Dagur - 09.12.1992, Side 9
Miðvikudagur 9. desember 1992 - DAGLIR - 9
Tómas Eyþórsson hjá einum „gæðingnum“. Umboðsmennskan með vélsleðana og önnur Polaristæki urðu á 16 árum að stórfyrirtæki en færri vita að
þetta umboð fékk Tómas í gegnum Seríospakka!
„Húsið er að lang stærstum hluta fyrir Polaris-þjónustuna en ætlunin er að verða áfram með hjólbarðaþjónustu en
einskorða hana við minni bfla,“ segir Tómas.
um haf og þar með hófst upp-
byggingin á þessu umboði sem í
dag er orðið að stóru fyrirtæki.
Yélsleðaíþróttin vaxandi
„Vélsleðaíþróttin er vaxandi og
hún stendur yfir lengri tíma en
áður fyrr. Þetta er meira fjöl-
skyldusport en áður og menn eru
þannig útbúnir að þeir keyra með
sleðana á kerrum þangað sem
þeir komast á snjó. Sjálfur er ég á
kafi í vélsleðamennskunni, þetta
er mitt líf og yndi. Maður hrærist
í þessu næstum því 365 daga á ári
þannig að það þarf ekki að koma
á óvart að ég sé með bakter-
íuna.“
Tómas segir að auðvitað fylgi
sala á vélsleðum nokkuð
almennu efnahagsástandi en fyrst
og fremst segir hann söluna fara
eftir veðurfarinu. „Ef mikill snjór
er einn vetur þá kaupa menn
sleða grimmt og jafnvel næsta
vetur á eftir þó hann sé snjólítill.
En ef svo aftur fylgir annar snjó-
leysisvetur í kjölfarið þá dettur
salan niður. Samt er það svo að
alltaf er einhver sala vegna þess
að hópurinn sem ferðast um á
hálendinu er svo stór að það
breytir ekki miklu hvernig snjóa-
lögin eru á láglendi."
Húsið er margra ára
gamall draumur
- Svo við snúum okkur aftur að
byggingunni þá virtist sem þú
hafir sett þér einhverjar ákveðn-
ar vinnureglur við hana?
„Já, ég setti strax fram við
hönnuðina, Arkitektastofuna
Ráðhústorgi, að ég vildi hafa á
húsinu sýningarsal úr gleri og
húsið yrði sérkennilegt en samt
fallegt. Petta leystu þeir frábær-
lega vel að mínu mati og sam-
vinna við þá og aðra sem að
byggingunni komu var góð. Og
ég einsetti mér það að frá upphafi
í byggingunni þá yrði öllu haldið
hreinu, ekkert rusl yrði í kring á
framkvæmdatímanum og að
gengið yrði strax frá húsinu að
utan. Þetta varð skringilegur
byggingarmáti vegna þess að
segja má að húsið hafi verið
byggt innan frá. Þaö hefur verið
margra ára draumur að komast í
snyrtilegt hús í fallegu umhverfi
og geta haft virkilega fallegt í
kringum fyrirtækið. Við vildum
með þessu geta boðið okkar
Polaris-viðskiptavinum góða
þjónustu með útstillingum og
aukahlutaverslun, jafnframt því
sem við vildum koma hér á fót
öðruvísi hjólbarðaverkstæði. Það
er flísalagt með björtum litum.
Ég veit að það er hægt að hafa
hjólbarðaverkstæði í hjarta bæjar
og halda þeim mjög þrifalegum.
Hjá mér hefur alltaf verið mark-
mið að hafa aldrei neitt rusl eða
skít í kringum mig. Svona höfum
við feðgar verið frá því fyrsta og
þetta er góður ávani,“ segir Tóm-
as og brosir.
Akureyringar eiga að
gleðjast yfir vel reknum
fyrirtækjum
Tómas segir alltof viðvarandi
sjónarmið á Akureyri að fyrir-
tæki megi ekki ganga vel. Svo
virðist á stundum sem fólk vilji
hegna þeim aðilum sem gengur
vel í atvinnurekstrinum. Tómas
bendir á að þessarar umræðu
verði stundum vart út í vel rekin
fyrirtæki í bænum. „Ég held að
Texti og myndir:
Jóhann Ólafur Halldórsson
menn ættu að gleðjast yfir vel-
gengni fyrirtækja og það sæist
kannski best ef þau færu úr bæn-
um hve miklu máli þau skipta. Ég
verð að segja að þetta er leiðinda-
hugsunarháttur hjá mörgum
i Akureyringum og menn verða
að reyna að venja sig af þessu og
vera stoltir af því sem verið er að
gera í bænum. Svona umræða er
hrein öfundsýki.“
Þó veiting lóðarinnar við
Undirhlíð til Hjólbarðaþjónust-
unnar-Polarisumboðsins hafi á
sínum tíma verið umdeild þá seg-
ist Tómas Eyþórsson hafa fundið
fyrir ánægju bæjarbúa með húsið
og að fólk verði ekki fyrir von-
jbrigðum með umgengni kringum
það í framtíðinni. Fyrirtækið er
fjölskyldufyrirtæki og með Tóm-
asi stendur Eyþór sonur hans í
þessum rekstri.
Eignast eigin skrifstofu
í fyrsta sinn
Við höldum áfram spjalli okkar
um nýja húsnæðið og Tómas seg-
ir að í fyrsta sinn í 24 ára fyrir-
tækjarekstri sínum hafi hann
eignast góða skrifstofu. Sjálfur
muni hann þó ekki nota hana
mikið enda hafi hann aldrei verið
gefinn fyrir að sitja á rassinum
yfir papptrum allan daginn. Og
þá kemur sagan um stresstöskuna:
„Ég á stresstösku, eins og þeir
kalla, en ég hef aldrei notað hana
hérlendis. Ég hef tvisvar farið
með hana erlendis en nota hana
annars ekki. Mína pappíra fer ég
með í hendinni eða í stakkvasan-
um. Mér finnst vera meira atriði
að vinna fyrirtækið upp heldur en
búa sér til einhverja snobb-
aðstöðu sem maður getur engan
veginn staðið undir eða klæða sig
upp í kjól og hvítt þannig að á
mann megi aldrei falla ryk. Fyrst
núna er ég að byggja alvöruhús
undir starfsemina en þó er það
þannig gert að hver einasti fer-
metri er nýttur og vel skipulagð-
ur.“
Fyrir nokkru hófst starfsemi í
nýja húsinu og um síðastliðna
helgi opnaði Tómas sýningarsal-
inn fyrir vélsleðana og jafnframt
verslun með aukahluti og fatnað
enda er búnaðurinn í kringum
vélsleðamennskuna ekki síður
mikilvægur en sleðarnir sjálfir.
Tómas segist hyggja á formlega
vígslu hússins eftir áramót og þá
koma væntanlega fulltrúar Polar-
is-verksmiðjanna í Bandaríkjun-
um til að vera viðstaddir. Og þá
er það lokaspurningin til Tómas-
ar. Er hann búinn að panta snjó í
vetur.
„Já, mikinn,“ svar hann og
hlær. „Ég segi mönnum að það
verði tvegga metra jafnfallinn
I snjór í allan vetur.“ JÓH
Pantanir teknar
í öllum
matvöru-
verslunum KEA
og í Brauðgerð
KEA
Wi
BRAUOGERÐ