Dagur - 01.07.1992, Page 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 1. júlí 1992
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31.
PÓSTHÓLF 58. AKUREYRI. SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585).
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON. JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir).
ÓLI G. JÓHANNSSON. ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON.
SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960. fax 95-36130).
STEFÁN SÆMUNDSSON. ÞÓRÐUR INGIMARSSON
LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON. ÞRÖSTUR HARALDSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR. HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Annað hvort eða...
Ríkisstjórnin íiefur beint þeim tilmælum til Kjara-
dóms að hann taki úrskurð sinn frá 26. júní til
endurmats eða kveði upp nýjan úrskurð. í bréfi
sem forsætisráðherra hefur sent formanni Kjara-
dóms segir að niðurstaða dómsins stangist í veiga-
miklum atriðum á við þá þróun sem orðið hafi á
hinum almenna launamarkaði og sé ekki í takt við
framvindu íslensks efnahagslífs um þessar
mundir. „Mat ríkisstjórnarinnar er að dómurinn sé
til þess fallinn að skapa óróa í samfélaginu og rjúfa
þá samstöðu sem náðst hefur um að vinna sig út
úr þeim efnahagslegu þrengingum sem nú er við
að glíma," segir orðrétt í bréfi forsætisráðherra til
formanns Kjaradóms.
í sjálfu sér er hægt að taka undir þessi orð for-
sætisráðherra, þótt mörgum finnist orðalagið ef-
laust full varfærnislegt. Það er vægt til orða tekið
að segja að úrskurður Kjaradóms um að hækka
laun hálaunamanna í röðum ríkisstarfsmanna um
tugi þúsunda, „sé til þess fallinn að skapa óróa í
samfélaginu“. Nær lagi er að segja að Kjaradómur
hafi varpað sprengju inn á viðkvæman vinnumark-
aðinn með dómi sínum.
Vafalaust má halda því fram með réttu að ýmsir
hópar ríkisstarfsmanna eigi rétt á að laun þeirra
verði lagfærð til samræmis við einhverja saman-
burðarhópa sem bera meira úr býtum. Hins vegar
er vart hægt að finna óhentugri tíma til slíkra lag-
færinga en nú. Þá má benda á að í rökstuðningi
meirihluta Kjaradóms kemur fram að hann hafi
markað þá stefnu árið 1985 að laun sem hann
ákveði séu heildarláun og ekki komi til fastar
greiðslur fyrir venjubundin störf, þótt innt séu af
hendi utan dagvinnutíma. Þrátt fyrir það hefur í
vaxandi mæli komið til greiðslu yfirvinnu, íastrar
eða mældrar, til þeirra sem fá laun samkvæmt
ákvörðun Kjaradóms. Þessar greiðslur eru mis-
munandi eftir embættum en fyrir vikið er í mörgum
tilfellum verulegt ósamræmi milli heildarlauna og
þeirra launa sem Kjaradómur ákveður, segir í rök-
stuðningi dómsins. Þetta misræmi hyggst Kjara-
dómur leiðrétta. Spyrja má hvort ekki hefði verið
eðlilegra að lækka laun þeirra, sem notið hafa
aukagreiðslna í bága við úrskurð Kjaradóms frá
1985, í stað þess að hækka laun annarra um tugi
þúsunda króna til samræmis.
Miðstjórn Alþýðusambands íslands komst ef til
vill næst kjarna þessa máls í orðsendingu sem hún
sendi forsætisráðherra á mánudaginn. Þar segir að
í stöðunni sé einungis um tvo kosti að ræða. Valið
standi á milli þess að allir launamenn fái tilsvar-
andi launahækkanir og gert er ráð fyrir í úrskurði
Kjaradóms en að öðrum kosti gangi ákvörðun
Kjaradóms til baka. Þegar öllu er á botninn hvolft
er málið ekki flóknara en svo. BB.
Herdís L. Storgaard:
Veist þú hvar
bamið þitt er núna?
- nokkur orð um hjólreiðar og slys á börnum
Það er alltaf ánægjuleg stund
þegar barnið fær sitt fyrsta tvíhjól
með hjálpardekkjum. Fjölskyld-
an fer í verslunina og barnið vel-
ur sér hjól. Og hjólahjálmur; já,
það má ekki gleyma honum.
