Dagur - 03.12.1992, Page 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 3. desember 1992
Blessuð barnatrúin - in memoriam?
Aö öllum greinum og greinar-
kornum liggur viss forsaga. Þessi
hér er engin undantekning.
Pað mun hafa verið fyrir miðj-
an september sl. að Bergur
Björnsson, reikimeistari, sté
fram á völlinn og kynnti lesend-
um Dags ágæti lífsfílósófíu
sinnar, reyndar í formi handayf-
irlagningar með lækningu hvers
kyns kvilla að markmiði. Hann
lýsti því jafnframt yfir, að undir
hans hendur gætu allir komið,
notið góðs af og numið fræðin.
Eða með orðum meistarans: „Þó
að reiki sé guðlegt í eðli sínu þá
er það ekki trúarbrögð. Það hef-
ur enga fordóma og fólk þarf
ekki að trúa neinu sérstöku til
þess að geta lært reiki. Reiki á
samleið með öllum trúarbrögð-
um og greinum þeirra." (D 10/9).
Sem sagt, allt landið og miðin.
Og ekki sakar nafngiftin. Reiki
þýðir yfirnáttúrulegur kraftur/
guðleg viska -I- lífsorka. Eðli sínu
samkvæmt viðhefur guðleg orka
ekki fordóma. Fyrirspurn minni
um nánari merkingu þessa (D 17/
9) var síðan svarað fyrir
skemmstu (D 30/10). Þar telur
Bergur Björnsson að grundvall-
armunur ríki milli guðstrúar ann-
ars vegar og skipulagðra trúar-
bragða hins vegar. Hann telur
„að maður geti trúað á almáttug-
an guð, skapara himins og jarðar,
án þess að þurfa endilega að
tengjast eða aðhyllast einhver
trúarbrögð" (D 30/10).
Lítum nánar á trúarbragða-
hugtakið sem slíkt, þar eð það
virðist vefjast eilítið fyrir
mönnum. Liggur vandinn senni-
lega í austrænu vs. vestrænu
hugtakakerfi. Dæmi: „Sumir
fræðimenn (einkumn vestrænir)
vilja telja Búddhismann... í
flokki með „trúarbrögðum". En
þeim hefur orðið lítið sem ekkert
ágengt. Slíkt er ekki mögulegt
nema umturna trúarbragða-hug-
takinu eins og þaö er brúkað á
Vesturlöndum" (bls. 96)J. Nú
víkur svo við að ég telst Vestur-
landabúi og beiti hugtakafræð-
inni samkvæmt því. Vesturlönd
líta á hinar ýmsu stefnur hug-
myndafræðinnar á Austurlönd-
um sem trúarstefnur. Nægir þar
að líta í Helstu trúarbrögð heims
(og fleiri slíkar). Auk þess er BB
sammála: „Ég tel líka að kristin
trú og búddatrú séu í grundvall-
aratriðum samstæð trúarbrögð"
(D 30/10). Á þessa staðhæfingu
verður litið nánar hér á eftir. í>að
að undanskilja reiki frá trúar-
bragðahugtakinu er viss hugsana-
skekkja runnin undan rifjum
austræns þankagangs.
Hver eru helstu einkenni trúar-
bragða? í fljótu bragði dettur
mér í hug:
1) Hugmyndafræði um mann-
inn, hvaðan hann kemur, núver-
andi tilgang (hver hann er) og
hvert hann fer.
2) Æðri máttarvöld með mis-
mikil ítök í mannlífinu m.t.t.
örlaga mannsins.
3) Helgisiðir og aðrar sere-
móníur.
Austræn hugmyndafræði und-
anskilur búddisma frá trúar-
bragðastimplinum, sennilega
vegna léttara vægis helgisiðanna.
Lífsspekin að baki reiki er þess
eðlis, að það fellur hiklaust undir
trúarbragðahattinn.
