Dagur - 19.11.1992, Page 5
Fimmtudagur 19. nóvember 1992 - DAGUR - 5
Lesendahornið
ísland:
Gósenland glæpamanna
Einar Ingvi Magnússon skrifar.
Upp á síðkastið hafa fjölmiðlar
greint frá mörgum afbrotamálum
í tengslum við fíkniefnasmygi og
sölu á ólöglegu heimabrugguðu
áfengi. Bæði eiturlyfjaviðskipti
landans og þjóðaríþrótt íslend-
inga, landabruggið, dafna þrátt
fyrir öll lög.
Áberandi finnst mér hvernig
tekið er á þessum málum hjá yfir-
völdum. Þegar búið er að taka
skýrslu af þeim sem flytja
hass inn í landið, oft í kílóavís, er
niðurlagið eitthvað á þessa leið:
Málið er að fullu upplýst.
Afbrotamennirnir eru lausir úr
haldi, eða eins og segir í Morgun-
blaðinu 10. nóvember síðastlið-
inn: „Lögreglan... hafði farið
fram á gæsluvarðhaldsúrskurð
yfir manninum en dró þá beiðni
til baka, þar sem hún taldi sig
hafa upplýst það sem máli
skipti.“ Eitthvað meira en lítið er
að dómskerfinu hér á landi. Þeg-
ar lögregla er búin að upplýsa
mál og hún þar með búin að
vinna vinnu sína, er sakamönn-
um sleppt úr haldi og þeir frjálsir
ferða sinna. Þeir gefa Iögreglu
langt nef og halda uppteknum
hætti áfram.
Fólk á að hafa í haldi þó búið
sé að upplýsa svona mál og skyld
afbrot. Ánnars er lítið gagn af
lögum og löggæslu. Fólk kemur
til lögreglunnar og fyllir út
pappíra, eins og hverja aðra toll-
skýrslu og þiggur kaffi á meðan.
Svo ekki sé minnst á ósakhæfi
vegna andlegra krankleika, sem
finna má hjá flestum mönnum.
Hér á landi ganga afbrotamenn
ljósum logum og komast upp
með æði margt, svo segja má að
ísland sé orðið gósenland glæpa-
manna. Menn fá skilorðsbundið
fangelsi fyrir sölu á eitri til ungl-
inga og nokkurra ára fangelsi fyr-
ir manndráp. Þetta þarf endur-
skoðunar við. Löggæslumenn
þurfa á skilyrðislausum rétti að
halda til að mega beita afbrota-
menn og æsingamenn valdi, telji
þeir nauðsyn á slíku. Öll tilslök-
un á valdi leiðir til vaxandi óeirða
og skálmaldar. íslenska þjóðin
þarf orðið á aga að halda, ef hún
á ekki að fara sér endanlega að
voða. Megi Guð á meðan hjálpa
þessu agalausa og ofdekraða
þjóðfélagi."
Frábær matur og þjónusta á Fiðlaranum
Það var fyrir nokkrum mánuðum
að við fjórir félagarnir tókum
okkur saman og lögðum fyrir
nokkur hundruð krónur á mán-
uði í þeim tilgangi að fara út að
borða á eitthvert veitingahús-
anna hér í bæ. Fiðlarinn varð fyr-
ir valinu laugardaginn 31. októ-
ber. sl.
Boðuðum við komu okkar
ásamt mökum kl. 21 um kvöldið
og var fyrirfram ákveðið hvað við
ætluðum að borða í aðalrétt, en
matreiðslumeistararnir höfðu
frjálsar hendur í vali á forrétti og
eftirrétti.
Þegar á staðinn var komið var
okkur vísað til sætis og fundum
við strax fyrir léttu og skemmti-
legu andrúmslofti sem ríkir á
staðnum. Byrjaði þjónninn að
segja okkur hvað kokkarnir
hefðu ákveðið að gefa okkur í
forrétt og eftirrétt og ákváðum
við í sameiningu hvaða vín færi
best við þennan mat. Eftir stutta
stund var forrétturinn borinn á
borð, sem var humar, og var
hann með betri humarréttum
sem ég hef smakkað. Þessu góð-
gæti skoluðum við niður með
eðalvíni. Að vörmu spori kom
aðalrétturinn, sem var þessi dýr-
indis nautasteik með tilheyrandi
og að sjálfsögðu var hún rétt
steikt hjá öllum. Yfirþjónninn
ráðlagði okkur að drekka
Beaujolais rauðvín, sem heitir
Moulin-a-vent 1988 og er kennt
við Chateau des Jacques. Fyrir
minn smekk var ég orðinn pakk-
saddur eftir hálfa steik, en ég lét
mig þó hafa það að klára hana,
enda var hún svo góð.
