Dagur - 03.12.1992, Blaðsíða 16
Lögreglan á Akureyri:
Umferðaróhapp
við SamtÚD í
Kræklingahlíð
- kona flutt á
Fjórðungssjúkrahúsið
Laust eftir hádegi í gær varð
umferðarslys á þjóðvegi eitt,
neðan Samtúns í Kræklinga-
hlíð. Kona var flutt af slysstað
á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri, en ekki er vitað um
meiðsl hennar.
Að sögn lögreglunnar á Akur-
eyri voru tvær bifreiðar á leið
suður til Akureyrar. Ökumaður
aftari bifreiðarinnar hugðist taka
framúr, en þá varð það óhapp að
bifreiðarnar skullu saman. Við
áreksturinn kastaðist önnur bif-
reiðin út af vegarkantinum og
hafnaði í djúpum skurði.
„Er að var komið var ljóst að
ökumanninn þurfti að flytja til
sjúkrahúss og bifreiðin er nokk-
uð skemmd,“ sagði talsmaður
lögregiunnar. ój
Safnaðarheimili Dal-
víkurkirkju vígt:
Verður öllu
safliaðarstarfi
mikil lyftistöng
Safnaðarheimili Dalvíkur-
kirkju verður tekið í notkun
með formlegum hætti laugar-
daginn 13. desember nk. kl. 2.
Dagskráin hefst með helgi-
stund í kirkjunni sem prófast-
urinn, sr. Birgir Snæbjörns-
son, annast. Kirkjukór Dalvík-
ur mun syngja og börn úr Tón-
listaskóla Dalvíkur leika á
hljóðfæri.
Síðan verður gengið í hinn
nýja sal safnaðarheimilisins þar
sem formaður sóknarnefndar,
Friðþjófur Pórarinsson, ávarpar
viðstadda. Að því loknu verður
viðstöddum boðið til kaffi-
drykkju og húsið sýnt. Það er
neðri hæð safnaðarheimilisins
sem nú er tekin í notkun, en hún
er 237 fermetrar að stærð og þar
verður samkomusalur, skrifstofa
sóknarprestsins, eldhús, snyrt-
ingar og líkgeymsla. Bygginga-
framkvæmdir hófust haustið 1989
og var verktaki Daltré hf. sem
skilaði húsinu fokheldu árið 1990
en Tréverk hf. hefur séð um inn-
réttingar á neðri hæðinni. Bygg-
ingarkostnaður safnaðarheimilis:
ins er nú áætlaður um 25 milljón-
ir króna. Um kvöldið verður
árlegt aðventukvöld í kirkjunni
og er ræðumaður Guðlaug Bjöms-
dóttir bæjarfulltrúi. GG
© VEÐRIÐ
Veðurstofan gaf út stormspá
fyrir norðurdjúpið í gærkvöldi.
Norðaustlæg átt verður um allt
Norðurland í dag og reiknað
er með að hann hvessi er líður
á daginn með éljagangi.
Áfram verður svalt.
Inga Björsdóttír heiðruð á tímamótum
Inga Björnsdóttir, heimilis-
læknir á Akureyri, lét af störf-
um sl. mánudag eftir giftudrjúg
læknisstörf á Akureyri í yfir 30
ár. Á þessum tímamótum efndi
samstarfsfólk Ingu á Heilsu-
gæslustöðinni á Akureyri til
hófs henni til heiðurs á Hótel
KEA í gær og tók ljósmyndari
Dags þessa mynd við það tæki-
færi. Með Ingu á myndinni er
eiginmaður hennar, Sverrir Sig-
urðsson.
Inga Björnsdóttir útskrifaðist
frá Læknadeild Háskóla íslands
árið 1949. Áratug síðar hóf hún
störf á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri og starfaði þar til árs-
loka 1960. Hún hóf síðan störf
sem heimilislæknir á Akureyri
árið 1961 og hefur verið það í 31
ár. óþh
Framleiðslustöðvun í Kísiliðjunni:
Borgarastyqöldiii í Júgóslavíu
hefur sett strik í reikningiim
Næstkomandi mánudag verður
stöðvuð framleiðsla hjá Kísil-
iðjunni í Mývatnssveit vegna
tregðu í sölu á kísilgúr. Hjól
Kísiliðjunnar munu ekki snú-
ast á nýjan leik fyrr en eftir
áramót. Engum starfsmönnum
verður sagt upp, en þeir hafa I
fallist á að taka út vetrar- og
verslunarleyfi meðan á fram-
leiðslustöðvuninni stendur.
! stór markaður fyrir kísilgúr, en
borgarastyrjöldin hafi sett strik í
reikninginn. „Eigi ég að nefna
'einn markað þar sem orðið hefur
verulegur samdráttur, þá nefni ég
Júgóslavíu. Einnig hefur orðið
samdráttur í sölu til fyrrum
iSovétlýðvelda."
