Dagur - 03.11.1992, Page 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 3. nóvember 1992
Fréttir
Fyrsta vísindaþing Félags íslenskra heimilislækna:
„Vid hlökkum til framhaldsins“
„Framkvæmd þingsins og efn-
isinnihald gerði mikia lukku og
þetta gekk alveg óskaplega
vel, framar björtustu vonum,“
sagði Sigurður Guðjónsson,
yfirlæknir Heilsugæslustöðvar-
innar á Húsavík, aðspurður
um fyrsta þing Félags íslenskra
heimilislækna, sem haldið var
á Húsavík um helgina. Um 60
þátttakendur víðs vegar að af
landinu sóttu þingið, auk
tveggja erlendra prófessora.
Dagskrá þingsins var mjög
yfirgripsmikil og þar voru flutt 34
erindi, eða að rannsóknarverk-
efni voru í sumum tilfellanna
kynnt á veggspjöldum. Sigurður
sagði að efni erindanna hefði ver-
segir Sigurður Guðjónsson,
Heilsugæslustöðvarinnar á
ið mjög víðtækt, og erfitt að gera
upp á milli þeirra, þegar hann var
spurður hver hefðu verið athygl-
isverðust. Efni erindanna var allt
frá því að menn væru að skoða
eigin starfshætti og upp í úrvinnslu
á stórum hóprannsóknum. Tölu-
vert mikið efni kom frá læknum á
Norðurlandi.
yfirlæknir
Húsavík
Ákveðið hefur verið að næsta
þing verði haldið á Egilsstöðum
1995. „Ég heyrði ekki neinar
óánægjuraddir á þinginu og allir
voru feikilega ánægðir með
aðbúnað og góðan mat á hótel-
inu. Allt gekk vel og hnökralaust
og var heimamönnum til sóma.
Mér fannst óskaplega skemmti-
legt að þingið skyldí vera haldið á
ALMENNAR
KAUPLEIGUÍBÚÐIR
Húsnæðisnefnd Akureyrarbæjar auglýsir eftir
umsóknum um þrjár íbúðir í fjölbýlishúsi við Helga-
magrastræti 53, tvær þriggja herbergja og eina
fjögurra herbergja. Einnig er auglýst eftir umsóknum
um íbúðir í fjölbýlishúsum eða raðhúsum sem
byggðar eða keyptar verða á frjálsum markaði út á
heimildir þessa árs.
Hámarkslánshlutfall er 90%, 20% til 5 ára og 70% til
43 ára með 4,5% vöxtum.
Réttur til kaupa á almennri kaupleiguíbúð er ekki
bundinn skilyrðum um tekju- og eignamörk.
Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar fást
á Húsnæðisskrifstofunni, Skipagötu 12, sími 25311.
Skrifstofan er opin mánudaga til föstudaga frá kl.
10.00 til 12.00 og 13.00 til 16.00.
Umsóknarfrestur rennur út þann 9. nóvember nk.
Húsnaeðisnefnd Akureyrar.
VETRARSKOÐUN
Chrysler • |eep • Peugeot • Skoda
Það er nauðsynlegt að láta yfirfara bílinn fyrir veturinn,
bæði til að tryggja notagildi hans í öllum veðrum og
koma í veg fyrir óþarfa eldsneytisnotkun.
Við bjóðum upp á fyrirbyggjandi vetrarskoðun
fyrir fast verð.
4 cyl. bifreið kr. 6.500,- 6 cyl bifreið kr. 7.400,-
8 cyl. bifreið kr. 8.300,-
Við framkvæmum eftirtalin atriði:
» Rafgeymasambönd ath.
| Viftureim athuguð.
| Rafgeymir og hleðsla mæld.
| Vél þjöppumæld.
t Skipt um platínur.
t Skipt um kerti.
| Frostþol mælt.
| Vél stillt með nákvæmri stillitölvu.
| Loftsía athuguð.
t Kúpling stillt.
