Dagur - 03.11.1992, Síða 9
Þriðjudagur 3. nóvember 1992 - DAGUR - 9
Halldór Arinbjarnarson
Blak, 1. deild karla:
Nýliðar Stjömuimar höfðu betur
- sigruðu bikarmeistara KA 3:2
„Þetta var í mjög svipuðum
dúr og síðasti leikur okkar,“
sagði Stefán Jóhannesson
þjálfari karlaliðs KA í blaki
um leik KA og Stjörnunnar
sem fram fór á föstudagskvöld-
ið. KA náði ekki að vinna sig-
ur en hélt uppteknum hætti og
krækti í 2 stig engu að síður.
KA vann 1. hrinuna 15:10 og
var sá sigur aldrei í hættu. „Síðan
var þetta bara tóm vitleysa í 2.
hrinunni,“ sagði Stefán, en henni
tapaði KA 3:15. Síðan náði liðið
aftur saman og vann stórsigur í
þeirri 3., 15:7. Aftur virtist sem
allur vindur væri úr liðinu og
Stjarnan vann 4. hrinuna auð-
veldlega, sem og oddahrinuna
sem vannst 15:9. Leikurinn end-
aði því 3:2 fyrir Stjörnuna sem
kom upp úr 2. deild síðasta vor.
Liðið er ungt en mjög efnilegt og
þegar með þeim bestu á landinu.
„Við fáum aftur upp þessa
stöðu að vera yfir 2:1 og hafa 2
möguleika á að vinna leikinn.
Pressan er öll á hinu liðinu en,
samt tapast þetta. Þó ýmislegt
smávægilegt megi finna að tækni-
Iega þá er það þetta stemmnings-
leysi sem er aðal orsökin fyrir því
að botninn dettur úr þessu hjá
okkur. Það virðist vanta smá
neista til að klára þetta,“ sagði
Stefán. Undanfarið hefur liðið
þurft að leika nokkuð þétt og því
ekki gefist tími til að setjast niður
og meta einstaka leiki. Nú verður
hins vegar 3 vikna hlé sem blak-
menn munu án efa nota til að búa
sig undir átök vetrarins en mikið
er eftir enn þar sem leikin er
fjórföld umferð og síðan úrslita-
keppni.
Körfubolti, 1. deild karla:
Reynir sterkari í framlengingu
Lið Ungmennafélags Akureyr-
ar var aðeins hársbreidd frá
sigri er það tók á móti Reyni í
1. deild Islandsmótsins í körfu-
bolta á laugardaginn. Gestirnir
leiddu þar til um miðjan seinni
hálfleik, er UFA náði að þétta
vörn sína, jafna leikinn og
komast yfír. Jafnt var eftir
venjulegan leiktíma og því
þurfti framlengingu til að fá
fram úrslit. Þar voru Reynis-
menn sterkari og sigruðu í
leiknum með 107 stigum gegn
96.
UFA sýndi skemmtilegt spil á
köflum, mun skemmtilegra en
Reynismenn. Þeir byggðu mest á
að koma boltanum undir körfuna
á Toomer Magi sem skoraði 41
stig í leiknum og var lang stiga-
hæstur í sínu liði. Toomer vakti
athygli í hálfleik er hann gekk um
áhorfendastúkuna og bauð upp á
sælgæti. Hlaut þetta uppátæki
góðar undirtektir meðal yngstu
áhorfendanna.
Reynir náði snemma forskoti í
leiknum og leiddi með 10 stiga
mun í hálfleik, 41:31. Reynis-
menn voru grimmari í sóknarað-
gerðum sínum og UFA-vörninni
gekk illa að ráða við þá. Eftir að
UFA hóf að leika maður á mann,
jafnaðist leikurinn á skammri
stund og skiptust liðin síðan á um
forustuna. Staðan var jöfn 85:85
og stutt til leiksloka þegar Sveinn
Gíslason skoraði 3 stiga körfu
fyrir Reyni. Útlitið var því dökkt
hjá heimamönnum er þeir héldu í
sókn en Guðmundur Björnsson
stillti sér sallarólegur upp fyrir
utan 3 stiga línuna og sendi bolt-
ann rakleiðis í körfuna. Staðan
var því jöfn að loknum venjuleg-
um leiktíma og í framlengingunni
voru Reynismenn mun sterkari
og sigruðu í leiknum, 107:96.
