Dagur - 19.11.1992, Síða 9
Fimmtudagur 19. nóvember 1992 - DAGUR - 9
Svanberg Árnason:
Sök bítur sekan
- svar við greinum Slippstöðvarmanna
Það kom mér ekki á óvart að við-
brögð við ádrepu minni kæmu úr
þessari átt, því auðvitað lítur
þessi uppákoma Slippstöðvar-
manna og kvenna ekki vel út í
augum hins almenna borgara,
þegar starfsmenn fyrirtækis, sem
kvartað hefur og kveinað um
verkefnisskort, láta tæla sig. Ég
minnist þess ekki að hafa haft
nokkra skoðun á því, hver eða
hverjir greiddu ferðina fyrir ykk-
ur Slippmenn. Það kom líka á
daginn að í hita leiksins fóru
menn að skjóta púðurskotum, í
engu samhengi við það sem til
umræðu er. Ég mun ekki leggjast
svo lágt að svara því.
Það sem eftir stendur er að
ferðalangarnir skilja eftir sig
mikla fjármuni í útlandinu, sem
betur væru komnir í okkar bæjar-
félagi. Það er enginn að banna
mönnum að ferðast til útlanda.
Hitt orkar tvímælis, að bæjarbú-
ar fari í hreinar verslunarferðir
þegar ástandið er svo slæmt, eins
og raun ber vitni.
Þegar talað er um íslenskt, vita
flestir viti bornir menn að um er
að ræða íslenskt atvinnulíf. Það
skapar atvinnu t.d. að flytja vör-
ur til landsins, tollafgreiða vörur,
koma þeim á áfangastað innan-
lands, afgreiða vörur til verslana,
fylla vörur á hillur og blanda efn-
um saman í efnaverksmiðjum.
Það eru ekki írskar hendur sem
framkvæma þá vinnu hér á landi.
Einnig er nokkuð öruggt að írskir
vörumarkaðir bjóða ekki uppá
t.d. Bragakaffi eða Sjafnar-
þvottaefni.
Ef menn vilja, er ekki nokkur
vandi að finna lægra verð á vöru
hér heima en á írlandi. Ég bendi
t.d. á Hagkaup ásamt fjölmörg-
um mörkuðum hér í bæ. Heyrst
hefur að í Reykjavík starfi heil
saumastofa við fatabreytingar
fyrir írlandsfarana. Það er að
vísu eini ljósi punkturinn í þess-
ari flækju, atvinnulega séð. En
ber þó vitni þess, að eitthvað eru
menn ruglaðir í ríminu.
Það er grátlegt að lesa það í
blöðum, heyra í útvarpi og sjá í
sjónvarpi, t.d. Stöð 2 miðviku-
dagskvöldið 11. nóvember sl.,
hvernig írar leika sér að kaupóð-
um íslendingum. Menn eru upp-
veðraðir af því að sjá vitlaust
stafsett skilti hangandi upp á
vegg, og að leigubílstjórar þekki
hina kaupóðu íslendinga frá
öðrum. Það þarf ekki glöggan
mann til að sjá hvers kyns er. Það
Nýjar bækur
Júlía
- skáldsaga eftir
Þórunni Valdimarsdóttur
Bókaútgáfan Forlagið hefur gefið út
skáldsöguna Júlíu eftir Þórunni
Valdimarsdóttur. Þetta er fyrsta
skáldsaga hennar en áður hefur Þór-
unn sent frá sér ljóðabók auk sagn-
fræðirita og ævisagna sem hlotið
hafa skínandi viðtökur lesenda.
„Júlía er margslungið skáldverk,"
segir í kynningu Forlagsins. „Hún er
öðrum þræði spennusaga um ástir
og örlög, ástarsaga Júlíu og Stark-
aðar, og geymir í sér lausn á gátunni
um dauða söguhetjunnar - hvers
vegna var Júlía myrt? Um leið má
líka lesa hana sem táknrænt fram-
tíðarskáldverk. Sagan ólgar af erótík
og brugðið er upp heillandi sýnum
og svikulum tálmyndum sem skír-
skota jafnt til fortíðar sem framtíð-
ar.“
Júlía er 203 bls. og kostar 2.880
krónur. Essemm/Tómas Hjálmars-
son hannaði kápu.
er nokkuð víst, að um leið og
hinir kaupóðu íslendingar eru
stignir út úr bifreiðum þeirra,
veltast hinir írsku leigubifreiða-
stjórar um af hlátri.
Nýjustu fréttir herma að ís-
lendingar láti sér ekki nægja að
styrkja efnahagslíf íra, heldur
eru Danir komnir í hópinn líka.
Danir gefa þær upplýsingar að
íslendingar séu í þriðja sæti í
eyðslu þar í landi, á eftir milljóna
þjóðunum Japan og Bandaríkj-
unum.
Er nema von að mönnum þyki
nóg um?
Það er ekki nokkur vafi á því,
að ef þessir peningar, sem þegar
eru farnir úr landi, væru hér í
umferð, snérust hjól atvinnulífs-
ins hraðar en þau gera nú.
Svanberg Árnason.
Höfundur er áhugamaður um eflingu
íslenskrar verslunar.
AKUREYRARB/ER
Hundaeigendur
Akureyri
Aukadagur verður í hundahreinsun í áhalda-
húsi Gróðrarstöðvarinnar föstudaginn 20.
nóv. 1992.
Þeir sem eiga enn óhreinsaða hunda eru hvattir
til að mæta með þá, svo komist verði hjá óþægi-
legri aðgerðum.
Umhverfisdeild og
heilbrigðiseftirlit.
c 7777TT W\\\S
ív*g uuLLuU LLLLÚU
cj\
SUNNUHIIÐ
VERSUJNARMIÐSTÖÐ
— SHOPPING CENTER —
Munið opið á laugardögum til kl
Handverkskonur verða í Sunnuhlíð
föstudag og laugardag
Karlakór Akureyrar - Geysir
undir stjórn Roars Kvam syngur
nokkur létt lög kl. 14 laugardag
Jólastjörnur
I. II. og III. floklcur
Kerti og servíettur
Jólaskeiðin 1992
Messingvörur
t.d. kertastjakar, óróar, bjöllur,
kertaslökkvarar o.m.fl.
Gjafavöruúrvalið hefur aldrei verið meira
Blómabúðin
Laufás
Ný sending
Sérverslun
fyrir allar konur
Ódýr fatnaður - Handklœði - Sængurverasett - Peysur og bolir
]óladúkar - Barnaflauelsbuxur - Skór og fleira og fleira
MARKAÐUR
(þar sem skóbúð M.H. Lyngdal var áður)
Ynja s. 25977 - Slétt og fellt s. 27224 - Ljósmyndabúðin s. 11030 - Samson s. 27044 - Tónabúðin s. 22111
Rafland s. 25010 - Pálína s. 27177 - HABRÓ s. 11119 -Trygging s. 21844 - Markaður s. 27586
Möppudýrið s. 26368 - Brauðbúð Kristjáns s. 25904 - Vaggan s. 27586 - Saumavélaþjónustan s. 11484
Blómabúðin Laufás s. 26250 - Búnaðarbanki íslands s. 27600 - Kjörbúð KEA s. 30387
Velkomín í Sunnuhlíð