Dagur - 09.12.1992, Side 5
Miðvikudagur 9. desember 1992 - DAGUR - 5
Fréttir
Anton Haraldsson og Gunnar Berg, múrarar hjá Múrprýði,
við gipshúðun í einbýlishúsi í Giljahverfi. A innfelldu
myndinni er Hannes Oskarsson með gipsplötur sem notað-
ar eru í milliveggi. Myndir: -kk
Nýjung í múrverki á Akureyri:
Múrað með gipsi í stað steypu
- tímasparnaðurinn stærsti kosturinn, segir
Hannes Óskarsson, múrarameistari
Hannes Óskarsson, múrara-
meistari á Akureyri, sem rekur
fyrirtækið Múrprýði sf., hefur
fest kaup á sérstakri gips-
sprautuvél til gipshúðunar og
kemur í stað venjulegrar múr-
húðunar á veggjum. Að sögn
Hannesar er stærsti kosturinn
við slíka aðferð mikill tíma-
sparnaður og vinna við hvern
flöt samfelld frá upphafi til
enda. Þá er þurrktími gipshúð-
unarinnar mjög stuttur enda
eingöngu notuð innandyra.
„í venjulegu múrverki þarft
fyrst að undirbúa einangrunina
og síðan bíða í um hálfan mánuð.
Þá er hægt að grófpússa og síðan
þarf að bíða aftur í hálfan mánuð
svo hægt sé að fínpússa eða
sandsparsla. Með því að múra
með gipsi er hægt að ljúka við
vinnu í meðal einbýlishúsi á fjór-
um til fimm dögum,“ segir
Hannes.
Á horni við glugga og dyr eru
settir járnlistar og því á ekki að
brotna út úr hornum eins og oft
vill gerast og ekki myndast
sprungur í gipshúðuðum veggj-
um, auk þess sem þeir eru vist-
vænir, að sögn Hannesar. Mjög
auðvelt er að móta gipsið og gerir
ekkert til þó einstakir veggir séu
ekki með hefðbundnu lagi.
Þessi aðferð er nýlunda á
Akureyri og hefur aðeins verið
notuð einu sinni áður, í öðru hús-
inu sem Félag aldraðra byggði
við Víðilund. Ekki er mikið um
að þessi aðferð hafi tekið yfir
Búnaðarsamband Suður-Þingeyinga:
Hyma frá Búvöllum
stígahæst kúa í héraði
Verðlaunaafliending fyrir stiga-
hæstu kýr á svæði Búnaðar-
sambands S.-Þing. á kúasýn-
ingu 1992.
Mánudaginn 7. des. var hald-
inn fundur að Ýdölum á vegum
BSSÞ til þess að kynna úrslit
kúasýningar sem haldin var í maí
s.l. og haldin er fjórða hvert ár.
Jón Viðar Jónmundsson frá
Búnaðarfélagi íslands var mættur
á fundinn og hélt fyrirlestur um
þróun kynbótastarfsins og fór yfir
stöðuna eins og hún er í dag.
Lagði hann áherslu á gildi rækt-
unarstarfsins og hvatti bændur til
dáða.
Á fundinum voru afhent verð-
laun fyrir stigahæstu kýrnar í
hverjum hreppi á sambandssvæð-
inu svo og bikar fyrir stigahæstu
kúna í héraðinu.
Alls voru skoðaðar 452 kýr, en
81 bú er í skýrsluhaldi og eru S.-
Þingeyingar með bestu almennu
þátttöku í því á landinu í
prósentum talið.
Stigahæsta kýrin í héraðinu var
Hyrna 145 frá Búvöllum í Aðal-
dal, eign Sveinbjarnar Sigurðs-
sonar bónda þar og hlaut hún
jafnframt verðlaun sem besta
kýrin í Aðaldælahreppi.
Aðrar kýr hlutu verðlaun í
eftirtöldum hreppum:
Stjarna 113 frá Sólvangi í Háls-
hreppi. Grind 104 frá Hriflu í
Ljósavatnshreppi. Bauga 71 frá
Úlfsbæ í Bárðdælahreppi. Agnes
69 frá Skútustöðum í Skútustaða-
hreppi. Dumba 113 frá Hólum í
Reykdælahreppi. Hyrna 94 frá
Reykjavöllum í Reykjahreppi.