„Við fórum of seint að leika
maður á mann,“ sagði Guðbjörn
Garðarsson hjá UFA eftir leik-
inn. „Við vorum líka í vandræð-
um með villur og hefðum þurft
að hafa fleiri menn á bekknum
sem skipt gætu inná.“ Næsti leik-
ur UFA er á miðvikudagskvöldið
og þá verður leikið í Skemmunni.
Þar er stefnt á að ná upp hinni
einu og sönnu Skemmustemmn-
ingu sem þekktist á árum áður
meðan Skemman
íþróttahús bæjarins.
var aðal
Gangur leiksins: 2:2, 10:13, 17:21,19:29,
23:35, 32:48, 39:51, 50:5, 57:58, 65:64,
77:75, 84:85, 88:88, 93:100, 96:107.
Stig UFA: Mattías Jónasson 29, Guð-
mundur Björnsson 28, Jóhann Sigurðs-
son 17, Ágúst Guðmundsson 15, Þórður
Kárason 3, Eiríkur Sigurðsson 2 og Jón
G. Guðlaugsson 2.
Stig Reynis: Toomer Magi 41, Jón Guð-
brandsson 14, Gestur Gylfason 13,
Sveinn Gíslason 9, Sigurþór Þórarinsson
9, Hólmgeir Hólmgeirsson 8, Anthony
Stisse 7, Daði Bcrgþórsson 2 og Gísli
Gíslason 2.
Matthías Jónasson var stigahæstur hjá UFA. Liðið er í greinilegri sókn eftir
því sem leikmenn fá meiri samæfingu.
Handbolti, 1. deild:
Jaftit í toppslagnum
Toppliðin í 1. deild karla í
handbolta, FH og Valur, áttust
við á laugardaginn. Leiknum
var flýtt vegna þátttöku lið-
anna í Evrópukeppninni.
Fyrir leikinn voru liðin jöfn í 1.
sæti, bæði með 11 stig og sú staða
breyttist ekki þar sem liðin skildu
jöfn 20:20. Markmenn liðanna
þeir Guðmundur Hrafnkelsson
og Bergsveinn Bergsveinsson
voru í aðalhlutverki í leiknum og
sýndu að þeir eru verðugir lands-
liðssætisins. Valsmenn voru nær
sigri en FH jafnaði á síðustu
stundu.
„Það kemur að því að við vinnum leik,“ sagði Stefán Jóhannesson sem er
hér næstur okkur á myndinni að fylgjast með aðförum sinna manna.
Svona á að gera hlutina. Vonandi taka leikmenn KA þjálfarann sér til
fyrirmyndar.
Alli o g Kristján sýna
réttu handtökin
í nýjasta tímariti Alþjóða
handknattleikssambandsims
(IHF) sem kemur út tvisvar á
ári, er grein um þá þróun sem
handboltinn í heiminum er að
taka og hvert stefnir á næstu
árum. Tímaritið er gefíð út á 3
tungumálum, þýsku, ensku og
frönsku og lesið um allan
heim.
Greinin er með fjölda skýring-
armynda þar sem hin ýmsu leik-
afbrigði eru sýnd. Það voru þeir
Alfreð Gíslason og Kristján Ara-
son sem fengnir voru til að sýna
lesendum blaðsins réttu handtök-
in. Myndirnar bera það reyndar
með sér að vera ekki alveg nýjar
og sagði Alfreð Gíslason þær
vera teknar fyrir 4 til 5 árum. En
greinin er ný og margt athyglis-
vert sem þar kemur fram. Þar er
því spáð að ýmsar útfærslur á
langskotum, þar sem saman fara
mikill líkamlegur styrkur en
einnig iipurð og snerpa, muni
verða meira áberandi á næstunni
í alþjóðlegum handknattleik.
Einnig að meira verði lagt upp úr
vel útfærðum leikkerfum.