Þegar heim er komið fara allir
út. Barnið fer á hjólið og brunar
af stað. Þetta er merkur dagur í
lífi barnsins. Ferðin gengur vel,
barnið hendist áfram og foreldr-
arnir horfa stoltir á litlu elskuna
sína bruna eftir gangstéttinni.
Óhljóð! Ringulreið! Það var bara
eitt sem gleymdist; að athuga
hvort barnið kynni að hemla, en
svo var ekki. Þessi annars eftir-
minnilegi dagur er nú orðinn
ógleymanlegur því ferðin endaði
á slysamóttökunni.
Kæru foreldrar. Áður en þið
kaupið tvíhjól með hjálpardekkj-
um fyrir börn yngri en 7 ára verð-
ið þið að vita eftirfarandi:
Samkvæmt íslenskum umferð-
arlögum mega börn undir 7 ára
aldri ekki hjóla á umferðargötu.
Þau fara út á götu, þrátt fyrir að
þeim sé bannað það, þau gleyma
fljótt öllum heilræðum! Það er
eðlilegur hlutur vegna þess
þroskaleysis sem þau hafa fram
að 10 ára aldri. Það er fleiru
ábótavatn við þroska þeirra sem
Hjálmurinn er nauðsynlegur þegar
hjólað er.
gerir það að verkum að þau eru
ákafle'ga varasöm í umferðinni og
þegar þau eru komin á hjól eru
þau orðin stórhættuleg.
Það að hemla, læra þau fyrst í
kringum sex ára aldur. Þau átta
sig heldur ekki á því úr hvaða átt
hljóð frá bifreiðum koma. Þau
hafa ófullkomna hliðarsýn, þau
geta ekki áttað sig á hvaða
bifreiðar stefna í átt að þeim, né
hversu nálægt þeim bíllinn er.
Með þetta í huga vona ég að sem
flestir foreldrar hugsi sig um áður
en þeir kaupa tvíhjól fyrir lítið
barn.
Það er mikilvægt að foreldrar
fari út með börnin og séu með
þeim þegar þau hjóla og kenni
þeim í leiðinni umferðarreglurn-
ar. Þegar þau eru svo nógu gömul
til að hjóla í umferðinni, en það
er við 10 ára aldur, er mikilvægt
að hvetja þau til að virða umferð-
arreglur og líta á reiðhjólið sem
farartæki, en ekki leikfang.
Að lokum: Hjálmurinn er
nauðsynlegur þegar hjólað er því
að rannsóknir leiða í ljós að þeg-
ar barn dettur af hjóli er það
höfuðið sem verður fyrir högginu
í um 80% tilfella.
Kæru foreldrar. Tökum hönd-
um saman, sameinumst undir
kjörorðunum „Vörn fyrir börn“
og fækkum alvarlegum slysum á
börnum.
Fyrir hönd Rauða kross íslands
og Slysavarnafélags íslands,
Herdís L. Storgaard.
Höfundur er hjúkrunarfræðingur og
verkefnastjóri Slysavarnafélags íslands.
Hákon Sigurgrímsson frkvstjóri Stéttarsambands bænda:
Markaðssetning í mjólkurframleiðslu á ábyrgð
bænda og afurðastöðva frá haustdögum
Á kjörmannafundi eyíirskra
bænda nú nýverið hélt Hákon
Sigurgrímsson framkvæmda-
stjóri Stéttarsambands bænda
langt og ítarlegt erindi og fjall-
aði það aðallega um búvöru-
samning sauðfjárbænda, vænt-
anlegan samning fyrir mjólk-
urframleiðendur auk kvóta- og
sölumál og kjaramál bænda.
íslenskir bændur lifa nú á mikl-
um óvissutímum. Fullvirðisrétt-
urinn minnkar hjá sauðfjárbænd-
um og neysla mjölkur minnkar á
ári hverju en óvissan um Evróp-
ska efnahagssvæðið og GATT
setur svip sinn á þær umræður
sem fram fara um framtíð land-
búnaðarins í landinu. Innflutn-
ingur búvara í einhverju mæli er
á næsta leyti og það leiðir af sér
rekstrarumhverfi sem íslenskur
landbúnaður hefur aldrei kynnst
fyrr. Eina aðstoð stjórnvalda er
fólgin í því að kaupa af bændum
fullvirðisréttinn og þar með
fækka þeim.
