Dagur


Dagur - 09.12.1992, Qupperneq 15

Dagur - 09.12.1992, Qupperneq 15
Miðvikudagur 9. desember 1992 - DAGUR - 15 ÍÞRÓTTIR Bikarkeppnin í körfuknattleik: Liðum Tindastóls gengur vel - mikið um að vera næstkomándi sunnudag Körfuknattleiksfólk úr Tinda- stóli hefur verið að gera góða hluti í bikarkeppni KKI að undanförnu. ÖII þau lið sem félagið sendi í keppnina eru komin áfram. Þar skal fyrst telja meistara- flokk karla og kvenna. Bæði liðin eru komin í undanúrslit og munu keppa um næstu helgi, nánar til- tekið á sunnudaginn. Báðir leikirnir fara fram á Króknum. Karlaleikurinn kl. 20.00, én stelpurnar spila fyrr um daginn, eða kl. 17.00. Karlaliðið etur kappi við Hauka en stelpurnar við íslandsmeistara Keflavíkur. Stelpurnar í ÍBK hafa ekki tapað leik það sem af er vetrar. í báð- um leikjum verður örugglega hart barist, enda hafa bæði lið góða mögleika á að komast áfram. Nánar verður fjallað um leikina þegar nær dregur helginni. Yngri flokkarnir hafa líka ver- ið að gera það gott. Unglinga- flokkur, drengjaflokkur og 10. flokkur karla eru allir komnir í 8. liða úrslit í bikarkeppninni. Þá er unglingaflokkur kvenna kominn í 4 liða úrslit. Um síðustu helgi unnu strákarnir í drengjaflokki Tindastóls jafnaldra sína í Grindavík örugglega. Lokatölur voru 92:68. Desembermót Óðins í sundi: íslands- og Akureyrarmet féllu Ágætis árangur náðist á des- embermóti Öðins sem haldið var í Sundlaug Akureyrar um helgina, en greint var frá helstu úrslitum í blaðinu í gær. Á mótinu féll m.a. eitt íslands- met og nokkur Akureyrarmet. íslandsmetið setti Rut Sverris- dóttir í flokki sjónskertra í 50 m baksundi kvenna á tímanum 37.32. Ómar Þorsteinn Árnason setti 4 Akureyrarmet. í 50 m skrið- sundi í flokki pilta, 50 m bringu- sundi í flokki pilta og karla, 50 m flugsundi í flokki pilta og karla og í 200 m baksundi í flokki pilta og karla. Sif Sverrisdóttir setti glæsilegt Akureyrarmet í 50 m baksundi á tímanum 35.86. Met- ið gildir í flokki telpna, stúlkna og kvenna. Baldur M. Helgason setti Akureyrarmet í 200 m bak- sundi karla á tímanum 2:38.80. Yfirdómari mótsins var Ármann Guðmundsson og keppendur voru allir frá Óðni. Hér koma svo úrslit tveggja efstu í hverri grein. Telpur: 1. Sif Sverrisdóttir 2. Elísabet Ólafsdóttir 35.86 42.31 50 m bringusund: 1. Ómar Þ. Árnason 2. Baidur M. Helgason 33.41 34.58 Drengir: 1. Rúnar Gunnarsson 2. Héðinn Jónsson 39.42 42.09 Svcinar: 1. Helgi M. Tulinius 2. Halldór E. Hauksson 48.61 55.16 Garpar: 1. Karen Malmquist 2. Anna M. Richardsdóttir 42.34 43.55 Konur og stúlkur: 1. Svava H. Magnúsdóttir 2. Sonja S. Gústafsdóttir 39.10 43.31 Telpur: 1. Sif Sverrisdóttir 2. Elísabet Ólafsdóttir 41.65 42.83 Meyjar: 1. Katrín Árnadóttir 2. Ragnhildur Jónasdóttir 45.78 47.68 50 m flugsund: Karlar og piltar: 1. Ómar Þ. Árnason 2. Baldur M. Helgason 27.69 ' 32.03 Rut Sverrisdóttir setti íslandsmet í flokki sjónskertra. 