Dagur


Dagur - 22.07.1992, Qupperneq 12

Dagur - 22.07.1992, Qupperneq 12
Greifinn í sumarskapi Opið virka daga frá kl. 11.30-23.30 - Um helgar frá kl. 12.00-23.30 Nxturherimsending tíl hl. 01.00 föstudags- og laugardagskvöld Norðurland vestra: Nokkrir hafa spurst fyrir rnn heysölu til útlanda - upplýsingar skortir um verð og flutn- ingsleiðir Einstaka fyrirspurnir hafa bor- ist til búnaðarsambanda á Norðurlandi vestra vegna hugsanlegrar sölu á heyi til Svíþjóðar. Bændur munu vera til viðræðu um slíka sölu ef viðunandi verð fæst. Nægar upplýsingar liggja hinsvegar ekki fyrir varðandi þetta mál - hvorki verð eða flutnings- möguleika til að einhverjar ákvarðanir hafi verið teknar. Eiríkur Loftsson hjá Búnaðar- sambandi Skagfirðinga sagði að nokkrir bændur hafi spurst fyrir um möguleika á sölu á heyi til Svíþjóðar í kjölfar fyrirspurnar er barst til Búnaðarfélags ís- lands. Margir bændur séu vel birgir af heyi og til í að selja það úr landi ef viðunandi verð fáist. Eiríkur sagði dæmi um að menn væru tilbúnir að heyja meira ef slíkir sölusamningar myndu nást. Nægilegar upplýsingar lægju hinsvegar ekki fyrir - hvorki um verð eða flutninga til þess að unnt sé að taka neinar ákvarðanir um hvort unnið verði að þessu máli. Jón Sigurðsson, héraðs- ráðunautur á Blönduósi, sagði að fyrirspurnir hefðu borist varð- andi möguleika á heysölu úr landi en kvað málið vera of óljóst enn sem komið væri til að hægt sé að hafast neitt að. Bændur yrðu að minnsta kosti að fá kostnaðar- verð greitt fyrir heyið til að borg- aði sig að standa í sölunni. Björn Barkarsson hjá Búnaðarsam- bandi Ve^tur-Húnvetninga kvaðst ekki vita til þess að fyrir- spurnir varðandi þetta mál hefðu borist Búnaðarsambandinu á Hvammstanga, en þær gætu auð- veldlega átt eftir að koma fram ef umræðan um það héldi áfram og betur kæmi í ljós hvaða kostir séu í boði. ÞI © VEÐRIÐ í dag gerir Veðurstofa Islands ráð fyrir norðaustan kalda um norðanvert landið. Norðaust- anlands verður skýjað og súld, en heldur bjartara norð- vestanlands. Hitastig verður á bilinu 5 til 10 stig að deginum. Reiknað er með svipuðu veðri á morgun um Norðurland allt, þ.e. austan kalda og skúra- leiðingum. Húsavík UmfangsmMar framkvæmdir í Naustagili Undanfarna daga hafa miklar framkvæmdir staðið yfir í Naustagili á Húsavík, vegarspotta sem liggur frá smábátahöfninni upp að Héðinsbraut í miðbæn- um. Gatan hefur verið grafin upp og er unnið að lagningu öflugs skólpræsis, sem er liður í bættu frá- rennsliskerfi út fyrir höfnina. Einnig er gengið endanlega frá læk sem undanfarna áratugi hefur runnið í stokk í götunni. Framkvæmdir þessar hafa mjög truflað umferð um bæinn, þar sem Héðins- braut er nú lokuð ofan við framkvæmdasvæðið. Mynd: IM Sorpurðun á Glerárdal: Hrísey bætist í hópinn Bæjarráð Akureyrar hefur fal- ið yfirverkfræðingi að gera samning við Hríseyjarhrepp um urðun sorps frá hreppnum í landi bæjarins á Glerárdal. Að þeim samningi loknum verður sorp frá öllu Eyjafjarðarsvæð- inu, að Grímsey undanskilinni, urðað á Glerárdal. Ekki eru allir á eitt sáttir varðandi þess- ar framkvæmdir og hefur kom- ið til tals að stofna borgara- samtök gegn urðuninni. Jarðfræðilegar forsendur á Glerárdal eru taldar mjög góðar og þá er það talinn kostur hversu nálægt þann er Akureyri sem leggur til langstærsta hlutann af sorpinu. Það er þó um leið talinn ókostur. Ekki er ljóst hversu mikið magn af sorpi verður urðað á Glerárdal en sambærilegar tölur frá Reykjavík gefa til kynna að það séu um 20 þúsund tonn á ári. Ýmislegt bendir þó til að talan fyrir Eyjafjarðarsvæðið sé nokkru lægri. Nánar er fjallað um þetta mál á síðu 3. JHB Ríkisspítalinn Kristnesspítali e.t.v. undir heimastjórn: Sameining við FAS til athugunar - Akureyrarbær tekur þó ekki á sig auknar byrðar Undanfarið hafa farið fram óformlegar viðræður milli Akureyrarbæjar og Eyjafjarð- arsveitar um hvort reynst gæti hagkvæmt að rekstur Kristnes- spítala og Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri yrði að ein- hverju leyti sameinaður ef af því yrði að Kristnesspítali færi undir heimastjórn í stað þess að vera ríkisspítali. Ráðherra rkipaði í vetur nefnd til að gera tillögur um framtíðar- skipulag Kristnesspítala. Nefndin lagði til að spítalinn yrði gerður að sjálfstæðri stofnun með eigin stjórn. Ef af því yrði þyrfti við- komandi sveitarfélag, Eyjafjarð- arsveit, samkvæmt lögum að standa straum af 15% af stofn- kostnaði og viðhaldskostnaði. Að sögn Péturs Jónassonar, sveitar- stjóra Eyjafjarðarsveitar, hefur enn ekki borist formlegt erindi frá ráðherra þar að lútandi en tillagan er nú til umfjöllunar hjá stjórnar- nefnd ríkisspítalanna. „Mér líst vel á að komið verði á einhvers konar heimastjórn því það er alltaf ákaflega þungt og óskilvirkt að vera með stofnanir út um landið undir stjórn ein- hverra sem sitja í Reykjavík og koma nánast aldrei á vettvang; það þýðir að þetta verða afgangs- stærðir sem menn hafa lítinn áhuga á,“ sagði Pétur en vildi ekki taka afstöðu til þess hvort skynsamlegra væri að Kristnes- spítali hefði eigin stjórn eða sam- eiginlega stjórn með FSA. „Málið er í biðstöðu en að vísu er okkur farin að leiðast svolítið biðin. Það er nauðsynlegt að eyða óvissunni því hún bitnar á starf- seminni," sagði Pétur að lokum. „Sveitarstjórnirnar hafa verið að velta því fyrir sér með hvaða hætti skynsamlegast væri að reka Kristnesspítala ef hann færðist frá ríkinu til sveitarfélaganna og Nýverið veitti Húsfriðunar- sjóður ríkisins 200 þúsund krónur til endurbóta á gömlu pakkhúsi að Möðruvöllum í Hörgárdal. Bjarni Guðleifs- son, tilraunastjóri að Möðru- völlum, er í forsvari fyrir hópi manna er vill varðveita pakk- húsið. Með honum standa konur og karlar er tengjast sögu Möðruvalla með einum eða öðrum hætti, má þar til- greina skólameistara Mennta- skólans á Akureyri, Tryggva Gíslason. „Gamla pakkhúsið á Möðru- völlum er timburskemma byggð rétt um 1880 á tímum Möðru- vallaskólans sem var forveri Menntaskólans á Akureyri. Pakkhúsið er næst elst húsa að Möðruvöllum, kirkjan er eldri. Skemman er mjög illa farin og fyrir liggur að lagfæra hana eða hvort kærni til greina tenging Fjórðungssjúkrahússins og þessa ágæta Kristnesspítala," sagði Sigurður J. Sigurðsson, formaður bæjarráðs Akureyrar, ogbætti við að engin ákvörðun hefði verið tekin. „Akureyrarbær inun ekki taka á sig neinar byrðar í þessu sam- rífa. Við erum nokkur sem finnst að varðveita beri húsið. Því var leitað til þjóðminjavarðar og Húsfriðunarsjóðs ríkisins um stuðning vegna lagfæringa. Nú höfum við fengið fyrstu viðbrögð sem er styrkur að upphæð krónur bandi en við myndum hins vegar ekki skorast undan að athuga hvort hagkvæmt væri að reka þessar stofnanir saman fremur en sitt í hvoru lagi,“ sagði Sigurður og bætti við að þótt tekjur þyrftu ekki að koma á móti útgjöldum yrði hagræðing og sparnaður að fylgja slíkri samein- ingu. GT 200 þúsund. Upphæð sem þessi dugar skammt, en mjór er mikils vísir. Við getum hafið fram- kvæmdir þannig að pakkhúsið verður ekki fyrir meiri skemmd- um,“ sagði Bjarni Guðleifsson. ój Húsnæðisnefnd Akureyrar: Samið við þijá verktaka Húsnæðisnefnd Akureyrar ákvað á fundi sínum í gær að ganga til samninga við Pan hf., Fjölni hf. og SJS-verktaka um byggingu félagslegra íbúða á þremur stöðum í bænum. Eins og áður hefur verið skýrt frá fékk húsnæðisnefnd Akureyr- ar lán til byggingar 22 félagslegra íbúða þegar stjórn Húsnæðis- stofnunar úthlutaði fjármagni fyrir skömmu. Húsnæðisnefnd ákvað í gær að ganga til samninga við Pan hf. um byggingu íbúða í stigagangi í blokk í Vestursíðu 26, Fjölni hf. um raðhús í Fögru- síðu 7 og SJS-verktaka um rað- hús í Huldugili. Ekki var bókað neitt um það hversu margar íbúð- ir verða keyptar af hverjum verk- taka. JHB Gamla pakkhúsið að Möðruvöllum: Styrkur til að hefja lagfæringar

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.