Dagur - 03.11.1992, Blaðsíða 3

Dagur - 03.11.1992, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 3. nóvember 1992 - DAGUR - 3 Fréttir Akureyri: Fyrstu börnin komu á Klappir í gær Tekið var á móti fyrstu börn- unum á nýjum leikskóla á Akureyri í gær, Klöppum, númer 34 við Brekkugötu. Starfsemin fer þó ekki í fullan gang fyrr en að nokkrum dög- um liðnum þar sem m.a. er unnið að frágangi lóðar. Á fyrsta starfsdegi Klappa í gær var tekið á móti átta börnum, en þegar starfsemin verður kom- in í fullan gang verða þar 30 börn samtímis. Leikskólastjóri á Klöppum er Aðalheiður Hreiðarsdóttir. Auk hennar munu starfa þar tvær fóstrur, en til að byrja með verða tvær fóstrur við skólann. Stöðu- gildi við Klappir verða 7,4. Ingibjörg Eyfells, deildarstjóri Dagvistadeildar Akureyrarbæj- ar, segir að þrátt fyrir þennan nýja leikskóla sé biðlisti eftir leikskólaplássum enn mjög lang- ur og segir hún að nærri láti að 200 börn bíði eftir plássi. Samkvæmt þriggja ára áætlun um framkvæmdir og rekstur Akureyrarbæjar er gert ráð fyrir samtals 40 milljónum króna til dagvista á árunum 1993 og 1994. Ingibjörg segir ekki ljóst með ráðstöfun þesssara fjármuna, en hins vegar sé vilji fyrir því hjá Dagvistadeild að byggja næst þriggja eða fjögurra deilda leik- skóla í Giljahverfi. óþh Góöur gangur í endurbótum á Siglfiröingi Endurbótum á Siglfirðingi SI á Siglufirði miðar vel. Skipt hef- ur verið um aðalvél skipsins og unnið er af kappi að viðgerð á millidekki. Að sögn Jóns Dýr- fjörð hjá Vélaverkstæði Jóns og Erlings á Siglufirði, sem sér að stærstum hluta um endur- bæturnar, er gert ráð fyrir að verkinu Ijúki um næstu mán- Bolfiski úr Barentshafi landað á Akureyri: Góðar vonir um íramhald landanna Löndun hófst á mánudags- morgun úr rússneska togaran- um Minkino, en eins og áður Akureyri: Bæjarmála- punktar ■ Bæjarráði hefur borist upp- gjör á kostnaði við breytingar á húsnæði tækni- og umhverf- issviðs að Geislagötu 9, 3. og 4. hæð. Heildarkostnaður við framkvæmdina var 6,8 millj- ónir króna. ■ Bygginganefnd hefur tekið jákvætt í erindi frá Svani Eiríkssyni, þar sem hann f.h. Kirkjugarða Akureyrar, spyrst fyrir um hvort leyfi fengist til að byggja líkhús, kapellu og útfararþjónustu úr steinsteypu á höfðanum norðan Kirkju- garða Akureyrar. ■ Skipulagsnel'nd hefur bor- ist erindi frá Sigurborgu Daða- dóttur, f.h. Hestamannafé- lagsins Léttis, þar sem óskað er eftir stækkun á svæði félags- ins í Hlíðarholti. Nefndin samþykkir að svæðið verði afmarkað skv. tillögu skipu- lagsstjóra sem kynnt var og áréttar að deiliskipulagstillögu af svæðinu skuli leggja fyrir nefndina til samþykktar. ■ Dagvistarfulltrúi, Ingibjörg Eyfells, lagði fram og kynnti drög að rekstraráætlun dag- vistardeildar fyrir árið 1993, á fundi félagsmálaráðs nýlega. í áætluninni er gert ráð fyrir að fjölga hádegisplássum á leik- skólanum Flúðum úr 8 í 16 og að rekstur skóladagheimil- anna Brekkukoti og Hamar- koti verði sameinaður í júní og júlí eins og gert var í sumar. ■ Jafnréttisnefnd telur að fenginni reynslu fyrsta starfsár jafnréttis- og fræðslufulltrúa, brýna þörf fyrir ritara í 50% stöðu fyrir jafnréttis- og fræðslufulltrúa. Með skírskot- un til þess að fjárhagsáætlun ársins er ekki fullnýtt vegna meiri tekjuöflunar en gert var ráð fyrir, leggur nefndin til að ráðið verði í stöðuna frá 1. nóv. sl. hefur veriö skýrt frá er þessi löndun árangur samstarfs 16 norðlenskra fyrirtækja. Um