Dagur - 03.11.1992, Síða 13

Dagur - 03.11.1992, Síða 13
Þriðjudagur 3. nóvember 1992 - DAGUR - 13 MENOR - menningar- dagskrá í nóvember TÓNLEIKAR Laugardagur 7. nóvember, kl. 12:00. Hádegistónleikar Bjöms Stein- ars Sólbergssonar í Akureyar- kirkju. Laugardagur 7. nóvember, kl. 17:00. Vocis Thulis og félagar úr CAPUT í Akureyrarkirkju. Tónleikamir eru á vegum Tón- listarfélags Akureyrar. Miðvikudagur 11. nóvember, k. 20:30. Ungverjinn Melinda Kistétényi, orgelleikari. Hún verður ekki með fyrirfram samið prógram heldur leikur af fingrum fram yfir stef sem tónleikagestir leggja fram. Tónleikamir eru í Akureyarkirkju. Fimmtudagur 12. nóvember, kl. 20:30. Fiðlarinn, 4. hæð Alþýðu- húsinu. Kvartett Paul Weeden. Sigurður Flosason, saxafónn, Tómas R. Einarsson, bassi, Einar Scheving, trommur. Tónleikamir em á vegum Tón- listarskólans á Akureyri. Föstudagur 13. nóvember, kl. 20:30. Hrólfur Vagnsson, harmoniku- leikari leikur blandað efni á sal Tóníistarskólans. Laugardagur 14. nóvember kl. 16:00. Salur Tónlistarskólans, Hafnar- stræti 81. Tónleikar píanódeildar Tónlist- arskólans á Akureyri. Sunnudagur 15. nóvember, kl. 16:00. Árskógarskóli. Rokkhátíð bama. Petta er liður í Menningarhátíð við utanverðan Eyjafjörð. Fimmtudagur 19. nóvember, kl. 21:00. Dalvíkurkirkja. Björk Jónsdótt- ir sópran syngur við undirleik Svönu Víkingsdóttur píanóleik- ara. Laugardagur 21. nóvember, kl. 16:00. Tjamarborg, Ólafsfirði. Djazz- tónleikar. Paul Weeden, gítar- leikari, Sigurður Flosason, saxafónn, Tómas R. Einarsson, bassi, Guðmundur R. Einars- son, trommur. Sunnudagur 22. nóvember, kl. 16:00. Dalvíkurkirkja. Tjamarkvartett- inn heldur fyrstu opinberu tón- leika sína. Miðvikudagur 25. nóvember, kl. 20:30. Safnaðarheimili Akureyrarkirkju. Söngtónleikar söngdeildar Tón- listarskólans á Akureyri. Laugardagur 28. nóvember, kl. 16:00. Salur Menntaskólans á Akur- eyri. Tónleikar strengjadeildar Tón- listarskólans á Akureyri. MYNDLIST Laugardagur 7. nóvember. Gallerí AllraHanda. Daði Guð- bjömsson opnar myndlistarsýn- ingu og stendur hún næstu 2 vikumar. LEIKLIST Leikfélag Akureyrar. Lína langsokkur. Sýningar laugar- daga og sunnudaga, miðviku- daga og fimmtudaga. Frekari upplýsingar í Samkomuhúsinu í síma 2 40 73 F élagsmálaráðuneytið: Úthlutar styrkjum til að efla atviimumál kvenna á landsbyggðinni Félagsmálaráðuneytið hefur nú í annað sinn úthlutað styrkjum til að efla atvinnnmál kvenna á landsbyggðinni. Á þessu ári er 15 milljónum króna varið til málefnisins. Sömu upphæð var úthlutað á sl. ári. I Ijósi þess að atvinnu- leysið hefur bitnað þyngra á konum en körlum á lands- byggðinni að undanförnu, er sérstök hvatning og stuðningur til þeirra tímabær. Leiðréttingar Nokkrar villur slæddust inn í greinina um Kristnesspítala, sem birtist í síðasta helgarblaði Dags. í greininni var rætt við einn sjúkling á endurhæfingadeild og var hann sagður heita Guðmund- ur Óli Vignisson. Hið rétta er að hann heitir Gunnar Óli Vignis- son. Þá var Ólöf Leifsdóttir titluð sjúkraþjálfari í greininni en er iðjuþjálfi. Loks ber að geta þess að með grein um iðjuþjálfun birt- ist mynd úr sjúkraþjálfun. Beðist er velvirðingar á þessum mistök- um. HVÍTUR STAFUR er aðal hjálpartæki blindra og sjónskertra í umferðinni BUNDRAFÉLAGIÐ ||UMFEROAR Prád Á þriðja tug styrkja hafa verið veittir í ár, en alls bárust ráðu- neytinu rúmlega 40 umsóknir víðs vegar af landinu. Við úthlut- un fjárins naut félagsmálaráðu- neytið ráðgjafar Byggðastofnun- ar og hóps kvenna, sem atvinnu- þróunarfélögin í hverju kjör- dæmi höfðu tilnefnt í. Áhersla er lögð á þróunarverkefni sem þykja líkleg til að fjölga atvinnu- tækifærum kvenna á viðkomandi svæðum og ráðgjöf til kvenna sem hyggjast stofna fyrirtæki og fara út í atvinnurekstur. í ár og í fyrra hafa verið veittir samtals hátt í 60 styrkir sem dreifst hafa um allt land. Verk- efnin eru mismunandi en sam- merkt með þeim öllum er að þau nýtast sérstaklega konum og kon- ur eru í forsvari fyrir flestum umsóknunum. Fjármagnið í ár dreifist nokkuð jafnt um landið, en hæsta upphæðin rennur til Suðurnesja samtals 2xh milljón króna sem fyrirhugað er að nota í sérstakt átaksverkefni til atvinnu- þróunar fyrir konur. í fjárlögum næsta árs er áfram gert