Dagur - 03.11.1992, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 3. nóvember 1992 - DAGUR - 5
Fréttir
Bliki EA við bryggju á Dalvík í síðustu viku.
Mynd: GG
Bliki EA-12 á Dalvík:
Söluverðmæti afla
hefur lækkað um
13% á átta mánuðum
Frystiskipið Bliki EA-12 á Dal-
vík iandaði föstudaginn 23.
október sl. 70 tonnum af sjó-
frystum afurðum, en aflinn var
mjög blandaður þ.e. grálúða,
ufsi, steinbítur, ýsa, karfi og
þorskur. Þessi afli fékkst eftir
25 daga útivist.
Aflaverðmæti Blika EA er um
14 milljónir króna, en vegna
gengislækkunar pundsins og
óstöðugleika á gjaldeyrismörkuð-
um er ekki fjarri lagi að álykta að
útgerð Blika EA hefði fengið um
tveimur milljónum meira í sinn
hlut ef þessi afli hefði verið á
boðstólum fyrir hræringarnar á
evrópsku gjaldeyrismörkuðun-
um. Skráð gengi pundsins sl.
föstudag var 90,25 en var í mars-
byrjun 103,45 eða lækkun 'um
ca.13%.
Frystiskipið Ásgeir Frímanns
ÓF-21 sem gerður er út á línu
landaði 74 tonnum af heilfrystum,
hausuðum þorski, keilu og löngu
á Ólafsfirði nýlega. 54 tonn af
aflanum voru þídd upp og endur
unnin hjá Sæunni Axels hf. í
Ólafsfirði og sett í gáma á Ítalíu-
markað. Þorskurinn er flattur en
keilan og langan eru aðallega
flökuð en einnig er eilítið flatt.
Áætlað er að svipaður háttur
verður á meðferð þess afla sem
kemur af Ásgeiri Frímanns ÓF út
febrúarmánuð á næsta ári. Næsta
löndun er fyrirhuguð 10. nóvem-
■ber nk. GG
Skagafjörður:
Haustslátrun lokið
- meðalvigt heldur lakari en í fyrra
Haustslátrun lauk fyrir nokkru
hjá Sláturhúsi KS á Sauðár-
króki og sl. þriðjudag hjá Slát-
ursamlagi Skagfirðinga. Meöal-
vigtin er heldur lakari en í
fyrra.
Hjá Siátursamlagi Skagfirð-
inga var slátrað 13000 dilkum
sem er nokkru færra en í fyrra,
en að sögn Smára Borgarssonar
sláturhússtjóra er eftir að slátra
1-200 lömbum. Stendur það
væntanlega fram að jólum. Slátr-
að var 1600-1700 fullorðnu fé
sem einnig er fleira en í fyrra,
vegna niðurskurðar í landbúnaði.
Meðalvigt dilka var 14,3 kg sem
er heldur lægra en í fyrra. Að
sögn Smára er nú verið í folalda-
slátrun og slátrun hrossa á
Japansmarkað.
Hjá Sláturhúsi KS fengust þær
upplýsingar að slátrað hefði verið
rúmum 26 þúsund dilkum og um
2600 fullorðnum ám. Meðalfall-
þungi dilka var 14,31 kg sem er
heldur minna en í fyrra, en þá var
meðalvigtin um 14,8 kg. Haust-
slátrun lauk 16. október hjá KS
og að sögn Árna Egilssonar slát-
urhússtjóra er nú verið að slátra
folöldum. Er folaldakjöt yfir-
greitt um 10%, eða 205 kr. á
kílóið. sþ
Smíði fiskvinnsluvéla JAT á Akureyri:
n*** •11 • y • f* *
Sjo milljonir fra
Framkvæmdasjóði
Á fundi bæjarráðs Akureyrar
sl. fimmtudag var ákveðið að
veita 7 milljónum króna úr
Framkvæmdasjóði bæjarins til
smíði vélabúnaðar, sem Jón
Pálmason (JAT) hefur
hannað.
