Dagur - 23.02.1993, Blaðsíða 6

Dagur - 23.02.1993, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 23. febrúar 1993 Nvjar hugmyndir í Skólamál hafa verið í brennidepli á síðustu dögum og vikum. Nefnd um mótun menntastefnu hefur skil- að áfangaskýrslu sem tillögur í skólamálum. Nefnd þessa skipa 18 einstaklingar og er hún skipuð af menntamálaráðherra. Það vakti strax ákveðna tortryggni að nefnd- in er nær einlit hvað snertir pólitísk- ar skoðanir og hafa hagsmunaaðil- ar, sem tengjast skólamálum á ýmsan hátt, nær ekkert komið að þessari vinnu fram til þessa. Þrátt fyrir þetta er það mín skoð- un að þessi skýrsla geti verið grundvöllur umræðna um skóla- starf. Stefna Framsóknarflokksins Framsóknarflokkurinn hélt fjöl- mennt flokksþing sl. haust þar sem skólamál voru að sjálfsögðu til umfjöllunar. Frumdrög að ályktun um menntamál voru unnin með skólafólki á Vesturlandi. Það er nýbreytni í undirbúningsvinnu fyrir flokksþing innan Framsóknar- flokksins að vinna drög að ályktun- um úti í kjördæmunum. Þessi nýj- ung mæltist mjög vel fyrir og verð- ur áreiðanlega viðhöfð oftar. Það var samdóma álit þeirra sem tjáðu sig um skólamál á þessum vettvangi að breytinga væri þörf á skólakerfinu í heild sinni, en fyrst og fremst væri það framhaldsskól- inn sem krefðist róttækra breyt- inga. Leikskóli - grunnskóli í ályktun flokksþingsins um skólamál er lýst stuðningi við nýsett lög um leikskóla, þar sem m.a. er kveðið á um að leikskólinn sé hluti af menntakerfinu. Þó er talið nauðsynlegt að setja skýrari markmið fyrir starf í leikskóla og tengja það betur starfi grunnskól- ans. í ályktun um grunnskólann er m.a. bent á að gott vald á lestri sé undirstaða náms og því þurfi að leggja aukna áherslu á lestrar- kennslu. Bent er á að ein besta forvörn gegn lestrarerfiðleikum sé að börn umgangist bækur frá unga aldri og að lesið sé fyrir þau. Þá kemur fram að búa þurfi þannig að grunnskólanum að hann geti ávallt komið til móts við mismunandi þarfir nemenda. Lögð er áhersla á að einsetinn skóli, lengri og sam- felldur skóladagur og skólamáltíðir í öllum skólum landsins, verði að veruleika innan tíu ára. Flokksþingið benti á að það þyrfti að auka val í tækni- og verk- legum greinum í efri bekkjum skól- ans til þess að betur megi koma til móts við og virkja ólík áhugasvið og mismunandi hæfileika nemenda. Auk þess væri nauðsyn- legt að efla náms- og starfsfræðslu. Jafnframt verði samstarf heimila og skóla aukið. Þá er varað við að færa kostnað við grunnskólahald alfarið til sveitarfélaga nema að mjög vandlega athuguðu máli og breyttum aðstæðum. Framhaldsskóli - háskóli Flokksþingið lagði áherslu á að all- ir skyldu eiga rétt á framhaldsnámi við sitt hæfi. Endurskoða þarf námsframboð og áherslu í fram- haldsskóla, m.a. með því að fjölga stuttum námsbrautum, sem búa nemendur undir tiltekin störf. Þá var lögð áhersla á að endurskipu- leggja þurfi og efla hvers konar verk- og starfsnám og vinna að efl- ingu menntunar og skólahalds á framhaldsskólastigi í samráði við aðila vinnumarkaðarins. í ályktun um málefni háskóla- stigsins var m.a. lögð áhersla á að standa þurfi vörð um Háskóla íslands sem æðstu menntastofnun landsins og að leggja beri áherslu á rannsóknir og tækniþróun við Háskólann og gildi þeirra til nýsköpunar atvinnulífsins. Þá var lýst stuðningi við það merkilega framtak Kennaraháskólans að bjóða upp á kennaranám með fjar- kennslusniði. Bent er á mikilvægi háskólanáms utan höfuðborgar- svæðisins, ekki síst vegna þeirra jákvæðu áhrifa, sem það hafi á byggðaþróun og var í því sambandi sérstaklega bent á Háskólann á Akureyri. Flokksþingið taldi að auka þyrfti fjárframlög til Rannsóknaráðs ríkisins og Vísindaráðs og Rann- sóknasjóðs Háskólans. Mat á skólastarfi Flokksþingið lagði áherslu á að efla þyrfti mat á skólastarfi á öllum skólastigum og að æskilegt væri að það færi að sem mestu leyti fram innan skólanna sjálfra sem þáttur í þróunarstarfi kennara. Á þann hátt yrði hægt að meta það starf og þá þjónustu, sem