Dagur


Dagur - 27.08.1992, Qupperneq 6

Dagur - 27.08.1992, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 27. ágúst 1992 Bændahátíð í tilefni af aðalfundi Stéttarsambands bænda boða Búnaðarsamband S-Þing. og Héraðssam- band S-Þing. til bændahátíðar í íþróttahúsinu að Laugum í Reykjadal laugardagskvöldið 29. ágúst nk. kl. 21.00. Dagskrá: Karlakórinn Hreimur. Kvennakórinn Lissý. Bændaglíma. Hagyrðingur. Leikfélagið Búkolla. Harmonikufélag Þingeyinga leikur fyrir dansi. Miðaverð kr. 1500. Verið velkomin. BSSÞ OG HSÞ. AKUREYRARB/fR Kennara vantar Vegna forfalla vantar kennara í rúmlega Vi stöðu í Barnaskóla Akureyrar. Kennslugreinar samfélagsfræði og enska. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 96-24449. Einnig eru veittar upplýsingar á skrifstofu skóla- fulltrúa í síma 96-27245. Skóiafulltrúi. VERKMENNTASKÓLINN Á AKUREYRI Síðasti dagur innritunar í öldungadeild er föstudaginn 28. ágúst. Setning öldungadeildar og afhending stundaskráa fer fram fimmtudaginn 3. sept. kl. 18.00. Kennsla hefst kl. 18.55 samkvæmt stundaskrá. Skólameistari. Kennarar Kennara vantar við Grenivíkurskóla til að kenna handavinnu og bóklegar greinar. Upplýsingar gefur Björn Ingólfsson skólastjóri í síma 96-33118 eða 96-33131. Ráðskona óskast að mötuneyti Grunnskólans að Lundi Öxarfirði fyrir komandi skólaár. Nánari upplýsingar gefur skólastjóri í símum 96- 52244 og 96-52245 og formaður skólanefndar í síma 96-52240. Auglýsendur takið eftirl Skilafrestur auglýsinga í helgarblöðin okkar er kl. 14.00 ó fimmtudögum. auglýsingadeild, sími 24222 Opið fró kl. 8-17 virka daga, nema föstu- daga fró kl. 8-16. Ath! Opið í hddeginu. Evrópska efnahagssvæðið: Víðtækur viðskíptasamningur en ólíkur Evrópubandalaginu Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið er nú til umfjöllunar á Alþingi. Samn- ingurinn er án efa einhver umfangsmesti milliríkjasamn- ingur sem Islendingar hafa gerst aðilar að og þrátt fyrir að unnið hafi verið að honum í tíð tveggja ríkisstjórna og allir stjórnmálaflokkar landsins komið þar að verki nema Kvennalistinn eru deildar meiningar um samninginn á meðal stjórnmálamanna og einnig almennings í landinu. Þá snýst umræða manna einnig um hvort EES-samningurinn sé sá gjörningur sem tryggi Iandsmönnum óhindruð við- skipti við ríki Evrópu í fram- tíðinni hver sem þróun mála í álfunni verður eða hvort hann sé aðeins fyrsta skrefið að stærra markmiði - inngöngu í sjálft Evrópubandalagið. Fyrst og fremst hefur menn þó greint á um hvort samningurinn brjóti í bága við stjórnarskrá íslenska lýðveldisins frá 1944 og hvort efna verði til stjórnar- skrárbreytingar til þess að hann öðíist gildi hér á landi. í kynningarbæklingi sem utan- ríkisráðuneytið hefur sent frá sér er munurinn á Evrópubandalag- inu EB og Evrópska efnahags- svæðinu EES skilgreindur. Þar segir meðal annars að Evrópu- bandalagið sé ríkjasamband 12 ríkja er hafi með sér sameigin- lega viðskiptastefnu, sjávarút- vegsstefnu, landbúnaðarstefnu og samvinnu á sviði peninga-, félags- og utanríkismála og að stofnanir EB hafi yfirþjóðleg völd. í kynningarbæklingnum er síðan fjallað um Evrópska efna- hagssvæðið og segir þar að EES sé milliríkjasamningur milli aðildarríkj a fríverslunarsamtak- anna EFTA og EB um sameigin- legt markaðssvæði sem tryggi Stjórnarandstaðan á Alþingi: Hörð gagnrýni á EES-samninginn Talsmenn stjórnarandstöðu- fiokkanna hafa gagnrýnt frum- varp til staðfestingar samn- ingnum um Evrópska efna- hagssvæðið sem nú er til umfjöllunar á Alþingi. í máli þingmanna stjórnarandstöð- unnar hefur komið glögglega fram að þeir sjá verulega mein- bugi á að Alþingi samþykki samninginn meðal annars vegna stjórnskipulegra mein- buga. Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur meðal annars sagt að marg- ir og mikilvægir efnisþættir varð- andi málið hafi ekki enn komið fram. Hann hefur bent á að stað- festingarfrumvarpið sé einungis fimm síður en að baki því liggi um 10 þúsund blaðsíðna samn- ingur og enn hafi aðeins um helmingur hans verið þýddur á íslensku. Steingrímur hefur auk þess vitnað til álits nefndar fjög- urra lögfræðinga, sem skilað var í júní síðastliðnum þar sem fjallað var um stöðu EES-samningsins gagnvart stjórnarskránni og telur hann álitið vera stórlega vafa- samt. Aftur á móti varpi lögfræði- legar álitsgerðir Björns Þ. Guð- mundssonar, prófessors og Guð- mundar Alfreðssonar, stjórn- lagafræðings, skýrara ljósi á málið. Steingrímur hefur dregið mjög ákveðið í efa að unnt sé að samþykkja staðfestingarfrum- varpið eins og samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið standi gagnvart stjórnarskrá lýðveldis- ins. Ólafur Ragnar Grímsson, for- maður Alþýðubandalagsins, hef- ur einnig gagnrýnt staðfestingar- frumvarpið og EES-samninginn harðlega. Hann hefur meðal ann- ars sagt að ráðherrar ríkisstjórn- arinnar treysti sér ekki til að tryggja að ákvæði stjórnarskrár- innar verði haldin á sama hátt og þeir treysti þjóðinni ekki til að taka ákvörðun í þessu máli. Ólaf- ur hefur auk þess bent á livað sem hinum stjórnskipulega þætti líði þá sé grundvallaratriði í þessu sambandi að með EES-samn- ingnum verðum við hluti af hin- um innri markaði Evrópubanda- lagsins og þegar menn tengist markaði þeim böndum geti menn ekki valið úr það sem hugur- inn girnist hverju sinni en hafnað öðrum þáttum. Á þann hátt verð- um við dæmd til að taka þátt í þeirri atvinnuleysisvofu sem nú gangi um í Evrópu og spáð að enn muni eflast. í málflutningi sínum á Alþingi hefur Ólafur Ragnar bent á aðrar leiðir en inn- göngu í Evrópska efnahagssvæð- ið. Hann hefur bent á að gera megi tvíhliða viðskiptasamning á milli fslands og Evrópubanda- lagsins, sem meðal annars verði byggður á viðskiptaþáttum EES- samningsins, sérstökum samningi um sjávarútvegsmál auk bókunar sex í samningum íslands við Evr- ópubandalagið er verið hefur í gildi allt frá árinu 1976. Auk þessa hefur Ólafur Ragnar látið í ljósi ákveðnar skoðanir um að með EES-samningnum sé verið að tjalda til einnar nætur þar sem önnur aðildarríki EFTA ætli sér inn í Evrópubandalagið. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, talsmaður Kvennalistanns í EES- málinu, hefur meðal annars sagt að fara verði varlega í að skerða fullveldi þjóðríkisins og bent á að þau ríki sem búi við mesta hag- sæld eigi öll sameiginlega hefð sem væri að lýðræði stæði föstum fótum. Evrópska efnahagssvæðið og Evrópubandalagið riðluðu því stjórnkerfi er byggði á þrískipt- ingu ríkisvaldsins og vitnaði því til stuðnings til ummæla eins nefndarmanna í þingmannanefnd EFTA um að innan Evrópu- bandalagsins séu markaðsöflin að yfirtaka fullveldi ríkjanna og deila því síðan niður á yfirþjóð- legar stofnanir. Ingibjörg Sólrún taldi í ræðu á Alþingi aðild að Evrópska efnahagssvæðinu að- eins skref til aðildar að sjálfu Evrópubandalaginu og að með slíku skrefi væri sú stefna mörkuð. Steingrímur Hermannsson sagði í umræðum um EES-samn- inginn á Alþingi fullljóst að sá samningur er nú liggi fyrir sé allt annað en upphaflega hefði verið farið af stað með. Framsóknar- menn vilji fá öll spilin á borðið - meðal annars hvort samningur- inn standist í raun stjórnar- skrána. Þá eigi í stað þeirra fyrir- vara af íslands hálfu sem ekki hafi fengist viðurkenndir að tryggja hagsmuni íslands með einhliða lagasetningu á Alþingi. Steingrímur ræddi um að kannað yrði hver afstaða EB væri til þess að breyta EES-samningnum í tvíhliða samning ef önnur ríki EFTA gerðust aðilar að Evrópu- bandalaginu og taldi auk þess mikilvægt að ríkisstjórnin gefi yfirlýsingu um að aðild að Evr- ópubandalaginu komi ekki til greina. Ólafur Ragnar ræddi þessa þætti málsins einnig og átaldi hann utanríkistráðherra harðlega fyrir að hafna tvíhliða viðræðum. Ingibjörg Sólrún taldi talsmenn aðildar að Evrópska efnahags- svæðinu einungis vilja ræða kosti samkomulagsins en horfa fram- hjá göllum þess. Þótt tekist hefði að ná fram talsverðum tolla- lækkunum á sjávarafurðum þá væri mest eftirspurn eftir óunn- um fiski á mörkuðum Evrópu- bandalagsins og von um hagnað því að nokkru bundin þeim út- flutningi. ÞI Alþingi - Sumarþing stendur nú yfir þar sem fjallað er um EES-samninginn.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.