Dagur - 03.12.1992, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 3. desember 1992 - DAGUR - 9
Atli Vigfússon kennari og formaður Búnaðarsambands Suður-Þingeyinga
leiðbeinir börnunum. Myndir: im
Halla Loftsdóttir leiðbeinir áhugasömum bömum.
Veggmynd af fjárhóp, hvert barn hefur klippt út teiknaða kind og límt ullar-
lagð á belginn.
Jónína leiðbeinir ungum nemanda.
ast ekki til lengur. Og það er orð-
ið úrelt sem til er. Það vantar síð-
an algjörlega efni fyrir fram-
haldsskóla.
Við höfum mætt velvilja skóla-
yfirvalda hér með að gera tilraun
með þessa þemaviku, Upplýs-
ingaþjónustan fylgist með og
vettvangsheimsóknir eru aðeins
byrjaðar fyrir sunnan. Land-
vernd hefur staðið fyrir heim-
sóknum barna á sveitabýli á
sumrin. En það hefur ekki tekist
að fá neina námsefnisgerð í
gang.“
Að þekkja sitt umhverfi
Námsefnið var nálgast frá mörg-
um hliðum í þemavikunpi; teikn-
að, reiknað, skrifað, ort, málað,
tóvinna framkvæmd og litið á
hollustu landbúnaðarafurða. En
vakti fleira fyrir kennaranum og
bóndanum?
„Mér finnst mikilvægt að
kenna krökkum að þekkja sitt
heimaumhverfi. Krakkarnir, sem
komin eru í þriðja bekk, þekktu
ekki öll bæina sem við heimsótt-
um. En nú eru þau betur meðvit-
uð um þennan þátt; að það er til
sveit og bær og hvað er að gerast
á hverjum stað. Að vita hvað
árnar og fjöllin heita er líka liður
í að þekkja sitt umhverfi. Ég
saknaði þess þegar ég var í skóla
að fá ekki að vinna verkefni um
mína heimahaga.
Börnin heimsóttu Mjólkur-
samlag KÞ. Þar var tekið á móti
þeim, hópnum sýndar vörur og
fleira, og boðið að þiggja veiting-
ar. Kjötiðja KÞ bauð börnunum í
pylsuveislu í Heiðarbæ í Reykja-
hverfi. í ferðinni fengu þau að sjá
hesta og geitur, kýr og naut,
kindur, kálfa, hana, endur, hæn-
ur og dúfur. Það var reynt að
leyfa þeim að sjá sem flestar teg-
undir húsdýra. Þegar verkefnið
er unnið er síðan reynt að koma
inn á dýrafræðina, hvaða dýr eru
húsdýr, hvað karlkyn, kvenkyn
og afkvæmi heita, hvað hús dýra
heita, hvað þau borða og hvaða
afurðir þau gefa af sér. Það þyrfti
lengri tíma en viku til að koma
inn á þetta allt.
Er að sýna að þetta er hægt
Til að börn verði betur meðvituð
um eigin þjóðerni, held ég að
meira verði að fara út í það sem
er að gerast í umhverfinu. Ég
hugsa að í framtíðinni, t.d. hvað
Akureyri varðar, þá væri gott að
hafa 2-4 svokallaða skólabændur
á Eyjafjarðarsvæðinu. Það yrði í
þeirra verkahring að taka á móti
börnum og kennurum úr þétt-
býli. Ef bóndinn á að koma í
skólann líka, eins og ég er að
gera núna, þá þarf hann auðvitað
að fá borgað fyrir, og það er
vandamálið. Það er ekki heldur
hægt að ætlast til að bændur fái
hópa í heimsókn að staðaldri yfir
daginn, án þess að þeir fái eitt-
hvað fyrir. Én eins og við vitum
er ekkert fjármagn ætlað til slíkra
hluta.
Ég þekki til við London þar
sem búgarður er gerður út í þessu
skyni, og þar kemur ekki einvörð-
ungu skólafólk heldur einnig elli-
lífeyrisþegar. Fólk kemur að
morgni og tekur þátt í störfum
við búskapinn og gamla fólkið
fær t.d. að stunda tóvinnu.
Bændur hér hafa ekki áttað sig á
að hægt sé að markaðssetja
eitthvað slíkt fyrir þéttbýlisbúa.
Ég held að slíkt væri ekki vandi.
Að þessari tilraun lokinni mun
ég hafa samband við Upplýsinga-
þjónustuna og leggja ákveðna til-
lögu fyrir Stéttarsamband bænda;
hvort ekki sé í alvöru hægt að
skipuleggja og byrja á þessu
starfi. Fyrst mætti gera prufu í
tveim - þrem héruðum, en síðan
er draumurinn að hægt sé að
sinna þessum þætti um allt land.
Ég tel þetta mjög mikilvægt.
Námsefni til að sinna þessum
þætti þyrfti einnig að gefa út hið
fyrsta. Það þarf að vera til staðar
vilji hjá bændum og í skólum fyr-
ir þessu samstarfi. Upplýsinga-
þjónustan kvartar yfir áhugaleysi
og peningaleysi en ég held að til
að byrja með þyrfti þetta ekki að
kosta svo mikið. Þessi þemavika
hérna átti að sýna að þetta er
hægt.“ IM
Auglýsing
um innflutning
á iandbúnaðarafurðum.
Aö gefnu tilefni vill landbúnaðarráðuneytiö taka fram
að innflutningur landbúnaðarafurða takmarkast af
lögum nr. 46/1985 um framleiðslu, verðlagningu og
sölu á búvörum. Innflutningur landbúnaðarvara í
tollskrárnúmerum 1-24, sem lotið hefur takmörkun-
um skv. auglýsingu nr. 313/1990.um innflutnings- og
gjaldeyrisleyfi er háður leyfi stjórnvalda og því
óheimill nema að fyrir liggi heimild landbúnaðarráðu-
neytisins.
Landbúnaðarráðuneytinu, 1. desember 1992.
RAFMAGNSEFTIRUT RÍKISINS
RAFVIRKJAR •
RAFVERKTAKAR
Próf í fagtæknilegum áföngum til löggildingar í
rafvirkjun verður haldið í Tækniskola íslands
mánudaginn 14. desember 1992 kl. 13.15-14.30.
Þátttakendur leggi fram staðfest gögn um að þeir
hafi lokið námskeiðunum eða sambærilegu námi.
Rafmagnseftirlit ríkisins.
Auglýsing í Degi
ber árangur
Vevslanir okkar verða
opnar nmíram leniu
í desember
sem hér segir:
Vöruhús
Raflagnadeild
Byggingavörudeild
Laugardagur
Laugardagur
Laugardagur
Mlðvikudagur
Fimmtudagur
5. desember
12. desember
19. desember
23. desember
24. desember
kl. 10.00-16.00
kl. 10.00-18.00
kl. 10.00-22.00
kl. 09.00-23.00
kl. 09.00-12.00