fram fari í viðkom- andi skóla og um leið að vinna að samræmingu í skólamálum og betri tengslum milli skólastiga. Samanburður við áfangaskýrsluna Ekki ætla ég mér að fara í nákvæm- an samanburð á stefnu Framsókn- arflokksins í skólamálum og þeim tillögum, sem nú liggja fyrir frá nefnd menntamálaráðherra. Mér sýnist þó fljótt á litið að þar fari ýmislegt saman og er það vel. Ný grunnskólalög í síðasta mánuði voru samþykkt á Alþingi af þingmönnum stjórnar- flokkanna lög um grunnskóla. Lög þessi framlengdu þau ákvæði í lög- um frá fyrra ári, svokölluðum bandormi, að skerða kennslu- stundafjölda nemenda og heimila fjölgun í bekkjum. Þessi framleng- ing á að spara ríkissjóði 100 millj- ónir króna á yfirstandandi ári. Fyrirr u.þ.b. ári fór fram mikil umræða um skólamál í þjóðfélag- inu, í tengslum við hinn illræmda bandorm og voru foreldrar virkari í þeirri umræðu en oftast áður, og er það vei. Grunnskólinn - samanburður milli landa Aðstæður grunnskólabarna eru um margt einstæðar hér á landi þegar borið er saman við þau lönd, sem við íslendingar berum okkur gjarn- an saman við. Ég leyfi mér að halda því fram að ástandið sé hvergi verra en í Reykjavík. Þar er skóladagurinn mest slitinn í sundur og þar er mest um það að börn séu ein á heimilum. Það sem er þó verst af öllu er að í einhverjum til- fellum fá þau ekki að koma heim heldur er nestispakki hengdur á hurðarhúninn og er barninu ætlað að hirða hann þegar það kemur úr skóla. Auðvitað vonum við að slíkt og þvílíkt sé algjör undantekning, en engu að síður vita allir að ástandið er ekki eins og það ætti að vera, hvort heldur að litið er til líð- an barna eða framtíðar þessarar þjóðar. Eitt brýnasta hagsmunamál þjóðarinnar Lengri og samfelldur skóladagur hlýtur því að vera eitt brýnasta hagsmunamál þessarar þjóðar. Það vekur því nokkra athygli að í þeirri áfangaskýrslu, sem nú liggur fyrir, eru ekki sett nein tímamörk á það hvenær slíkt eigi að vera komið til SJÚKRAHÚS SUÐURLAND_S_______ v/Arveg 800 Setfoss - Pósthólf 241 - Slmi 98-21300 Iðjuþjálfi og hjúkrunarfræðingar Meðferðarheimilið að Sogni I Ölfusi óskar eftir að ráða iðjuþjálfa I hlutastarf. Meðferðarheimilið er stofnun fyrir 7 vistmenn, sem dæmdir hafa verið I gæslu á viðeigandi stofnun, og miðar starfsemin að því að veita þeim bestu heilbrigöisþjónustu sem völ er á hverju sinni. Ennfremur óskar meðferðarheimilið að ráða 2 hjúkmnarfræöinga. Sérfræöimenntun I geðhjúkmn æskileg. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu sendar framkvæmdastjóra Sjúkrahúss Suðuriands, Selfossi, fyrir 15. mars 1993. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst Upplýsingar um störfm gefur Erlln Óskarsdóttir hjúkmnarforstjóri I slma 98-34853 á dagvinnutíma. Stjómin Bókhald Óska eftir að ráða fyrir einn af viðskiptavin- um okkar starfskraft á skrifstofu. Um heilsdagsstarf er að ræða. Starfið felst m.a. í merkingum, færslu og afstemm- ingum á bókhaldi, launaútreikningi, tollskýrslugerð og öðrum almennum skrifstofustörfum. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst. DDDRÁÐNINGAR Endurskoðun Akureyri hfv Gjerárgötu 24, sími 26600 skólamálum Valgerður Sverrisdóttir. Á heildina litið er sú áfangaskýrsla um mót- un nýrrar mennta- stefnu, sem nú hefur verið kynnt, góður grundvöllur að áfram- haldandi umfjöllun um menntamál og frum- drög að lagasetningu. Það hlýtur að verða verkefni nefndarinnar nú að leita umsagna hjá ýmsum þeim aðilum þjóðfélagsins, sem best þekkja til skólamála. framkvæmda heldur aðeins sagt að stefnt skuli að því að koma á ein- setnum skóla með samfelldum skóladegi um allt land og að lengja þurfi kennslutíma yngri barna og gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að öll börn hefji skóla- göngu að morgni. Grunnskólalögin frá 1991 í þeim grunnskólalögum, sem sam- þykkt voru af þingmönnum allra flokka á vorþingi 1991, var að finna ákvæði þess efnis að þessum mark- miðum skyldi náð innan 10 ára þaðan í frá. Ennfremur var að finna í þeim lögum ákvæði sem kváðu á um