Dagur - 19.11.1992, Blaðsíða 3

Dagur - 19.11.1992, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 19: nóvember 1992 - DAGUR - 3 Fréttir Sauðárkrókur: Bflaviðskipti blómleg Skipverjar á rússneska togar- anum Poljarnoe sem nú er staddur á Sauðárkróki hafa gert það gott í Lödu-kaupum undanfarna daga. Að sögn Baldurs Heiðdal, bflasala á Sauðárkróki, er sannkölluð jólavertíð hjá honum. Rússarnir fengu útborgað á þriðjudag og þá voru miklar ann- ir á bílasölunni. Segist Baldur hafa selt þó nokkuð margar Löd- ur af ýmsum árgerðum. Sú elsta var fólksbíll af ’78 árgerð. Sölu- verð bílanna er frá 20-100 þúsund krónur, en „draumaverð“ Rúss- anna segir Baldur vera á bilinu 50-60 þúsund. Þetta hefur reynst kjörið tæki- færi fyrir þá sem eiga Lödur er þeir vilja losna við. Rússarnir sækjast mest eftir þessari gerð bíla, en líta einnig á aðrar gerðir, helst evrópska. Heyrst hefur að rússneskir sjómenn eigi viðskipti með vodka að skiptimynt, en að þessu sinni fer lítið fyrir því. Þeir borga orðið með dollurum. Sumir bílanna eru númerslaus- ir og að sögn lögreglu á Sauðár- króki stöðvuðu þeir einn sjó- mannanna á þriðjudag, þegar hann læddist á Lödunni sinni til að ná sér í bensín. Var bíllinn dreginn á bryggjuna aftur. sþ Skólanefnd fyrir Menntaskólann á Akureyri: Mótmælir seinagangi við undir- búning byggingafranikvæmda - hvergi í framhaldsskóla jafn lítið rými á nemanda Skipverjar á rússneska togaranum Poljarnoe hafa gert það gott í Lödu-kaup- um undanfarna daga. Mynd: sþ Bólumarkaðurinn Skólanefnd fyrir Menntaskól- ann á Akureyri samþykkti á fundi sínum á þriðjudag hörð mótmæli vegna seinagangs sem nefndin segir að hafi ein- kennt undirbúning bygginga- framkvæmda við skólann. Skorað er á Alþingi og Hér- aðsnefnd Eyjafjarðar að veita skólanum öflugan stuðning og hraða framkvæmdum, jafnvel með lántökum ef hagkvæmt þyki. Samþykkt skólanefndar fyrir Menntaskólann á Akureyri er svohljóðandi: „Með tilvísun til nýrrar skýrslu Tryggva Gíslasonar skólameist- ara um byggingamál Menntaskól- ans á Akureyri mótmælir skóla- nefnd harðlega þeim seinagangi sem einkennt hefur undirbúning byggingaframkvæmda. Nefndin vekur athygli á þeirri staðreynd að rými fyrir hvern nemanda í nothæfu kennsluhúsnæði er Nýi Kodak-litmyndastækkarinn veitir mikla möguleika. Pedrómyndir á Akureyri: Ný þjónusta í stækkun litmynda „„Create a print“, Iitmynda- stækkarann sá ég fyrst á stórri vörusýningu í Bandaríkjunum árið 1988. Stækkarinn vakti þá þegar mikla eftirtekt, en skil- aði ekki jafn miklum gæðum og sá stækkari sem nú er kom- in á markað. Þegar við fluttum í nýja verslunarhúsnæðið í sumar þótti sjálfsagt að taka í notkun stækkara af annarri kynslóð þessa undratækis frá Kodak,“ segir Friðrik Vest- mann, eigandi fyrirtækisins Pedrómyndir hf. á Akureyri sem starfrækt er við Skipa- götuna í nýju húsi. Að sögn Friðriks gefur lit- myndastækkarinn nær ótæmandi möguleika. Negatfv litfilman er sett í stækkarann og af filmunni er sú mynd valin sem stækka á. Myndin kemur upp á tölvuskjá og þar er hægt að velta henni að vild og velja blæbrigði og birtu- stig. Stærsti möguleiki til stækk- unar er 28x35 cm. Jafnframt er hægt að afmarka hluta myndar- innar og stækka hann síðan. „Þeir viðskiptavinir sem hafa reynt þessa þjónustu eru mjög ánægðir. Myndirnar eru settar á þykkan Royal-pappír frá Kodak, sem er hinn besti sem fyrirtækið framleiðir. Hægt er að velja nokkrar stærðir og viðskiptavin- urinn er með fingurna á hvernig hann vill hagræða myndefninu í myndfletinum. Þjónusta þessi er á mjög viðráðanlegu verði. Já, ég vil segja að þetta sé ódýrt. Ef við- skiptavinurinn vill fá karton um myndina þá eigum við slíkt og hér er úrval ramma á boðstól- um,“ segir Friðrik Vestmann í | Pedrómyndum. aðeins 4,4 fermetrar, sem er það lakasta er þekkist í nokkrum framhaldsskóla á landinu. Af þeim sökum ætti Menntaskólinn á Akureyri að njóta forgangs við úthlutun framkvæmdafjár. Skólanefnd lýsir andstöðu sinni við hugmyndir um hvika frá þeirri stefnu menntamálaráðu- neytis að skólinn rými 600 nemendur á meðan eftirspurn eftir skólavist er slík sem raun ber vitni. Með hliðsjón af þeirri menningarlegu og efnahagslegu þýðingu sem öflugur menntaskóli hefur fyrir Eyjafjarðarsvæðið skorar skólanefnd fyrir Mennta- skólann á Akureyri á Héraðs- nefnd Eyjafjarðar og Alþingi að veita skólanum öflugan stuðning og hraða framkvæmdum eins og unnt er - með lántökum ef hag- kvæmt þykir.“ JÓH a5 Eiðsvallagötu 6 verður opinn laugardaginn 21. nóvember kl. 11-15 og sunnudaginn 22. nóvember kl. 13-16. Nú líður senn að jólum og tilvalið að fara að huga að jólagjöfum! Um helgina verður meðal annars boðið upp á: Heimatilbúnar nælur og hálsfestar, sængurverasett, íslensk framleiðsla, gammosíur, skó, sælgæti, myndbönd, reyktan silung, kartöflur og sitthvað fyrir safnara og fleira og fleira. Haddýarbrauð verður á sínum stað. Á Bólumarkaðnum verður hægt að finna ýmsa nytjahluti, sem ekki eru á boðstólum annars staðar. Nánari upplýsingar í síma 26869 (Ásthildur). k..... HRÍSALUNDUR jk Herragallabuxur áður kr. 2995 nú 1995 Dömupeysur áður kr. 2495 nú 1495 * Dömujogginggallar áður 2995 nú 1995 Jólatilboð Kynning á bökunarvörum og niðursoðnu grænmeti á Ariel Color föstudag kl. 14-19 Tilboð Spánskar Sælkeraverslun ém stórmarkadsverdi Nýtt! Heilsu sælgæti i úrvali Jóla- vörur i úrvali

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.