Dagur - 22.07.1992, Blaðsíða 2

Dagur - 22.07.1992, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 22. júlí 1992 Fréttir Nokkrir núvcrandi og verðandi slökkviliðsmenn á Húsavík við nýja slökkviliðsbOinn. Mynd: IM Slökkvilið Húsavíkur: Nýi slökkviliðsbíllinn tilbúiim Akureyrarbær: 1.5 milljónir fyrir ungt fólk til atvinnu- sköpunar Akureyrarbær hefur ákveðið að verja 1,5 millj. til að veita atvinnulausu skólafólki á aldr- inum 17-24 ára vinnu í sumar. „Bæjarráð samþykkti að bjóða þeim vinnu sem voru á atvinnu- Íeysisskrá hjá Vinnumiðlun og hafa ekki bætur,“ sagði Árni Steinar Jóhannsson, umhverf- isstjóri Akureyrarbæjar. Ekki er Ijóst hve margir þetta eru, en að sögn Árna Steinars gætu það verið nálægt 30 manns. Árið 1990 veitti bærinn 16 ára atvinnulausum ungmennum vinnu hjá Vinnuskólanum og eru því unglingar á aldrinum 14-16 ára starfandi þar, í stað 13-15 ára áður. Var þetta gert vegna aukins atvinnuleysis en þýðir jafnframt að 13 ára unglingar fá ekki vinnu. Nú hefur bærinn ákveðið að veita einnig ungu atvinnulausu fólki á aldrinum 17-24 ára vinnu. Veitt verður 1,5 millj. til launa- greiðslna, en annar kostnaður er settur inn í rekstur viðkomandi stofnana. Reynt verður að halda kostnaði í lágmarki. Um er að ræða skólafólk sem ekki á rétt á atvinnuleysisbótum. Listi Vinnumiðlunar er tekinn og afgreiddur, en verið er að hringja í fólkið og því ekki fullljóst ennþá hve margir það eru sem enn vantar vinnu. Að sögn Árna Steinars gætu það verið nálægt 30 manns. Vinna hefst í dag og verður unnið við útplöntun og viðhald á svæðum bæjarins og inni á stofnunum, einnig við við- hald og hirðingu á svæðum íþróttafélaganna. „Fyrir umhverfisdeildina er þetta kærkomið vegna þess að við eigum orðið í erfiðleikum með að hirða bæinn. Þetta er að verða dálítið mikið hjá okkur. Raunar er það svoleiðis að það skortir aldrei verkefni, það skort- ir peninga í bæjarsjóði,“ sagði Árni Steinar. sþ Vísindasjóður veitti nýverið styrk til samstarfsverkefnis Norrænu eldfjallastöðvarinnar og Verkfræðistofnunar Há- skólans til fjarkönnunarmæl- inga á yflrborðshita í Öskju. Dr. Kolbeinn Árnason deild- arstjóri hjá Upplýsinga- og merkjafræðistofu H.I. segir þetta fyrstu tilraun með þessi tæki. Notkunargildi þeirra sé ekki bundið rannsókn á eld- fjöllum, þau nýtist t.d. til haf- rannsókna. Vísindamenn Norrænu eld- fjallastöðvarinnar hafa orðið var- ir við breytingar á Öskjusvæðinu undanfarin ár. Yfirborðsjarðhiti hefur aukist og hafa jarðvísinda- menn áhuga á að fylgjast með svæðinu. Upplýsinga- og merkja- fræðistofa Háskólans hefur kom- ið sér upp tækjum sem mæla hita- geislun frá yfirborði jarðar á Slökkvilið Húsavíkur hefur fengið nýjan slökkvibfl af gerð- inni Iveco. Bíllinn er smíðaður frá grunni sem slökkvibfll og vel búinn tækjum, bæði há- þrýstidælu og lágþrýstidælu og froðudælu. Hann er 256 hest- öfl án túrbínu og með 2500 lítra af vatni og froðu en vegur aðeins 12 tonn hlaðinn. Bíllinn Eftir 25 ára veru í landgræðslu- girðingum við Húsavík er lúp- ínan nú farin að hopa fyrir öðr- um gróðri að sögn Þrastar Ey- steinssonar hjá Landgræðslu ríkisins en hann segir að lúpín- an sé eini valkosturinn við gráa mela í landslaginu. Þröstur seg- ir að lúpínan sé íslensk planta og blámi hennar sé ekki óeðli- legur í íslenskri náttúru. svokölluðu