ráð fyrir því að 15 milljónum verði varið til atvinnumála kvenna á lands- byggðinni, en þar er atvinnuleys- ið mest. Styrkir voru veittir til ferða- mannaþjónustu, markaðs- og þróunarátaka, smáiðnaðar s.s. við matvælaframleiðslu, fataiðnað og minjagripagerð. Einnig er um að ræða verkefni sem ekki eru stað- sett í einstaka kjördæmi heldur nýtast konum um allt land. Félagsmálaráðuneytið hefur einnig styrkt undirbúning og samantekt námsgagna sem notuð verða á námskeiðum fyrir konur í dreifbýli sem hug hafa á því að setja á stofn fyrirtæki. Á þessum námskeiðum verður m.a. fjallað um skipulega úrvinnslu hug- mynda og hefur styrkur ráðu- neytisins gert það kleift að halda námskeiðin gegn vægu þátttöku- gjaldi í hverju kjördæmi. iti Systir okkar, SIGURHELGA PÁLSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Dvergabakka 26, Reykjavík, lést ( Borgarspítalanum 1. nóvember. Kristín Pálsdóttir, Erling Pálsson. SIGURPALL HALLGRÍMSSON frá Melum, Svarfaðardal, vistmaður á Dalbæ, Dalvík, lést föstudaginn 30. október síðastliðinn á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri. Jónas Hallgrímsson, Guðlaug Sigurjónsdóttir. Styrktarfélag vangefinna á Norðurlandi Áríðandi félagsfundur verður haldinn að Iðjulundi, fimmtudaginn 5. nóvember, kl. 20.00. Mætið stundvíslega. Stjórnin. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Athygli er vakin á, að breyting hefur orðið á símatímum lækna Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Frá og með 1. nóvember 1992 eru símatímar lækna eftirfarandi: Ari H. Ólafsson Miðvikudaga ............. kl. 15.15-15.45 Baldur Jónsson Mánudaga-föstudaga ...... kl. 11.00-11.30 Brynjólfur Ingvarsson Mánudaga-föstudaga ...... kl. 10.00-10.30 Edward Kiernan Þriðjudaga ............... kl. 13.00-14.00 Fimmtudaga .............. kl. 13.00-14.00 Friðrik E. Yngvason Miðvikudaga .............. kl. 13.00-14.00 Föstudaga ............... kl. 13.00-14.00 Geir Friðgeirsson Mánudaga-föstudaga ....... kl. 11.30-12.00 IngvarTeitsson Mánudaga-fimmtudaga ...... kl. 12.00-12.30 Jón Ingvar Ragnarsson Miðvikudaga ............. kl. 13.30-14.00 Jón Þór Sverrisson Mánudaga ................. kl. 13.00-14.00 Föstudaga ............... kl. 13.00-14.00 JúlíusGestsson Miðvikudaga ............. kl. 14.15-14.45 ' Magnús Stefánsson Mánudaga-föstudaga ....... kl. 10.30-11.00 NickCariglia Föstudaga ................ kl. 11.00-12.00 PállTryggvason Mánudaga-föstudaga ....... kl. 10.00-10.45 SigmundurSigfússon Mánudaga ................. kl. 10.00-10.30 Fimmtudaga .............. kl. 10.00-10.30 Þorkell Guðbrandsson Mánudaga ................. kl. 11.00-11.30 Miðvikudaga ............. kl. 11.00-11.30 Föstudaga ............... kl. 11.00-11.30 Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. m MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ Styrkur til handritarannsókna í Kaupmannahöfn í framhaldi af lyktum handritamálsins ákváðu dönsk stjórnvöld að veita íslenskum fræðimanni styrk til handritarannsókna við Stofnun Árna Magnússonar (Det Arnamagnæanske Institut) í Kaupmannahöfn. Styrkurinn veitist til allt að tólf mánaða dvalar og nemur nú um 16.300 dönskum krónum á mánuði, auk ferðakostnaðar. Styrkur Árna Magnússonar (Det Arnamagnæanske Legat) Með sameiningu eftirtalinna sjóða, Det Arna- magnæanske Legat (frá 1760), Konrad Gíslason Fond (frá 1891) og Bogi Th. Melsteds Historikerfond (frá 1926) hefur verið stofnaður einn sjóður, Det Arnamagnæanske Legat. Verkefni hins nýja sjóðs er að veita íslenskum ríkisborgurum styrki til rann- sókna í Árnasafni eða í öðrum söfnum í Kaup- mannahöfn. Styrkir verða veittir námsmönnum og kandidötum, sem hafa sýnt svo mikla þekkingu á sviði norrænnar eða íslenskrartungu, sögu eða bók- mennta, að vænta megi að þeir muni inna af hendi verk í þessum greinum, sem þættu skara fram úr. Umsóknarfrestur um ofangreinda styrki er til 25. nóvember nk., en umsóknir ber að stíla til Árna- nefndar (Den Arnamagnæanske Kommission) í Kaupmannahöfn. Nánari upplýsingar um styrkina og tilhögun umsókna fást í menntamálaráðuneytinu, Stofnun Árna Magnússonar á íslandi og skrifstofu heimspekideildar Háskóla íslands. Menntamálaráðuneytið, 28. október 1992.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.