í dag er boðaður fundur stjórn-
ar Kísiliðjunnar þar sem Friðrik
Sigurðsson mun kynna hugmynd-
ir um að aðlaga framleiðslu Kísil-
iðjunnar betur að þörfum nýrra
markaða. Hann vildi að svo
stöddu ekki upplýsa í hverju þær
tillögur felast. óþh
Rauðinúpur ÞH-160
í ljósavélaskipti:
Fiskiðjan hyggst
kaupa Barents-
hafsþorsk
Togarinn Rauðinúpur ÞH-160
landar í heimahöfn, Raufar-
höfn, 8. desember nk. og síðan
verður skipt um Ijósavél í skip-
inu. Þetta verður síðasta lönd-
un Rauðanúps á þessu ári en
skipið fer væntanlega á veiðar
strax í ársbyrjun. Til að tryggja
frystihúsinu hráefni fram undir
jól og í byrjun næsta árs og
tryggja stöðuga atvinnu í hús-
inu er hugmyndin að kaupa
fisk úr Barentshafi af Rússum
með milligöngu Fiskmiðlunar
Norðurlands hf. á Daivík.
Porsteinn Óli Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri segir að ekki sé
alveg ákveðið með vinnutilhögun
um jólin, það ráðist að sjálfsögðu
hvort og hversu mikið af þorski
þeir fái úr Barentshafi og hvort
afli fáist af bátunum. Þó er ekki
reiknað með að unnið verði milli
jóla og nýjárs. Vinnuaflsskortur
hefur verið hjá Fiskiðju Raufar-
hafnar, aðallega hefur vantað
konur í snyrtingu og pökkun,
sem hefur leitt til þess að fiskur-
inn hefur verið unninn í ódýrari
pakkningar.
Guðmundur Guðmundsson
sveitarstjóri segir aðeins tvær
konur á atvinnuleysisskrá í Rauf-
arhafnarhreppi, en þeim var sagt
upp störfum vegna hagræðingar í
rekstri Verslunarfélags Raufar-
hafnar. 11 starfsmenn við loðnu-
bræðslu hjá Síldarverksmiðjum
ríkisins koma inn á atvinnuleysis-
skrá þegar hráefni þrýtur hjá
verksmiðjunni, en þeir dagar eru
tiltölulega fáir síðan loðnuveið-
arnar hófust á þessari haustver-
tíð. Einnig koma trillukarlar nú
inn á atvinnuleysisskrá vegna
banndagakerfisins, en veiðar
báta undir 10 tonnum eru bann-
aðar frá 1. desember til 31. janú-
GG
ar.
Ólafur G. Einarsson, menntamálaráðherra:
Hyggst beita sér fyrir effingu á
þætti verkmenntunar í skólakerfinu
Friðrik Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Kísiliðjunnar, seg-
ir að salan á liðnu hausti hafi ver-
ið lakari en gert hafi verið ráð
fyrir og því hafi menn ákveðið að
grípa til ráðstafana í tíma. Hann
segir að menn geri ráð fyrir að
solutregðan sé tímabundið vanda-
mál, áætlanir miðist við sölu-
aukningu á næsta ári.
Friðrik sagði að ástæða þessara
erfiðleika nú væri fyrst og fremst
ástandið í Júgóslavíu. Þar væri
Hlutafélagið Hjá á Akureyri,
sem hefur rekið verslunina
Bynor og timburvinnslu að
Glerárgötu 30, var lýst gjald-
þrota hjá Héraðsdómi Norður-
lands eystra sl. þriðjudag.
Versluninni var lokað í fyrra-
kvöld. Hjá hf. var stofnað í
mars 1988. Skuldir fyrirtækis-
ins voru um 25 milljónir króna.
Björn Jósef Arnviðarson, lög-
Ólafur G. Einarsson, mennta-1
málaráðherra, segir að á
undanförnum árum hafi verk-
legt nám átt undir höjgg að
sækja í skólakerflnu á Islandi
og mikilvægt sé að ráða bót á i
fræðingur á Akureyri, hefur verið
skipaður bústjóri þrotabúsins.
Hann sagði í gær að næsta skref
væri innköllun krafna og síðan
lægi fyrir að rýma húsnæði fyrir-
tækisins, sem Bynor leigði annars
vegar af Landsvirkjun (húsnæði
við Glerárgötu) og hins vegar af
Efnaverksmiðjunni Sjöfn (hús-
næði trésmiðjunnar við Hvanna-
velli). óþh
því. Nefnd sem vinni nú að1
mótun menntastefnu í landinu
hafi þetta m.a. til skoðunar í
starfi sínu.
Þessar upplýsingar koma fram
í svari ráðherrans við fyrirspurn
Drífu Hjartardóttur á Alþingi
þar sem hún spyr ráðherrann
hvort hann hyggist efla þátt verk-
menntunar í framhaldsskólakerf-
inu og auka jafnframt tengsl
verkmenntakennslu og atvinnu-
lífsins. Þessu segir ráðherrann
óhætt að svara játandi.
„Nefnd um mótun mennta-
stefnu er meðal annars að athuga
hvernig efla megi þátt verk-
menntunar í framhaldsskólakerf-
inu og gera verklegt nám og
starfsnám að raunhæfum kosti
fyrir breiðari hóp nemenda en nú
er. í þessu efni þarf að mörgu að
huga áður en ákveðin stefnu-
mörkum liggur fyrir,“ segir í
svari Ólafs G. Einarssonar.
„í þessu sambandi má benda á
nauðsyn þess að atvinnulífið
verði mun virkara við skipulagn-
ingu verklegs náms á framhalds-
skólastigi og taki jafnvel á sig
hluta kennslu þar sem við á,“
segir ennfremur í svarinu. JÓH
Bynor á Akureyri
lýst gjaldþrota