Dagur - 19.11.1992, Síða 10
10 - DAGUR - Fimmtudagur 19. nóvember 1992
Dagdvelja
Stiörnuspá
" eftlr Athenu Lee "
Fimmtudagur 19. nóvember
G
Vatnsberi
(20. Jan.-18. feb.;
Þú ert opinn fyrir hugmyndum
sem gætu létt þér verkin. Félags-
lega munt þú njóta þín betur í
fámennum hóp en fjölmennum.
m
Piskar
(19. feb.-20. mars)
)
Utanaökomandi áhrif gera að
verkum að hlédrægt fólk verður
opnara en áður. Samkeppnis-
aðilinn verður líka fúsari til
samstarfs.
(
)
Hrútur
(21. mars-19. aprfl)
Það verður mikið að gera í vinn-
unni og kemur það niður á
áhugamálunum. Veldu frekar
vinnuna. Þú færð uppörvandi
fréttir af vini.
Naut
(20. aprfl-20. mal)
)
Það hvílir stöðugleiki og ham-
ingja yfir einkalífinu. Góður tími
fyrir rómantik og hjónabönd.
Samt skaltu ekki rasa um ráð
fram.
(M
Tvíburar
(21. maf-20. Júnl)
)
Þú ert ánægðastur meðal fólks
sem þú þekkir vel enda eiga tví-
burar oft erfitt með að eignast
nýja vini. Happatölurnar eru 8,
22 og 31.
d
Krabbi
(21. Júnf-22. Júlí)
)
Það dregur úr álagi eftir því sem
helgin nálgast en þú kannt að
þurfa að taka mikilvæga ákvörð-
un. Láttu ekki of mikið uppi um
persónuleg áform.
Ijón
(23. Júlí-22. ágúst)
)
Þér hættir til dvelja um of við
gömul mistök úr fortíðinni. Ef þú
getur ekki leitt þau hjá þér munt
þú missa traust á sjálfum þér.
Q
Meyja
(23. ágúst-22. sept.)
D
Framkoma fólks getur reynst vill-
andi; til góðs og ills svo dæmdu
ekki eftir útlitinu. Happatölurnar
eru 7, 13 og 35.
ö
Vog
(23. sept.-22. okt,
D
Vertu vingjarnlegur í dag þótt þú
fáir vel meinta gagnrýni sem þú
kannt ekki að meta. Vingjarnleg
ábending er einmitt það sem þú
þarfnast nú.
ŒSporödrekiD
(23. okt.-21. pðv.) J
Það verður ánægjulegt í dag að
finna óvænt til lítillar mótstöðu
þar sem þú áttir von á henni
kröftugri. Dagurinn verður því
mun ánægjulegri en þú bjóst við.
(,/V Bogmaður D
J (22. nóv.-21. des.) J
Reyndu að bæta úr óþægilegri
aðstöðu sem skapaðist vegna
mistaka eða ósættis. Taktu að
3ér verk sem krefjast ekki
aðstoðar.
Steingeit D
(22. de8-19.Jan.) J
Það er ekki auðvelt að telja
strangtrúuðum hughvarf en það
verður þér að kenna ef það tekst
ekki. Samskipti þín við hitt kynið
ganga vel.
Hvers vegna eyði ég svona
miklum tíma i að drekka á
heimskulegum bar í stað þess
að njóta hlýju og þæginda
heimilisins???
aiiej'í
Getur það verið vegna
þess að tengdamamma
þín er í heimsókn?
OKFS/Distr. BULLS 1
!«
jH
j J3
Ég er búinn að ákveða
að bæta hitaeininga-
snauðum hamborgara á
matseðilinn.
OJmim
Ég ætla að kalla hann
Létta-borgara. Við
notum kvartpund af kjöti
með osti, tómatsósu
og lauk.
Já, en þannig framreið-
um við venjulegan
Heims-borgara?
CKFS/Distr. BULLS
I Einmitt. En við fækkum
| hitaeiningunum með því
| að taka nokkra bita af
Á léttu nótunum j
Hepprti
Svenni litli hafði séð nýfædda kettlinga hjá nágrannanum og orðið
mjög hrifinn af. Hann eyddi öllum frístundum sínum þar við að horfa á
kettlingana og leika við þá. En dag nokkurn kom hann hágrátandi heim
og sagði mömmu sinni að nágranninn hefði drekkt kettlingunum, öllum
nema einum.
Mamma reyndi að útskýra fyrir syni sínum að ekki væri hægt að láta
öll afkvæmin lifa, þá yrðu einfaldlega allt of margir kettir í heiminum.
Stráksi þurrkaði tárin, leit á mömmu sína og sagði: „Heyrðu, mikið var
ég heppinn. Hvað vorum við eiginlega mörg systkinin?“
Afmælísbarn
dagsins
Fyrri hluta ársins ertu undir miklu
álagi sem dregur úr krafti þínum.