I Öll Ijós yfirfarin.
» Aðalljós stillt.
» Hemlar reyndir.
» Rúðuþurrkur ath.
» Frostvari settur á rúðusprautu.
Innifalið efni: Kerti, platínurogfrostvari á rúðusprautu
SHDDR 1
('HRYSLER
PANTIÐ
TÍMA í
SÍMA
22255.
Skábfell sf.
Draupnisgötu 4, sími 22255
Húsavík og það hlýtur að teljast
heiður fyrir staðinn að vera val-
inn sem vettvangur þessa fyrsta
þings. Við hlökkum til fram-
haldsins," sagði Sigurður í sam-
tali við Dag. IM
Þormóður rammi hf. á Siglufirði:
Hlutaflárútboð hefst á finuntudag
Næstkomandi fimmtudag hefst
útboö á nýju hlutafé í Þormóði
ramma hf. á Sigiufirði. Svan-
björn Thoroddsen, forstöðu-
maður Verðbréfamarkaðar
Islandsbanka, segir að hér sé
um að ræða fyrsta almenna
útboð á hlutabréfum á þessu
ári.
Hlutafjárútboðið er að nafn-
virði 50 milljónir króna, en 20
milljónum króna hefur þegar ver-
ið ráðstafað vegna kaupa Þor-
móðs ramma á meirihluta hluta-
bréfa í Skildi á Sauðárkróki. Þeg-
ar gengið var frá þeim kaupum í
maí sl. gerði Þormóður rammi
samkomulag við Burðarás, Jökla
(eigandi Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna), Hagkaup, ístak,
Smáragarða (eigandi Byko) og
Snasa (eigandi Tryggingarmið-
stöðin) um kaup þeirra á hluta-
bréfum í Þormóði ramma, sam-
tals að nafnvirði 20 milljónir
króna. Eftir standa 30 milljónir
króna og það er í raun sú upphæð
sem boðin er út. Gengi bréfanna
verður 2,30 og því er söluverð-
mæti bréfanna 69 milljónir
króna.
Fyrir þetta hlutafjárútboð er
Marteinn Haraldsson hf. (að
stærstum hluta í eigu Ólafs
Marteinssonar, framkvæmda-
stjóra Þormóðs ramma, Haraldar
Marteinssonar, rekstrarstjóra, og
Rúnars Marteinssonar, rekstrar-
íslandsflug kaupir
Dornier skrúfuþotu
- flugtími á flugleiðum félagsins
styttist verulega
íslandsflug hf. hefur fest kaup
á 19 sæta flugvél af gerðinni
Dornier 228-202. Flugvélin er
nýleg og hefur aðeins flogið
sem samsvarar liðlega ársnotk-
un. Dornier er þýsk flugvél
með ameríska Garret hverfi-
hreyfla. Markaðsverð vélar
íslandsflugs er á bilinu 120-140
milljónir króna.
Að sögn forsvarsmanna
íslandsflugs hefur flugvélin ein-
staka flugeiginleika vegna hins
háþróaða vængs en lögun hans
gerir henni kleift að fljúga bæði
mjög hægt og einnig hratt. Þetta
gerir það mögulegt að Doriner
228 getur notað allar flugbrautir
landsins, einnig þær stystu og
athafnað sig í þröngum fjörðum
sem einkenna svo mjög íslenskt
landslag.
Einnig hefur flugvélin einstaka
eiginleika við slæm flugbrautar-
skilyrði, sem oft há flugi yfir
vetrarmánuðina, jafnvel þó hægt
sé að fljúga sökum veðurs.
Flughraði er mikill eða um 220
sjómílur á klst. (407 km/klst.).
íslandsflugsmenn segja að Domier
flugvélin sameini kosti hinnar
hægfleygu Twin Otter flugvélar
og hraðfleygra nútíma skrúfu-
þotna. Þannig mun flugtími á
leiðum félagsins styttast veru-
lega.