fjarinnrauðu sviði. Er það gert með því að taka myndir úr lofti með þessum mælitækjum og þannig kortleggja hitastig á yfirborði jarðhitasvæðisins. Þetta verður fyrsta tilraun með þessi tæki, jafnframt á stofan nú fyrst kost á að nota flugvél sem hentar til þessa verkefnis. Styrkurinn verður nýttur til að standa straum af flugkostnaði. Áætlað er að fljúga yfir Öskju- svæðið í lok ágúst og mynda það og aftur að ári. Þá verður hægt að bera myndirnar saman og meta þær breytingar sem orðið hafa á tímabilinu. „Ef vel ætti að vera vildum við fylgjast með þessu svæði árum sarnan," sagði Kol- beinn. Hann sagði þessa tækni nýtast vel til að fylgjast með eld- fjallasvæðum, en einnig til víð- tækari rannsókna, t.d. á hafinu. sþ kostar 14-15 milljónir, en auk Húsavíkurbæjar munu Tjör- neshreppur og Reykjahreppur standa að kaupum á honum. „Ég er mjög ánægður með bílinn, líst virkilega vel á hann. Tilkoma hans breytir öllu fyrir okkur því gamli bíllinn er búinn að vera ónýtur í rúmt ár og við höfum verið skíthræddir þennan ræktargirðingu auk þess sem Iúp- ína hefur verið ræktuð í annarri landgræðslugirðingu við Botns- vatn,“ sagði Þröstur Eysteinsson sem kannaðist ekki við að hafa heyrt gagnrýnisraddir á veru lúp- ínunnar í Húsavíkurfjalli. „Fjallið er náttúrulega býsna grátt og þar að auki er ég ekki sammála því að blár sé óeðlilegur litur í íslenskri náttúru þar sem við höfum blágresi, gleymméreiar og alls konar blá blóm,“ sagði Þröstur, aðspurður um hvort fjar- lægðin ætti ekki að gera fjöllin blá. „Við erum með dálítið mikið friðað land á Húsavík en fyrst og fremst höfum við notað lúpínu talsvert undanfarin tvö ár í tengsl- um við sáningu upp með Reykja- heiðarvegi fyrir austan Húsavík," sagði Þröstur og sagði reynsluna ágæta. „Það hefur ekki verið sáð miklu í hlíðar Húsavíkurfjalls enda gerum við ekki ráð fyrir að lúpínan þrífist hátt upþi. Það er alltof dýrt að síendur- taka sáningu á grasi og áburðar- gjöf og því er engin íslensk planta sem getur grætt upp gráa mela á sama hátt og Iúpínan,“ sagði Þröstur og benti á að menn yrðu því að gera upp við sig hvort þeir vildu gráa mela eða lúpínuna. Aðspurður um meintan yfir- gang lúpínunnar þar sem hún þrífst sagði Þröstur að sumir væru hræddir við lúpínuna. „Éghefséð að lúpínan í skógræktar- girðingunni við Botnsvatn sem nú er orðin 25 ára er farin að hopa - og í hennar stað er að koma gras. Auk þess lít ég ekki á lúpínuna sem aðskotahlut vegna þess að í sögulegu samhengi eru það fyrst og fremst tilviljanir og slys sem tíma. Þessi bíll er mjög öflugt og gott tæki og það er allt annað en var að vinna með honum,“ sagði Jón Ásberg Salómonsson, slökkvi- liðsstjóri á Húsavík, aðspurður hvernig honum litist á nýja bíl- inn. Á laugardag var bíllinn til sýnis almenningi og auk þess tók Slökkviliðið smáæfingu með froðudæluna. IM valda því hvaða plöntur eru í íslenskri náttúru og hverjar ekki. Fjórðungur íslensku flórunnar kom með manninum þ. á m. njóli,“ sagði Þröstur. Að sögn Þrastar hefur Steindór Steindórs- son frá Hlöðum fært sterk rök fyr- ir því í bók sinni Gróður á íslandi hvaða plöntur hefðu verið hér upprunalega. „Lúpínan á, að mínu mati, hiklaust að vera á meðal þeirra plantna sem nú eru taldar íslenskar,“ sagði Þröstur að lokum. GT Heyskapur hefur gengið nokk- uð vel á