Lítum nánar á þetta. Reiki fel-
ur í sér lífsorku alheimsins, þar
með er talinn sjálfkvæmur vís-
dómur engum líkur. Parna er á
ferðinni lífskraftur sem knýr allt
hið skapaða, lifir í því á öllum
stigum þess (bls. 18)'. Reiki er
ekki einungis sannleikur og ljós
heldur Sannleikurinn og Ljósið
(bls. 24, 26/27)'. Minnir það
óneitanlega á orð Krists: „Ég er
vegurinn, sannleikurinn og lífið,
enginn kemur til föðurins nema
fyrir mig“ (Jóh. 14:6). Og sem
Sannleikurinn veitir reiki dýpri
skilning á lífinu, merkingu þess
og tilgangi, þ.e. færir manninn
nær uppruna sínum þar sem sál-
arhjarta hans slær í takt við
alheimshjartað. „Á þessu stigi
koma ný lögmál til sögunnar,
lögmál sem spanna mun víðtæk-
ara svið en nemur áhrifum frum-
hugsana („elementals“, thought-
beings)... Kærleikshugsun sem
fram kemur á þessu albesta og
dýpsta stigi vitundarinnar, þar
sem guðdóminn (Divinity) er að
finna í öllum verum, nær að kom-
ast í snertingu sjálfs lífsins án
aðstoðar frumhugsunar" (bls. 42,
undirstr. og innskot mín). Reiki
telur sig veita manninum aðgang
að sjálfum guðdómnum, sem
fólginn er í innsta tilverukjarna
hverrar skepnu. Með allt í sam-
ræmi verður allt hluti af öllu, eða
samkvæmt Upanishads: „Ég er
það, þú ert það, allt er það“ (bls.
98)'. Safnbaukur þess ómeðvit-
aða skvt. C. Jung.
Reiki gerir út á lækningamiðin.
„Reiki er bæði öflugt og blítt og
saga þess segir frá heilun og
aðstoð við lækningu nánast allra
þekktra sjúkdóma og slysa“ (D
10/9). Hvernig skilgreinir reiki
sjúkdóma? „Sérhver einkenna-
flækja, hvort heldur líkamleg,
huglæg eða geðræn, er nákvæm
vísbending um stöðu okkar í
lífshlaupinu. Par kemur skýrt
fram hvað við eigum eftir ólært“
(bls. 124)'. „í sérhverri einkenna-
flækju eru fólgin skýrt afmörkuð
skilaboð sem við verðum að með-
taka og tileinka okkur áður en
lengra verður haldið bæði heilsu-
fars- og þróunarlega séð“ (bls.
124)'. „Eingöngu sá sem spyrnir
ekki gegn broddunum er fær um
að upplifa lífsheildina og þá
jStaðreynd, að um dásamlegt
samspil pólunar er að ræða.
Vissulega er það svo, að sköpun-
in er til orðin vegna samspils
tveggja andstæðra póla, og sá
einstaklingur sem náð hefur að
samtvinna þessa heild eigin til-
veru er að eðli til góður, auk þess
sem út frá honum streymir kær-
Ieikur, vísdómur, fögnuður og
skapandi orka. Það er bælingin
sem veldur aðskilnaði frá lífs-
heildinni" (bls. 125-6)'. Karma
nefnist það ástand, þegar bæling-
in hefur varað of lengi og við-
komandi deyr. í næsta lífi bíður
hans lexía í formi bæklunar (bls.
127)'.
Reiki kemur inn á dauðafræðin
(Thanatólógía). „Pegar sálin tek-
ur að losa sig frá líkamanum upp-
lifir hinn deyjandi eigin innri
veru í vaxandi mæli“ (bls. 90)'.
„Hér kemur reiki til hjálpar á
mildan en áhrifaríkan hátt gagn-
vart ástvinum okkar og vinum,
gæludýrum og síðar meir okkur
sjálfum, þegar skrefið er stigið til
nýrra heima“ (bls. 91)'.