dreifingu sér Fiskmiðlun Norðurlands á Dalvík fyrir hönd seljanda, Barents Com- pany í Kirkenes í Noregi og Murmansk. Togarinn er með um 130 tonn af heilfrystum þorski og 3 tonn af hlýra og er verðið um 109 krónur á kíló, eða um 1850 dollar tonnið, en innifalið í verðinu er yfirvigt sem er nokkuð rífleg. Stærsti kaupandinn er Fiskiðju- samlag Húsavíkur hf. með 75 tonn, en aðrir kaupendur eru Útgerðarfélag Akureyringa hf., Kaldbakur hf. á Grenivík, Skag- firðingur hf. á Sauðárkróki og Sigvaldi Þorleifsson hf. í Ólafs- firði. „Góðar vonir eru með fram- hald á þessum viðskiptum og að sögn Jóns Helgasonar fiskmats- manns hjá Ríkismati sjávar- afurða er hér um að ræða þann besta fisk sem hann hefur séð af rússneskum togurum," segir Hilmar Daníelsson hjá Fiskmiðl- un Norðurlands hf. GG Leikfélag Akureyrar: Sýningar faíla niðurvegnaradd- leysis leikara Sýningum á Línu langsokk hjá Leikfélagi Akureyrar hefur verið aflýst næstkomandi mið- vikudag og fimmtudag vegna veikinda og raddleysis Ieikara. Um 200 manns áttu bókaða miða á hvora sýningu um sig. Samkvæmt upplýsingum Signýjar Pálsdóttur, leikhússtjóra, hefur skæður vírus sem herjað hefur á landann undanfarið ekki látið leikara félagsins óáreitta og þykir sýnt að leikarar í mikilvæg- um hlutverkum þurfa að taka sér hvíld í nokkra daga til að endur- heimta röddina. Gestirnir sem vera áttu á sýningunum á mið- vikudag og fimmtudag verða á sýningum sömu daga í næstu viku. JÓH aðamót. Hér er um töluvert stórt verk að ræða og er athyglivert að það er að langmestu leyti unnið af iðnað- armönnum á Siglufirði og Sauð- árkróki. Auk Vélaverkstæðis Jóns og Erlings gerðu Vélsmiðja Síldarverksmiðja ríkisins og Vélsmiðja Heiðars í Reykjavík tilboð í smíði vinnslulínunnar að hluta og þá sér Vélsmiðjan Oddi á Akureyri um frystibúnaðinn. Skipt var um aðalvél skipsins og allt millidekkið tekið í gegn, skipt þar um klæðningu og tækja- búnað. Gamla vél skipsins var um 1500 hestöfl, en sú nýja er um 500 hestöflum öflugari. „Þetta hefur gengið mjög vel, áhöfn skipsins hefur verið okkur til aðstoðar og flýtt mjög fyrir. Það er virðingarvert hvernig eig- endur skipsins hafa staðið að þessu,“ sagði Jón Dýrfjörð, hjá Vélaverkstæði Jóns og Erlings, í samtali við Dag. óþh IMI55AN VETRARSKOÐUN Það margborgar sig að fara í vetrarskoðun því allt þetta er innifalið: 1. Skipt um kerti. 2. Athuga bensínsíu. 3. Vélarstilling i tölvu. 4. Ástand loftsíu athugað. 5. Viftureim strekkt. 6. Kúpling stillt. 7. Olía mæld á vél og gírkassa. 8. Rafgeymir mældur og rafpólar hreinsaðir. 9. Frostþol kælivökva vélar mælt, frostlegi bætt á ef með þarf. 10. Ástand pústkerfis athugað. 11. Bremsur reyndar i fullkomnum tækjum. 12. Isvara bætt á rúðusprautur. 13. Hurðarlæsingar og lamir smurðar. 14. Silikonbomir þéttikantar á hurðum. 15. Loftþrýstingur hjólbarða mældur. 16. Stýrisbúnaður kannaður. 17. Hjólalegur athugaðar. 18. Ástand rúðuþurrka skoðað. 19. Ljósastilling. 20. Reynsluakstur. 21. Öryggisbelti prófuð. Verð aðeins krónur 6.700. Ath! Bíllinn settur í fullkomna mótortölvu og bremsu- próftæki. Betur veröur vart boðið. Einnig getum við boðið upp á hjólastillingu í einni af betri hjólastillingatölvunum. Hafið samband við Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar og ykkur verður vel tekið. BSV Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar Óseyri 5 - Sími 22520 - Akureyri

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.