Svo var eftirrétturinn eftir. Við
ákváðum að bíða stutta stund svo
við myndum hafa lyst á eftirrétt-
inum. Síðar komu þjónarnir með
eftirréttinn, sem var stórglæsileg-
ur að sjá og bragðgóður eins og
best var á kosið og enduðum við
þessi herlegheit með kaffi og
koníaki.
Eftir þessari lýsingu að dæma
er ekki hægt að vera óánægður
með kvöldið, enda kokkar og
þjónar til fyrirmyndar hvað varð-
ar gæði og þjónustu. Fyrir hönd
hópsins vil ég þakka þeim kær-
lega fyrir fullkomið kvöld. Hald-
ið áfram á þessari braut!
Júlíus Jónsson.
Nýkomnar
gjafavörur
Styttur og lampar.
Reyrhúsgögn - Stakir stólar.
Úrval af gjafavöru og bastkörfum.
BteSkS fíSSSnn
Kaupangi v/Mýrarveg. m
Sími 12025. \JíSm\
J
L|J' Haustfagnaður
\^y Hestamannafélagsins Léttis
verður í Skeifunni föstudagskvöldið 20.
nóvember og hefst kl. 21.00.
Skemmtiatriði ★ Gamanmál (létt)
Miðnæturkvöldverður ★ Óvæntar uppákomur.
Miðaverð aðeins kr. 800.
Allir velkomnir!
Skemmtinefnd.
Leiðalýsing
St. Georgsgildið stendur fyrir leiðalýsingu í kirkju-
garðinum eins og undanfarin ár. Tekið á móti pöntun-
um í símum 22517 og 21093 fram til sunnudagsins 6.
desember. Verð á krossi er kr. 1200.
Þeir sem vilja hætta tilkynni það í sömu símum.
Afþvílærabörnm...
Margrét Jónsdóttir frá Fjalli
hringdi.
„Eg var að horfa á Stöð 2 og
var fréttamaðurinn að tala við
börn. Meðal annars spurði hann
eitt barnanna af hverju það væri
með endurskinsmerki. Barnið
svaraði því til að það væri svo
mikið myrkur. Fréttamaðurinn
spurði þá af hverju það væri ekki
með endurskinsmerkið framan á
sér og svaraði barnið að það ætti
eftir að setja það á sig. Barnið
kvaddi „bless“, en fréttmaðurinn
sagði „bæ, bæ.“
Við gerum þá kröfu til frétta-
manna að þeir vandi málfar sitt,
ekki síst þegar þeir tala við
börn.“
Blómaskálínn eins
og refaskáii
Innbæingur hringdi:
„Blómaskálinn í Innbænum er nú
að taka á sig þá mynd sem hann
verður í og mér finnst hann eng-
an veginn falla inn í umhverfið
hérna. Þetta er rétt eins og refa-
skáli með fóðurturni. Mér skilst
að samkvæmt skipulagi hafi einn-
ig verið um tvær þverbyggingar
að ræða en eins og þessi bygging
er hönnuð er hún í hróplegu
ósamræmi við húsin hér í Inn-
bænum. Þessi bygging hefði sómt
sér vel í einhverju öðru umhverfi
en hér innan um gömlu húsin.
Góöurbúnaður
- m SSr
^ M_- 5 —_ .
- wli
. ■ .
i.'.SL'ý5-
„ ’ & . V—ÍÉÍfS Aj*
Bunaöur fra Skatabuðinm
björgunarsveitum vel. Félé
er, aö þegar á reynir skiptir r
treysta á búnaöinn. Engin ke
veikasti hlekkurinn. Þekking, þjálfu
búnaöur. Þetta þrennt er lykillinn aö b
árangri.
K Y N N I N G
FÖSTUDAGINN 20. NÓVEMBER
Vanir sölumenn kl. 14.00-18.00 frá Skátabúðinni og starfsfólk
sportvörudeildar sjá um kynningu oggefagóð ráð
Sportvörudeild • Sími 30482