Dagur - 01.09.1992, Síða 13

Dagur - 01.09.1992, Síða 13
B Þriðjudagur 1. september 1992 - DAGUR - 13 24. sambandsþing Sambands ungra framsóknarmanna: Tillaga um að hafna alfarið aðild íslands að EES felld naumlega 24. sambandsþing Sambands ungra framsóknarmanna var haldið á Egilsstöðum um helg- ina. Nýr formaður S.U.F. var kjörinn Sigurður Sigurðsson, Egilsstöðum, en fráfarandi for- maður, Siv Friðleifsdóttir, Sel- tjarnarnesi, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Um 100 manns sátu þingið. Á þinginu voru samþykktar fjölmargar ályktanir, m.a. um sjávarútvegsmál, utanríkismál, jöfnun atkvæðisréttar, umhverfis- mál, ferðamál, samgöngumál, menntamál og flokksmál, svo og st j órnmálaályktun. Sigurður Sigurðsson, nýr formaður S.U.F. Fjölmargar ályktanir voru samþykktar á þinginu. Frá Sálarrannsóknafélaginu. Ósk Guðmundsdóttir, íæknamiðill og Boris Brefen, miðill, starfa á veg- um félagsins dagana 21. sept. til 27. sept. Þeir sem hugsa sér að panta einkatíma, hringi í síma 96-27677 og 96-12147, laugardaginn 5. septem- ber, frá kl. 16 til 18. Stjórnin. Geðverndarfélag Akureyrar. Skrifstofa Geðverndarfélagsins að Gránufélagsgötu 5 er opin mánu- daga kl. 16-19 og fimmtudaga kl. 13- 16, stuðningur og ráðgjöf. Síminn er 27990. Opið hús alla miðvikudaga frá kl. 20. Allir Velkomnir. Stjórnin. BORGARBÍÓ Þriðjudagur Kl. 9.00 Veggfóftur Þriðjudagur Kl. 9.00 Einu sinni krimmi BORGARBIO S 23500 Hag íslands best borgið utan efnahagsbandalaga í ályktun þingsins um utanrík- ismál segir m.a. að Samband ungra framsóknarmanna telji hag íslands best borgið utan efna- hagsbandalaga. „Það á að vera höfuðmarkmið stjórnvalda á hverjum tíma að skapa sem best tengsl við öll helstu markaðs- svæði heimsins. ...íslendingar eiga að stefna að gerð víðtækra viðskiptasamninga við ríki EB og jafnframt við Bandaríkin og Jap- an og vinna markvisst að því að verða miðstöð fyrir viðskipti milli þessara svæða og einnig fyrir við- skipti annarra þjóða inn á þessi svasði,“ segir í ályktuninni. Á þinginu var lögð fram tillaga um að eftirfarandi málsgrein yrði bætt við ályktunina um utanrík- ismál: „Ungir framsóknarmenn hafna alfarið aðild íslands að evrópska efnahagssvæðinu, EES.“ Tillagan var felld á jöfn- um atkvæðum. Jöfnun atkvæðisréttar hafnað að óbreyttu í ályktun S.U.F.-þingsins um jöfnun atkvæðisréttar segir m.a.: „Samband ungra framsókn- armanna leggur áherslu á að sem mest jafnræði ríki milli byggða landsins. Samband ungra fram- sóknarmanna getur því ekki stutt aðgerðir sem auka ójöfnuð milli landshluta. Að óbreyttum aðstæðum mun jöfnun atkvæðis- réttar auka á það ójafnræði sem nú ríkir milli höfuðborgarsvæðis- ins og annarra landshluta, þar sem öll æðsta stjórnsýsla landsins er í Reykjavík. Þá njóta íbúar höfuðborgarsvæðisins ekki síður ávaxta þeirra verðmæta sem landsbyggðin skapar. Langt er í frá að misjafnt vægi atkvæða í alþingiskosningum, landsbyggð- inni í hag, nái að vega upp þenn- an aðstöðumun." í ályktuninni kemur fram að S.U.F. styður þó jöfnun atkvæðisréttar ef samhliða er tryggður jöfnuður milli höfuð- borgarsvæðis og landsbyggðar á öðrum sviðum. Sá jöfnuður verði einungis tryggður með róttækum breytingum á allri stjórnsýslu landsins, jafnframt því sem landsbyggðinni verði tryggður réttlátur hlutur af þjóðartekjun- um. Meðal þess sem nefnt er að gera þurfi í þessu sambandi er að skipta landinu í hæfilega stór sjálfsstjórnarhéruð, sem fari með stjórn sinna mála að eins miklu marki og kostur er. Þeim verði tryggður lunginn úr þeim skatt- tekjum, sem nú renna til ríkisins. í öðru lagi verði kosin héraðs- þing, sem hafi það hlutverk að taka ákvarðanir um framkvæmd- ir í sjálfsstjórnarhéraðinu og ákvarða fjárhagsáætlanir sem starfa skuli eftir. í þriðja lagi verði komið á sérstökum héraðs- stjórnum, sem kosnar verði af héraðsþingum. Hlutverk héraðs- stjórnanna verði að sjá um fram- kvæmdavaldið í sjálfsstjórnar- héraðinu að því marki sem héraðsþing og breytt stjórnarskrá gefi tilefni til. í fjórða og fimmta lagi eru þau skilyrði nefnd að Alþingi starfi fyrst og fremst sem löggjafarþing og að ríkisstjórn landsins hafi fyrst og fremst með höndum þau mál sem sameigin- Ieg eru öllum landsmönnum og ekki er á færi héraðsþinga og - stjórna að sinna. BB. Ungir framsóknarmenn leggja áherslu á að sem mest jafnræði ríki milli byggða. HL-stöðin Akureyri Starfsemi hjarta- og lungnaendurhæfinga- stöðvarinnar hefst mánudaginn 7. septem- ber. Þeir sem hafa áhuga á að vera með í vetur vinsamlega láti skrá sig í síma 26888 fyrir föstudaginn 4. september. Björn Sigurbsson Húsavík, sími: 96-42200 VETRARÁÆTLUN HÚSAVÍK-AKUREYRI-HÚSAVÍK frá 01.09. 92-15.06. 93 sun. mán. þri. mið. fim. föst. Isug Frá Húsavík 17.00 08.00 x 08.00 08.00 08 00 Frá Akureyri 19.00 15.30 x 15.30 15.30 15.30 x á þriðjudögum er sérstök vöruferð áætluð brottför frá Akureyri kl. 14.30. Upplýsingar á Akureyri Umferðamiðstöðin sími 24442, á Húsavík BSH hf. sími 42200. Ath. tengingu við ferðir Norðurleiðar til Reykjavíkur. Auglýst er eftir forstöðumanni að Dalbæ, dvalar- heimili aldraðra á Dalvík frá og með 1. janúar 1993. Óskað er eftir upplýsingum um menntun og fyrri störf. Umsóknarfrestur er til 20. sept. 1992. Umsóknir skulu sendar til Ragnheiðar Sigvaldadótt- ur Hólavegi 7,620 Dalvík, sem jafnframt veitir nánari upplýsingar í síma 96-61218. Stjórn Dalbæjar. Vantar starfskraft í afgreiðslu frá kl. 7-12. Þarf að geta byrjað strax. Upplýsingar á staðnum frá kl. 17-18, ekki í síma. Einarsbakari, v/Tryggvabraut.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.