Mun þetta taka frá þér tíma og
draga úr árangri. En þetta er
bara tímbundinn vandi og eftir
um það bil tvo mánuði tekur
árangursríkt tfmabil við. Þér mun
ganga vel f keppnum og e.t.v.
hljóta að launum tákn eða grip til
merkis um árangurinn. Einhver
ferðalög eru fyrirsjáanleg.
Þetta þarftu
ab vita!
Fyrsta Ijósmyndin
Fyrstu Ijósmynd sögunnar tók
Joseph Nicéphore Niepce
(1785-1833), franskur læknir og
vfsindamaður, sumarið 1826.
Á myndinni sést bakgarður við
sumarhús hans í Gras, nærri St.
Loup-de-Varannes. \
Orbtakib
Að snúa bökum saman
Orðtakið merkir að veita gagn-
kvæma aðstoð; vinna saman að
einhverju. Það á rætur að rekja til
hernaðar. Eiginleg/upprunaleg
merking orðtaksins er að snúa
baki að baki svo óvinurinn geti
ekki gert árás aftan frá.
Málshátturinn: „Ber er hver að
baki, nema sér bróður eigi“, á
rætur að rekja til svipaðra
aðstæðna.
Ánægja
„Ein ánægja ellinnar er að minn-
ast þeirra sem maður giftist
ekki.“
Ókunnur höfundur.
Útganga „jakans
Guðmundur
Halldórsson,
hagyrðingur á
Húsavfk, sat
við sjónvarpið
sitt á sunnu-
dagskvöldið og
fylgdist með
fréttum af
útgöngu Guð-
mundar jaka frá atvinnumála-
nefnd. Honum fannst að Ás-
mundur vildi „koma þessum
óskapnaði saman.“ Það munu
vera þeir félagar Össur og
Þröstur sem Guðmundur á við
að undan séu gengnir er hann
gerði þessa vísu:
Ásmundur vill ólmur fá
efsta sæti á listanum.
Þreyttir kratar þreifa á
þriðja kommúnistanum.
Nýöld eða hvað?
Ástandið í þjóðfélaginu er ekki
ýkja bjart um þessar mundir.
Að sama skapi hefur svartsýni
aukist meða! manna og er leit-
að allra leiða til úrlausna.
Stjórnmálamenn leita leiða
sem samræmast best þeirra
hyggjuviti og ólíklegt að þeir
ráðgist við aðra en eigin sam-
visku og fólk á núverandi til-
verustigi. Nema ef vera skyldi
þá himnafeðga. En við hin
erum ekki svona ófrumleg og
finnum okkur aðrar og fjöl-
breyttari leiðir sem benda okk-
ur á veginn til betra lífs á
núverandi og komandi tilveru-
stigum.
Því miður er ritari S&S fáfróð-
ur í þessum efnum en hefur
heyrt um námskeið hverskon-
ar, eins og reiki og heilun og
allt það. Þessi heiti hljóma
mjög „mystiskt", en þeir sem
ekki skoða málið nánar eru
engu nær um innihaldið. Svo
er talað um nýöld og nýaldar-
sinna, hvað sem það nú þýðir.
Þar virðist, að því er ritari
kemst næst, vera hrært sam-
an hinu og þessu frá þeim
himnafeðgum og ýmsum öðr-
um trúfeðrum og fornri speki
ýmiskonar. Úr þessu verður
hin ágætasta blanda sem
greinilega fellur mönnum bet-
ur í geð en hinn íhaldssami
boðskapur kirkjunnar.
Góð aukabúgrein
Nýlega hélt „transmiðillinn"
Guðbjörg Sveinsdóttir fund
norðanlands. Þar boðaði hún
að fjallað yrði um framtíð
íslands og þær breytingar
sem framundan eru. Hvorki
meira né minna. Ekki munu
pólitíkusar hafa áttað sig á því
að þarna væru lausnirnar að
finna og fjölmennt á fund mið-
ilsins. En heyrst hefur að 800
kr. hafi það kostað hvern og
einn að heyra boðskap
„fræðsluaflsins Ásgeirs", sem
fólst m.a. í að fræða fólk um
að mikið atvinnuleysi væri
framundan og sömuleiðis fisk-
leysi, þorsksins væri þörf
annars staðar. Þarna ruglaðist
Ásgeir eitthvað í ríminu því að
á öðrum fundi hafði hann víst
lofað áheyrendum því að ein
fisktegund yrði eftir.
Transmiðillinn býður einnig
upp á einkafundi og þar er lág-
markið þrír þátttakendur og
kostar að sögn kr. 2400 á
manninn. Er víst vel mætt á
fundina og vafasamt að það
breyti nokkru þó einhverjir séu
að rífa kjaft og kalla trans-
miðilinn loddara.