Um er að ræða vél til nota í
fiskiðnaði, sem þegar hefur verið
smíðuð til reynslu og líkað vel,
en hugmyndin er að fleiri vélar af
sömu gerð verði smíðaðar í
Slippstöðinni og verða þessar 7
milljónir m.a. nýttar til að fjár-
magna smíðina. Sigurður J. Sig-
urðsson, formaður bæjarráðs,
sagði að þetta væri í raun þróun-
arframlag. „Þetta er bundið því
að ef framleiðsla og sala gengur
upp, þá er gert ráð fyrir að
endurgreiða Framkvæmdasjóði
þessa peninga að fullu. Við
ákváðum að leggja þetta fram í
þeirri von að hægt verði að koma
hlutunum af stað,“ sagði Sigurð-
ur. óþh
Félagsmálaráð-
herraáferðum
Norðausturland
Jóhanna Sigurðardóttir, félags-
málaráðherra, er þessa dagana
á ferð um Norðausturland og
heldur fundi með sveitar-
stjórnum og heimsækir vinnu-
staði. I gær heimsótti Jóhanna
Sigurðardóttir Þórshöfn og
Raufarhöfn og í dag sækir hún
Kópaskersbúa og Húsvíkinga
heim.
Tilgangur ferðarinnar er að
kynna heimamönnum þau verk-
efni sem verið er að vinna að á
vegum félagsmálaráðuneytisins,
svo sem á sviði húsnæðismála og
sveitarstjórnarmála og að kynn-
ast viðhorfum heimamanna á
þessum stöðum. í för með ráð-
herra eru Bragi Guðbrandsson,
aðstoðarmaður ráðherra og Hún-
bogi Þorsteinsson, skrifstofu-
stjóri félagsmálaráðuneytisins.
Einnig gefst heimamönnum
tækifæri á að hitta ráðherra í sér-
stökum viðtalstímum á skrifstof-
um sveitarstjórnanna. í dag milli
kl. 11 og 12 verður ráðherra með
viðtalstíma á Kópaskeri og milli
116.30 og 17.30 á Húsavík. -KK
Byggðastofnun
Húseign til sölu
Byggðastofnun auglýsir til sölu húseignina
Furuvelli 1, Akureyri.
Húsið er tveggja hæða steinsteypt bygging
um 1.250 rrr ásamt áföstu stálgrindarhúsi
á einni hæð um 400 m2.
Húsnæðið má nýta undir fjölbreytta starfsemi s.s.
verslanir, iðnaðarframleiðslu, skrifstofur og fleira.
Nánari upplýsingar veitir Benedikt Guðmundsson
Byggóastofnun Akureyri í síma 96-21210.
Ferskar
fréttirmeð
morgunkaffinu
Áskriftar'Sr 96-24222
Breyting ó meíjeri bréfapósts
til útlanda og ný gjaldshrd
Frá og með 1. nóvember 1992 verður sú
breyting á meðferð bréfapósts til útlanda að
hætt verður að flokka sendingar eftir innihaldi
heldur tekinn upp A- og B-póstur eftir því hvað
fljótt bréfið á að berast viðtakanda, Framvegis
þarf að rnerkja allan bréfapóst til útlanda með
sérstökum miða, bláum (A-póstur) eða grænum
(B-póstur).
Gjaldskrá fyrir póstþjónustu hækkar einnig frá
1. nóvember um 7% að meðaltali. Þó er vert að
benda á að:
• gjald íyrir 20 gr. bréf innanlands verður óbreytt
• gjald fyrir böggla innanlands verður óbreytt
• gjald fyrir póstfaxþjónustu verður óbreytt
• tekið er upp nýtt 50 gr. þyngdarmark
• burðargjald til Norðurlanda verður það sama
og til annarra Evrópulanda.
Helstu póstburðargjöld 01.11.1992
Þyngd INNAN- LÖNDÍ LÖND UTAN
grömm LANDS EVRÖPU EVROPU
Bréfapóstur A-póstur B-póstur A-póstur B-póstur
Til og meö 20g 30 35 30 55 35
20g - 50g 40 70 50 110 60
50g - lOOg 50 90 60 180 75
10Og - 250g 90 180 120 385 175
250g - 500g 125 340 180 710 325
500g - 1000g 190 585 340 1250 640
1000g - 2000g 265 960 570 2300 1100
Ábyrgðargjald 110 110 110 110 110
Hraðboðagjald 250 250 250 250 250
PÓSTUR OG SÍMI
Viö spönnn þér sporiii
Kynningarbæklingur um A- og B-póst hefur
verið sendur á öll heimili en ítarlegri bækling
um A- og B-póst auk nýrrar gjaldskrár er
hægt að fá á öllum póst- og símstöðvum.