400 m fjórsund: Karlar og piltar: 1. Baldur M. Helgason Drengir: 1. Rúnar Gunnarsson 2. Jósef Sigmundsson Konur og stúikur: 1. Svava H. Magnúsdóttir 2. Rut Sverrisdóttir Telpur: 1. Sif Sverrisdóttir 2. Elísabet Ólafsdóttir 400 m skriðsund: Karlar og plitar: Ómar t>. Arnason Drengir: 1. Jósef Sigmundsson 2. Rúnar Gunnarsson Sveinar: 1. Helgi M. Tulinius Konur og stúlkur: 1. Svava H. Magnúsdóttir 2. Rut Sverrisdóttir Telpur: 1. Sif Sverrisdóttir 2. Elísabet Ólafsdóttir 200 m bringusund: Karlar og piltar: 1. Baldur M. Helgason Telpur: 1. Kristín Haraldsdóttir Meyjar: 1. Rakel B. Káradóttir 2. Dagbjört Pálsdóttir 200 m skriðsund: Sveinar: 1. Helgi M. Tulinius 2. Gunnar Ó. Kristjánsson 100 m baksund: Drengir: 1. Jósef Sigmundsson 2. Héðinn Jónsson 5:13.97 6:27.17 6:35.72 6:17.18 6:20.64 6:05.60 6:40.95 4:24.98 5:25.34 5:54.40 5:58.34 5:32.78 5:37.14 5:29.20 5:31.60 2:38.80 4:27.26 3:57.66 4:04.10 2:51.60 3:26.87 1:27.70 1:33.46 50 m skriðsund: Karlar og piltar: 1. Ómar Þ. Árnason 2. Baldur M. Helgason 25.93 28.25 Drengir: 1. Rúnar Gunnarsson 2. Jónas E. Thorlacius 31.21 33.77 Sveinar: 1. Helgi M. Tulinius 2. Halldór E. Hauksson 34.57 36.92 Konur og stúlkur: 1. Svava H. Magnúsdóttir 2. Sonja S. Gústafsdóttir 31.43 31.83 Telpur: 1. Sif Sverrisdóttir 2. Elísabet Ólafsdóttir 30.28 31.61 Meyjar: 1. Ragnhildur Jónasdóttir 2. Rakel Káradóttir 36.50 40.36 50 m baksund: Karlar og pijtar: 1. Ómar Þ. Árnason 2. Baldur M. Helgason 30.55 32.40 Drengir: 1. Rúnar Gunnarsson 2. Jósef Þ. Sigmundsson 39.14 41.93 Sveinar: 1. Helgi M. Tulinius 2. Halldór E. Hauksson 43.10 46.40 Konur og stúlkur: 1. Rut Sverrisdóttir 2. Svava H. Magnúsdóttir 37.32 38.50 Drengir: 1. Rúnar Gunnarsson 38.99 2. Ulfar Steinþórsson 41.58 Sveinar: 1. Helgi M. Tulinius 47.52 Telpur: 1. Sif Sverrisdóttir 34.18 2. Elísabet Ólafsdóttir 37.20 100 m bringusund: Drengir: 1. Rúnar Gunnarsson 1:30.53 Sveinar: 1. Gunnar Ó. Kristjánsson 1:52.65 2. Halldór E. Hauksson 1:53.59 Telpur: 1. Kristín Haraldsdóttir 1:59.68 Meyjar: 1. Ragnhildur Jónasdóttir 1:44.20 2. Rakel B. Káradóttir 1:47.65 Hnátur: 1. Anna Borg 2:11.17 2. Sigurbjörg Valgeirsd. 2:14.25 100 m. skriðsund: Sveinar: 1. Gunnar Ó. Kristjánsson 1:31.21 Telpur: 1. Kristín Haraldsdóttir 1:49.81 Meyjar: 1. Ragnhildur Jónasdóttir 1:24.81 2. Rakel B. Káradóttir 1:35.61 200 m baksund: Karlar og piltar: 1. Ómar Þ. Árnason 2:20.60 Leiðréttmg Eins og greint var frá í blaðinu í gær þá sigraði A-Iið Þórs á Coca-Cola mótinu um helgina. Eitthvaö skoluðust þó nöfn liðsmanna til í myndatexta því þar voru skyndilega komnir 3 með nafninu Sigurður Lárus- son. Hið rétta er að sjálfsögðu að sonur Sigurðar Lárussonar þjálf- ara heitir Lárus Orri Sigurðsson og markvörður liðsins Lárus Sig- urðsson. Viðkomandi eru beðnir velvirðingar á ruglinu og vonandi hefur þetta ekki afdrifaríkar afleiðingar á knattspyrnuferil þessara snjöllu leikmanna. Þá slæddist meinleg prentvilla inn í grein um afmæli íþróttahallarinn- ar. Þar var sagt að íþróttahús Glerárskóla væri 10 ára á þessu ári. Húsið var tekið í notkun 12. mars 1977 og er því að sjálfsögðu 15 ára. Halldór Arinbjarnarson Ólaftir Eiríksson Vonandi verður Ingvar Ormarsson orðinn til í slaginn á sunnudag. íþróttamaður ársins Iþróttasamband fatlaðra hefur valið Ólaf Eiríksson sem íþróttamann ársins 