það að skólamáltíðum skyldi komið á í grunnskólum á næstu 3 árum. Grunnskólinn til sveitarfélaganna Tillögur nefndarinnar gera ráð fyr- ir því að rekstur grunnskóla færist að fullu til sveitarfélaga. Þetta er mál, sem þarfnast mjög nákvæmrar athugunar og gæta verður þess að ana ekki að neinu. Það eru aðeins fjögur ár síðan að gagngerar breyt- ingar voru gerðar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Það má því segja að á margan hátt sé rangt að fara strax að hræra upp í því máli, sem hafði tekið mjög langan tíma að ná samstöðu um. Öllum hlýtur að vera ljóst að sveitarfélög eru mjög misvel undir það búin að taka við þessu verk- efni, þrátt fyrir það að þeim verði tryggður tekjustofn á móti. Eg treysti þó sveitarfélögum landsbyggðarinnar á margan hátt betur til þess að vilja standa með sóma að skólamálum heldur en t.d. Reykjavíkurborg. Ef við förum yfir áherslur þess sveitarfélags á síðustu árum í fjárfestingarmálum, þá hafa þær ekki legið á „mjúku málunum", svo sem uppbyggingu leikskóla, heldur miklu frekar í gallharðri steinsteypu skrauthýsa, og er hætt við að svo verði áfram á meðan Sjálfstæðisflokkurinn fer með stjórn borgarinnar. Þó má vera að þessar áherslur hafi fyrst og fremst verið fylgifiskur Davíðs Oddssonar sem borgarstjóra. Lög um framhaldsskóla Enginn vafi er á því að framhalds- skólinn hefur ekki verið að þróast í rétta átt á undanförnum árum, hvort sem því hefur verið um að kenna að lög um framhaldsskóla hafi verið slæm eða hinu að of lengi hafi skort heildstæða lagasetningu um framhaldsskólann. Sú áhersla, sem lög hefur verið á stúdentspróf- ið, hefur verið óæskileg og því tel ég þá stefnu nefndarinnar, að falla frá því að allt almennt nám í fram- haldsskólum sé byggt þannig upp að það nýtist sem hluti af stúdents- prófi, af hinu góða. í lögum um framhaldsskóla frá 1988 segir í 2. gr. þar sem fjallað er um hlutverk framhaldsskólans. „Hlutverk framhaldsskóla er eftirfarandi: - Að búa nemendur undir líf og starf í lýðræðissamfélagi með því að skapa skilyrði til náms og þroska við allra hæfi. - Að búa nemendur undirstörfí atvinnulífinu með sérnámi er veiti starfsréttindi. - Að búa nemendur undir nám í sérskólum og á báskólastigi með því að veita þeim þekkingu og þjálfun í vinnubrögðum. “ í sjálfu sér er ekki hægt að sjá að þessi grein geti verið orsök þess að mál hafa þróast eins og raun ber vitni, heldur megi frekar álykta sem svo að þessum markmiðum hafi ekki verið fylgt nægilega vel eftir og ásóknin í stúdentshúfurnar hafi alls staðar. ráðið ferðinni. Mat, úttektir, samræmd próf Mat á skólastarfi fær allítarlega umfjöllun í skýrslu nefndarinnar. Lagt er til að heildarmat á mennta- kerfinu verði tekið upp á næstu árum til að afla áreiðanlegra upp- lýsinga um þætti eins og innra eftir- lit í skólum, skólanámskrá, námsárangur nemenda, umgengni nemenda og aga í skólum, kennslu- hætti og áhrif þeirra á námsárangur svo og tengsl skóla og heimila. Á síðasta þingi lagði ég fram þingsályktunartillögu um mat á skólastarfi ásamt nokkrum öðrum þingmönnum. Sú tillaga byggði á því að mat á skólastarfi færi að sem mestu leyti fram innan skólanna sem þáttur í þróunarstarfi kennara. í tillögum nefndarinnar er að mínu mati of mikil áhersla lögð á úttektir og notkun samræmdra prófa. Að lokum Á heildina litið er sú áfangaskýrsla um mótun nýrrar menntastefnu, sem nú hefur verið kynnt, góður grundvöllur að áframhaldandi umfjöllun um menntamál og frum- drög að lagasetningu. Það hlýtur að verða verkefni nefndarinnar nú að leita umsagna hjá ýmsum þeim aðilum þjóðfélagsins, sem best þekkja til skólamála. Vonandi verður tekið tillit til sjónarmiða þeirra áður en skýrslan verður færð í frumvarpsform. Það hefði að mínu mati verið eðlilegra að þessir aðilar hefðu komið að málinu fyrr en það er auðséð að menntamála- ráðherra er annarrar skoðunar. Valgerður Sverrisdóttir. Höfundur er alþingismaður Framsóknar- flokksins í Norðurlandskjördæmi eystra.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.