞI
Árni Bjamarson látinn
Arni Bjarnarson, bókaútgef-
andi á Akureyri, lést mánu-
daginn 29. júní sl., 82ja ára
aö aldri.
Árni fæddist í Pálsgerði í
Grýtubakkahreppi 4. febrúar
1910. Hann hóf bókaverslun á
Akureyri árið 1939 og stofnaði
skömmu síðar bókaútgáfuna
Eddu og rak hvort tveggja um
langt árabil. Hann stundaði
einnig ökukennslu á Akureyri í
mörg ár og stofnaði Flugskóla
Akureyrar árið 1945 og rak í
nokkur ár.
Árni tók virkan þátt í félags-
starfi, m.a. innan ungmenna-
félags- og íþróttahreyfingarinn-
ar svo og stúkunnar. Þá vann
hann ötullega að eflingu sam-
starfs íslendinga austan hafs og
vestan. Árið 1958 var Árni
skipaður formaður nefndar er
vinna skyldi að framangreindu
starfi og söfnun efnis í V,-
íslenskar æviskrár. Árið 1975
var hann sæmdur fálkaorðunni
fyrir árangur þess starfs.
Árni var ritstjóri og útgefandi
tímaritsins Eddu og Laugar-
dagsblaðsins á Akureyri og
stundaði margvísleg ritstörf
önnur. Þá gaf hann út um 100
bækur og rit er snerta V.-
íslensk málefni.
Eftirlifandi kona Árna er
Gerður Sigmarsdóttir og eign-
uðust þau fjögur börn.