Reiki spannar vítt svið tilver-
unnar. Pað tekst á við alheims-
spurninguna, dauðann, sálina,
tilgang lífsins. „Reiki hefur enga
fordóma og fólk þarf ekki að trúa
neinu sérstöku til þess að geta
lært reiki“ (D 10/9). Parna Iiggur
sennilega hundurinn grafinn,
þessi sem át fiskinn undir steinin-
um. Kannski er framkvæmd reik-
is eitt meðan lífsfílósófían, sbr.
ofanskráð, er látin liggja milli
hluta, a.m.k. meðan enginn spyr
neins.
Lítum nánar á samstæði búdda-
trúar og kristinnar trúar, sbr. til-
vitnun hér að ofan. Pað er of
langt mál að ætla sér að gera
kristinni trú viðunandi skil í
greinarkorni sem þessu, en vert
er þó að draga fram nokkur atriði.
Reiki vinnur út frá hugtakinu
guðlegt eðli, guðlegur kraftur,
lífsorka o.fl. Um þessa alheims-
spurningu skipar mannheimur
sér í tvær fylkingar'. Fjöldinn
aðhyllist kenninguna um ein-
hvers konar Guð, guð eða guði.
Minnihlutinn hafnar þeirri hug-
mynd alfarið. Fyrri hópurinn
skiptist síðan (f grófum dráttum)
í tvær fylkingar: algyðistrú (pant-
heisma) og Guðstrú (eingyðis-
trú). Fyrri hópurinn telur hugtak-
ið gott/illt afstætt, tilveran lýtur
fremur lögmálum orsaka og af-
leiðinga, guð er allt í öllu og allt
er hluti af honum. Þannig er al-
heimurinn guð.
Hinn hópurinn skilgreinir Guð
sem forvera alls, skapara alheims
og forsendu. Leitast við að upp-
lýsa og leiðbeina allt frá upphafi
mannsins, grípur inn í söguna.
Kristur er þannig hápunktur kær-
leika Guðs. Kristin trú kennir, að
maðurinn sé ekki einungis ófull-
Ómar Torfason.
komin vera sem þarfnast endur-
nýjunar, heldur að hann sé hreinn
og klár uppreisnarseggur sem
beri að leggja niður öll vopn, gef-
ast upp. Fórna höndum? Honum
ber að leggja niður vopn í barátt-
unni um eigið réttlæti, eigin
frelsun. Iðrun mun það nefnt.
Eftir það er það vissan um fyrir-
gefninguna. „Pað er ekki fyrr en
eftir að þú uppgötvar, að til er
Siðalögmál og Afl að baki því
lögmáli, að þú hefur fótum troðið
það lögmál og með því komið þér
úr samræmi við það Afl - og ekki
andartaki fyrr - að kristin trú nær
að tala til þín. í veikindum þín-
um ljáirðu lækninum eyra. Þegar
þú upplifir að staða þín er næsta
vonlaus muntu skilja út á hvað
kristin trú gengur“ (bls. 37)'.
Fyrirgefningin er persónubundin,
bæði hvað varðar veitanda og
þiggjanda. Guðleg orka getur
ekki fyrirgefið, enda byggir það
kerfi á allt öðrum grunni.
„Búddhisminn gerir ekki ráð
fyrir neins konar æðri máttar-
völdum sem starfi með vitund og
vilja - hvorki góðum né illum.
Hann kennir aðeins lögmál orsaka
og afleiðinga" (bls. 51)'. Kristin
trú boðar almáttugan Guð, ekki
guð, skapara himins og jarðar.
Sköpunin varð fyrir orð Guðs,
ekki pólun andstæðra afla. Hún
kennir að hér í heimi staCi ill öfl,
andaverur vonskunnar (Ef. 6:11-
13). Ljóti karlinn með hornin og
hófana segjum við og glottum.
Pað glotta víst fleiri.