Rætt hefur verið við landbún-
aðarráðherra um að réttur bænda
til atvinnuleysisbóta verði skil-
greindur en það hefur hvorki
gengið né rekið í þessu máli og
stjórn Stéttarsambandsins hefur
komið sér saman um ákveðnar
hugmyndir sem kynntar verða
hlutaðeigandi aðilum. Ef það
tekst ekki verður að krefjast þess
að sá hluti tryggingargjaldsins
sem rennur til Atvinnuleysisbóta-
sjóðs verði felldur niður.
Sami réttur allra
til greiðslumarks?
Einnig hefur það verið rætt innan
stjórnar Stéttarsambandsins og
við landbúnaðarráðherra að
hvort bændur sem eru það gamlir
að þeir eiga rétt til ellilífeyris og
fullrar tekjutryggingar eigi að
hafa sama rétt til greiðslumarks
og aðrir bændur. Sauðfjárbændur
sem orðnir eru 67 ára eða eldri
eru í dag 430 og þeir framleiða
um 960 tonn af kjöti eða um 12%
af heildarkindakjötsframleiðsl-
unni. Ef allir þessir bændur eru
kvæntir og bæði hjónin ættu rétt
til tekjutryggingar og ellilífeyris
og þeir hættu framleiðslu myndi
allur hópurinn hækka í tekjum
um 10 milljónir króna.
Ákvörðun þessa efnis yrði ekki
auðveld en erfiðleikarnir yrðu
fyrst og fremst tilfinningalegir og
félagslegir. Opinberir starfsmenn
og reyndar fleiri stéttir hætta
störfum 70 ára gamlir og því ekki
einnig bændur?
Sú staða sem sauðfjárbændur
eru í nú vegna verulegrar fækk-
unar sauðfjár á landinu öllu er sú
erfiðasta sem þeir hafa verið í
síðan á árunum 1934 til 1950 er
sauðfjársjúkdómar gengu nærri
afkomu sauðfjárbænda. Bændur
eru einnig að súpa af því seyðið
nú að framleiðslan þróaðist
algjörlega án tillits til markaðar-
ins og bændur gátu hækkað verð-
ið og sótt síðan niðurgreiðslur og
útflutningsbætur.
Nú verða bændur rétt eins og
aðrir framleiðendur að taka fullt
tillit til markaðarins en segja má
að bændur hafi stundað búskap í
vernduðu umhverfi og því erfitt
fyrir marga að stíga skrefið inn í
markaðsbúskap þar sem eftir-
spurn ræður afkomunni fyrst og
fremst.
Breytt kjarabarátta bænda
Kjarabarátta bænda fer því í dag
fyrst og fremst fram í gegnum
samningaviðræður við stjórnvöld
og Stéttarsambandið er þar beinn
þátttakandi þar sem það hefur til-
lögurétt um reglugerðir. En auð-
vitað er það landbúnaðarráðu-
neytið sem tekur endanlegar
ákvarðanir og ber ábyrgðina en
Framleiðsluráð landbúnaðarins
er hins vegar framkvæmdaraðili
að framleiðslustýringunni í land-
inu.
Nýr búvörusamningur
fyrir mjólkurframleiðendur
í búvörusamningnum sem undir-
ritaður var 11. mars í fyrra var
gengið frá ramma varðandi
mjólkurframleiðsluna. í honum
er gert ráð fyrir að útflutnings-
bætur falli niður frá 1. september
nk. og öll markaðssetning verði
eftirleiðis á ábyrgð bænda og
afurðastöðva en heildarfullvirðis-
rétturinn skal miðaður við innan-
landsmarkað og færður niður í
100 millj. lítra 1. september nk.
eða um 5%. Viðskipti með full-
virðisrétt verða heimiluð.
Tryggt verður með sérstökum
samningi við afurðastöðvarnar að
hliðstæð hagræðing eigi sér stað
þar eins og krafist er af bændum í
væntanlegum búvörusamningi.
Stéttarsambandið hefur einnig
sett fram þá kröfu í komandi
samningi um mjólkurframleiðslu
að þeir peningar sem ríkissjóður
sparar vegna hagræðingar gangi
til mjólkurframleiðslunnar í
formi félagslegs stuðnings og er
þá fyrst og fremst verið að hafa í
huga afleysingaþjónustu fyrir
mjólkurframleiðendur. GG