Norðurlandi vestra þrátt fyrir fremur ótrygga tíð. Margir bændur hafa lokið fyrri slætti og Ijóst að nokkuð verð- ur einnig um seinni slátt ef fram fer sem horfir. Bændur í Vestur-Húnavatnssýslu eru þó heldur síöar á ferðinni hvað heyskap varðar en starfsbræð- ur þeirra austar á Norðurlandi. Eiríkur Loftsson hjá Búnaðar- sambandi Skagafjarðar á Sauðár- króki sagði að heyskaparhorfur væru góðar í Skagafirði. Margir bændur hefðu lokið við fyrri slátt og biðu nú eftir að tún spryttu upp. Eiríkur kvaðst telja að flest- ir kúabændur hefðu lokið fyrri slætti en sauðfjárbændur væru eitthvað seinna á ferðinni þar sem tún hefðu verið beitt nokkuð frameftir og sumir bændur rekið Punktar úr EyjaQarðar- sveit ■ Á fundi sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar í síðustu viku voru samþykkt kaup sveitarfélagins á einbýlishúsi Hauks Sveinssonar að Vall- artröð 1 í Hrafnagilshverfi. Kaupverð er 12 milljónir króna. Pétur Þór Jónasson, sveitarstjóri Eyjafjarðar- sveitar, mun leigja húsið af sveitarfélaginu, væntanlega frá 1. október nk. ■ Á þessum fundi voru árs- reikningar Eyjafjarðarsveit- ar fyrir 1991 lagðir fram til fyrri umræðu. Tekjur sveit- arfélagsins í fyrra voru 99 milljónir króna, en gjöld 81 milljón króna. Að teknu til- liti til fjármagnstekna og fjármagnsgjalda var tekjuaf- gangur 16,5 milljónir króna. ■ Skólanefnd hefur óskað eftir því við menntamála- ráðuneytið að sameinaður grunnskóli Eyjafjarðarsveit- ar beri nafnið Hrafnagils- skóli. ■ Fyrir fundi sveitarstjórnar í síðustu viku Iá erindi Bíla- klúbbs Akureyrar um afnot af landi í Eyjafjarðarsveit undir bílkross og var í erind- inu sérstaklega bent á Mel- gerði. Sveitarstjóra var falið að ræða við forráðamenn Bílaklúbbsins. ■ Sveitarstjórn hafnaði erindi Benedikts Hjaltason- ar á Hrafnagili þar sem hann bauð sveitarfélaginu leigu á um 5 ha lands norðan Hrafnagilsskóla fyrir 5,5 milljónir króna. ■ Ánna Guðmundsdóttir hefur í erindi til sveitar- stjórnar óskað eftir að kann- aður verði möguleiki á því að taka upp fastar áætlunar- ferðir næsta vetur milli Hrafnagils eða annarra staða í Eyjafjarðarsveit og Akureyrar. Þessar áætlunar- ferðir eru fyrst og fremst hugsaðar fyrir fjölda ungl- inga í sveitarfélaginu sem stundar nám í l'ramhalds- skólum á Akureyri. fé á tún á ný í hretinu í júní. Jón Sigurðsson, héraðsráðunautur á Blönduósi, hafði svipaða sögu að segja. Margir bændur í Austur- Húnavatnssýslu hafa lokið fyrri slætti og horfur eru á að nokkuð verði um seinni slátt. Heyskapur er komin skemmra á veg í Vestur-Húnavatnssýslu en annarsstaðar á Norðurlandi að sögn Björns Barkarsonar hjá Búnaðarsambandi Vestur-Hún- vetninga á Hvammstanga. Hann sagði að tíðarfar hefði verið fremur rysjótt og hvassviðri með- al annars hamlað þurrheysverk- un. Margir bændur sem heyjuðu í vothey eða notuðu rúllutækni væru þó langt komnir með hey- skap eða jafnvel búnir. Björn sagði að óvíst væri um seinni slátt en líkur á að eitthvað verði slegið upp ef veðurfar haldist sæmilega hlýtt. ÞI „í miðju Húsavíkurfjalli hefur verið lúpína síðan 1967 í skóg- Rannsókn á yfirborðs- jarðhita við Öskju Landgræðsla ríkisins: „Lúpínan er ekki aðskotahlutur“ Norðurland vestra: Heyskapur gengur vel - margir bændur hafa lokið fyrri slætti

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.