„Ég tel líka að kristin trú og
búddatrú séu í grundvallaratrið-
um samstæð trúarbrögð... þar
sem bæði byggja á bróðurkærleik
og manngæsku" (D 30/10). Hætt
er við að þessi hugtök, bróður-
kærleikur og manngæska, lendi í
menningarlegu ósamræmi. „Ef
við viljum veita bestu hjálpina þá
hlýtur það að verða fyrsta verk-
efnið að bjarga sjálfum sér. En
meðan svo er ekki getum við
samt veitt nokkra aðstoð með því
að leiðbeina þeim sem skemmra
eru á veg komnir; en það má
samt aldrei tálma höfuð-verkefn-
inu, sem er að vinna að sinni eig-
in lausn“ (bls. 11)'. „Kærleikur-
inn er „tæki“... til þess hentugt
að eyða hinni hrapallegu hug-
mynd um sjálfið og hreinsa jafn-
framt hugann af þeim sora sem
frá því stafar... „Hér er ekki um
að ræða þá ást sem við berum til
einhvers sérstaks einstaklings...
Petta er ekki geðbylgja - fremur
almenn og varanleg huglæg af-
staða - afstaða sem er orðin töm
og eðlislæg" (bls. 58)\ í ljósi
Lögmálsins um siðrænt endur-
gjald (bls. 17)’ verður vart um
annað að ræða en huglæga
afstöðu til umhverfisins. Kristin
trú er andhverfa þessa: „Allt,
sem þér því viljið, að aðrir menn
gjöri yður, það skuluð þér og
þeim gjöra; því að þetta er lög-
málið og spámennirnir" (Mt.
7:12). Kristin trú kennir, að okk-
ur beri að stíga fyrsta skrefið.
Hún leggur áherslu á virkni með-
an búddisminn heldur sig við
bakkgírinn. Um framkvæmd
kristinnar trúar verður ekki fjall-
að hér, en víst er slóð kirkjunnar
blóði drifin
Heilun spilar á svipuðum nót-
um og reiki. „Andi lífsins er ekki
aðeins andinn í brjósti okkar
heldur einnig hin samræmandi
orka allrar sköpunar“ (bls. 25)\
Stundum er talað um efsta punkt-
inn í blikinu sem einingarpunkt-
inn. Þessi staður er um 40 cm
ofan við hvirfilinn og tengist and-
legu orkunni... „Pá hefur æðra
Sjálf („Kristur í oss“) (bls. 23)
gripið inn í um stundarsakir
gegnum þennan tengipunkt...
Þetta ber fremur að líta á sem
snertipunkt eða tenginguna við
lífsheildina - almættið" (bls. 25,
innskot mitt)\ „Margt bendir til
að náinn innri skyldleiki sé milli
Sjálfsins og lífsheildarinnar, sem
á máli trúarbragða nefnist Guð“
(bls. 49)J.
Niðurstaða: Trúarlegt hlutleysi
er ekki aðalsmerki reikis eða
heilunar. Bæði kerfin ganga út
frá forsendu samræmdrar orku
allrar sköpunar, lífsheildinni,
almættinu. Pessi kerfi eiga ekki
samleið með öllum trúarbrögð-
um og greinum þeirra. Meðan
landinn lítur á Guð sem guð gref-
ur hann blessaðri barnatrúnni
gröf. Til þessa hafa menn ekki
grafið grafir sem ekki hafa verið
notaðar. Og nú þegar sá tími
nálgast, að menn munu kveljast á
kirkjubekk í klukkutíma eða svo
þetta eina skipti á ári hverju, þá
er vert að hlusta á boðskapinn,
jafnvel hafa fermingarkverið,
þetta rykfallna, upp á vasann.
Omar Torfason.
Höfundur er sjúkraþjálfari á Akureyri.
Heimildir:
1. Baginski & Sharamon, Reiki,
Universal Life Energy LifeRhythm
1988 Mendocino CA 95460 USA.
2. F.Story Samræður um kenningu
Búddha, þýð. Skúli Magn., Víkur-
útgáfan 1986.
3. C.S.Lewis Mere Christianity
Fontana Books 1969.
4. Jörgensen & Ovesen, Heilun,
Orka-vitund-mannþroski, þýð. Úlf-
ur Ragnarsson, Örn & Örlygur
1990.
Frostrásin FM 98,7
Útvarp á Norðurlandi með aðsetur á Akureyri.
Erum komnir í loftið!
Frostrásin FM 98,7
Sími 27687 ★ Útvarp með sál