1992. Ólafur, sem keppir í sundi, stóð sig frábærlega á Ólympíu- móti fatlaðra í haust, setti m.a. 1 heimsmet og 2 Ólympíumet. Þá setti hann fjölda íslandsmeta á árinu. Hann er því vel að þessu kominn. Sveitakeppni Islands í júdó: KA-menn sterkir Sveitakeppni íslands í júdó, fyrir 14 ára og yngri, fór fram í Iþróttahúsi Fjölbrautaskólans í Breiðholti um síðustu helgi. KA sendi 2 sveitir til keppn- innar. A-sveitin varð í 2. sæti og B-sveitin tapaði naumlega í keppni um 3 sæti. Jón Óðinn Óðinsson, júdó- þjálfari, kvaðst sæmilega sáttur við árangurinn. Mótið var sem fyrr segir fyrir 14 ára og yngri, en allir keppendur KA voru á aldrinum 11-12 ára. A-sveitina skipuðu Jóhannes Gunnarsson, Björn Davíðsson, Víðir Guðmundsson og Sverrir Már Jónsson. Alls voru 12 sveitir á mótinu en sum félög sendu 2 sveitir, líkt og KA. Um næstu helgi verður síðan stórmót í KA-húsinu, en þá fer fram sveitakeppni íslands fyrir 21 árs og yngri og í fullorðinsflokki. Keppnin verður nánar kynnt síð- ar í vikunni. Broddí badmmton- maður ársins Stjórn BSÍ hefur valið Brodda Kristjánsson badmintonmann ársins 1992. Broddi varð þrefaldur íslands- meistari á árinu og vann, eða var í úrslitum, á nánast öllum mótum sem hann tók þátt í innanlands. Einnig stóð hann sig vel á mótum erlendis. - fyrír þig og þina fjöiskyidu! 50. leikvika Nær bæjarstjórinn að sigra Loga Má ? Ekki vafðist það fyrir getraunaspekingnum Loga Má Einarssyni að skáka Einari P. Árnasyni. „Eg sem hélt að hann væri svo góður í getraunum," sagði Logi þegar honum voru færð tíðindin um enn einn sigurinn. Logi var greinilega talvert undrandi á eigin frammistöðu þó hann léti ekki á neinu bera. Nú hefur Logi 4 sinnum sigrað í getraunaleiknum. Leikurinn færist nú loks út fyrir Akureyri og er mál til komið. Logi skorar nefnilega á Kristinn Hreinsson starfandi bæjarstjóra í Olafsfirði. Kristinn tók að sjálfsögðu vel í áskorunina og kvaðst mundu gera sitt besta til að leggja Loga að velli. Ólafsfirðingar eru þekktir knattspyrnumenn og því aldrei að vita nema það takist. Salan á getraunaseðlum tók aldeilis kipp í síðustu viku, enda sprengipottur í verðlaun. Ekki reyndust íslendingar þó mjög getspakir, því enginn náði 13 réttum. Hér á landi var selt fyrir 13,2 milljónir, sem er aukning um 4 milljónir milli vikna. GA trónir á topnum yfir þá aðila sem duglegastir eru að tippa. Ríflega 110 þúsund raðir skrifast á Golfklúbbinn í síðustu viku og hafa þeir golfklúbbsfélagar fyrir löngu jarðað önnur félög bæði hvað varðar sölu og vinninga. Logi Kristinn '03 Q. i/i 'K 1. Aston Villa-Nottingham Forest 1 1 2. Ipswich-Man. City 1 X 3. Leeds-Sheffield Wed 1 1 4. Man. Utd-Norwich 12 1X 5. QPR-Crystal Palace 1 1 6. Sheffield Utd.-Everton 12 12 7. Southampton-Coventry 1 X 8. Tottenham-Arsenal 1X X2 9 Wimbledon-Oldham 1 1X 10. Notts County-Cambridge 12 X 11. Peterborogh-Portsmouth 1 1X 12. Sunderland-Brentford 1X 1 13. Swindon-Tranmere 12 12 Upplýsingar um rétta röð og vinningsupphæðir: Lukkulínan 99-1000 • Textavarpið síða 455 Símsvari 91-814590 • Grænt númer 99-6888

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.