Hyrna 21 frá ísólfsstöðum á
Tjörnesi.
Verðlaunin afhenti Hlífar
Karlsson, mjólkurbússtjóri KÞ,
en samlagið gaf verðlaunagrip-
ina.
Athygli vakti að þrjár kúnna
heita Hyrna, en því miður eru
kálfar undan hyrndum kúm ekki
notaðir til framhaldsræktunar á
sæðingarstöðvum. Fréttatilkynning.
hefðbundið múrverk en hún er
þó nokkuð notuð á höfuðborgar-
svæðinu. „Þetta er þróun sem
ekki er hægt að horfa framhjá,“
segir Hannes.
Hann segir að minni málning
fari á gipshúðaða veggi en veggi
sem múraðir eru með gamla lag-
inu. Þá skiptir hitastigið ekki
máli og hægt að kynda húsin vel
strax og verkinu lýkur.
Þá eru Hannes og hans menn
farnir að hlaða milliveggi með
gipsplötum sem eru 65x50 cm að
stærð. Plöturnar sem eru með
mjög sléttri áferð, læsast saman
og límdar þannig með lími sem
þornar á um hálfri klst. Plöturnar
eru líkt og gipsið, fluttar inn frá
Frakklandi og þær eru til í þrem-
ur þykktum. Hannes segir það
ekkert vandamál að leggja lagnir
eins og pípu- og raflagnir í slíkar
plötur. Fræst er fyrir lögnum og
síðan sprautað yfir með gipsi.
-KK
Hlutabréfasjóðirnir:
Hlutabréfasjóður Norðurlands
með bestu raunávöxtunina
- eini sjóðurinn með jákvæða
raunávöxtun það sem af er ári
Samkvæmt nýrri samantekt
Kaupþings hf. skilar Hluta-
bréfasjóður Norðurlands bestri
raunávöxtun hlutabréfasjóð-
anna á landinu fyrstu 10 mánuði
ársins. í raun er sjóðurinn sá
eini sem skilar jákvæðri raun-
ávöxtun. Rúmt ár er liðið frá
stofnun Hlutabréfasjóðs Norð-
urlands og er umfang sjóðsins
nú um 35 milljónir og vonast er
til að hann verði orðinn 50
milljónir um áramót.
„Þetta helgast fyrst og fremst
af því að okkar hlutabréfasjóður
er lang yngstur, byrjaði í
nóvember á síðasta ári og við
sáum í janúar þegar megnið af
bréfunum var selt og við vorum
að byrja að fjárfesta, að hluta-
bréfamarkaður var enn á niður-
leið. Því væri ekki skynsamlegt
að fjárfesta mikið í hlutabréfum
heldur höfum við einkum haldið
okkur við örugg skuldabréf og
bankavíxla. En við hyggjumst að
sjálfsögðu auka hlutdeild okkar í
hlutabréfum þegar við horfum
fram á að hlutabréfamarkaður
fari að hressast á ný,“ sagði Jón
Hallur Pétursson hjá Kaupþingi
Norðurlands hf. í gær.
Raunávöxtun eigenda bréfa í
Hlutabréfasjóði Norðurlands er
5,8% fyrstu 10 mánuði ársins
meðan t.d. raunávöxtun Almenna
hlutabréfasjóðsins er neikvæð
um rúm 12% og raunávöxtun
Hámarksvísitölunnar er -19%.
Á meðfylgjandi töflu er yfirlit
yfir ávöxtun hlutabréfasjóðanna
fyrstu 10 mánuði ársins. JÓH
Tryggðu þér
skattaafslátt í tíma
Kaup einstaklinga á hlutabréfum fyrir 94 þúsund
krónur*, veita skattaafslátt upp á 37 þúsund krónur.
Fyrir hjón er upphæöin 188 þúsund krónur og
74 þúsund krónur í skattaafslátt.
Eigum til sölu hlutabréf í eftirtöldum félögum.
Hlutabréfasjóöi Norðurlands hf., Kaupfélagi Eyfiröinga,
Skagstrendingi hf., Sæplasti hf. og Útgerðarfélagi Akureyringa hf.
‘upphæð frá síðasta ári.
áélKAUPÞING
NORÐURLANDS HF
Kaupvangsstræti 4 • Akureyri • Sími 96-24700.