Dagur - 23.02.1993, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 23. febrúar 1993 - DAGUR - 7
- skoruðu 93 stig í síðari hálfleik
Þrórsarar unnu stórsigur á liði
Bolvíkinga þegar liðin mættust
á Bolungarvík sl. Iaugardag.
Þórsarar höfðu yfírburði á öll-
um sviðum og sigruðu með 101
stigs mun, 160:59. Þar með
hafa Þórsarar unnið stórsigur
tvær helgar í röð, en um síð-
ustu helgi unnu þeir Hött með
54 stiga mun.
Islandsmet hjá Þór
- sigurinn gegn Bolvíkingum sá stærsti
í meistaraflokki í körfubolta
Davíð Hreiðarsson skoraði 30 stig
fyrir Þór.
Nokkuð víst þykir að árangur
Þórs á laugardaginn sé
íslandsmet. Aldrei fyrr hefur
verið jafn mikill munur í
keppni á íslandsmóti í meist-
araflokki. Gamla metið settu
Haukar í leik gegn Borgnes-
ingum og var það 160:70.
Það munar því 11 stigum á
því og stigaskori í leiknum á
laugardaginn. Líkast til verður
þetta met seint slegið. Ekki er
heldur ólíklegt að aldrei áður
hafi verið skoruð 93 stig í einum
hálfleik, þó það hafi ekki feng-
ist staðfest. Þórsarar geta því
vel við þennan árangur unað.
„í raun er kannski lítið hægt að
segja um svona leik,“ sagði Þórir
Jón Guðlaugsson, annar þjálfari
Þórs. Þórsarar voru einfaldlega
miklu betri, eins og tölurnar
sýna. Staðan í hálfleik var 67:31
fyrir Þór og í þeim síðari tóku
þeir endanlega öll völd á vellin-
um og skoruðu þá 93 stig, sem er
afar sjaldgæft í körfubolta.
Davíð Hreiðarsson var stigahæst-
ur Þórsarar með 30 stig og Birgir
Ö. Birgisson stóð eins og klettur í
Ivörninni og hirti um 30 fráköst.
Stig Þórs skoruöu: Davíð Hreiðarsson
30, Konráð Óskarsson 25, Arnsteinn
Jóhannesson 19, Örvar Erlendsson 17,
Azuolas Zeduikis 16, Helgi Jóhannesson
15, Einar Valbergsson 14, Hafsteinn
Lúðvíksson, Einar H. Davíðsson 6 og
.Birgir Ö. Birgisson 6.
Konráð Óskarsson og lærisveinar hans hjá Þór fóru létt með Iið Bolvíkinga
á laugardaginn. Konráð skoraði 25 stig. Mynd: Robyn
íslandsmótið í handknattleik, 4. flokkur:
KA-krakkar unnu tvöfalt
Um helgina var mikið um að
vera í KA-húsinu en þar fór þá
fram keppni í 4. flokki Islands-
mótsins í handknattleik karla
Bikarkeppni kvenna í blaki:
KA-stelpur í úrslit
- unnu HK 3:2 en töpuðu 3:0 í deildinni
KA-stelpur komust á föstu-
dagskvöldið í úrslit í bikar-
keppninnar í blaki með 3:2
sigri á liði HK. Það horfði ekki
vel í byrjun því HK-stelpur
unnu tvær fyrstu hrinurnar
áður en KA komst inn í leik-
inn. Með mikilli baráttu og
sterkum sóknarleik náðu þær
síðan að vinna sigur og munu
mæta Víkingsstelpum í úrslit-
um, að öllum líkindum 6 mars.
Sigur HK í tveimur fyrstu hrin-
unum var mjög sanngjarn. Liðið
var mun samstilltara en KA-liðið
sem virkaði dauft og áhugalaust.
Það var sérstaklega vörnin sem
var betri hjá HK og var það raun-
ar mest allan leikinn. Fyrsta hrin-
an fór 10:15 og sú næsta 8:15, en
sú hrina var með eindæmum löng.
KA skipti um gír í 3. hrinu og
gerði út um hana á mjög skömm-
um tíma. KA skoraði 7 fyrstu
stigin, komst í 14:4 og vann
15:5. Næsta hrina var jöfn í byrj-
Bikarmót í skíðagöngu:
Norðlendingar fóru heim
með 7 af 11 verðlaunum
Á laugardaginn var haldið á
ísafírði bikarmót SKI í skíða-
göngu og keppt í 3 yngri flokk-
um hjá strákum og 1 hjá
stelpum. Til keppni voru
skráðir 23 en nokkur afföll
urðu. Verður var gott og færi
einnig. Keppt var með frjálsri
aðferð.
Norðlendingar mættu sterkir
til leiks og unnu til 7 verðlauna af
11 á mótinu. í efstu sætunum í
hverjum flokki urðu:
Stúlkur 13-15 ára, 3,5 km:
1. Svava Jónsdóttir, Ól. 14,06
2. Heiðbjört Gunnólfsdóttir, Ól. 14,09
Drengir 13-14 ára, 5 km:
1. Hafliði Hafliðason, Sigl. 17,01
2. Jón G. Steingrímsson, Sigl. 17,07
3. Helgi Jóhannesson, Ak. 17,58
Drengir 15-16 ára, 7,5 km:
1. Arnar Pálsson, ís. 20,32
2. Hlynur Guðmundsson, ís. 22,17
3. Albert H. Arason, Ól. 22,45
Piltar 17-18 ára, 15 km:
1. Gísli E. Árnason, ís. 40,53
2. Árni F. Elíasson, ís. 43,27
3. Kári Jóhannesson, Ak. 47,30
un en þegar staðan var 4:4 sagði
KA skilið við HK og breytti stöð-
unni á skammri stund í 13:4. HK
náði aðeins að klóra í bakkann
en 15:7 sigur KA var aldrei í
hættu.