Farþegarýmið er eitt það
stærsta og besta sem gerist í flug-
vélum af þessari stærð. Einnig
hentar vélin til vöruflugs innan-
lands og milli landa, þar sem hún
hefur stórar vörudyr og fljótlegt
er að taka sætin úr. Flugþol vél-
arinnar er mjög mikið, eða um 8
klst.
Hin nýja Dornier vél íslands-
flugs, verður notuð á áætlunar-
leiðum félagsins innanlands og til
leiguverkefna. Félagið flýgur til 8
áætlunarstaða, Vestmannaeyja,
Bíldudals, Flateyrar, Hólmavík-
ur, Gjögurs, Norðfjarðar, Rifs
og Siglufjarðar. Á síðasta ári
flutti Islandsflug um 36.000 far-
þega og um 360 tonn af vörum.
Hjá fyrirtækinu starfa nú 40
manns.
Gunnar Þorvaldsson framkvæmdastjóri Islandsflugs og Birgir Agústsson,
stjórnarmaður, við nýju Dorniervél félagsins. Mynd: hb
stjóra, og fjölskyldna þeirra)
stærsti hluthafi í Þormóði ramma
með 36,3% hlutafjár. Síðan
koma ríkissjóður með 20% hluta-
fjár, Verðbréfasjóður VÍB hf.
með 9,4%, Ráeyri hf. með 7,1%,
Staðarhóll hf. með 6,6% (Ráeyri
hf. og Staðarhóll hf. eru í eigu
Róberts Guðfinnssonar, fram-
kvæmdastjóra Þormóðs ramma
og fjölskyldu hans), og Hluta-
bréfasjóðurinn hf. með 3,1%.
Á aðalfundi Þormóðs ramma í
maí sl. var stjórn félagsins
heimilað að auka hlutafé með
útgáfu nýrra hlutabréfa að lág-
marki 50 milljónir króna og að
hámarki 100 milljónir. Þá sam-
þykktu hluthafar í félaginu á
aðalfundinum að falla frá for-
kaupsrétti að hlutabréfum í þessu
útboði. Svanbjörn Thoroddsen
segir að útboð hlutafjár í Þor-
móði ramma sé mjög áhugavert.
Hann segir að fyrirtækið sé öflugt
og því sé hann í engum vafa um
að bréfin seljist, þrátt fyrir að
deyfð hafi verið yfir hlutabréfa-
markaðnum að undanförnu. „Við
viljum halda því fram að vegna
þess að verð hafa lækkað að
undanförnu sé óhagstætt að selja
hlutabréf um þessar mundir, en
hins vegar hagstætt að kaupa
bréf,“ sagði Svanbjörn. óþh
Fjárhagsáætlun
Akureyrarbæjar:
Steftit að fyrri
umræðu 17. nóv.
Ennþá er stefnt að því að fyrri
umræða um fjárhagsáætlun
Akureyrarbæjar verði 17.
nóvember nk.
Gangi það eftir segist Sigurður
J. Sigurðsson, formaður bæjar-
ráðs, binda vonir við að unnt
verði að ljúka síðari umræðu fyr-
ir áramót. Hann segir þó að hug-
myndir um breytingu á tekju-
stofnum sveitarfélaga, t.d. afnám
aðstöðugjalds, gætu breytt mál-
inu verulega. óþh
íslensk getspá:
Þrefaldur pottur
til tveggja
- átta með bónusvinning
Lottópotturinn var þrefaldur
um sl. helgi og gekk út.
Samkvæmt upplýsingum frá
íslenskri getspá var spilað um
tæpar 14 milljónir um sl. helgi.
Er upp var staðið reyndust tveir
hafa allar tölur réttar og fengu í
sinn hlut rúmar 6,9 milljónir
hvor. Annar vinningshafinn er
frá Vestmannaeyjum en hinn úr
Reykjavík. Átta hlutu bón-
usvinning sem nú var 161
þúsund. ój