Það þurfti því að gera út um
leikinn með oddahrinu og hún
var eins og oddahrinur eiga að
vera, jöfn og spennandi. Jafnt
var á öllum tölum f byrjun en KA
þó yfirleitt heldur á undan. í síð-
ari hluta hrinunnar munaði
lengstum tveimur stigum. Jasna
Popovich gerði síðan út um leik-
inn með fallegu smassi er hún
skoraði 15. stigið fyrir KA, en þá
hafði HK skorað 12. Þar með
tryggði KA sér rétt til að leika til
úrslita um bikarinn.
Auðvelt hjá HK á
laugardaginn
Eitthvað virtist bikarleikurinn
sitja í KA-stelpum þegar þær
mættu HK á laugardaginn. Allt
gekk á afturfótunum hjá liðinu,
einbeitingin var engin og HK
vann auðveldan sigur í þremur
hrinum, 15:12,15:8 og 15:4. „Við
náðum einfaldlega ekki saman og
gerðum ekkert til að spyrna við
fótum. Ég held að allt liðið hafi
leikið undir getu. En við erum
bjartsýnar á framhaldið og ætlum
okkur að laga það sem þarf að
laga,“ sagði Halla Halldórsdóttir
fyrirliði KA um leikinn.
og kvenna. KA átti lið í báðum
flokkum. Nýttu þau sér heima-
völlin vel og höfnuðu bæði í 1.
sæti. Það verður að teljast
glæsilegur árangur og viður-
kenning fyrir það uppbygging-
arstarf sem unnið hefur verið
hjá félaginu.
Bæði lið höfðu unnið Norður-
landsriðil 4. flokks og tóku nú
þátt í 2. deildar keppninni. Með
sigrinum eru liðin komin í 1.
deild. Þar verður nú keppt í
tveimur 5 liða riðlum hjá báðum
kynjum. Efstu tvö lið úr hvorum
riðli keppa síðan til úrslita um
íslandsmeistaratitilinn.
Strákarnir unnu öruggan sigur
í öllum sínum leikjum. „Það sem
réði úrslitum var að við vorum í
miklu betra formi og breiddin var
einnig meiri. Þeir keyrðu oftast
yfir andstæðingana í síðari hálf-
leik. Það kom í ljós á þessu móti
að það skiptir meira máli hvað
gert er á æfingum heldur en að
spila sem flesta leiki. Ekki höfð-
um við leikreynsluna, svo mikið
er víst. Mínir strákar höfðu
grunnatriðin á hreinu, sem sum
hin liðin skorti,“ sagði Jóhannes
Bjarnason þjálfari KA sem getur
vissulega verið ánægður með
árangurinn. Eins og hann tók
fram þá á þó enn eftir að reyna á
hvernig liðið stendur sig meðal
þeirra allra bestu. Markahæstir í
liði KA voru Halldór Sigfússon
með 31 mark, Heimir Arnason
skoraði 15, Þórir Sigmundsson 12
og Arnar Árnason 8.
Stelpurnar í KA urðu einnig
efstar. Þær töpuðu einum leik en
fóru engu að síður áfram þar sem
þær voru með betra markahlut-
fall en Víkingur og FH. Einvarð-
ur Jóhannsson þjálfari stelpn-
anna var ánægður með árangur-
inn. „Stelpurnar stóðu sig vel og
ég var ánægður með leik þeirra.
Við vissum auðvitað lítið hvar
við stóðum fyrir mótið og því erf-
itt að segja hvort árangurinn hafi
komið á óvart. Við töpuðum
mjög naumlega á móti Víkingi en
fórum engu að síður áfram og því
ekki hægt annað en vera ánægð-
ur.“ Markahæstar hjá KA voru
Ingibjörg Harpa með 6 mörk,
Anna Bryndís Blöndal með 7 og
þær Sólveig Rósa og Sigríður
Rafna með 6 hvor. Að lokum
fylgja svo úrslit leikja hjá báðum
flokkum:
4. flokkur karla:
KA-Fylkir
KA-KR
KA-UBK
KA-Selfoss
KA-Víkingur
4. flokkur kvenna:
KA-FH
KA-Víkingur
KA-UMFA
FH-UMFA
UMFA-Víkingur
FH-Víkingur
22:13
19:10
18:8
14:9
21:13
12:9
9:10
16:2
14:8
1:17
10:7
Gönguátak:
, Gengiðfrá
íþróttahöUinni
í kvöld
í kvöld verður í fyrsta skipti
farið af stað með gönguhóp á
Brekkunni en slíkur hópur hef-
ur þegar verið stofnaður í
Glerárhverfí. Gengið verður
frá íþróttahöllinni og lagt af
stað kl. 18.
Þetta framtak er á vegum
trimmnefndar ÍBA og mun ein-
hver frá nefndinni leiða gönguna.
Allir eru að sjálfsögðu hvattir til
að mæta og fá sér röskan göngu-
túr í góðum hópi. Á eftir er síðan
upplagt að bregða sér í sund.
Körfubolti 1. deild:
Yfirburðir Þórsara í 101
stigs sigri á BoMkingum